Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
245. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Leiðtogakjör stjórnarflokksins í Japan:
Nýi forsætisráðherrann tal-
inn leppur tveggja manna
Tókýó. The Daily Telegraph.
FRJÁLSLYNDI demókrataflokkurinn í Japan kýs nýjan flokksleiðtoga og þar
með forsætisráðherra í dag, sunnudag, og talið er fullvíst að Kiichi Miyazawa
verði fyrir valinu. Miyazawa er 72 ára íhaldsmaður og er í raun upp á náð og
miskunn tveggja valdamikilla manna innan stjórnarflokksins kominn.
Eru svartholin
göng til fortíðar?
Svokölluð svarthol í geimnum hafa
lengi verið vísindamönnum ráðgáta. í
grein í nýjasta hefti tímaritsins Nature
heldur Amos Ori, prófessor í eðlisfræði
við California Institute of Teehnology,
því fram að svartholin séu göng sem
hugsanlegur vegfarandi gæti notað til
að ferðast til fortíðar. Ef geimfar væri
sent inn í svarthol væri mögulegt fyrir
það að sleppa við að verða svartholinu
að bráð. Það gæti komið út hinum
megin inn í annan heim, hliðstæðan
okkar, í gegnum hvíthol, sem er and-
stæða svarthols. Ennfremur kæmi til
greina að geimfarið færi út úr göngun-
um á leiðinni að hvítholinu og hafnaði
þá hvar sem er í okkar fortíð. Slíkt
myndi skapa vandamál sem þekkt eru
úr kvikmyndum eins og Tortímandan-
um og Aftur til framtíðar. Geimfari
sem færi þessa leið gæti tekið upp á
því að myrða foreldra sína áður en
þeir hittust og þá risi upp þverstæða
sem ekki yrði svo auðveldlega hægt
að greiða úr.
Menn geta orð-
ið háðir ostum
Eigi menn í erfiðleikum með að vera
án osts þá eru allar líkur á að þeir séu
orðnir ostafíklar. Samkvæmt grein í
Levnedsmiddelbladet hinu danska
verða morfínlík efni til þegar eggja-
hvítuefnin í osti eru melt. Þau líkjast
þeim efnum, endorfinum, sem losna í
líkamanum þegar menn skokka. Eftir
hlaupið skapast vellíðan vegna endorf-
inanna. Samkvæmt könnun danskrar
manneldisrannsóknarstofnunar getur
ostur haft svipuð áhrif. Samkvæmt
þessu geta menn því bæði orðið háðir
hlaupi og osti. Tekið er fram að fíkn
þessi sé á engan hátt sjúkleg eða hættu-
leg.
Kristileg fjár-
festingarstefna
DÓMSTÓLL í Bretlandi hefur vísað á
bug kröfu Richards Harries biskups í
Oxford um að biskupakirkjunni ensku
verði meinað að ávaxta pund sitt með
þeim hætti sem hún hefur gert. Kirkjan
er talin eiga fasteignir og önnur verð-
mæti að andvirði þriggja milljarða
punda (300 milljarða ÍSK). Hefur hún
ávaxtað fé sitt og haft af því góðan
arð. Harries fannst þetta ókristilegt og
í andstöðu við kristna siðfræði. Dóm-
stóllinn vísaði þessu á bug og sagði að
væri fjárfestingarstefnan kristileg út í
ystu æsar gæti kirkjan ekki staðið við
ýmsar lagalegar skuldbindingar sem
hvíldu á henni.
Japanska dagblaðið Mainichi Shimbun
segir að leiðtogakjörið sé aðeins formsatriði
því úrslitin í valdabaráttunni innan flokks-
ins hafi í raun ráðist fyrir tveimur vikum
þegar Shin Kanemaru, sem lýst hefur verið
sem „guðföður” flokksins, kvaðst ætla að
styðja Miyazawa. Kanemaru er ásamt No-
boru Takeshita, fyrrverandi forsætisráð-
herra, valdamestur innan stærstu fylkingar
flokksins.
Þessir tveir menn eru í reynd stjómar-
herrar landsins. Toshiki Kaifu, núverandi
forsætisráðherra, var kjörinn flokksleiðtogi
fyrir tilstilli þeirra og neyddist til að Iáta
af embættinu eftir að þeir hættu að styðja
hann vegna ágreinings um framvarp varð-
andi breytingar á kosningalöggjöfinni, sem
hann beitti sér fyrir. Miyazawa verður einn-
ig skuldbundinn þeim og þarf að taka tillit
til sjónarmiða þeirra til að halda embætt-
inu. Japanskt dagblað birti á dögunum
skopmynd af honum, sem sýnir hann hlýða
skipunum þriggja vitra apa er líkjast Tak-
eshita, Kanemaru og Ichiro Ozawa, fyrrum
formanni flokksins - þ.e. raunverulegu
stjómarherrunum.
Tveir aðrir gáfu kost á sér í leiðtogaemb-
ættið; Michio Watanabe, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, og Hiroshi Mitsuzuka, fyrr-
verandi viðskipta- og iðnaðarráðherra. Þeir
beijast um annað sætið til að tryggja að
stuðningsmenn sínir fái sem flest ráðherra-
embætti.
Takatoshi Amada, prófessor við Iðnaðar-
háskólann í Tókýó, segir að almenningur í
Japan fái í engu ráðið um leiðtogakjörið
og láti sig það því litlu skipta. Þar sé ekki
tekist á um málefni eða stefnumið. Japönsk
dagblöð kvarta yfir því að tveir eða þrír
menn skuli geta valið forsætisráðherra
landsins og segja það skerða lýðræðið. Litl-
ar líkur eru hins vegar á að það breytist á
meðan ekki er hróflað við kosningalöggjöf-
inni, sem er talin valdamönnunum mjög í
hag.
/•
SIGURREIFIR
Rætt við þá
Jón Baldvin
Hannibals-
son og
Hannes
Hafstein
um nýgerð-
an EES-
samning
____ 14
Ue KEMUR
sér HŒST urr
KMRHASPRENGJU?
milljarðar á
VOGARSKÁLUM
viðvaninga 16
HANNMOTAÐI
MENN
c