Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 40
Landsbanki íslands Böggtapóstur um ollt lond PÓSTUR OG SÍMi MORGUNBLADW, AÐALSTRÆTI 6, 101 11EYK.IA VÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, POSTHÓLF 1565 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Rannsókn á slysum meðal barna: Náttúrufræðihús í Vatnsmýrinni: Samkeppni fyrir- huguð á næsta ári Kostnaðaráætlun 834 milljónir SAMSTARFSHÓPUR ríkisins, Reykjavíkurborgar og Háskólans um byggingu náttúrufræðihúss í Vatnsmýrinni leggur til að á næsta ári verði haldin samkeppni meðal arkitekta um teikningu að húsinu. Full- trúar umhverfisráðuneytisins áttu í vikunni fund með umhverfisnefnd Alþingis, þar sem áætlanir um undirbúning byggingarinnar voru kynnt- ar. Umhverfisráðuneytið mun fara fram á það við fjárlaganefnd að framlag til undirbúningsvinnu á næsta ári, sem er 3,5 milljónir í fjár- lagafrumvarpi, verði hækkað í fimm milljónir vegna þess að samkeppn- in verði líklega dýrari en talið var. Að sögn Kristins Helgasonar í umhverfisráðuneytinu er kostnað- aráætlun vegna byggingarinnar 834 milljónir. Áætlað er að vinna að und- irbúningi á borð við samkeppni og aðra hönnunarvinnu næstu þrjú árin, en Kristinn sagði að vegna útlitsins í ríkisfjármálunum myndu fram- kvæmdir varla hefjast fyrr en seinni hluta árs 1994. Þá ætti hönnun og annarri undirbúningsvinnu hins veg- ar að geta verið lokið. Áætlað væri að bygging hússins tæki tvö ár og lyki síðla árs 1996. Náttúrufræðihúsið á að rísa meðal nýrra bygginga Háskóla íslands í Vatnsmýrinni. Húsið á að hýsa Nátt- úrugripasafnið, sem nú er til húsa við Hlemmtorg, aðstöðu til fræðslu og kynningarstarfsemi og Náttúru- fræðistofnun. Ríkið, Reykjavíkur- borg og Háskólinn hafa átt viðræður um að skipta byggingarkostnaði á milli sín. Kristinn Helgason sagði að sú skipting lægi ekki endanlega fyr- ir, en rætt væri um að rikið greiddi 57% og borgin og HÍ 21,5% hvor. Slysatíðni mest í lok vinnudagsins Síld ogstafalogn á Seyðisfirði Morgunblaðið/Þorkell Seyðisfjörður hefur skartað sínu fegursta í blíðviðrinu síðustu daga. Grindvíkingurinn Geirlaugur Jónsson lét fara vel um sig um leið og hann sá um að mata stúlkurnar hjá Dvergasteini á síld. Söltunarkvótinn var að verða búinn og ekkert fyrir fólkið að gera annað en bíða eftir að samið verði um sölu á meiri síld eða að hægt verði að hefja frystingu, en of mikil áta hefur verið í henni til þessa. Verð á skelrækju í Japan hefur lækkað um allt að 15% í haust Innflutning-ur á kaldsjávarrækju fjórðungi meiri nú en í fyrra UMTALSVERT verðfall hefur orðið á skelrækju í Japan nú í haust, 10 til 15% eftir stærð. Verð á pillaðri rækju í Evrópu og Bandaríkjun- um virðist hafa fest sig í sessi á lægri nótunum, meðal annars vegna erfiðs efnahagsástands i helztu markaðslöndunum. Ástæða verðfalls- ins í Japan er framboð umfram eftirspurn, en aukning innflutnings þangað milli ára er 26%. Þar af er aukning héðan 46%. í RANNSÓKN á slysum barna og unglinga, sem skráð voru á slysa- móttöku Sjúkrahúss Keflavíkur- læknishéraðs á siðasta ári, kemur fram að börn á aldrinum 0-4 ára verða í flestum tilfellum fyrir slys- um inni á heimilum, oftast vegna bruna. Börn á aldrinum 10-14 ára slasast flest á íþróttasvæðum eða 25% þeirra sem leituðu til slysa- móttöku sjúkrahússins. Slysatíðni Reykjavík: Hálka olli fjölda um- ferðar- óhappa MIKIL hálka var víða á höfuðborgarsvæðinu aðfara- nótt laugardagsins. Mátti rekja að minnsta kosti tíu umferðaróhöpp í borginni til hálkunnar en engin alvarleg slys urðu á fólki. Mikið eigna- tjón varð. Bílvelta varð við Eskihlíð snemma í gærmorgun og öðr- um bíl var ekið á Ijósastaur við Kleppsveg. LögTeglan í Reykja- vík sagði að þetta hefði verið fyrsti alvarlegi hálkudagurinn en mikið hefði verið um umferð- aróhöpp á fimmtudag og föstu- dag þótt hálkulaust hefði verið þá. I Hafnarfirði rann bíll í ís- ingu og hafnaði inni í hús- garði. Þá var traktorsgröfu í eigu Loftorku hf. stolið frá Garðabæ og henni ekið að Víf- ilsstaðavatni. Þar fannst grafan á hliðinni, töluvert skemmd. Ekki er vitað hvetjir voru þar að verki. — yngstu barnanna er mest frá kl. 14 til 19 og nær hámarki síðdegis. Heildarfjöldi slysa sem skráð voru á slysamóttökunni á síðasta ári voru 2.983 en þar af voru 700 börn á aldrinum 0-14 ára eða tæplega fjórð- ungur hinna slösuðu. Af þeim sem komu á slysamóttökuna vegna lylja- eða efnaneyslu voru flest á aldrinum 0-4 ára. Hras á jafnsléttu er algeng- ast í aldurshópnum 10-14 ára. Yfir sumartímann var helsta ástæða komu unglinga á slysa- móttökuna slys af völdum hnífa^ véla og annarra oddhvassra áhalda. í ald- urshópnum 15-19 ára eru slys vegna ofbeldis nær jafn algeng slysum á íþróttasvæðum. Þórunn Benediktsdóttir hjúkrun- ardeildarstjóri vann rannsóknina, sem var kynnt á ráðstefnu hjúkrun- arfræðinga um helgina. Fyrstu átta mánuði síðasta árs voru flutt inn til Japans 16.037 tonn af kaldsjávarrækju (pandalus bo- realis). Á sama tíma í ár nemur inn- fiutningurinn hins vegar 20.272 tonnum. Grænlendingar hafa verið umsvifamestir á þessum markaði með rúmlega 50% markaðshlutdeild. Sala þeirra af skelrækju hefur nú dregizt saman, en aukning er á inn- flutningi frá öðrum löndum. Kanada og Danmörk hafa tvöfaidað sinn hlut, en Kanadamenn hafa reyndar verið smáir á þessu sviði. Aukning- á innflutningi héðan er 46%, hann fór úr 1.680 tonnum í 2.500 umrætt tímabil, og 36% frá Noregi. Þarna er eingöngu um rækju í skel að ræða og má skýra aukningu á innflutningi meðal annars með aukinni veiði, en einnig með því, að verð á pillaðri rækju hefur verið afar lágt og því hafa menn leitað inn á japanska markaðinn eins og kostur hefur verið. Verð í Japan hefur einn- ig verið hátt og því hvatt til innflutn- ings. Reyndin hefur svo orðið sú, að verðið hefur orðið mörgum pill- unai'verksmiðjum ofviða og rekstri þeirra því verið hætt. Eftirspurn hefur því minnkað og verð lækkað um 10 til 15%, mest á stærri rækj- unni. Magni Þór Geirsson, sölustjóri hjá SH, segir að búast megi við því, að staðan í Japan lagist nokkuð, þegar líða fari á næsta ár. Veiðar á kald- sjávarrækju séu með minnsta móti í desember, janúar og febrúar og eigi það við allar helztu rækjuveiði- þjóðirnar. Hjá okkur bætist svo við, að mörg rækjuskipanna fari yfir á loðnu, þannig að verulega muni draga úr framboði héðan í vetur. Þá megi búast við því að fyrirtæki í pillun ytra nái sér á strik á ný og eftirspurn aukist. Magni segir, að verð á piilaðri rækju sé lágt, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. í haust lyftist verð á smárri rækju Iltillega og hefðu menn þá vonazt til hækkunar á þeirri stærri, en svo hefði ekki orð- ið. Því virtist sem rækjuverð yrði áfram lágt og verðmunur á stórri og smárri pillaðri rækju minnkaði. Mikils bata fyrir okkur væri tæpast að vænta á næstu misserum, bæði vegna bágs efnahags helztu við- skiptaþjóða okkar og vegna gífur- legrar samkeppni heitsjávar- og eld- isrækju, en þar hefði mönnum tekizt að ná upp miklum gæðum og festa sig í sessi á mörkuðunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.