Morgunblaðið - 29.10.1991, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.10.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991 Tyrfingur Einars son - Minning Fæddur 15. júní 1896 Dáinn 19. október 1991 Þú stóðst á tindi Heklu hám og horfðir yfir landið fríða, þar sem um grænar grundir líða, skínandi ár að ægi blám. En Loki bundinn beið í gjóturn, bjargstuddum undir jðkulrótum. Þótti þér ekki ísland þá yfirbragðsmikið til að sjá. (Jónas Hallgrímsson) Þessar ljóðlínur flögra nú m.a. að mér þegar ég minnist tengda- föður míns, Tyrfmgs Einarssonar, fyrrum bónda í Vestri-Tungu í V-Landeyjum. Hann var fæddur í Þúfu í sömu sveit 15. júní 1896. Sonur Önnu Tyrfingsdóttur (f. 13. apríl 1868) Einarssonar frá Jaðri en kona hans var Úlfheiður sú sem borin var vestur í Þykkvabæ, 3 ára, af föður sínum Katli er hann flúði Skaftárelda árið 1873. Faðir Tyrfings var Einar Elnarsson, f. 6. nóvember 1857 í Miðkoti í Þykkvabæ — síðar bóndi í Vestri- Tungu. Hann var af Víkingslækj- arætt, kominn af Brandi Bjama- syni á Víkingslæk í 5. lið. Anna og Einar eignuðust tvo syni auk Tyrfings. Elstur var Einar, f. 2. nóvember 1887 á Krossi í A-Lan- deyjum, bóndi á Sperðli í V-Lan- deyjum, konan hans hét Hólmfríð- ur Jónsdóttir frá Króktúni í Hvol- hreppi, þau eru bæði látin. Yngstur sonanna var Anton Kristinn f. 22. september 1907 í V-Tungu, bóndi á Skeggjastöðum í V-Landeyjum. Konan hans var Vigdís Sigurðar- dóttir frá Háarima i Þykkvabæ, en Anton er látinn. Einnig tóku þau í fóstur Sigurbjörgu Guðmundsdóttur frá Sigluvík. Maður hennar er Felix Þorsteins- son byggingameistari. Þau búa á Ytri-Grund á Seltjarnamesi. Tyrf- ingur fluttist með foreldrum sínum frá Þúfu að Vestri-Tungu alda- mótaárið 1900. Þar ól hann sinn aldur, fyrst í foreldrahúsum og síð- ar sem bóndi frá árinu 1924, en það ár kvæntist hann Þórönnu Helgadóttur frá Skarði í Þykkvabæ. Þau bjuggu í Tungu til ársins 1948 er þau fluttu í Hvol- svöll, þar sem Tyrfingur vann hjá Kaupfélagi Rangæinga. Árið 1953 fluttu þau til Reykjavíkur en þar vann Tyrfingur hjá Mjólkursamsöl- unni til loka starfsævinnar. Þór- anna lést 21. ágúst 1989. Tyrfingur vann foreldrum sínum ungdómsárin, fór til vers í Suður- nes og Vestmannaeyja eins og títt var um unga menn í þá daga. Hann bjó snotm búi, var bjargálna bóndi enda eins gott því það var ekki að hans skapi að vera þiggj- andi. Tyrfingur kom sér vel í starfi, var vel látinn af yfírmönnum sem samstarfsmönnum. Þótt hann kynni vel við sig í þeim félagsskap hygg ég að hann hafi þó alltaf saknað sinnar ágætu Vestri- Tungu. Tyrfingur var iðjumaður, röskur til verka, þoldi ekki leti eða seina- gang, vinnan var fyrir öllu. Honum var sérlega annt um velferð sinna nánustu til hinstu stundar. Hann var skjótráður hugmaður, gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana, var illa við að láta sinn hlut, gekk ekki á aðra, fljótur að sættast og hélt sættir. Hann gat verið snögg- ur upp á lagið. Ekki er hægt að segja að hann hafi verið þolinmóð- ur, en þolinn var hann og þraut- seigur. Við þær aðstæður sem hann bjó við á búskaparárum sín- um, þar sem ár voru óbrúaðar, bæirnir í Króknum stundum um- flotnir vatni svo ófært gat orðið vegna Þverár sem flaut oft á tíðum yfir bakka sína, þar sem t.d. mjólk var flutt á klökkum og svo á bát- kænu yfir Hólsá til Þykkvabæjar, þangað sem mjólkurbíllinn kom, hefur hann oft þurft að hugsa málin og beita kænsku og áræðni. Trú mín er nú sú, að vegna seiglu og dugnaðar þess fyrri tíðar fólks, sem stóð í hinni raunverulegu lífs- baráttu, þá getum við sem yngri erum nú státað af því að eiga Is- land að föðurlandi. Þetta ber að þakka. Tyrfingur var vel látinn maður. Vitna þar best um viðmót þess fólks sem kynntist honum, t.d. næstu nágranna, óskyldra krakk- anna í Eystri-Tungu. Fólk bar traust til hans, t.d. þegar Friðrik Friðriksson kaupmaður í Miðkoti fól honum að sjá um kaup á hrossa- mörkuðum upp á eigin spýtur. Ekki slitnaði heldur vinskapur hans og bátsformannsins gamla úr Vestmannaeyjum. Þóranna og Tyrfingur bjuggu í Vestri-Tungu eins og áður er sagt. Þar eignuðust þau þrjár dætur, þær eru: Helga, gift Kristjóni Hafliðasyni frá Búð í Þykkvabæ. Þau búa á Tjörn í Tykkvabæ, eiga fimm börn og tíu barnabörn. Önna, gift Ingólfi Björgvinssyni frá Ból- stað í Austur-Landeyjum. Þau búa í Reykjavík, eiga fimm börn og fimmtán barnaböm. Hannesína, gift Andrési Eggertssyni frá Sæ- bóli í Haukadal. Þau búa í Kefla- vík, eiga fimm börn, ellefu barna- börn og eitt barnabarnabarn. Af- komendur eru því orðnir 55. Tyrfingur lét stundum þau orð falla „að hann vissi vel að hann væri brostfeldugur maður”. Vissa mín er þó sú að hann þurfi engu að kvíða í þeim efnum. Tyrfingur var trúmaður og lagði ódeigur upp í ferðina, þessa hina síðustu sem aðrar. Hið gullna hlið mun standa honum opið, enda áfangastaður innan grindar, þar sem sitja þær tvær sem hann unni mest, konan hans og móðir. En svona í lokin er rétt að minna okkur sem Landeyjamar þekkja á þá fegurstu fjallasýn - að áliti Tyrfings - sem um getur með því að stauta sig fram úr einu erindi úr Hillingu í Landeyjum eftir Einar Benediktsson: Sem lognslétt haf hvíla Landeyjaþing og leggjast að Fjallanna strondum. Sem safírar greyptir í silfur hring um suðurátt hálfa ná Eyjarnar kring en Þverá að vestan sér byltir í böndum að brotnum og sandorpnum löndum. Ingólfur Björgvinsson Margt er það og margt er það sem minningamar vekur, og þær eru það eina sem enginn frá mér tekur. (Davíð Stefánsson) Nú hefur hann afi Tyrfingur kvatt okkur. Hann lést 19. október síðastliðinn á Droplaugarstöðum, þar sem hann bjó síðustu æviár sín. Hann afí er ein af hetjum þessa lands og hefur lifað tímana tvenna. En aldrei fundum við, eða okkar makar og börn, fyrir því að hann og amma hefðu lifað misjafna tíma, þar sem allsnægtir nútímans voru ekki á hveiju strái. Við munum ávallt minnast afa sem einstaks afa. Samneyti hans við okkur og annað fólk sem hon- um kynntist er best lýst með eft- irfarandi orðum: Aldrei skaltu að leiðum lesti leita í fari annars manns aðeins grafa ennþá dýpra eftir bestu kostum hans. Geymdu ekki gjafir þínar góðum vini - í dánarkrans. (Heiðrekur Guðmundsson) Minningar okkar um afa og ömmu eru einungis góðar, þar sem alltaf var tekið á móti okkur með opnum örmum. Afi var alltaf tilbú- inn að hjálpa okkur, tilbúinn að veita okkur ást og hlýju og alltaf hafði hann eitthvað til að „trakt- era” okkur með. Afi var til í allt, í hófi. Skemmst er að minnast þess að hann tók virkan þátt í gleði og glensi fram á rauðanótt í af- mæli barnabams síns, þá 90 ára að aldri. Þegar við lítum til þessa tíma koma eftirfarandi orð upp í hugann: Þínum anda fylgdi glens og gleði gamansemin auðnu þinni réði, því skaltu halda áfram hinumegin með himnaríkisglens við mjóa veginn. Ég vona að þegar mínu lífi lýkur ég líka verði engill gæfuríkur. Þá við skoðum skýjabreiður saman og skemmtum okkur, já, það verður gaman. (Lýður Ægisson) Umhyggjusemi og manngæska afa og ömmu fyrir öðrum, hefur berlega skilað sér til bestu móður í heimi, hennar mömmu okkar, og nutu afi og amma góðs af því, sérstaklega í ellinni. Allt traust sitt setti afí á mömmu okkar og pabba okkar og voru þau tíðir gest- ir hjá honum á Droplaugarstöðum. Enda fannst afa að mamma og pabbi væru fasti punkturinn í lífí hans. Barnabarnabörn afa voru í sér- stöku uppáhaldi hjá honum. Alltaf Ijómaði afi þegar þau komu til hans og þess er skemmst að minn- ast, þegar hann var veikur, að þegar bamabamabörnin komu til hans, hvarf þreytusvipurinn af afa og andlit hans ljómaði. Afi gladdist alltaf með okkur og það þurfti ekki mikið til að gleðja hann og gera honum til hæfís og átti hann mjög hægt með að umgangast aðra. Við kveðjum nú afa okkar með söknuði í þetta sinn og þökkum honum fyrir allt og allt. Þrúður, Þóranna, Kristín, Ásgerður og Björgvin Njáll. Undirbúningur og framkvæmd gæðastjórnunar í fyrirtækjum Michael JW Gibson, ráðgjafi og framkvæmdastjóri Juran Institute í Evrópu, sem hefur verið leiðandi ráðgjafafyrirtæki á sviði gæðastjórnunar um langt skeið, mun halda eins dags námskeið hér á landi á vegum Stjórnunarfélags íslands í samstarfi við Gæðastjórnunarfélag íslands. Michael JW Gibson hefur starfað sem ráðgjafi í uppsetningu gæðastjórnunarkerfa í tugum fyrir- tækja víðs vegar um heiminn á liðnum árum. Aður en hann hóf störf hjá Juran Institute vann hann sem gæðastjóri hjá Ford-fyrirtækinu á alþjóða- vísu. Gibson hefur kynnst íslensku vinnuumhverfi pg hefur starfað sem ráðgjafi hjá Eimskipafélagi íslands hf. Efni námskeiðsins er: 1. Gæði - stöðugar breytingar. 2. Hvernig hugsum við okkur gæði. 3. Gæðaumbætur - áætlanir og stýring. 4. Ferilstjórnun gæða. 5. Stefnumótandi áætlanir varðandi gæði. 6. Þjálfun starfsmanna. 7. Aðgerðaráætlun - næstu skref. 8. Fyrirspurnir og umræður Námskeiðið verður haldið í Höfða, Hótel Loftleið- um, 6. nóvember nk. kl. 09.00-16.30.^ Skráning fer fram í síma 621066. SFÍ og GSFÍ verð kr. 16.800 Almennt verð kr. 19.700. GSFI Stjómunarfeiag íslands Ánanaustum 15 Simi 621066 * áP Seagate stærsti framleiðandi tölvudiska í heiminum Nýtt viðhorf Meö tilkomu Seagate hafa skapast ný viðhorf á íslenskum tölvumarkaði. Við bjóðum verð sem ekki hafa þekkst áður. , >r ST-3120A 'fitésí-107 MB 32 KB biðminni (cache) sem gefur 9 ms. meðalsóknartíma í vinnslu. 4 MB/ sek. gagnaflutningsgeta. Hljóðlátasti diskurinn á markaðinum (33dB). Smár ( 2,54 x 10,2 x 14,6 cm) en verulega knár. VERÐ AÐEINS 28.116 án/vsk 35.004 r) M ' m/vsk Traust og örugg tölvuþjónusta í 15 ár SKIPHOLT 17 105 REYKJAVÍK SfMI: 91-627333 FAX 91-628622
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.