Morgunblaðið - 17.11.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.11.1991, Blaðsíða 10
DAVÍÐ ODDSSON FORSÆTISRÁÐHERRA SEGIR FREISTANDIAÐ SETJA SMYRSLÁ SÁRIN OG TAKA ERLEND LÁN, EN SKULDASTAÐA (SLANDS LEYFI SLÍKT EKKI - HANN SEGIR GENGISFELLINGU ÚRELT FYRIRBÆRI eftir Agnesi Bragadóttur RÍKISSTJÓRN Davíðs Oddssonar er aðeins rúmlega hálfs árs gömul, en þrátt fyrir skamma stjórnarsetu má segja að ýmislegt hafi á daga hennar drifið og margt hafi reynst henni þyngra í skauti en horfur voru á 30. apríl síðastliðinn, þegar hún tók við völd- um. í þeim efnum er rétt að nefna mikinn aflasam- drátt á því aflaári sem hófst 1. september, frestun álvers og átök innan stjórnarflokkanna og milli þeirra og innan um grundvallarmál eins og fiskveiðistefnu og byggðamál. Nánustu framtíðarhorfur íslensks efnahags- og atvinnulífs eru síður en svo bjartar og enn eitt árið án hagvaxtar blasir við íslendingum. Kjarasamningar eru lausir og á þessari stundu liggur ekkert fyrir um það hvenær samningar takast, né um það á hvaða nótum þeir geta orðið. Davíð Odds- son forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokks- ins ræðir þessi mál í viðtali við Morgunblaðið sem hér fer á eftir. Ef ég byija á því að biðja forsætisráðherra að horfa um öxl og líta rúmlega hálft ár aftur í tímann. Hefur þetta tímabil verið eitthvað í líkingu við þær væntingar sem þú hafðir um þátttöku í landsmálapólitík, þeg- ar þú fórst fram gegn Þorsteini Pálssyni á Landsfundi Sjálfstæðis- flokksins í marsmánuði? „Ég hafði kannski ekki svo mikl- ar væntingar í sjálfu sér, þar sem þetta bar nú allt svo brátt að og það var hreinlega ekki neinn tími fyrir væntingar. Að einu leyti held ég þó að væntingarnar hafi staðist. Ég lagði upp með það, að það væri afskaplega mikilvægt fyrir flokkinn að fá sjálfstraust á nýjan leik, sem hann hafði tapað að vissu marki, sem vonlegt var. Fyrst með hremm- ingunum sem hann gekk í gegnum fyrir kosningarnar 1987, þar sem hann klofnaði og svo aftur þegar hann hrökklaðist úr ríkisstjórn eftir 14 mánaða setu þar. Ég lagði áherslu á að flokkurinn yrði í ríkis- stjórn og að sú ríkisstjórn yrði mynduð hratt. Ég vildi að sú stjórn yrði mynduð með Alþýðuflokki. Allt hefur þetta gengið eftir. Ég taldi afskaplega mikilvægt að forystu- menn flokkanna næðu saman, og þeir hafa náð saman og flokkarnir standa þétt saman í þessu sam- starfi. Ég skal þó viðurkenna að ég vonaðist eftir meiri utanaðkomandi meðbyr en orðið hefur. Ég átti ekki von á því að aflasamdráttur yrði svona mikill og ég trúði því innst inni að allar líkur væru á að álverið kæmi og framkvæmdir hæfust á næsta ári. Ég vissi þó auðvitað að þar gat brugðið til beggja vona.” — Frestun álversframkvæmda, beint í kjölfar ákvörðunar um mikla aflaskerðingu hefur ýmist verið nefnd áfall eða reiðarslag. Við blas- ir mikið erfiðleikatímabil. Verður ekki að rífa upp fjárlagafrumvarpið núna og ráðast á það með niður- skurðarhnífnum? Hvernig hyggst ríkisstjórnin bregðast við? „Það er alveg rétt, að þetta er heilmikið áfall. Það fer nú fram vinna á vegum stjórnarflokkanna til að meta hvernig við stöndum eftir þetta áfall og þeirri vinnu á að ljúka í næstu viku. Þá verður það rætt innan flokkanna hvernig á að bregðast við. Það kann að vera að hagsmunir rekist á í þessu sam- bandi. Annars vegar þurfum við að laga ríkisútgjöldin eftir þetta högg sem frestun álversins var okkur og hins vegar er viðbúið að það verði þrýstingur á ríkissjóð vegna þess áfalls sem sjávarútvegurinn hefur orðið fyrir. Þetta þurfum við að vega og meta. Við getum ekki leiðrétt þessa tvo

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.