Morgunblaðið - 19.02.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.02.1992, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B 41.tbl. 80. árg. MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Miðausturlönd: Palestínumenn ætla ekki að sniðganga friðarviðræðurnar Reuter Mikilvægar forkosningar í New Hampshire Forkosningar demókrata og repúblikana vegna bandarísku forsetakosninganna í nóvember fóru fram í New Hampshire í gær. Síðustu skoðanakann- anir benda til þess að hægrisinninn Patrick Buchan- an fái verulegt fylgi í forkosningum repúblikana en að George Bush forseti haldi þó velli. Paul Tsong- as, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður Massachu- setts, var sigurstranglegastur í forkosningum demó- krata en Bill Clinton, ríkisstjóri Arkansas, kom næstur. Forkosningarnar í New Hampshire eru tald- ar mikilvægar vegna þess að frá árinu 1952 hefur enginn frambjóðandi í forsetakosningum í Bandaríkj- unum náð kjöri án þess að hafa unnið sigur í New Hampshire. Á myndinni greiða íbúar þorpsins Dix- ville Notch atkvæði í forkosningunum. Sakborningarn- ir í Lockerbie- málinu sýndir Blaðamenn fengu í gær að sjá Líbýumennina tvo, sem grunað- ir eru um að hafa grandað bandarískri farþegaflugvél yfir Skotlandi 1988. Mennirnir svör- uðu ekki spurningum blaða- manna. Líbýski dómarinn, sem hefur verið skipaður til að rann- saka málið, sagði að ekki kæmi til greina að framselja mennina til Bandaríkjanna eða Bretlands þar sem það samræmdist ekki líbýskum lögum. Á myndinni er annar mannanna, Ali-Amin Fhimah. Damaskus, Nabisheet í Líbanon. Reuter. Frelsissamtök Palestínu (PLO) sögðust í gær ætla að taka þátt í næstu lotu viðræðnanna um frið í Miðausturlöndum sem hefst í Washington 24. febrúar. Áður höfðu samtökin hótað að sniðganga viðræðurnar til að mótmæla því að ísraelar handtóku tvo menn í samninganefnd þeirra. Israelar svöruðu í gær árásum Hizbollah á norðurhluta Israels með stórskota- og þyrluárásum á Suður- Líbanon. Tugþúsundir stuðningsmanna Hizbollah (Flokks guðs) fylgdu leið- toga sínum, sem Israelar drápu á sunnudag, til grafar í gær og sóru þess eið að hefna hans. Stjórn Hizb- ollah kaus nýjan leiðtoga samtak- anna og varð Sheikh Hassan Nasr- allah fyrir valinu. Hann er 38 ára gamall og hefur verið í nánum Kafbátaá- rekstur við Kóla-skaga Moskvu, Guatemala-borg. Reuter. RÚSSNESKA fréttastofan Inter- fax skýrði frá því í gær að kjarn- orkuknúinn kafbátur undir fána Samveldis sjálfstæðra ríkja hefði lent í árekstri við bandarískan kafbát, sem hefði farið í leyfis- leysi inn fyrir landhelgi Rúss- lands. Rússneska stjórnin hyggst senda Bandaríkjastjórn mótmæli vegna málsins. Fréttastofan sagði að áreksturinn hefði átt sér stað norðan Kóla-skaga í Barentshafi á þriðjudag fyrir viku. Litlar skemmdir urðu á bátunum. „Sú staðreynd að erlendur kafbátur laumaðist inn fyrir landhelgi okkar hlýtur að valda rússnesku stjórninni áhyggjum," hafði fréttastofan eftir yfirstjórn flota Sovétríkjanna fyrr- verandi. Dick Cheney, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, staðfesti í gær að áreksturinn hefði átt sér stað. Hann sagði enga ástæðu til að binda enda á siglingar bandarískra kaf- báta á þessum slóðum þar sem þær væru mikilvægar til að tryggja ör- yggi Bandaríkjanna. tengslum við klerkastjórnina í íran. Hizbollah-skæruliðar gerðu stór- skotaárásir á norðurhluta ísraels og öryggissvæði ísraela innan landa- mæra Líbanons í fyrrinótt en enginn særðist. ísraelar svöruðu þessu með stórskota- og þyrluárásum sem kostuðu fimm ára barn lífið, auk þess sem sex manns særðust. Yasser Abed Rabbou, félagi í framkvæmdastjórn Frelsissamtaka Palestínu, sagði í gær eftir viðræður sendinefndar PLO við utanríkisráð- herra Sýrlands að Palestínumenn myndu taka þátt í næstu lotu við- ræðnanna um frið í Miðausturlönd- um. Áður höfðu Sýrlendingar, Líb- anir, Jórdanir og ísraelar lýst því yfir að þeir myndu senda samninga- nefndir til Washington. Ukraínumenn leggja hald á hluta kj arnorkuflug'hersins hagsmuna myndu þeir ekki rjúfa samstöðu samveldisríkjanna. Úkraínumenn hafa á ptjónunum að koma upp 400.000 manna her og hafa bitist við Rússa um vopnabúnað sovéska hersins, ekki síst Svarta- hafsflotann. Ekkert hafði þó bent til, að þeir ætluðu að rjúfa samkomu- lagið um sameiginlega yfirstjórn yfir kjarnorkuvopnunum en þau eru nú í ijórum samveldisríkjanna, Rúss- landi, Úkraínu, Hvíta Rússlandi og Kazakhstan. -------» ♦ ♦----- Eystrasaltsríkin: Svíar ætla að greiða bætur Stokkhólnii. Reuter. SÆNSKA stjórnin skýrði frá því í gær að hún hygðist greiða Eystrasaltsríkjunum bætur fyrir gullið sem þau áttu í Svíþjóð áður en þau voru innlimuð í Sovétríkin 1940. Svíar létu Sovétmenn hafa gullið eftir innlimunina. Gullið er metið á 275 milljónir sænskra króna, um 2,7 milljarða ÍSK. Margaretha af Ugglas, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði er hún tilkynnti ákvörðun stjórnarinnar á sænska þinginu að ekki hefði enn verið ákveðið hvernig bæturnar yrðu greiddar en tekið yrði tillit til óska Eystrasaltsríkjanna í þeim efnum. fréttastofan Ítar-Tass segir, að Kal- úgín hafi rekið Bashkírov úr starfi fyrir fjórum dögum en Leoníd Krav- tsjúk, forseti Ukraínu, skipað hann aftur í embættið. Vamarmálaráðuneytið í Moskvu hafði ekkert látið frá sér heyra um þetta mál í gær en þessi atburðarás veldur verulegum ugg á Vesturlönd- um. Leggja þau og sérstaklega Bandaríkjastjórn áherslu á, að sov- éski kjarnorkuheraflinn fyrrverandi verði undir einni stjórn og mega lítt hugsa til þeirrar „martraðar", að kjarnorkuvopnin tvístrist með sama hætti og Sovétríkin. Haft er eftir ónafngi-eindum heimildum, að ákvörðun Úkraínustjórnar hafi kom- ið mjög flatt upp á stjórnvöld í Rúss- landi en rússneski vamarmálasér- fræðingurinn Sergei Rogov segir hana ekki hafa komið sér á óvart. Hér sé um að ræða ákveðna þróun í varnarmálastefnu Úkraínumanna. Þeir hafi verið andvígir sameiginleg- um, hefðbundnum herafla og nú sé einnig mikil óvissa um sameiginlega kjarnorkuheraflann. Sergei Shakhrai, aðstoðarforsæt- isráðherra Rússlands, sagði á þingi í gær, að yrðu aðgerðir Úkraínu- manna til að sundra samveldinu væri það alveg víst, „103% öruggt“ eins og hann sagði, að herinn tæki völdin í sínar hendur, ekki aðeins í Rússlandi og Úkraínu, heldur á öllu því svæði, sem áður var Sovétríkin. Sagði hann ekki um annað að ræða en reyna að semja við Úkraínumenn og spáði því, að vegna efnahagslegra Aðstoðarförsætisráðherra Rússlands segir valdarán hersins öruggt brotni samveldið upp Moskvu. Reuter. ÓTTAST er, að ákvörðun Úkraínustjórnar uni að leggja hald á 21 langdræga sprengjuflugvél, sem borið getur kjarnorkuvopn, geti gert að engu samkomulagið um sameiginlega yfirstjórn yfir kjarnorkuher- afla samveldisríkjanna. Yfirmaður úkraínska herráðsins sagði í gær, að flugmennirnir hefðu þegar svarið Úkraínu hollustueiða en aðstoðar- forsætisráðherra Rússlands sagði, að brotnaði samveldið upp væri alveg víst, að herinn tæki völdin. Sprengjuflugvélarnar eru úr 36. flugdeildinni í Úzín í Úkraínu, Moskvudeildinni, sem svo er kölluð, og búnar til að sleppa stýriflaugum með kjarnorkusprengjum. ígor Kal- úgín, yfirmaður flugflotans í kjarn- orkuherafla samveldisríkjanna, ætl- aði í gær að fara til Úzín til við- ræðna við yfirmann stöðvarinnar, Míkhaíl Bashkírov hershöfðingja, en

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.