Morgunblaðið - 01.03.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.03.1992, Blaðsíða 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MARZ 1992 FÉLAG ÍSLENSKRA HUÓMLISTARMANNA 60 ÁRA TAKMARKIÐ ER BETRITÓNLIST - SEGIRBJORN TH. ÁRNASON FORMAÐUR FÍH eftir Svein Guðjónsson Myndir: Sverrír Vilhelmsson ÁRIÐ 1932 var ár mikilla umbrota í íslensku atvinnulífi. Þetta var árið sem Hannibal slóst við atvinnurekendur í flæðarmálinu á Súgandafirði og var fluttur með valdi frá Bolungarvík til Isafjarðar þar sem hann var settur í tugthús fyrir „óspektir", sem verka- lýðsbaráttan var kölluð í þá daga. Bæjar- stjórn Reykjavíkur hélt fund undir lögreglu- vemd og bæjarfógetinn á Akureyri safnaði liði til að beija á verkalýðnum. Um þetta ortu byltingarskáldin Jóhannes úr Kötlum og Steinn Steinarr ódauðleg Ijóð og greini- legt var á öllu að íslenskir launamenn voru að vakna til vitundar um samtakamátt sinn, þar á meðal hljómlistarmenn, sem höfðu lengi staðið í ströngu við að tryggja rétt sinn gagnvart erlendum hljómlistarmönn- um. Sunnudaginn 28. febrúar 1932 blésu þeir til stofnfundar félagsskapar, sem standa átti vörð um hagsmuni þeirra. Enn í dag berst FÍH fyrlr hagsmiinuin íslenskra hljómlistarmanna, þótt baráttan hafi ef til vill tekið á sig annan svip en í árdaga. Um þá baráttu og margt fleira í sögu og starfi félagsins fjallar Björn Th. Árnason, núver- andi formaður FIH, í eftirfarandi samtali við Morgunblaðið, í tilefni af sextíu ára af- mæli félagsins, sem haldið er hátíðlegt í dag, sunnudaginn 1. mars 1992. Björn Th. Árnason formaður FÍH í tónleikasal félagsins við Rauðagerði. Fyrir aftan glittir í stórsveit Tónlistarskóla FÍH. Hyómsveit Bjarna Böðvarssonar frá árinu 1932, stofnári FÍH, en Bjarni var einmitt fyrsti formaður félagsins. Frá vinstri: Kaj Nielsen á trommur, Bjarni Böðvarsson með altó-saxófón, Guðlaugur Magnús- son á trompet, Aage Lorange á píanó og Lárus Ástbjörnsson á fiðlu. Ljúfir tónar berast út í kvöldkyrrðina þegar komið er í hlað í Rauðagerði 27, þar sem Félag íslenskra hljómlistarmanna er til húsa. Það ríkir þarna dálítið sérkennileg og jafn- framt skemmtileg stemmning, sem gefur fyrirheit um betri tíð í íslensku tónlistarlífi. „Hér er spilað næstum allan sólarhringinn," segir Bjöm og það vottar fyrir stolti í röddinni. Úr hveiju herbergi berast tónar nem- anda úr Tónlistarskóla FÍH, og í tónleikasalnum í bakhúsinu er stór- sveit skólans að æfa „Early Aut- umn“, sem stórsveit Woody Herman gerði ódauðlegt á fimmta áratugn- um. Piltamir fara fimlegum höndum um hljóðfæri sín, eins og þeir hafi aldrei gert annað en að spila í fræg- um stórsveitum, og af svip stjómandans, Edward Frederiksen, má ráða að tónlistamám þeirra félaga er að skila sér. „Þeir eru að æfa fyrir afmælis- hátíðina," útskýrir formaðurinn, og bætir við að á hátíðinni í Gamla bíói verði tónlistarþróun siðustu sextíu ára og saga FIH rakin í tali og tón- um. „Við munum kappkosta að gera þessa hátíð sem glæsilegasta og þama koma fram margir af okkar fæmstu atvinnumönnum í tónlist- inni. Við verðum einnig með hátíðar- dagskrá um kvöldið á Hótel sögu þar sem mjög verður vandað til skemmtiatriða," sagði Björn. MARGIR LAGT HÖND Á PLÓGINN Eins og áður segir var Félag íslenskra hljómlistarmanna stofnað 28. febrúar 1932, og var fyrsti for- maður þess Bjami Böðvarsson. Aðr- ir í stjórn vom Theodór Árnason rit- ari og Guðlaugur Magnússon gjald- keri. Varamenn vora kosnir Þórhall- ur Ámason og Láms Ástbjömsson. Um aðdragandann að stofnun félagsins segir Bjöm meðal annars: „Hagsmunir íslenskra hljómlist- armanna á þessum ámm snemst fyrst og fremst um að tryggja rétt þeirra gagnvart erlendum tónlistar- mönnum sem hér voru nokkuð fjöl- mennir og tóku frá þeim vinnu. Þetta sést meðal annars á tillögu sem Bjami Böðvarsson bar fram í lok stofnfundarins þar sem kveðið var á um að banna félagsmönnum FÍH að spila á móti útlendingum nema fyrir fullt gjald samkvæmt gjaldskrá félagsins. Enn þann dag í dag er eitt af hlutverkum félagsins að standa vörð um atvinnulögsögu íslenskra hljóm- listarmanna gagnvart útlendingum, þótt vissulega hafi fleira bæst við og verkefnalistinn er stöðugt að lengjast. Launabaráttan er þar auð- vitað fyrirferðarmikil eins og í öllum verkalýðsfélögum og eilíft baráttu- mál okkar er að bæta aðstöðu ís- lenskra tónlistarmanna og búa í haginn fyrir framtíðina. Á þessum tímamótum er mér bæði ljúft og skylt að minnast þeirra manna, sem barist hafa fyrir hagsm- unum félagsins frá upphafi, en þeir em margir og sjálfsagt of langt mál að nefna þá alla hér. Ég læt því nægja að nefna hér fyrmm formenn félagsins þótt auðvitað hafi margir fleiri lagt hönd á plóginn. Bjarni Böðvarsson var fyrsti formaður FÍH og sat fyrst frá áririu 1932 til 1943, en þá tók Sveinn Ólafsson við í eitt ár. Bjarni tók svo aftur við 1944 til ársins 1949, en þá varð Svavar Gests formaður aðeins 22 ára gamall og sat í eitt ár. Bjarni var svo frá 1950 til 1951 og síðan Svavar frá 1951 til 1953, en þá tók við Þorvaldur Steingrímsson frá 1953 til 1955. Bjarni var þá kjörinn formaður í fjórða sinn, en hann var þá orðinn veikur og var meira og minna rúm- fastur síðari hluta sumarsins það ár. Stjórnarfundir vom haldnir við sjúkrabeð hans, því þrátt fyrir veik- indin áttu félagsmálin hug hans all- an. Bjarni lést á árinu, á 55. afmæl- isdegi sínum þá um haustið 1955. Gunnar Egilsson, sem hafði unnið mest með Bjarna í veikindum hans, gegndi hlutverki formanns fram að næsta aðalfundi og var þá kjörinn formaður og sat til ársins 1960. Þá tók Svavar Gests aftur við stjórnar- taumunum og var formaður FÍH til ársins 1968, en þá var Sverrir Garð- arsson kjörinn formaður og sat hann samfleytt í tæp tuttugu ár, eða til ársins 1987. Allir þessir menn hafa markað djúp spor í sögu félagsins, svo og fjölmargt samstarfsfólk þeirra og á þessum tímamótum minnumst við alls þessa fólks með þakklæti fyrir það starf sem það hefur unnið í þágu félagsins." HÚSNÆDISKAUPIN VIÐ RAUDAGERDI GÆFUSPOR Hér gefst ekki tóm til að rekja sögu FÍH í smáatriðum eða baráttu- mál í gegnum árin, en við spyijum Björn um starfið síðustu árin, frá því hann tók við formennsku árið 1987: „Það hefur vissulega margt áunn- ist á liðnum ámm. Eg er til dæmis sannfærður um að það hafi verið mikið gæfuspor þegar ákveðið var á félagsfundi árið 1989 að festa kaup á þessum húseignum hér í Rauða- gerði. Með því var starfsemi Tónlist- arskólans sameinuð annarri starf- semi FÍH og þetta hefur gjörbreytt ásýnd og ímynd félagsins útávið, auk þess sem þetta hefur þjappað tónlist- armönnum saman. Menn sjá nú hvað samtakamátturinn fær áorkað ef honum er beint í ákveðinn farveg, þótt enn séu nokkrir, því miður, sem streðast við og telja hag sínum betur borgið utan félagsins. En það er önnur saga. Sannleikurinn er nú samt sá, að við höfum verið að koma til móts við sérþarfir hinna ýmsu ólíku hópa innan félagsins til að auðveldara sé að vinna að sérhagsmunamálum og þá um leið að um þau verði fjallað á faglegan máta. Nýverið stofnuðum við til dæmis rokkdeiid innan félags- ins, til viðbótar við kennaradeild, djassdeild og einleikaradeild, sem fyrir voru. Rokkdeildin er undir for- mennsku Stefáns Hilmarssonar söngvara og aðrir í stjórn hennar em Grétar Örvarsson, Magnús Kjartansson, Andrea Gylfadóttir og Gunnar Hrafnsson, sem er jafnframt fulltrúi rokkdeildar í aðalstjórn fé- lagsins. Starf þessarar deildar er þegar farið að skila árangri, sem kemur meðal annars fram í sam- vinnu við Æskulýðsráð um rekstur á „Hinu húsinu“, þar sem innréttuð hafa verið æfingaherbergi. Starfs- maður hefur verið ráðinn til að hafa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.