Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/LESBOK 80. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Fiskveiðar á Nýfundnalandsmiðum: EB kallar flotann heim sýni Kanada- menn fram á ofveiði Lúxemborg. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SJÁVARUTVEGSRÁÐHERRAR Evrópubandalagsins (EB) vísuðu í gær á bug ásökunum Kanadamanna um ofveiðar togara frá banda- lagsríkjunum undan ströndum Nýfundnalands. Manuel Marin, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmdastjórn EB, sagði hins vegar að tækist Kanadamönnum að sýna fram á að veiðar EB-skipanna hefðu leitt til hruns fiskistofna myndi bandalagið kalla flotann heim. I yfirlýsingu sjávarútvegsráðherranna segir að ldutdeild EB í öllum afla á Nýfundnalandsmiðum sé einungis 10% og skuldinni vegna minnkandi afla verði þess vegna ekki skellt á flota bandalagsins. Ráðherrarnir krefjast þess að nú þegar verði kallaður saman skyndi- fundur í vísindanefnd Norðvestur- Atlantshafsnefndarinar (NAFO) til þess að hægt verði að komast að hinu sanna í þessu máli. Manuel Marin, framkvæmdastjóri fiskimála innan EB, sagði að færi svo að niðurstöður vísindanefndarinnar væru í samræmi við fullyrðingar Kanada myndi EB tafarlaust hætta veiðum á svæðinu og kalla flota sinn heim. I yfirlýsingu ráðherranna er þeirri ósk beint til framkvæmda- stjórnarinnar að hún undirbúi tillög- ur um að draga að hluta til úr veið- um EB á þorskstofninum á NAFO- svæðinu norðanverðu. Samkvæmt óstaðfestum heimildum í Lúxem- borg gæti sá niðurskurður numið allt að 30% af einhliðakvótum EB fyrir þetta ár sem eru 26.300 tonn, þrátt fyrir veiðibann. í staðinn fengi floti EB aðgang að kanadískum höfnum og samskiptum EB og Kanada yrði komið í eðliiegt horf. í yfirlýsingu sem John Crosbie, sjávarútvegsráðherra Kanada, birti í gær eru ásakanir um ofveiðar EB ítrekaðar og bent á að frá árinu 1986 hafi EB verið úthlutað 120 þúsund tonna kvóta innan NAFO en á sama tíma hafi afli bandalags- flotans verið rúmlega 500 þúsund tonn. Á fundi sínum lögðu sjávarút- vegsráðherrarnir blessun sína yfir áform um breytingar á fiskveiði- stefnu EB sem gera ráð fyrir að jafnvægi verði komið á miili sóknar- getu fiskiskipaflotans og stærð fiskistofna. í því skyni leggur fram- kvæmdastjórnin til að flotinn verði minnkaður um 40%. Jafnframt samþykktu þeir í aðal- atriðum að nýrri sjávarútvegsstefnu yrði fylgt eftir með því að láta gervi- hnetti fylgjast með flotanum. Danir og Þjóðveijar andæfðu þeim áform- um. Blóðugátöká Gaza-svæðinu Reuter Liðsmenn svonefndra Hamas-bardagasveita samtaka íslamskra strangtrúarmanna á Gazasvæðinu í vígahug við upphaf mótmælagöngu í Nuseirat flóttamannabúð- unum í gær. Blóðug átök hafa átt sér stað á Gaza undanfarna daga. í gærmorgun fundust þar lík þriggja manna sem grunaðir voru um samstarf við ísraela. Jeltsín styrkir stöðu sína andspænis fulltrúaþin&inu Moskvu. Reuter. ■JR-i ^ J GENNADÍJ Búrbúlis, einn nánasti samstarfsmaður Borís Jeltsíns, forseta Rússlands, fékk nýjan starfa í gær. Með tilskipun forset- ans var Búrbúlis sviptur embætti aðstoðarforsætisráðherra en heimildarmaður Reutei’s-frétta- stofunnar segir að hann verði nú yfirmaður allra stofnana sem Líbýustjórn hót- ar gagnaðgerðum Trípólí. Reuter. STJÓRN Muammars Gaddafis Líbýuleiðtoga hafði í hótunum í gær við erlenda stjórnarerindreka í Trípólí og gaf fulltrúi líbýska utanrík- isráðuneytisins í skyn að gripið yrði til gagnaðgerða gegn ríkjum sem tækju þátt í refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna gegn Líbýu. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) samþykkti í vikubyijun að grípa til refsiað- gerða gegn Líbýu þar sem stjórnin j Trípólí varð ekki við kröfu um að* framselja Gaddafi hryðjuverkamennina tvo sem sagðir eru bera ábyrgð á sprengingu í bandarískri breiðþotu yfir Lockerbie í Skotlandi um jólaleytið 1988 og franskri breiðþotu yfír Níger 1989, en 441 maður beið bana er þotunum var grandað. Við bænagjörð í mosku í Trípólí í gær, sem sýnd var í beinni sjón- varpsútsendingu, sagði bænaprest- urinn að fulltrúar erlendra ríkja sem stutt hefðu samþykkt öryggisráðsins væru í lífshættu. Krafðist hann þess að stjórnmálasambandi við viðkom- andi ríki yrði slitið og sendiráð þeirra og eigur erlendra fyrirtækja í land- inu tekin eignarnámi. Embættismaður sagði að „kröfur fjöldans væru enn sem komið væri ekki opinber stefna". Menn sem sér- fróðir eru um líbýsk málefni sögðu hins vegar engan vafa leika á því að mótmæli og spellvirki við erlend sendiráð í Trípólí í fyrradag og mót- mæli við moskurnar í gær hefðu verið skipulögð af yfirvöldum. I gær hafði vopnaður vörður tekið sér stöðu við nokkur valin sendiráð til að koma í veg fyrir árás á þau. heyri undir forsetann, lögreglu, öryggislögreglu og njósna erlend- is. Talið er að með þessari og öðrum tilfæringum vilji Jeltsín treysta stöðu sína og sinna manna fyrir mikilvægan fund fulltrúa- þings Rússlands á mánudag. í tilskipun Jeltsíns segir að Búrb- úlis muni bera ábyrgð á stórnmála- legri hlið umbóta ríkisstjórnarinnar. Á fimmtudag hafði Jeltsín vikið Jeg- or Gajdar fjármálaráðherra úr emb- ætti en jafnframt gefið skýrt til kynna að hann tæki að sér yfirstjórn efnahagsumbóta. Rússnesk blöð sögðu að Jeltsín hygðist með þessu þagga niður í gagnrýnendum ríkis- stjórnarinnar. Fulltrúaþing Rússlands getur hlut- ast til um skipan ríkisstjórnarinnar og búist var við að Gajdar og Búrbúl- is kynnu að verða fyrir barðinu á því. Er talið Ijóst að Jeltsín vilji tryggja stöðu sinna nánustu sam- starfsmanna fyrir þingfundinn á mánudag. Jeltsín undirritaði jafnframt til- skipun í gær þar sem hann gerir sjálfan sig að yfírmanni þjóðarörygg- isráðs Rússlands. Jeltsín er jafnframt forsætis- og varnarmálaráðherra. Þá tóku Rússar í sínar hendur sovéskar landamærasveitir í þremur löndum, Armeníu, Azerbajdzhan og Georgíu. Jeltsín hótaði því í gær að Rússar myndu eigna sér Svartahafsflotann ef Úkraínumenn reyndu að sölsa hann að mestu undir sig. Vladímír Shljaposhníkov, talsmaður Leóníds Kravtsjúks, forseta Úkraínu, sagði yfirlýsingu Jeltsíns undarlega og kvað Úkraínumenn ekki vilja ná yfir- ráðum yfir öllum flotanum heldur einungis þriðjungi hans. James Baker utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Vladíinír P. Lúk- ín sendiherra Rússlands í Washington undirrituðu í gær samkomu- lag ríkjanna um samstarf á sviði efnahagsmála. Er það liður í víð- tækri aðstoð Bandaríkjamanna við fyrrum lýðveldi Sovétríkjanna. Bardagar blossa í Króatíu: Friðagæsluliðar SÞ stía deiluaðilum í sundur Belgrað. Reuter. HARÐIR bardagar brutust út í Króatíu i gær, daginn áður en alþjóðleg- ar sveitir Sameinuðu þjóðanna (SÞ) liefja þar friðargæslustörf. Þá bloss- uðu ofbeldisverk upp í grannríkinu Bosníu-Herzegóvínu og báðu yfir- völd þar um aðstoð SÞ til að koma í veg fyrir borgarastyrjöld. landamæra Bosníu-Herzegóvínu. I dag koma fyrstu liðsmenn friðar- gæslusveita SÞ til Króatíu en þeim er ætlað að framfylgja vopnahléi sem samkomulag varð um eftir harða bardaga króatískra þjóðvarðliða og serbneska sambandshersins. Þegar gæslusveitirnar verða fullskipaðar telja þær 14.000 menn. Samkvæmt upplýsingum yfirvalda í Króatíu féllu 12 og 28 særðust í átökum í borginni Osijek í norðaust- urhluta landsins, en sprengjur féllu m.a. á sjúkrahúsi borgarinnar. I borginni Valpovo sem et' 30 km vestur af Osijek féllu 5 og 10 særð- ust. Þá sagði sjónvarpið í Belgrað að tveir hefðu fallið skammt innan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.