Morgunblaðið - 14.04.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.04.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B 88. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Neil Kinnock segir af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins: London. Reuter, “The Daily Telegraph. NEIL Kinnock sagði í gær af sér sem leiðtogi Verkamannaflokks- ins breska og sagðist myndu beita sér fyrir því að eftirmaður hans yrði kosinn eins fljótt og unnt væri eða ekki síðar en í júní. Skömmu síðar sagði Roy Hattersley af sér varaformennsku. Ákvörðun Kinnocks kom ekki á óvart en hann hafði gegnt starfi flokksleiðtoga í níu ár. Verka- mannaflokkurinn hefur tapað fernum kosningum gegn íhalds- flokknum í röð og hefur Kinnock leitt flokkinn í þeim tveimur síð- ustu. Kinnock er annar tveggja flokksforingja sem ekki hafa kom- ist í stól forsætisráðherra í langri leiðtogatíð sinni; hinn var Hugh Gaitskell sem var flokksleiðtogi 1955-63. í dagblaðinu The Daily Telegraph í gær sýndi að þrátt fyrir lang- vinna efnaliagskreppu og að flokk- urinn hefði varpað fyrir róða flest- um „vinstri“-málum sínum hefur honum ekki tekist að auka traust sitt meðal breskra kjósenda. Sjá „Miklar breytingar á bresku . . .“ á bls. 29. Reuter Þingmenn deila hart á rússneska þinginu en inyndin var tekin á þingfundi í gær og ríkti þar upplausnarástand. Ráðherrar í ríkisstjórn Boris Jéltsín forseta báðust lausnar í gær en liann fékk þá til að fallast á að fresta afsögnum sínum. Fulltrúaþingið dregur broddinn úr efnahagsstefnu rússnesku stjórnarinnar: Kennir „hægri- pressunni“ um í afsagnarræðu kenndi Kinnock dagblöðum sem styðja íhalds- flokkinn um ófarir sínar, en þar mun hann einkum hafa átt við Sun, Daily Express og Daily Mail. Sir Nicholas Lloyd ritstjóri Daily Express sagði að Kinnock kynni greinilega ekki að taka ósigri og hann væri kjáni ef hann tryði því raunverulega að blöðin hefðu ráðið því hvernig þjóðin kaus. Áformað var að halda þing flokksins í Blackpool í haust en Kinnock sagðist myndu beita sér fyrir því að aukaþing yrði í júní þar sem ný forysta flokksins yrði valin. Flestir telja líklegast að John Smith, sem verið hefur fjármála- ráðherra í skuggaráðuneyti Verk- amannaflokksins, verði næsti leið- togi og, annaðhvort Tony Blair, talsmaður flokksins í atvinnumál- um, eða Gordon Brown, talsmaður hans í viðskipta- og iðnaðarmál- um, verði varaformaður. Báðir eru þeir sagðir styðja Smith til forystu. Erfið verkefni bíða nýrrar for- ystu Verkamannaflokksins en hann hefur ekki átt aðild að ríkis- stjórn síðan 1979 og ekki fengið yfir 40% atkvæða í sex kosningum í röð. Skoðanakönnun, sem birtist Ráðherrar rjúka af þing- fundi og biðjast lausnar Moskvu, Washington, Búdapest. Reuter. RÁÐHERRAR í ríkisstjórn Rússlands strunsuðu út af fundi fulltrúa- þings landsins í gær til að mótmæla ákvörðunum þingsins sem þeir telja að torveldi efnahagsumbætur. Ráðherrarnir hafa beðist lausnar en Boris Jeltsín forseti fékk ráðherra sína til að fallast á að fresta afsögnum sínum og sitja áfram meðan fulltrúaþingið kæmi saman og hvatti jafnframt þingmenn þar til að endurskoða afstöðu sína. Jegor Gaídar aðstoðarforsætis- ráðherra sagði ákvörðun fulltrúa- þingsins á laugardag hafa gert stjórninni ókleift að halda áfram umbótastarfí sínu. „Eftir að hafa gert okkur grein fyrir því að við getum ekki framfylgt vilja fulltrúa- þingsins ... sjáum við okkur til- neydda til að biðja forsetann um að fallast á afsagnarbeiðni ríkis- stjórnarinnar," sagði Gaídar við blaðamenn. Aðspurður um hvoit til greina kæmi að draga afsagnirnar til baka sagði hann það vissulega koma til greina ef þingið breytti afstöðu sinni eða forsetinn gerði stjórninni með einhveijum ráðum kleift að framfylgja stefnu sinni. í trúnaðarskjali sem dreift var á þinginu fyrir atkvæðagreiðsluna, og lekið var til íjölmiðla, sögðu ráðherr- ar að samþykkti þingið að draga úr umbótum myndi það eyðileggja efnahagsstefnu stjórnarinnar. Rúss- land myndi einangrast frá efnahag- skerfi heimsins og sitja uppi með Liechtenstein með landa- kröfur á hendur Tékkum TÉKKÓSLÓVAKIA á nú enn einu sinni yfir höfði sér útþenslu- stefnu erlends ríkis. I þetta sinn er það hvorki Rússland í austri né Þýskaland í norðri sem ógna Tékkóslóvakíu heldur Stórher- togadæmið Liechtenstein, að því er fram kemur í breska dagblað- inu The Independent. Liechtenstein gerir kröfu til 1.600 ferkílómetra svæðis í Tékkóslóvakíu, sem er tíu sinnum stærra en hertogadæmið. Svæðið er í Bæheimi og Mæri og Liec- htensteinbúar segja það erfðaeign Hans-Adams II, stórhertogans af Liechtenstein. Landsvæðið komst í eigu forfeðra hans á sautjándu öld en stjórnvöld í Tékkóslóvakíu gerðu það upptækt árið 1919. Þegar stjórnin í Tékkóslóvakíu tók að skila eignum, meðal annars jörðum, til fyrrverandi eigenda lögðu Liechtensteinbúar fram kröfu sína. Tékkneska stjórnin gæti hlegið að kröfunni og látið hana sem vind um eyru þjóta. Liechten- steinbúum er hins vegar full al- vara og hafa sýnt klærnar. Þeir eru aðilar að Fríverslunarbanda- lagi Evrópu (EFrA) og hafa hótað að fresta gildistöku nýs samnings milli Tékkóslóvakíu og bandalags- ins ef kröfu þeirra verður ekki svarað. Utanríkisráðherra Tékkó- slóvakíu, Jiri Dienstbier, hefur sagt að tékkneska stjórnin sé reiðubúin að semja um þetta mál. úrelt kerfi miðstýringar og án er- lendra fjárfestinga. Lánardrottnar myndu krefjast tafarlausrar endur- greiðslu milljarða dollara, sem búið væri að semja um skuldbreytingu á, og boðaðri aðstoð Vesturlanda, að upphæð 24 milljarða dollara, væri stefnt í tvísýnu. Auk þess að gera breytingar á efnahagsstefnu stjórnarinnar, sern hlotið hefur hrós á Vesturlöndum og liðkaði fyrir ijárhagsaðstoð, var Jeltsín einnig sviptur því valdi að geta skipað ráðherra sjálfur. Hann gegnir nú stöðu forsætisráðherra samhliða forsetaembættinu. Harðlínumaðurinn Nikolaj Ríjab- ov, sem er varaforseti fulltrúaþings- ins, sagði i gær að ákvörðun þings- ins yrði ekki endurskoðuð og þing- menn samþykktu í gær að taka ekki upp umræðu um efnahagsmál að nýju. Ryabov sagði stjórnarand- stöðuna vera reiðubúna að mynda ríkisstjórn og axla ábyrgð á efna- hagsmálum ef til þess kæmi. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta, sagði í gær að bandarísk stjórnvöld væru „mjög áhyggjufull" vegna þróunarinnar í Rússlandi. Hann sagðist þó vona að pólitískur stöðugleiki kærriist á að nýju í lýðveldinu. Fjármálamenn frá fimmtíu ríkj- um komu í gær saman í Búdapest til að sitja fyrsta ársfund Uppbygg- ingar- og þróunarbanka Evrópu. Jacques Attali, formaður banka- stjórnar,' sagði stuðning við ríki Austur-Evrópu háðan því að haldið yrði áfram að treysta þar lýðræði og fijálst markaðskerfi. „Einungis þær ríkisstjórnir eiga að njóta að- stoðar sem fetað hafa braut um- bóta,“ sagði Attali og tók fram að það ætti ekki hvað síst við um Rúss- land að breytingarnar yrðu að vera ákveðnar ef alþjóðieg efnahagsað- stoð ætti að koma til. » ♦ ♦ Atgervis- flótti frá Færeyjum Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, fréttaritara Morgrmblaösins. Efnahagskreppan í Færeyjum hefur leitt til brottflutnings í stór- um stíl og eru það einkum menntamenn og fólk með sér- þekkingu sem rær á önnur mið. Félagsfræðingurinn Jogvan Morkore segir í samtali við danska blaðið Berlingske Tidende í gær, að fólksflóttinn frá Færeyjum sé af sömu stærðargráðu og búast megi við í löndum þar sem styijöld eða hungursneyð sé viðvarandi. Tæplega tvö prósent þjóðarinnar flytjist brott á ári. Tommy Petersen, forstöðumaður færeysku félagsmálastofnunarinnar, segist ekki hafa upplifað jafn mikinn fólksflótta frá því á atvinnuleysisár- unum á sjötta áratugnum er Færey- ingar sóttu í stórum stíl til Islands í atvinnuleit. Jogvan Morkore segir ennfremur í viðtalinu við Berlingske Tidende að samfélagslegt hrun á borð við það sem varð i Austur-Evrópu nýverið eigi sér nú stað í Færeyjum. Efna- hagskreppan eigi eftir að versna til muna og eini munurinn á Færeyjum og Austur-Evrópu sé sá að þar eystra hafi ráðamenn verið settir af.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.