Morgunblaðið - 15.04.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.04.1992, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 89. tbl. 80. árg. MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Lockerbie-málið: Öryggisráðið ákveður að fresta ekki refsiaðgerðum Ilaag, Kairó. Reuter. v Uaag, REFSIAÐGERÐIR Sameinuðu þjóðanna gegn Líbýu tóku gildi í nótt, en í þeim felst m.a. að öll flugumferð til og frá landinu verður stöðvuð. Oryggisráðið sat á fundi í gærkvöldi og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væru rök fyrir að fresta refsiaðgerðunum, sem samþykktar voru fyrir tveimur vikum til að þrýsta á um framsal tveggja manna sem sannað þykir að beri ábyrgð á sprengingunni í Pan Am-þotu yfir Lockerbie árið 1988, er 270 manns biðu bana. Vilja Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar draga þá fyrir rétt á Vesturlöndum. Líbýumenn vísuðu málinu til Alþjóðadómstólsins i Haag í kjölfar ákvörðunar Öryggisráðsins en hann hafnaði kröfu þeirra síðdegis í gær. Forseti Alþjóðadómstólsins, Jap- aninn Shigeru Oda, sagði réttinn hafa komist að þeirri níðurstöðu með Karabakh: Þingforset- inn skotinn til bana Moskvu. Reuter. FORSETI þingsins í Nagorno- Karabakh var í gær skotinn til bana á heimili sínu í höfuðborg héraðsins, Stepanakert, að því er Interfax-iréttastofan hafði eftir talsmanni þingsins. Ekki er vitað hverjir stóðu að baki tilræðinu, en þingforsetinn, Artur Mkrtsjían, var Armeni. Fimmtán hundruð manns hafa fallið í deilum Armena og Azera um yfirráð í Nagorno-Karabakh á síð- ustu fjórum árum. Héraðið er stað- sett í Azerbajdzhan en er að mestu byggt Armenum. Jtar-Tass-fréttastofan sagði í gær að leiðtogar á armenska þinginu hefðu komið saman til neyðarfundar er fregnir bárust af tilræðinu og ákveðið að senda hóp sérfræðinga til Nagorno-Karabakh til að rann- saka málið. í tilkynningu frá innan- ríkisráðuneyti Karabakh kemur fram að litið er á morðið á þingforsetanum sem pólitískt tilræ'ði og leitin að „hryðjuverkamönnimum" væri hafin. Talið er óhjákvæmilegt að þetta mál verði til að auka spennu milli Armena og Azera enn frekar en ítrekaðar tilraunir til að koma á vopnahléi í Nagorno-Karabakh að undanförnu hafa mistekist. atkvæðum 11 dómara gegn 5 að þau efnislegu rök væru ekki fyrir hendi í málatilbúnaði Líbýumanna er rétt- lættu það að dómurinn beitti valdi sínu til að vernda hryðjuverkamenn- ina. Með úrskurðinum var ljóst að Líbýumenn kæmust ekki undan refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna og var honum fagnað af bandarísk- um yfirvöldum. Sagði George Bush, Bandaríkjaforseti, að þetta væru „góðar fréttir" og James Baker utanríkisráðherra sagðist mjög ánægður með að Alþjóða dómstóll- inn reyndi ekki að grípa inn í ákvarðanir Sameinuðu þjóðanna. I gær sagði Esmat Abdel-Maguid, framkvæmdastjóri Arababandalags- ins, að Möltumenn hefðu samþykkt að taka við líbýsku léyniþjónustu- mönnunum og réttarhöld yfir þeim gætu farið fram þar í landi líkt og Líbýumenn hafa boðið. Embættis- menn í Valetta staðfestu það en sögðu að yfirvöld hefðu sett þann fyrirvara að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti þessa ráðstöf- un. Bandarískir og breskir embættis- menn sögðu þetta nýja tilboð Líbýu- manna ekki ganga nógu langt til þess að refsiaðgerðum yrði frestað. Vesturveldin hafa hafnað öllum til- lögum sem ekki korna til móts við þá kröfu að mennirnir verði dregnir fyrir rétt í Bandaríkjunum eða Bret- landi. Líbýumenn lýstu í gær yfir þjóð- arsorg til þess að minnast þeirra er biðu bana í loftárás Bandaríkja- manna árið 1986. Árásirnar voru gerðar vegna sprengjutilræðis í diskóteki í Berlín, sem íjölsótt var af bandarískum hermönnum. Síðar þótti sýnt að líbýskir leyniþjónustu- menn hefðu tæpast átt aðild að því tilræði. Að sögn fréttastofunnar Jana var allt síma- og fjarskiptasamband við umheiminn rofið, einnig samgöngur á sjó, landi og í lofti, í sólarhring í virðingarskyni við þá sem létust í loftárásunum 1986. írakar lýstu í gær stuðningi við Líbýumenn í deilum þeirra við Vest- urlönd vegna Lockerbie-málsins. Reuter. Finnskir friðargæslu- liðar til Króatíu Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna streyma nú til Króatíu. Á myndinni má sjá finnska friðargæsluliða ganga frá borði á flugvellin- um í Ljubljana í Slóveníu en þaðan héldu þeir áleiðis til Zagreb í Króatíu. Verður verkefni þeirra næstu dagana að setja upp búðir fyrir þær sveitir sem enn eru ókomnar, en alls verða sendir fjórtán þúsund friðargæsluliðar til landsins. Rússland: Þingið leggur blessun sína yfir áframhaldandi umbætur Moskvu. Reuter. FULLTRÚAÞING Rússlands samþykkti í gær í grundvallaratriðum drög að ályktun sem gerir stjórn landins kleift að halda áfram róttæk- um umbótum í efnahagsmálum og liðka fyrir erlendri fjárhagsaðstoð. I ályktuninni er cinnig kveðið á um að Borís Jeltsín forseti hafi vald til að skipa sjálfur ráðherra í stjórn sína til 1. desember, eins og hann hafði óskað eftir. Þingið samþykkti drögin með 530 atkvæðum gegn 236. Þar er lýst yfir stuðningi við efnahagsstefnu stjórnarinnar í „grundvallaratriðum" og með því orðalagi er þingmönnum gert kleift að leggja fram breyting- artillögur áður en fjallað verður um ályktunina í smáatriðum í dag. EES-samningur staðfestur Brusscl. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Aðalsamningamenn Evrópubandalagsins og Frí- verslunarbandalags Evrópu staðfestu í gær samninginn um Evrópskt efnahagssvæði. Samn- ingaviðræðunum er þar með lokið en töluverð vinna er enn eftir áður en hægt verður að undirrita samninginn. Samningamennirnir staðfestu átta ein- tök af samningnum, eitt fyrir hvert aðildarríkja EFTA og eitt fyrir EB. Athöfnin tók rúmar tvær klukkustundir enda er giskað á að samanlagt hafi samningamennirnir skrifað upphafsstafi sína um það bil tvö þúsund sinnum. Á næstu dögum verður tek- in ákvörðun um það hvort samningurinn verður undirritaður 1. eða 11. maí. Á myndinni má sjá Svíann Franz Belfrage setja upphafsstafi sína á samninginn. Reuter. Rússneska stjórnin lagði fram afsagnarbeiðni á mánudag eftir að kommúnistar og þjóðernissinnar á fulltrúaþinginu höfðu knúið fram ályktun sem stjórnin taidi torvelda frekari efnahagsumbætur og tak- markaði völd Jeltsíns til að skipa ráðherra. Flestir túlka ályktunina frá í gær þannig að stjórnin geti í raun sniðgengið fyrri ályktunina, sem kvað meðal annars á um aukna landbúnaðarstyrki og aukin útgjöld til iðnfyrirtækja. Búist er við að stjórnin afturkalli afsagnarbeiðnina. Athygli hefur vakið að Borís Jelts- ín hefur ekki setið fundi þingsins frá því á laugardagsmorgun og hefur hvorki lýst yfir stuðningi við stjórn sína né fallist á afsagnarbeiðni ráð- herranna. Talið er að forsetinn vilji með fjarveru sinni sýna vanþóknun sína á þinginu, sem var myndað þegar kommúnistar voru við völd. Ennfremur er talið að hann sé að sýna fram á að hann geti hvenær sem er grafið undán ákvörðunum þingsins með því að efna til þjóðarat- kvæðagreiðslu. Jeltsín aflýsti einnig fundi með Nicholas Brady, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sem var í heimsókn í Moskvu í gær. Brady ræddi þess í stað við Jegor Gajdar, sem hefur haft yfirumsjón með framkvæmd umbótastefnu stjórnarinnar. Fjár- málaráðherrann kvaðst að loknum fundi þeirra hafa trú á að Rússar myndu fá erlenda efnahagsaðstoð þótt rússneska þingið hefði tekið „nokkur skref afturábak". fjöldahreyfing umbótasinna, Lýð- ræðislegt Rússland, sem lætur til sín taka víða um landið, byijaði í gær að safna undirskriftum tii að knýja á um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort forsetinn skuli hafa völd til að stjórna efnahagsmálunum með tilskipunum. Hreyfingin vill enn- fremur að efnt verði til þingkosninga fljótlega eftir þjóðaratkvæðagreiðsl- una, sem yrði mikið áfall fyrir kommúnista sem náðu margir hveij- ir kjöri í dreifbýliskjördæmum án mótframboða. Fulltrúaþingið lagði í gær blessun sína yfir þá ákvörðun íbúa Péturs- borgar að taka upp fyrra heiti borg- arinnar í stað Leníngrad eins og hún hét á valdatíma kommúnista. Tveir þriðju þingsins þurftu að samþykkja nafnbreytinguna og það tókst ekki fyrr en við þriðju atkvæðagreiðslu eftir að umbótasinnar frá Pétursborg höfðu gengið af fundi og hótað að mæta ekki aftur fyrr en málið yrði leyst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.