Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992
Sönghátíð
í Kópavogi
SÖNGHÁTÍÐ í tilefni „Árs
söngsins" og sumarkomunnar
verður haldin í Kópavogi,
íþróttahúsinu Digranesi í dag, á
sumardaginn fyrsta.
Hátíðahöldin hefjast með skrúð-
göngu frá Menntaskólanum klukk-
an 13,30. Skólahljómsveit Kópa-
vogs leikur fyrir göngunni og skát-
ar sjá um fánaborg. Sönghátíðin
hefst síðan klukkan 14 og munu
500 böm úr leikskólum, skóladag-
heimilum og grunnskólum Kópa-
p/ogs syngja og leika. Ljóð Halldórs
Laxness munu skipa sérstakan sess
í söngnum, þar sem hann er níræð-
ur sama dag. Nemendur úr Tón-
skóla Kópavogs munu leika undir
fjöldasöng og er þess vænst að
Kópavogsbúar fjölmenni og taki
hressilega undir.
----» ♦ ♦----
Þjóðarráð Bahá’ía
á íslandi:
Hátíðardag-
^krá í tilefni 20
ára afmælis
HALDIN verður hátíðardagskrá
í Álfabakka 12 (2. hæð) í Mjódd
laugardaginn 25. apríl í tilefni
af 20 ára afmælis Andlegs þjóð-
arráðs Bahá’ía á íslandi. Dag-
skráin hefst kl. 16.00.
Hátíðardagskráin er þáttur í ár-
legu landsþingi Bahá’ía en að þessu
sinni sitja 19 fulltrúar frá 12 kosn-
■"mgasvæðum af landinu þingið auk
fjölda gesta. Eitt af verkefnum full-
trúanna er að kjósa nýtt Þjóðarráð
en kosningin fer fram um morgun-
in.
Dr. Halldór Þorgeirsson ritari
þjóðarráðsins mun rekja 20 ára
sögu Þjóðarráðsins en hann verður
fulltrúi Bahá’ía á umhverfis- og
þróunarráðstefnunni sem haldinn
verður í Ríó í Brasilíu.
Silkiprentaðir
límmiðar
AUGLYSINGAR - SKILTAGERÐ
SILKIPRENTUN
SKEIFUNNI 3c- 108 REYKJAVlK
SlMI: 68 00 20 - FAX: 68 00 21
Kór Átthagafélags Strandamanna á tónleikum 1991.
Strandamenn í Reykjavík fagna sumn
KÓR Átthagafélags Stranda-
manna fagnar sumri og heldur
tónleika á laugardag, 25. apríl
í Breiðholtskirkju í Mjódd. Tón-
leikamir hefjast klukkan 17.
Á efnissrká eru innlend og er-
lend sönglög, en einnig mun
Hanna Björk Guðjónsdóttir syngja
einsöng með kórnum. Stjómandi
er Erla Þórólfsdóttir og undirleik
annast Pavel Smid.
Um kvöldið verður vorfagnaður
Átthagafélagsins í Domus Medica
og hefst hann klukkan 22. Þar
mun hljómsveitin Strandaglóp-
arnir, skipuð Strandamönnum
leika fyrir dansi fram eftir nóttu.
Skákmót
á Akureyri
og í Hafn-
arfirði
SKÁKFÉLAG Akureyrar
gengst fyrir helgarskákmóti
frá 23.-26. apríl nk. í félags-
heimilinu við Þingvallastræti
18. Tefldar verða 7 umferðir
eftir Monrad-kerfi og öllum er
heimil þátttaka.
Helgaratskákmót í Hafnarfirði
Dagana 24.-25. apríl gangast
Skákfélag Hafnarfjarðar og Tafl-
félagið Hellir fyrir atskákmóti í
húsnæði Skákfélags Hafnarfjarð-
ar, Tómstundaheimilinu á horni
Suðurgötu og Lækjargötu (bak við
Hafnarfjarðarkirkju). Tefldar
verða 7 umferðir eftir Monrad-
kerfi, og umhugsunartími er 'h
klst. á mann á skákina. Mótið hefst
kl. 20 föstudaginn 24. april og er
öllum heimil þátttaka og innritun
er á skákstað. Verðlaun verða:
Fyrstu 20.000 kr., önnur 12.000
kr. og þriðju 8.000 kr.
Hrossaræktarsamband Vesturlands:
11 hestar verða
í notkun í sumar
Ellefu stóðhestar standa Vestlendingum til boða hjá Hrossaræktar-
sambandi Vestlendinga í sumar. Allir hafa hestamir hlotið fyrstu
verðlaun að tveimur fjögurra vetra folum undanskildum.
Efstur á blaði er heiðursverð-
launahesturinn Ófeigur 818 frá
Hvanneyri en hann verður í hús-
notkun að Skarði í Lundarreykjad-
al, fyrra gangmál í Skáney í Reyk-
holtsdal og seinna gangmál að
Fellsöxl í Skilamannahreppi. Kol-
fínnur 1020 frá Kjamholtum verður
í húsnotkun í Stykkishólmi og fyrra
gangmál að Fellsöxl. Geysir frá
Gerðum verður fyrra gangmál að
Fellsöxl og Goði frá Sauðárkóki
fyrra gangmál að Hólslandi á Snæ-
fellsnesi og seinna gangmál í
Strandasýslu. Viðar 979 frá Viðvík
verður í húsnotkun í Nýjabæ í
Andakíl, fyrra gangmál í Lundi í
Lundareykjadal og seinna gangmál
F
OKEYPIS
HEIMSENDINGAR-
ÞJÓNUSTA
FRÁ KLUKKAN
11:30 TIL 23:00
ALLA DAGA
BRAGAGATA 38A
í Reykholtsdal. Dagur frá Kjarn-
holtum verður fyrra gangmál á
Sámsstöðum á Hvítársíðu og seinna
gangmál í Fellsöxl. Stjarni frá Mel-
um verður seinna gangmál í Hraun-
hreppi. Hósías frá Kvíabekk verður
fyrra gangmál í Stafholtstungum
og Dugur frá Mosfellsbæ sem er
fjögurra vetra verður fyrra gang-
mál á Hvítárvöllum í Andakíl og
Fengur frá Stokkseyri sem einnig
er fjögurra vetra verður fyrra gang-
mál Reykholtsdal.
Þá er ótalinn Blakkur 977 frá
Reykjum en hann verður í Hallkels-
staðahlíð á Snæfellsnesi í húsnotk-
un en á félagssvæði Dreyra á Akra-
nesi fyrra gangmál og seinna gang-
mál í Bjarnarhöfn. Stefnt verður
að afkvæmasýningu á Blakki á
fjórðungsmótinu á Kaldármeluin í
sumar en hann fótbrotnaði sem
kunnugt er fyrir tveimur árum en
meðferðin hefur tekist það vel að
hann er vel fullfær um að gagnast
hryssum þótt ekki sé hann nothæf-
ur til reiðar.
--—
">»r..•>..:
.... ..A.V..Í6
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Blakkur 977 frá Reykjum verður væntanlega sýndur með afkvæmum
á fjórðungsmótinu á Kaldármelum ef hann nær tilskilinni kynbótaein-
kunn samkvæmt BLUP-kerfinu. Knapi er Sigvaldi Ægisson.
Tveir stóðhestar sem Hrossa-
ræktarsambandið á sameiginlega
með Húnvetningum og Skagfírð-
ingum þeir Goði frá Sauðárkróki
og Þengill frá Hólum verða sýndir
sem einstaklingar að því tilskyldu
að þeir nái lágmarkseinkunn en sá
þriðji sem þessi aðilar eiga saman,
Stígandi frá Sauðárkróki, mun ekki
koma fram á fjórðungsmótinu. Að
sögn Guðmundar Sigurðssonar for-
manns Hrossaræktarsambands
Vesturlands lögðust Skagfírðingar
eindregið gegn því að hann yrði
sýndur þar sem þeir vildu ekki
missa hann úr húsnotkun. Taldi
Guðmundur líklegt að hann kæmi
þess í stað fram á fjórðungsmóti
Norðlendinga 1993 eða jafnvel að
hann yrði sýndur með afkvæmum
á Landsmótinu 1994. Benti Guð-
mundur á að mjög líklega kæmu
fram í forskoðun í vor afkvæmi
undan honum og vænti hann þess
að eitthvað af þeim kæmist inn á
mótið í sumar.
V elfer ðarkerfið
- nútíð - framtíð
„Velferðarkerfið — nútíð - fram-
tíð“ er yfirskrift opinnar ráð-
stefnu sem Alþýðuflokkurinn -
Jafnaðarmannaflokkur Islands
stendur fyrir laugardaginn 25.
apríl á Hótel Loftleiðum.
Dagskráin hefst kl. 13.00 með
setningarræðu Jóhönnu Sigurðar-
dóttur félagsmálaráðherra. Að því
loknu munu Sigurður Snævarr hag-
fræðingur, Þorkell Helgason að-
stoðarmaður heilbrigðisráðherra,
Bragi Guðbrandsson aðstoðarmað-
ur félagsmálaráðherra og Jón Torfi
Jónasson dósent við H.í. hafa fram-
sögu um ólík svið velferðarkerfis-
ins. Fundarstjóri verður Valgerður
Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari og
varaþingmaður Alþýðuflokksins,
sem mun gefa ráðstefnugestum
kost á að taka þátt í umræðum.
-----»--♦.♦----
Fundur um
loftræsikerfi
FRÆÐSLUFUNDUR Lagnafélags
íslands um loftræsikerfi, sem frétt
var um í Morgunblaðinu í gær, verð-
ur haldinn á morgun, föstudag eins
og raunar kom fram í blaðinu í gær.
Fundurinn verður haldinn á Hótel
Loftleiðum og hefst klukkan 14.