Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992 Ovíst er hvenær búast má við efnahagsbata Annað svið, þar sem breytinga er þörf til að styrkja hagstjórn við skil- yrði fastgengisstefnu og fijálsra fjár- magnsflutninga, er á gjaldeyris- markaðnum. I stað gengisskráning- ar, sem einhliða ákvarðast af kaup- og sölugengi Seðlabankans, er nauð- synlegt að koma upp gjaldeyrismark- aði þar sem gengi geti ákvarðast af framboði og eftirspum innan tiltek- inna marka frá hinu fasta viðmiðun- argengi. Gefur slíkur markaður bæði mikilvægar upplýsingar um jafnvæg- isskilyrðin á gjaldeyrismarkaðnum á hveijum tíma og auðveldar um leið Seðlabankanum að beita vöxtum til að hafa áhrif á fjármagnshreyfingar milli Islands og annarra landa og þar með á markaðsgengið. Er nú verið að undirbúa fyrstu skrefín í þróun slíks gjaldeyrismarkaðs í framhaldi af nauðsynlegri breytingu, sem gerð var á Seðlabankalögunum fyrir skömmu. Er stefnt að því að fyrir- komulag verði með svipuðum hætti og á hinum Norðurlöndunum, en frá- viksmörk frá meðalgengi hafa ekki enn verið ákveðin. FISKVERÐ AUPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 24. apríl 1992 FAXAMARKAÐURINN HF. í REYKJAVÍK Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 113,00 85,00 103,29 4,743 489.927 Þorskur(ósl-) 79,00 64,00 69,90 . 7,768 542.997 Þorskflök 170,00 170,00 170,00 0,078 13.260 Ýsa 139,00 130,00 131,80 1,254 165.345 Ýsa (ósl.) 109,00 108,00 108,06 5,451 589.034 Blandað 6,00 6,00 6,00 0,016 96 Hnísa 20,00 20,00 20,00 0,030 600 Hrogn 75,00 35,00 67,76 0,508 34.420 Karfi 52,00 20,00 46,37 7,298 338.416 Sf. bland 110,00 110,00 110,00 0,055 6.050 Steinbítur (ósl.) 58,00 58,00 58,00 0,031 1.798 Ufsi 29,00 29,00 29,00 0,320 9.280 Ufsi (ósl.) 12,00 12,00 12,00 0,023 276 Samtals 79,47 27,575 2.191.499 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA HF. Þorskur 99,00 87,00 97,10 26,144 2.538.528 Þorskur(ósL) 89,00 70,00 80,52 8,673 698.347 Ýsa 116,00 108,00 111,12 1,723 191.468 Ýsa (ósl.) 107,00 50,00 106,11 20,367 2.161.240 Ufsi 43,00 43,00 43,00 0,592 25.456 Ufsi (ósl.) 45,00 31,00 34,31 1,557 53.423 Steinbítur/Hlýri 75,00 55,00 57,24 5,221 298.827 Skata 90,00 90,00 90,00 0,050 4.500 Ósundurliðað 20,00 20,00 20;00 0,194 3.880 Lúða 385,00 100,00 354,18 0,239 84.650 Skarkoli 78,00 20,00 70,26 1,259 88.462 Svartfugl 80,00 77,00 79,56 0,061 4.853 Hrogn 30,00 30,00 30,00 0,084 2.520 Gellur 250,00 250,00 250,00 0,014 3.500 Kinnar 170,00 170,00 170,00 0,016 2.720 Undirmálsþ. 68,00 66,00 67,03 8,178 548.148 Steinb./hlýri 64,00 64,00 64,00 0,390 24.960 Samtals 90,09 74,762 6.735.482 FISKMARKAÐUR BREIÐAFJARÐAR Þorskur 103 40 100,84 1,404 141.588 Ýsa 115 112 113,20 0,981 111.054 Ufsi 46 46 46,00 0,538 24.748 Langa 40 40 40,00 0,030 1.200 Svartfugl 50 50 50,00 0,150 7.500 Keila (ósl.) 5 5 5,00 0,013 65 Lúða 355 100 268,31 0,083 22.270 Koli 50 49 49,86 0,212 10.572 Hrogn 17 17 17,00 0,119 2.023 Blandað (ósl.) 8 8 8,00 0,025 200 Undirmálsþorskur 51 51 51,00 0,028 1.428 Samtals ' 90,04 3,583 322.648 FISKMARKAÐUR VESTMANNAEYJA HF. Þorskur 107,00 98,00 100,63 2,845 286.307 Ýsa 128,00 110,00 116,33 1,431 166.473 Ufsi 46,00 46,00 46,00 2,680 123.280 Langa 62,00 62,00 62,00 0,143 8.866 Karfi (ósl.) 38,00 38,00 38,00 2,355 89.490 Lúða 350,00 350,00 350,00 0,051 17.850 Hrogn 80,00 80,00 80,00 0,150 12.000 Samtals 72,94 9,655 704.266 FISKMARKAÐURINN í ÞORLÁKSHÖFN Þorskur (ósl.) 73,00 73,00 73,00 3,996 291.700 Ýsa 117,00 117,00 117,00 1,258 147.186 Ýsa (ósl.) 105,00 103,00 103,91 4,077 423.658 Háfur 1,00 1,00 1,00 0,002 2 Karfi 37,00 37,00 37,00 0,382 14.134 Keila 20,00 20,00 20,00 0,016 320 Langa 69,00 46,00 55,91 1,019 56.971 Skarkoli 11,00 11,00 11,00 0,004 44 Skötuselur 200,00 200,00 200,00 0,006 1.200 Ufsi 42,00 42,00 42,00 1,657 69.594 Ufsi (ósl.) 29,00 29,00 29,00 0,078 2.262 Samtals 80,60 12,495 1.007.079 FISKMARKAÐURINN ÍSAFIRÐI Þorskur ' 87,00 87,00 87,00 1,394 121.278 Ýsa 108,00 108,00 108,00 1,050 113.400 Steinbítur 55,00 55,00 55,00 4,390 241.450 Lúða 100,00 100,00 100,00 0,019 1.900 Skarkoli 70,00 70,00 70,00 1,033 72.310 Undirmálsþ. 68,00 66,00 67,40 13,307 896.920 Steinb./hlýri - 64,00 64,00 64,00 0,390 24.960 Samtals 68,21 21,583 1.472.218 Það fer nú að líða að lokum þessa máls, þar sem ég hef orðið nokkuð margorður um þróun fijálsari gjald- eyris- og peningamarkaðar. Sú spurning kann því að koma upp í huga manna, hvaða áhrif sé líklegt að slíkar breytingar hafi á þróun raunvaxta og þá sérstaklega lækkun þeirra á næstunni í samræmi við yfirlýstan áhuga stjórnvalda og aðila vinnumarkaðsins. Er þá fyrst á það að benda, að bæði fræðileg rök og reynslan af vaxtaþróun síðustu ára sýna með óyggjandi hætti, að heildarþróun vaxta hlýtur að ráðast af framboði og eftirspum á lánsfjármarkaðnum. Tilraunir til þess að lækka vexti með beinum aðgerðum hljóta annað hvort að mistakast eða leiða til peninga- þenslu, sem aðeins veldur verðbólgu og enn hærri vöxtum síðar. Eina raunhæfa tæki stjómvalda við núver- andi aðtæður til þess að lækka vexti af langtímalánum felst í því að draga úr lánsijáreftirspurn ríkisins og ann- arra opinberra aðila og treysta grundvöll stöðugleika í verðlagi og gengi. Sem betur fer hefur mikið áunnizt að undanförnu á báðum þessum svið- um. Það sem af er þessu ári hefur þróun ríkisbúskaparins verið með allt öðrum hætti en á síðasta ári, rekstrarhalli verulega minni og inn- lend lánsfjáröflun gengið mun betur Skoðunarferð um Njarðvík I DAG, laugardaginn 25. apríl, fer Náttúruverndarfélag Suðvestur- lands í sjöttu ferðina í ferðaröð- inni Framtíðarsýnin okkar. Farið verður kl. 10.30 frá Grunnskólan- um í Njarðvík og gengið umhverf- is byggðina. A leiðinni verða óröskuð eða lítt röskuð náttúruleg svæði skoðuð og ýmsar minjar. Gangan tekur um tvo tíma en eftir hana verða umræður í grunnskólanum um framtíðarsýn sveitarfélagsins sem heild. í för verða fróðir menn og hugmyndaríkir. Öll- um er heimil þátttaka. ------» ♦ ♦---- Vortískusýning í Borgarkringlunni 1 DAG kl. 13.30 verður haldin vortískusýning i Borgarkringl- unni. Sýndar verða vörur frá verslununum Kokteil, Plexiglas, Rodier, Blazer, Fiðrildinu, Bláa fuglinum, Hárprýði — Fataprýði, Mömmunni, Gleraugn- asmiðjunni, Demantahúsinu og förðunarkynning á vegum förðunar- skóla Línu Rutar. Te- og kaffibúðin Whittard of London verður með kynningu á te og einnig verður Sól með vörukynn- ingu í Borgarkringlunni í dag. GENGISSKRÁNING Nr. 077 24. aprll 1992 Kr. Kr. Toll- Ein. Kl. 09.16 Kmjp Sala Gflngi Dollari 59.20000 59,36000 59.27000 Sterlp. 104,79900 105,08200 102,99600 Kan. dollari 49.90500 50,04000 49,86700 Dönsk kr. 9,25330 9,27830 9,29470 Norsk kr. 9,15490 9,17960 9.18240 Sænsk kr. 9,91390 9,94070 9,92950 Finn. mark 13.15560 13,19110 13,20930 Fr. franki 10,59980 10,62850 10,63330 Belg. franki 1,74090 1,74560 1,75200 Sv. franki 38,62970 38,73410 39,59250 Holl. gyllini 31,82030 31,90630 32,03350 Þýskl mark 35,82990 35,92680 36,07430 it. líra 0,04756 0,04769 0.04781 Austurr. sch. 5,08810 5,10180 5,12490 Port. escudo 0,42150 0,42260 0,41830 Sp. peseti 0,57020 0.57170 0.57020 Jap. jen 0.44043 0.44162 0.44589 írskt pund 95,54000 95.79800 96.07700 SDR (Sérst.) 81,08800 81,30720 81,29350 ECU, evr.m 73,43760 73,63610 73.71410 Tollgengi fyrir april er sölugengi 30. mars. Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70. en þá. Framboð á húsbréfum hefur einnig verið hóflegra og engar yfir- vofandi hættur sjáanlegar þar á næstunni. Ekki skiptir minna máli, að árshraði verðbólgunnar hefur nú í hálft ár aðeins verið 1-2%, eftir því við hvaða vísitölu er miðað, og full ástæða til að búast við, að verðbólga hér á landi verði á árinu í heild nokk- uð undir meðaltali verðbreytinga í öðrum ríkjum Vestur-Evrópu. Þetta hefur þegar komið fram í lækkandi vöxtum á langtímabréfum á Verð- bréfaþingi, þar sem raunvextir hafa lækkað um 1% frá því í haust. Ég tel lítinn vafa á því, að það séu skil- yrði til þess, að þeir lækki enn frek- ar strax og þeirri óvissu, sem verið hefur í launamálum undanfama mánuði, hefur verið eytt með nýjum samningum. Jafnframt ætti þá einn- ig fljótlega að jafnast sá munur, sem undanfarið hefur verið á raunvöxtum verðtryggðra og óverðtryggðra vaxta hjá innlánsstofnunum. Vaxtalækkun tímabær Ekki er um það að deila, að raun- vextir eru nú hærri hér á landi en æskilegt væri, einkum með tilliti til áhrifa þeirra á rekstur og fjárfest- ingu fyrirtækja, svo og á atvinnu- stig. Frekari lækkun þeirra virðist þar að auki orðin tímabær vegna betra jafnvægis á lánsfjármarkaðn- Eitt verka Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur í Gallerí 1.1, Skólavörðustíg 4b. Guðrún Hrönn með sýningu í Galleríi 1.1 Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir opnar myndlistarsýningu í Gall- erí 1.1, Skólavörðustíg 4b, laug- ardaginn 25. apríl kl. 16. Guðrún er fædd 1956. Hún út- skrifaðist úr Nýlistadeild Mynd- lista- og Handíðaskóla íslands 1978 og nam við Jan van Eyck Academie Maastraicht Hollandi 1979-1982. Guðrún hefur haldið einkasýningar í Nýlistasafninu 1982,1986 og 1988, auk einkasýn- inga í Amsterdam og Finnlandi. Hún hefur tekið þátt í samsýning- um heima og erlendis frá 1981. Á sýningunni eru skúlptúrar, rýjaverk og málverk. Sýningin stendur til 7. maí og er opin alla daga frá kl. 14-18. Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 13. febrúar - 23. apríl, dollarar hvert tonn um. Hversu mikil vaxtalækkunin verður á næstunni og hversu varan- leg hún reynist, mun hins vegar fyrst og fremst ráðast af því, hvort það jafnvægi, sem nú virðist hafa náðst í opinberunffjármálum og í verðlags- þróun helzt til frambúðar. Vonin um lækkun raunvaxta er þó fjarri því að vera eini ávinningur áframhaldandi stöðugleika í þjóðar- búskapnum. Ekki skiptir minna máli, að stöðugt verðlag og gengi dregur úr áhættu og skapar traust til fram- tíðarinnar, og er þannig bezti jarð- vegurinn fyrir vöxt og viðgang arð- bærrar atvinnustarfsemi. Þótt á móti blási í ytri skilyrðum þjóðarbús- ins um sinn og öll líkindi til þess, að umtalsverður efnahagsbati muni enn láta nokkuð á sér standa, hníga öll rök að því, að íslendingum muni bjóðast góð skilyrði til hagvaxtar að nýju, þegar betur árar og þeir orðn- ir virkari þátttakendur í hinu grózku- mikla markaðssamstarfi Vestur-Evr- ópuríkja. Hve vel þau tækifæri nýt- ast fer ekki sízt eftir því, hve vei tíminn er nú notaður til þess að treysta undirstöður efnahagsstarf- seminnar með því að auka sam- keppni á öllum sviðum atvinnulífsins, bæta skipulag fyrirtækja og opin- berra stofnana og treysta í sessi þann stöðugleika í verðlagi, sem þeg- ar hefur náðst. Vorverk í Gerðubergi LAUGARDAGINN 25. apríl kl. 14 mun Einar Logi Einarsson halda fyrirlestur um íslensk nytjagrös í Menningarmiðstöð- inni Gerðubergi. Einar mun fjalla almennt um grasalækn- ingar, te og kryddjurtir og jur- talitun. Erindi Einars verður um nýt- ingu villijurta, tínslu og verkun. Fjallað verður um hollustu og notkun grasa í te og sem krydd en einnig verður drepið á lækn- ingamátt jurtanna. Þetta er kjörið tækifæri fyrir fólk til að fræðast og fá tækifæri til að auðga úti- veru sína. Einar Logi er starfandi grasalæknir, sonur Ástu Erlings- dóttur grasalæknis, sem nú sýnir myndir málaðar úr litum sem hún hefur unnið úr ríki náttúrunnar í veitingabúð Gerðubergs, „Kaffi Gerði“. Erindi Einars Loga Einarssonar er það fyrsta í röð erinda um gróð- ur og garðrækt og ganga þau undir nafninu „Vorverk í Gerðu- Vetur og sumar fuku saman Borg, Miklaholtshrcppi. NÚ HEFUR vetur kvatt. Stormasamur vetur en snjó- léttur. Hér var og er óvenju- legt veður, mikill stormur en 2-3 stiga hiti. Ekki hef ég frétt af sköðum vegna veðurs en segja má að vetur og sumar hafi fokið sam- an en hvort það veit á gott og gjöfult sumar er óráðið. Klaki er lítill í jörðu og þeg- ar farin að sjást græn nál. Gæti því gróður komið snemma. V erðlaunafhend- ing fyrir nýsköpun VERÐLAUNAAFHENDING og sýning á verkum grunnskólanema í Nýsköpunarkeppni 1992 fer fram í hátíðasal Tækniskóla ís- lands í dag klukkan 14. Guðbrandur Steinþórsson rektor flytur ávarp, Paul Jóhannsson deild- arstjóri fjallar um hvernig hugmynd- ir verða til og Guðrún Þórsdóttir kennslufulltrúi spyr: Hvers vegna nýsköpun? Þá mun menntamálaráð- herra, Ólafur G. Einarsson afhenda verðlaunin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.