Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 49
Hþ— 49 SQet Jt't‘U ,1?; it-trWIHADUAJ GIGAJaHUOflOI/ MORGUNBLAÐIÐ IÞROTF1R LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992 77. VIÐAVANGSHLAUP IR íÞRÚm FOLK ■ KÖRFUBOLTAMENN héldu lokahátíð n sína fyrir skemmstu. Teitur Örlygsson og Hanna Kjartansdóttir voru kjörnir bestu leikmenn vetrarins og Friðrik Ingi Rúnarsson besti þjálfarinn. M RONDEY Robinson var kjör- inn besti erlendi leikmaðurinn, Ósk- ar Kristjánsson, KR, nýliði deild- arinnar og Hafsteinn Þórisson,1*- Skallagrími, sá prúðasti. ■ LEIFUR Garðarsson var kjör- inn besti dómarinn og Víglundur Sverrisson sá sem mestum fram- förum tók. ■ FRANC Booker úr Val, varð stigahæsti leikmaður deildarinnar auk þess að gera flestar þriggja stiga körfur. ■ ANNA María Sveinsdóttir úr IBK var stigahæst í 1. deild kvenna og hún var einnig með bestu víta- nýtinguna. Valur Ingimundarson, hjá Tindastóli var með bestu víta- nýtingu_ karlanna. ■ BJÖRG Hafsteinsdóttir úr Keflavík gerði flestar þriggja stiga körfur í 1. deild kvenna. ■ TIM Harvey hjá Snæfelli tók flest fráköst allra í vetur. ■ NIKE-lið Japisdeildar var einnig kunngjört. Í því eru: Jón Kr. Gislason, ÍBK, Teitur Örlygs- son, UMFN, Guðmundur Braga- son, UMFG, Valur Ingimundar- son og Pétur Guðmundsson, UMFT. ■ NIKE-lið kvenna er þannig skipað: Björg Harsteinsdóttir, ÍBK, Linda Stefánsdóttir, ÍR._r Hanna Kjartansdóttir, Haukum,*'- Anna María Sveinsdóttir, ÍBK og Vigdís Þórisdóttir, ÍS. ■ ÞREMUR íslenskum skíða- þjálfurum, Sigurði H. Jónssyni, Hafsteini Sigurðssyni og Guð- miindi Gunnlaugsyni, hefur verið boðið að taka þátt í þjálfaranám- skeiði sem sænska skíðasambandií stendur fyrir í Stryn í Noregi i júní. Námskeið þetta er mjög eftir- sótt og komast færri að en vilja. ■ ÞRJÁR af bestu fimleikastúlk- um Búlgaríu féllu á lyfjaprófi ný- lega og voru settar í tveggja ára^, keppnisbann. Stúlkurnar eru 14, 15 og 20 ára og voru ekki með á Evrópumeistaramótinu í París. ■ SUNDERLAND fær 18.000 miða á bikarúrslitaleikinn á Wembl- ey 9. maí, en Liverpool fær 26.000 miða. Fjöldi áhorfenda á leik lið- anna að meðaltali í vetur var hafð- ur til hliðsjónar. 5.500 eigendur ársmiða hjá Sunderland fá miða, en 32.000 aðrir stuðningsmenn bít- ast um 12.500 miða. 36.000 miðum verður dreift á önnur félög og knattspyrnusambönd. Morgunblaðið/Júlíus Metþátttaka var í Víðavangshlaupi ÍR sem fram fór á sumardaginn fyrsta, 77. árið í röð. Myndin var tekin í upp- hafi hlaups og fer Sveinn Ernstsson ÍR fremstur en að baki honum kemur Toby Tanser KR sem sigraði með miklum yfirburðum annað árið í röð. Toby til hvorrar handar eru Daníel Smári Guðmundsson KR og Jóhann Ingibergsson FH (l.t.v.) sem urðu í öðru og þriðja sæti. Alls luku 176 keppni. ÚRSLIT Víðavangshlaup ÍR Hlaupið fór að venju fram á sumardaginn fyrsta og var hlaupið um Hljómskálagarð. Helstu úrslit: 1. Toby Tanser, KR................15.57 2. Daníel Smári Guðmundsson, KR, .16.40 3. Jóhann Ingibergsson, FH........16.55 4. Sveinn Emstsson, ÍR............17.09 5. Bragi Sigurðsson, Árm..........17.15 6. Jón Þór Þorvaldsson, UMSB,....17.16 7. Smári Guðmundsson, KR..........17.54 8. Kristján Skúli Ásgeirsson, ÍR.18.18 9. Aðalgeir Sigurðsson, ÍR,.......18.22 10. Ingvar Garðarsson, HSK........18.24 11. Sighvatur Dýri Guðmundsson, ÍR, 18.40 12. Guðm. V. Þorsteinsson, UMSB,....18.45 13. Þorsteinn Böðvarsson, UMSB,...18.56 14. Björgvin Friðriksson, KR,....19.09 15. PeterMysberg..................19.13 16. Hannes Hrafnkelsson, KR,.....19.23 17. Jón Steinsson, Gróttu,........19.25 18. Jakob B. Hannesson, Námsfl. R. ..19.30 19. Jóhann Heiðar Jóhannsson, ÍR, ....19.45 20. Aron Tómas Haraldsson, UBK, ....19.47 21. Öm Ingibergsson, ÍR,.........19.49 22. Kári Kaaber, fR,.............19.52 23. ÓlafurGunnarsson, ÍR,........20.07 24. AmaldurGylfason, ÍR,.........20.20 25. Birgir Sveinsson.............20.20 26. Vöggur Magnússon, ÍR,........20.20 27. Frímann Benediktsson, ÍR....20.23 28. Hulda Pálsdóttir.............20.23 Víkingur-Stjarnan 18:12 Víkin, 4. leikur í úrslitum um íslandsmeist- aratitil kvenna í handknattleik, fimmtudag- inn 23. apríl 1992. Gangur leiksins: 2:0, 5:2, 5:5, 6:6, 9:6, 10:7, 13:7, 15:8, 15:11, 18:11, 18:12. Mörk Víkings: Halla Maria Helgadóttir 5/4, Heiða Erlingsdóttir 4, Inga Lára Þóris- dóttir 4/2, Svava Sigurðardóttir 3, Svava Ýr Baldvinsdóttir 1, Matthildur Hannesdótt- ir 1. Varin skot: Sigrún Ólafsdóttir 13, Hjördís Guðmundsdóttir- 5/1. Utan vallar: 12 mínútur. Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður Stephen- sen 4/3, Erla Rafnsdóttir 3, Ingibjörg Ándr- ésdóttir 2, Herdfs Sigurbergsdóttir 1, Harpa Magnúsdóttir 1, Sigrún Másdóttir 1. Varin skot: Nina Getsko 10/1. Utan vallar: 2 mínútur. Dómaran Guðjón L. Sigurðsson og Hákon B. Siguijónsson vom góðir. Áhorfendur: Um 650. Algerir yfir- burðir Víkinga Fimmti og síðasti leikurinn í Garðabæ í dag „ÞAÐ var ekki um annað að ræða en vinna og við höfðum þann vilja og það hungur sem til þurfti," sagði Inga Lára Þórisdóttir, fyrirliði Víkings, eftir öruggan 18:12 sigurá Stjörnunni áfimmtu- dagskvöld, sem tryggði Víkingsstúlkum hreinan úrslitaleik ídag, þar sem hvort lið hefur unnið tvo leiki. Víkingsstúlkurnar áttu ekki í minnstu vandræðum með Stjörnuna og ef frá eru skildir tveggja mínútna kaflar fyrir og eftir hlé, voru þær með leikinn algerlega í sínum höndum. Stefán Stefánsson skrifar Vöm Víkinga var frá upphafi geysisterk. Stjörnuliðið reyndi að spila uppá Guðnýju Gunnsteins- dóttur á línunni til að bytja með en það bar alls ekki árang- ur. Stjörnustúlkum tókst ekki að gera fyrsta markið fyrr en eftir sex mín- útur og voru þá einni fleiri. Þeim tókst þó að jafna 5:5 á þrettándu mínútu en óneitanlega var mikill heppnisstimpill yfir mörkum þeirra. Uppgjöf var ekki á döfinni hjá Vík- ingum og þeim tókst að ná þriggja marka forskoti fyrir hlé. Með góðri baráttu og frábærri vörn tókst Víkingum að ná sjö marka forystu á fyrstu tíu mínútun- um eftir hlé en þá kom slakur kafli í tvær mínútur og Stjörnunni tókst að koma að þremur mörkum. Vík- ingar náðu aftur tökum á leiknum með næstu þremur mörkum og þar sem heppnin hafði yfirgefið Stjörn- una reyndi Magnús Teitsson, þjálf- ari liðsins, að prófa allar mögulegar uppstillingar í sóknarleiknum en það dugði ekki til. Þegar þijár mín- útur voru til leiksloka voru Svava Sigurðardóttir og Inga Lára Þóris- dóttir reknar útaf í tvær mínútur og þó Víkingar væru tveimur færri tókst þeim að skora en fengu á sig eitt mark. Ef Víkingar ná sama dampi í úrslitaleiknum og í þessum leik er bjart framundan hjá liðinu. Vörnin var hreint frábær, geysiþétt, og Guðný Gunnsteinsdóttir, sem oft hefur reynst þeim erfið á línunni, sást varla. Sóknarkerfm gengu upp og Víkingsstúlkum tókst að sjá við Ninu Gesko í marki Stjörnunnar. Það er varla hægt að nefna ein- hverjar sérstaklega, slík var breidd- in, en Svava Ýr Baldvinsdóttir var gallhörð í vörninni og Svava Sigurð- ardóttir og Heiða Erlingsdóttir, sem gerði fjögur mörk úr hraðaupp- hlaupum, sprungu út. „Það klikkaði allt sem klikkað gat. Það munaði því hversu grimm- ar þær voru í vörninni og miklu ákveðnari en þetta er fjórði leikur- inn og mikil spuming um dags- form“, sagði Erla Rafnsdóttir sem stóð uppúr í Stjömuliðinu. Vörnin var samt óvægin en það dugði bara ekki til. Firma-, félaga- og hópakeppni KR í körfuknattleik fer fram í Haga- skóla dagana 27.-30. apríl. Nánari upplýsingar í síma 15946 á kvöldin og um helgina og 605367 á daginn. HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNI KVENNA Morgunblaðiö/Jón Svavarsson . Stemmning Mikil stemmning hefur verið í úrslita- keppni kvenna í handboltanum. Á myndinni þakka Víkingsstúlkur áhorf- endum veittan stuðning og þeir klappa þeim lof í lófa. FELAGSSTARF Firmakeppni KRíkörfubolta 1 KR-ingurinnTobyTanser sigraði annað árið í röð TOBY Tanser KR sigraði með miklum yfirburðum í 77. Víða- vangshlaupi ÍR í Hljómskála- garðinum á sumardaginn fyrsta og Hulda Pálsdóttir ÍR varð hlutskörpust kvenna. Metþátttaka var i hlaupinu þriðja árið í röð, alls luku 176 keppni. Að lokinni keppni voru verðlaun afhent f nýja ráðhús- inu og er það fyrsti opinberi íþróttaviðburðurinn sem þar j ferfram. j TToby Tanser hljóp Víðavangs- I hlaupið eins og flest önnur, tók fljótt forystu í hlaupinu og var aldr- j WKKUMMM e' ógnað. Er ein- Ágúst kennilegt að aðrir Ásgeirsson hlauparar skuli ekki skrifar reyna að hanga í honum, það er meg- in forsenda þess að menn taki fram- förum í langhlaupum að þeir hangi fram í rauðan dauðan í sér betri mönnum. Toby sigraði nú annað árið í röð í Víðavangshlaupi ÍR. Úrslitin urðu annars nokkuð á þann veg sem gera mátti ráð fyrir en mesta at- hygli mína vakti góð tilraun Jóns Þórs Þorvaldssonar UMSB til þess að blanda sér meðal fremstu en hann er aðeins 17 ára gamall og varð sjötti. Smári Guðmundsson KR er einnig vaxandi hlaupari og tveir félagar Jóns Þórs úr UMSB, Guðmundur Valgeir Þorsteinsson og Þorsteinn Böðvarsson urðu í 12. og 13. sæti sem verður að teljast gott hjá 16-17 ára nýliðum. Með dugnaði við æfingar gætu UMSB- hlaupararnir þrír því með tíð og tíma endurvakið það stórveldi sem Borgfirðingar voru í langhlaupum en þeir voru um árabil ósigrandi í víðavangshlaupinu. Þar sem KR-ingar áttu þijá með- al sjö fyrstu sigruðu þeir örugglega í 3ja manna sveit karla en þeir unnu einnig 5 manna sveit. Er langt frá því að KR hefur unnið sveita- keppni Víðavangshlaupsins en frammistaða þeirra var mjög góð að þessu sinni og átti félagið fyrstu tvo menn á mark. Þá hefur það ekki gerst að KR hafi unnið 3ja meyja sveit í hlaupinu en það gerð- ist nú. ÍR-ingar unnu 10 manna sveitakeppni karla, 3ja kvenna sveit og sveitakeppni 40 ára og eldri karla og 30 ára og eldri kvenna. ISLANDSMOTIÐIHANDKNATTLEIK Úrslitaleikur í 1. deild kvenna verbur í íþróttahúsinu Garðabæ laugardaginn 25. apríl kl. 16:00 STJARNAN VÍKINGUR "7 • ISLANDSBANKI ©

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.