Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 1
112 SIÐUR B/C 117. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 24. MAI1992 PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS ^ ## Morgunblaðið/RAX REYKJA VIKURHOFN Rólegt í Sarajevo eftir yfirlýsingu um brottflutning sveita: Kröfur um aukiim þrýsting á Serbíu verða æ háværari Belgrad, Washington, Sameinuðu þjóðunum. Reuter. RÓLEGT VAR í Sarajevo, höfuðborg Bosníu, aðfaranótt laugardagsins í kjöl- far yfirlýsingar Serba um að þeir hygð- ust rýma herbúðir sínar í borginni um helgina. Þó bárust fregnir af einstaka skærum. Hafa sveitir múslíma og Króata lofað að þær muni leyfa Serbum að yfir- gefa borgina óáreittir. Robert Dole, leiðtogi Repúblikanaflokks- ins í öldungadeild Bandaríkjaþings, hélt í gærmorgun ræðu í Sterling-háskólanum í heimaríki sínu, Kansas, þar sem hann hvatti til aðgerða gegn innrás Serba í Bosniu-Hers- egóvínu. „Það er bæði sorglegt og skammar- legt að heimsbyggðin skuli hafa látið Milo- sevic [forseta Serbíu] komast upp með þetta,“ sagði Dole. „Við höfum gefið út harðorðar yfirlýsingar, ákveðið nokkrar vægar refsiaðgerðir, en ekki þorað að ihuga ákveðin, bein afskipti sem eru eina leiðin til að stöðva Milosevic.“ Dole sagðist ekki vera að leggja til að bandarískar hersveitir yrðu sendar til fyrr- um Júgóslavíu heldur að Bandaríkin myndu taka upp virkari stefnu í málinu sem hann teldi að bæri að byggja á fimm atriðum. Algjöru viðskiptabanni á Serbíu, frystingu eigna Serbíu erlendis, riftun stjórnmálasam- bands við Serbíu, tafarlausri mannúðarað- stoð til Bosníu og að Bandaríkjamenn tækju forystuna í því að sjá til þess að sendar yrðu friðargæslusveitir til landsins. Á föstudag ákvað Bandaríkjastjórn að vísa hermálafulltrúum júgóslavneska sendi- ráðsins í Washington úr landi og kalla eigin hermálafulltrúa i Belgrad heim. James Ba- ker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú staddur í Evrópu og átti á föstudags- kvöld fund með John Major, forsætisráð- herra Bretlands. Að þeim fundi loknum sagði Baker að hinn siðmenntaði heimur yrði að byija að ihuga hvað hann gæti gert, pólitískt og efnahagslega, til að stöðva átök- in. Einungis ef slíkar aðgerðir reyndust árangurslausar væri orðið tímabært að taka hernaðarlega íhlutun til athugunar. í gær átti Baker fund með utanríkisráðherrum Evrópubandalagsins í Lissabon. Douglas Hurd, utanríkisráðherra Bret- lands, sagði í viðtali við BBC í gær að mjög varasamt gæti reynst að senda herlið til Júgóslavíu. „Sannleikurinn er að enginn er reiðubúinn eins og stendur að senda inn sveitir til að beijast í þessari stöðu og sitja síðan fastar um ókominn tíma,“ sagði Hurd. Lýðveldunum Slóveníu, Króatíu og Bosn- íu var á föstudag veitt aðild að Sameinuðu þjóðunum og í tilefni þess urðu margir til að gagnrýna yfirgang Serba gagnvart þess- um þjóðum. Sagði Samir Shihabi, forseti allsheijarþings SÞ, að umheiminum bæri skylda til að vernda fullveldi og landamæri nýju aðildarríkjanna. Diplómatar hjá SÞ sögðust búast við að öryggisráðið myndi taka refsiaðgerðir gegn Serbum til umræðu þegar í byijun næstu viku. Meðal þeirra refsiaðgerða sem líklegar væru mætti nefna bann við flugsamgöngum og oliusölubann. Hörkukona hefur hungur MIRIAM Santiago, sem kölluð hefur verið „Járnfrú austursiris", hóf í gær hungurverk- fa.ll til að mótmæla meintu kosninga- svindli, sem hún segir stjórn Coraz- on Aquino hafa fyrirskipað til að tryggja Fídel Ramos sigur í forseta- kosningunum, sem fram fóru II. maí. Úrslit þeirra liggja ekki enn fyrir og segir Santiago svindlið eina ástæðu þess. „Það er enginn siðferðilegur munur á stjórn Corazon Aquino og stjórn Ferdinands Marcosar, fyrrum forseta, að þessu leyti,“ sagði Santiago. Hún hótar að svelta sig í hel. McKinley tek- ur sinn toll McKinley-fjallið í Alaska, hæsta fjall Norður-Ameríku, hefur tekið óvenju háan toll af mannslífum undanfarna daga. Hafa sjö fjallgöngumenn beðið bana á fjallinu síðustu vikuna, þar af þrír Bandaríkjamenn. Þrír Kóreumenn í háskólaleiðangri hröpuðu til bana í byijun vikunnar er þeir reyndu að kom- ast til baka niður fáfarna og snar- bratta leið sem kölluð er „Miðaustur- landahraðleiðin". Þá varð svissneskur karlmaður fjallaveiki að bráð á McKinl- ey sl. sunnudag. Sjöundi maðurinn sem beið bana á fjallinu hrapaði á föstudag, en hann hefur starfað sem leiðsögu- maður á fjallinu. Fær Suchinda hæli í Svíþjóð? Heimildarmenn úr röðum hers og þingmanna sögðu í gær að dagar Suchinda Krapra- yoons á stóli for- sætisráðherra Tæ- lands væru taldir og viki hann að lík- indum úr embætti um helgina. Átti hann fund með Bhumibol konungi í fyrrinótt og er talið að þar hafi hann boðist til að segja af sér. í gær var ekki vitað hvar Suchinda var niðurkom- inn en þingmaður úr röðum stjórn- arandstæðinga sagði að óskað hefði verið eftir pólitísku hæli fyrir hann í Svíþjóð. NORRÆNI SJÓNAUKINN Á KANARÍEYJUM SUÐRIÐ ANDAR 22 Gypsy Kings eru Jýrsta atriði listahátíðar BREYTTUR 10 FÍKNIEFNAHEIMUR ATVINNUÞÁTTTAKA ALDRADRA c f fuglaheimi Sjálfsögð mannréttindi Brian Pilkington teiknar Dýraríki íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.