Morgunblaðið - 03.06.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.06.1992, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B 124. tbl. 80. árg. MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Þjóðaratkvæðagreiðslan í Danmörku; Meirihluti Dana felldi óvænt Maastricht-samkomulag'ið Talning í þjóðaratkvæða- greiðslunni í Danmörku í gær var æsispennandi. Sam- kvæmt fyrstu tölum var tals- verður munur andstæðing- um Maastricht-samkomu- lagsins í vii. Það bil mjókk- aði en hélst þó allt til enda. Á myndinni fagnar fólk fyr- ir framan Kristjánsborgar- höll eftir að úrslitin voru ljós seint í gærkvöld. Óttast afleiðingar þessarar óheppilegu niður- stöðu, segir Poul Schliiter forsætisráðherra Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. DANSKIR kjósendur höfnuðu í gær í þjóðaratkvæðagreiðslu Maas- tricht-samkomulaginu um nánara samstarf aðildarríkja Evróþubanda- lagsins. 50,7% kjósenda greiddu atkvæði á móti samkomulaginu en 49,3% með. Vonbrigði danskra ráðamanna leyndu sér ekki er þeir komu fram í sjónvarpi í gærkvöldi að loknum þessum sögulegu kosn- ingum, sem stefna Evrópusamstarfinu og framtíð Danmerkur innan þess í nokkra óvissu. ar og fallast á samningaviðræður um breytingar á Maastricht-sam- komulaginu. Henning Christophersen, fulltrúi Dana í framkvæmdastjóm EB, sagði í samtali við Æízau-fréttastof- una í gær að nú yrði danska stjórn- in að koma með tillögu um næstu skref. Ekki mætti búast við að fram- kvæmdastjórnin hefði frumkvæði að lausn þess vanda sem nú er kom- inn upp. Christophersen ítrekaði i gærkvöldi spádóma sína frá því fyr- ir kosningar um að höfnun Maas- tricht-samkomulagsins myndi kosta Dani 200.000 störf. Landið væri nú í hættulegri stöðu en gera yrði það sem hægt væri til að draga úr vand- anum. Þrátt fyrir úrslitin verða Danir áfram í Evrópubandalaginu sam- kvæmt ákvæðum Rómarsáttmálans og einingarlaganna frá 1986. Hins vegar vöknuðu efasemdir í gær um að Danir gætu tekið við formennsku í EB um næstu áramót. Viðbrögð ráðamanna í Evrópubandalaginu við dönsku kosningunum: Míkíl vonbrigði og ótti við að óánægja brjótist ót víðar Brussel. Stokkhólmi. Reuter. HÁTTSETTIR embættismenn í ríkjum Evrópubandalagsins (EB) létu í gær í (jósi mikil vonbrigði vegna úrslita þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Danmörku. Kváðust menn óttast að óánægja með áform um samruna í Evrópu gerði nú víðar vart við sig. Því yrði enginn hægðarleikur að seinja upp á sömu býti og í Maastricht jafnvel þótt Danir yrðu ekki með. Carl Bildt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði að úrslitin breyttu engu um þau áform Svía að ganga í EB. Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra telur að úrslitin kunni að lengja líf samnings- ins um Evrópskt efnahagssvæði því að dráttur kunni að verða á inn- göngu nýrra ríkja í EB. Úrslitin komu mjög á óvart í ljósi þess að skoðanakannanir síðustu daga höfðu bent til að öruggur meirihluti væri fyrir samþykkt sam- komulagsins. Ennfremur höfðu leið- togar ríkisstjórnarflokkanna og jafnaðarmanna lagst á eitt að sann- færa kjósendur um nauðsyn þess að gjalda samkomulaginu jákvæði. Tæplega fjórar milljónir manna voru á kjörskrá og var munurinn ótrúlega lítill er upp var staðið. Einungis um 48.000 atkvæði skildu andstæðinga og fylgismenn samkomulagsins. Viðbrögð ráðamanna lutu mjög að þeirri spurningu hvort Danir verði hérmeð viðskila við hin EB-rík- in eða hvort búast megi við breyt- ingum á Maastricht-samkomulag- inu til að koma til móts við vilja dönsku þjóðarinnar. Poul Schluter, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í gær að það væri ekki raunsætt að vænta þess að Danir gætu samið um breytingar á samkomulaginu. Hin ríkin ellefu myndu geta hrundið ákvæðum þess í framkvæmd án þátttöku Dana. Schliiter sagði að danska stjómin myndi hittast í dag og velta gaumgæfilega fyrir sér stöðu Danmerkur eftir hina „óheppi- legu“ niðurstöðu og athuga hvemig best mætti vernda hagsmuni lands- ins að henni fenginni. „Eg óttast afleiðingarnar en við verðum að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Danskur efnahagur stendur traust- um fótum og við verðum að tryggja að svo verði áfram,“ sagði Schluter. „Við verðum að reyna að fá sem bestan samning án þess að taka þátt í evrópska samrunanum." Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis- ráðherra Danmerkur, sagði að stjórnmálamenn hefðu vanmetið djúpstæða andstöðu almennings við Maastricht-samkomulagið. „Dansk- ir kjósendur hafa veitt okkur öllum ráðningu,“ sagði Ellemann-Jensen í samtali við danska sjónvarpið. „Nú verð ég að leggjast undir feld og heyra svo hljóðið í bandamönnum okkar í Evrópu og freista þess að bjarga því fyrir Dani sem bjargað verður.“ Ráðherranum var augljós- lega brugðið og sagði hann að nú yrðu danskir stjómmálamenn að hugsa sinn gang og meta hvemig á því stæði að þeir væru svo fjarlæg- ir kjósendum. Danska þingið hafði samþykkt Maastricht-samkomulag- ið með 138 atkvæðum gegn 25. Holger K. Nielsen, leiðtogi Sósíal- íska þjóðarflokksins, sagði að úrslit- in sýndu að meirihluti Dana hefði látið sér fátt um hræðsluáróður rík- isstjómarinnar fínnast. Sagðist hann vonast til að önnur EB-ríki myndu virða vilja dönsku þjóðarinn- Joao de Deus Pinheiro, utanríkis- ráðherra Portúgals, sagði í yfirlýs- ingu í gærkvöld að úrslitin í þjóðar- atkvæðagreiðslunni yllu sér miklum vonbrigðum. Þó vildi hann láta í ljósi þá sannfæringu að áfram yrði keppt að hugsjóninni um einingu Evrópu. Sagðist hann sem forsvarsmaður ráðherraráðs EB myndu meta niður- stöðuna í samráði við Dani og aðrar þjóðir bandalagsins. Utanríkisráðherrar Evrópubanda- lagsins munu koma saman í Ósló á skyndifundi á morgun til að ræða afleiðingar úrslitanna í gær. „Þetta er mjög alvarlegt áfall fyr- ir Evrópubandalagið," sagði ónefnd- ur embættismaður í Brussel í sam- tali við .Reufers-fréttastofuna. „Úr- slitin bera vott um óánægju sem einnig er til staðar í öðrum ríkjum þótt ástæðurnar séu ólíkar. Þegar öllu er á botninn hvolft er bandalag- ið ekki tilbúið til að stíga þetta skref fram á við.“ Á það var bent af viðmælendum Eeuters-fréttastofunnar að það hefði kostað mikið erfíði að beija Maas- tricht-samkomulagið saman og það væri hægara sagt en gert að hefja viðræður að nýju. Nú hefðu öll hin ríkin afsökun fyrir því að bera fram sínar sérkröfur af endurnýjuðum krafti. E.t.v. væri ekki laust við að sums staðar önduðu menn léttara. Þjóðveijar væru t.d. þegar farnir að sjá eftir markinu sem fyrirsjáanlega hefði vikið fyrir sameiginlegri mynt EB. Á það var og bent að úrslitin hlytu að seinka því að aðildarríkjum EB yrði Qölgað. Einn viðmælandi Reut- ers-fréttastofunnar í Brussel tók svo djúpt í árinni að segja að nú væri tómt mál að tala um fjölgun aðildar- ríkja. Fyrst yrði að leysa þá flækju sem nú hefði skapast. I Noregi fögnuðu andstæðingar Evrópubandalagsins. Skömmu eftir kl. 21 að staðartíma brutust út fagn- aðarlæti á veitingahúsi í Ósló þar sem andstæðingar aðildar Noregs að EB komu saman. Skammt frá í höfuðstöðvum fylgismanna EB- aðildar ríkti jarðarfararstemmning. Carl Bildt, forsætisráðherra Sví- þjóðar, sagði í gær að úrslitin væru „nokkuð óvænt“ og „nokkurt áfall“. Sagði hann að Svíar myndu nú hafa tvö dæmi fyrir augunum sem draga mætti lærdóm af. Annars vegar væru þeir sem vildu halda áfram í átt til nánara samstarfs innan EB og hins vegar væru þeir sem vildu hoppa af lestinni eins og Danir. Bengt Westerberg, félagsmálaráð- herra, sagði að þetta kynni að þýða að töf yrði á aðild Svía að EB. Engin viðbrögð komu í gærkvöld frá bresku stjórninni en Teddy Tayl- or einn af 23 þingmönnum íhalds- flokksins sem greiddu atkvæði gegn Maastricht-samkomulaginu hafði þetta að segja: „Þetta eru stórkost- leg tíðindi fyrir unnendur lýðræðis ... Breska þjóðin hefði gefið sama svarið hefði henni gefist kostur á því.“ Vafi þykir nú leika á því hvort írar láti verða af þjóðaratkvæða- greiðslunni um Maastricht-samkom- ulagið sem stóð fyrir dyrum. í öðrum ríkjum stóð ekki til að bera málið undir kjósendur. Sjá „EES kann að verða...“ á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.