Morgunblaðið - 07.06.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.06.1992, Blaðsíða 1
112 SEÐUR B/C/D 128. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Aukin óánægja með Maastrícht innan breska íhaldsflokksins: Miðstýringartilburðir Del- ors sagðir orsök vanda EB London. The Daily Telegraph. NORMAN Lamont, fjármálaráðherra Bretlands, réðst harkalega að framkvæmda- stjórn Evrópubandalagsins í ræðu sem hann hélt í kjördæmi sínu á föstudag. Gagn- rýndi hann sérstaklega miðstýringartilburði framkvæmdastjórnarinnar og sagði þá hafa valdið því að Maastricht-samkomulagið var fellt i þjóðaratkvæðagreiðslu I Danmörku í vikunni. Ræða Lamonts, sem er harðasta árás bresks ráðherra á EB síðan Margaret Thatcher var forsætisráðherra, hefur verið túlkuð sem bein gagn- rýni á Jacques Delors, forseta framkvæmdastjórnarinnar, þótt hann hafi ekki verið nefndur á nafn. Laganemar fá að endurtaka próf SJÖ hundruð laganemar á öðru ári við háskólann í Ósló í Noregi hafa fengið það í gegn að þeir fá að taka aftur próf sem reyndist meingallað. Þegar um klukkustund var liðin af próftímanum kom nefnilega í ljós að ártal í einni spurningunni var rangt og gerði það hana merkingarlausa. A þetta var bent og kennarar úr deildinni leiðréttu vili- una. Sú leiðrétting olli hins vegar keðju- verkun þannig að fjölmargir aðrir liðir spurningarinnar misstu merkingu sína. Kennarar neituðu samt að aflýsa prófinu en eftir kvartanir nemenda við yfir- stjórn skólans var hins vegar ákveðið að þeir fengju að taka prófið upp á nýtt. Afengi veld- ur martröðum ÁÆTLAÐ er að milljónir manna um allan heim fái sér lítinn áfengan drykk áður en gengið er til náða til að eiga auðveldara með svefn. Breskur iæknir telur sig nú hins vegar hafa sýnt fram á að þetta geti haft ófyrirséðar hliðar- verkanir. Áfengið ýti ekki bara til hliðar áhyggjum dagsins heldur hafi það einn- ig bælandi áhrif á hið mikilvæga fyrsta stig svefnsins, REM-stigið. Þegar áhrif áfengisins hyrfu reyndi síðan líkaminn að vinna upp REM-stigið á ný. Þetta gæti leitt til svefnrofs eða jafnvel mar- traða. Ríó hefur áhrif á matarvenjur NÝR sáttmáli um vemdun ýmissra dýra- tegunda sem verið er að undirrita á Ríó-ráðstefnunni á eftir að hafa vemleg áhrif á matarvenjur Hong Kong-búa. Ibúar borgarinnar hafa löngum þótt sólgnir í leggja sér ýmsar óvenjulegar dýrategundir til munns og er þannig talið að 80% þeirra hafi einhvem tímann borðað slöngur. Nú bætast hins vegar fimm „vinsælar" dýrategundir á listann yfir tegundir sem ekki má veiða. Þó yfirvöld hafi löngum reynt að sporaa við þessu fara borgarbúar einfaldlega í auknum mæli yfir landamærin til Kina þar sem reglur um þessi efni era ekki teknar eins aivarlega. Alþjóðlegum dýraveradunarsamtökum tókst nýlega að fá kínversk yfirvöld til að loka veitingastað þar sem hlébarðakjöt var á boðstólum. Við skoðun á veitingastaðn- um fundust fjörutíu apahausar og hiutar af tígrisdýri í frystikistu. „Eigandinn sagði að tigrisdýrið hefði ekki verið veitt ólöglega heidur hefði það dáið úr berkium í dýragarði. Eins og að það væri einhver afsökun fyrir að bera það á borð,“ sagði talsmaður dýraverndun- arsamtakanna. „Það sem mig grunar að hafi riðið bagga- muninn í Danmörku og hefur einnig valdið svo mikilli óánægju í þessu landi [Bret- landi] undanfarin ár er hinn að því er virð- ist endalausi þrýstingur frá Brussel um að völd bandalagsins verði aukin og fleiri og fleiri mál leyst á evrópskum grunni með miðstýringu. Það er þetta sem hefur valdið svo miklu rugli og leitt til svo sterkrar and- stöðu," sagði Lamont. Lagði hann til að við Maastricht-sáttmál- ann yrði bætt ák'væðum sem gerðu það að verkum að ákvarðanir um fleiri mál yrðu færð til aðildarríkjanna. Þetta væri hins vegar ekki nóg, að sögn breska fjármálaráð- herrans. Framkvæmdastjóm EB notaði nú þegar þá sáttmála sem fyrir hendi væru til að þvinga Breta til að fylgja reglum sem þeir gætu á engan hátt sætt sig við. Nefndi Lamont sem dæmi tilraunir til að koma á 48 stunda lögbundinni vinnuviku í Bretlandi og áætlanir um samræmingu á virðisauka- skatti. „Sú ákvörðun dönsku þjóðarinnar að hafna Maastricht-sáttmálanum er tíma- bær áminning um að ekkert varðandi þróun Evrópubandalagsins er óhjákvæmilegt eða fyrirfram gefið," sagði Lamont. Mikillar óánægju gætir innan breska íhaldsflokksins með Maastricht og er talið að allar tilraunir til að reyna að bola Dönum út úr bandalaginu vegna þjóðaratkvæða- greiðslunnar muni leiða til uppreisnar óbreyttra þingmanna. Þá eru einnig skiptar skoðanir innan ríkisstjómarinnar um málið og á ríkisstjórnarfundi í vikunni létu marg- ir ráðherrar í ljós þá skoðun að úrslitin í Danmörku væra tákn þess hversu djúpt óánægja almennings með þróunina í Evrópu risti. Bretar taka við forystunni í ráðherraráði bandalagsins síðari hluta ársins og hefur John Major forsætisráðherra því farið mjög varlega í öllum yfirlýsingum. Á fundi sínum með Helmut Kohl, kansiara Þýskalands, á föstudag gaf hann líka í skyn að Bretar myndu ekki beita neitunarvaldi sínu gegn því að Delors yrði skipaður forseti fram- kvæmdastjórnarinnar í tvö og hálft ár til viðbótar. Danir ætla einnig að samþykkja að Delors verði forseti þriðja kjörtímabilið í röð en fyrir því era engin fordæmi. Styrkurinn liggurí samstööunni Sighvatur Bjarnason Q hjá Vinnslustöðinni 10 HANNERAÐKOMA FYRIR KLETTINN Þorskur a þrotum Tillögur Alþjóðahafrannsókna- ráðsins um 40% skerðingu í þorsksókn er mikið áfall fyrir þjóðarbúskapinn. 10 Cblab LIF OG DADÐI ISAUÐBURÐINUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.