Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 35
35 > * ■ MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 14. JLJNÍ 1992 HANDKNATTLEIKUR Það þarf ekki kraftaverk til heldur vinnu og þolinmæði - segja norsku landsliðskonurnar Lynn Siri Jensen og Ingrid Steen, en norska kvennalandsliðið er í fremstu röð í heiminum „í STUTTU máli má segja að við höf um sett okkur takmark, unnið hörðum höndum að því að nálgast það og uppskorið árangur." Þetta eru orð Lynn Siri Jensen, sem til margra ára var einn af máttarstólpum norska kvennalandsliðsins í handboita sem hefur verið í fremstu röð í heiminum undan- farin ár. Lynn Siri, sem nú þjálf- ar nú 1. deildar liðið Vestar í Osló, var stödd hér á landi um síðustu helgi ásamt landsliðs- konunni Ingrid Steen. Á meðan á dvölinni stóð fylgdust þær | með og stjórnuðu æfingum hjá * íslenska kvennalandsliðinu sem heldur í keppnisferð til Portúgals á morgun ásamt því að halda fund í ÍSÍ þar sem þær röktu leið norska landsliðins á toppinn. Vakninguna í norskum kvenna- handknattleik má rekja til þess að nýr landsliðsþjálfari, Sven Tore Jacobsen, var Hanna Katrín ráðinn árið 1982. Friðríksen Hann hafði strax í skrífar upphafi ákveðnar hugmyndir um ■ hvernig ná skyldi árangri og fékk " til liðs við sig hóp leikmanna sem var tilbúinn til að leggja það á sig a sem hann taldi þurfa til. Leiðin á * toppinn var hvorki bein né greið og norsku landsliðskonurnar hafa Iekki malað gull á því að hefja norsk- ar kvennaíþróttir til vegs og virð- ingar í heiminum. Þær hafa hins vegar öðlast virðingu og vinsældir í heimalandi sínu sem varla eiga sér hliðstæðu þar í landi. Það er t.d. sagt að Ingrid Steen hafi verið fyrsti norski afreksmaðurinn í íþróttum sem vann hjarta norsku þjóðarinnar með framkomu sinni og norska kvennalandsliðið í heild er ákveðin fyrirmynd ungs fólks í landinu. „Þetta er einfalt,“ segir Ingrid. „Við látum fólk hreinlega vita af því að við höfum gaman af því sem við erum að gera.“ Ingrid var valin besti handknatt- . leiksmaður ársins í Noregi árið I 1986, þá aðeins-18 ára gömul. Hún var einn af máttarstólpum liðsins _ sem vann brons á heimsmeistaras- mótinu 1886 og silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Seoul 1988 og hefur oft verið valin í heimsliðið í | handbolta. Hún leikur nú með Vest- ar, liðinu sem Lynn Siri Jensen þjálfar og er komin aftur í landslið- ið eftir stutt frí. Lynn Siri var til margra ára aðalmarkvörður norska landsliðsins. Hún var í bronsliði Noregs á HM 1986, en lék ekki með í Seoul vegna meiðsla. Sparað til að geta keypt fleiri bolta Fram til ársins 1982 var Noregur B-þjóð í handknattleik. „Það breytt- ist allt þegar Sven Tore tók við lið- inu. Hann hafði háleit markmið og dreif okkur með. Strax í upphafi setti hann strangar reglur fyrir | hópinn. Sumir þurftu að létta sig, aðrir að þyngjast, enn aðrir urðu að hætta að reykja o.s.frv. Þær sem | ekki fóru eftir þessu voru látnar fjúka hversu góðar sem þær voru. Þarna átti sér stað ákveðin hugar- | farsbreyting.“ „Þegar landsliðshópurinn fór { Lynn Siri Jensen aðstoðar hér landsliðsmarkvörðinn Fanneyju Rúnarsdóttur við æfingar. orðar það. Þar sem tvö stórmót eru framundan á árinu hjá norska landsliðinu, þ.e. Ólympíuleikamir í Barcelona og heimsmeistaramótið í Noregi borgar handknattleikssam- bandið vinnutap fyrir þá leikmenn sem vilja vinna hálfa vinnu frá og með júnímánuði vegna aukins æf- ingaálags. „Efniviðurinn er fyrir hendi á íslandi" Fyrstu deildar lið í Noregi æfa 6-7 sinnum í viku allan ársins hring og á aðalundirbúningstímanum eru 10 æfíngar vikulega. Til viðbótar eru landsliðskonur á einstaklings- æfíngum tvisvar í viku eftir áætlun frá landsliðsþjálfara. Norski kvennalandsliðshópurinn kemur síðan saman um 120 daga á ári þar sem æft er tvisvar á dag. „Einstaklingsæfíngar spila stórt hlutverk þar sem áhersla er lögð á að hver leikmaður kunni full skil á því sem staða hans á vellinum felur í sér. Leikmaður ber ábyrgð á eigin framförum og þarf í raun að mörgu leyti að æfa eins og um einstakl- ingsíþrótt sé að ræða,“ sagði Lynn Siri. Landsliðsþjálfari lætur hveij- um leikmanni í té sérstaka áætlun frá landsliðsþjálfara þar sem fram kemur hvaða þætti hann þarf að bæta hverju sinni. Ingrid sagði t.d. að þeir þættir sem hún hefði verið að vinna sérstaklega að með ein- staklingsæfíngum væru skot af gólfí og utanverðar „fintur.“ Eftir að hafa fylgst með íslenska kvennahandknattleiksliðinu á æf- ingum sagðist Lynn Siri sjá í honum góðan efnivið og margar stúlkn- anna gætu spjarað sig í fyrstu deild- inni í Noregi - ef þær vildu. Munur- inn á íslenskum og norskum hand- knattleikskonum fælist fyrst og fremst í líkamlegum styrk og bolta- tækni. Árangur okkar sýnir að það er ekkert kraftaverk sem þarf til. Þessum þáttum er hægt að ná upp með ríflegum skammti af vinnu og þolinmæði ef efniviðurinn er fyrir hendi,“ sagði Lynn Siri. keppnis- og æfíngaferðir eyddum við eins litlu og mögulegt var í gist- ingu og mat. Við sváfum á farfugla- heimilum og komum helst með nesti að heiman til þess að geta frekar notað peningana til æfinga, keypt fleiri bolta, æfíngatíma o.þ.h. Mér finnst ótrúlegt að rifja þetta upp, en svona fórum við af stað,“ sagði Lynn Siri. Á þessum tíma átti sér einnig stað breyting sem án efa hefur ráðið miklu um hvernig til tókst, en þá var sett sú regla að 40% stjórnarmanna í íþróttafélög- um urðu að vera kvenfólk. Lynn Siri og Ingrid sögðu að Sven Tore hefði að skömmum tima breytt hugarfari leikmanna gagn- vart æfíngum og gert hveijum leik- manni grein fyrir mikilvægi fram- lags hans til liðsheildarinnar. „Sven Tore kenndi okkur líka að bera rétta virðingu fyrir góðum andstæðing- um og gera okkur grein fyrir því í hveiju yfírburðir þeirra fælust. Síð- an var tekið á þeim þáttum,“ sagði Lynn Siri. Kvenfólkið fær 50% af tekjum norska handknattleiksam- bandsins Árangur vinnunnar skilaði sér fyrst fyrir alvöru árið 1986 þegar norska kvennalandsliðið hafnaði í þriðja sæti á heimsmeistaramótinu í Hollandi. „Við heimkomuna var okkur þakkaður góður árangur og svo var það búið. Handknattleiks- sambandið fékk einhvern bónus en ekkert fór beint í okkar vasa. Hins vegar vorum við þarna búnar að geta okkur gott orð og síðan hefur ekki verið vandamál að fjármagna æfingar og keppnisferðir. Þá hafa 50% af tekjum handknattleikssam- bandsins runnið til kvennahand- bolta frá 1986,“ sagði Lynn Siri. Árangurinn hefur orðið tií þess að norskum kvennahandknattleik er mikið hampað af fjölmiðlum og fær mun meiri umíjöllun en flestar karlaíþróttir. „Það breyttist smám saman eftir því sem árangurinn jókst,“ sagði Ingrid, „en við vorum þó aldrei afskiptar áður. Kvenfólk Morgunblaðið/Árni Sæberg Ingrid Steen er komin aftur í norska landsliðið eftir að hafa tekið sér frí, en hún hefur í nokkur ár verið meðal bestu handknattleikskvenna heims. í íþróttum fær sinn hlut af umfjöll- um til jafns við karlmenn í Noregi." í dag fá norskar landsliðskonur á bilinu þijú til fimm þúsund nor- skrar krónur í mánaðargreiðslur, eða 30-50 þúsund íslenskar krónur. Greiðslan er sú sama allt árið í kring þrátt fyrir mismunandi álag og hluta hennar nota leikmenn til að greiða vinnutap sem þeir verða fyrir, eða til kaupa sér frí til að mæta á æfíngar, eins og Ingrid

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.