Morgunblaðið - 30.06.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.06.1992, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 145. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Fáni Sameinuðu þjóðanna var dreginn að húni yfir flugvellinum í Sarajevo þegar Serbar höfðu flutt sig um set en þeir héldu samt áfram árásum á innikróaða íbúana, tugi þúsunda manna, í Dobrinjahverf- inu. Hafði verið samið um vopnahlé, sem átti að standa í tvo daga, en það var rofið þegar leið á gærdaginn. Svíþjóð: Gagnrýna ónóga aðstoð frændþjóð- anna við flóttafólk Stokkhólmi. Reuter. BIRGIT Friggebo, innflytjendamálaráðherra Svíþjóðar, gagnrýndi í gær hin norrænu ríkin fyrir að hafa ekki gert nóg fyrir flótta- menn sem hafa flúið bardagana í fyrrverandi lýðveldum Júgóslavíu. „Finnar hafa takmarkað inn- flutning flóttamanna allt of mikið og hin norrænu ríkin gætu líka gert betur," sagði ráðherrann á blaðamannafundi í Stokkhólmi. Hún kvað Þjóðverja, Ungveija, Austurríkismenn og Svisslendinga, auk Svía, hafa gert mest fyrir flóttafólkið. 50.000 flóttamenn frá fyrrver- andi lýðveldum Júgóslavíu hafa komið til Svíþjóðar og Friggebo sagði að útvega þyrfti húsnæði fyr- ir 30.000 manns til viðbótar fyrir 15. september. Sænska stjórnin og sveitarfélög greiða 60 milljónir sænskra króna, um 600 milljónir íslenskra, á viku fyrir húsnæði, fæði og klæði handa flóttafólki. Friggebo vildi ekki svara því hvort Svíar myndu kreíjast vega- bréfsáritana af íbúum júgóslavn- esku lýðveldanna fyrrverandi. Bent Karlsson, varaformaður hægri- flokksins Nýs lýðræðis, hefur hvatt Friggebo til að segja af sér og sagt að sveitarfélög, sem hýsa flótta- mennina, séu nú illa stödd fjárhags- lega þar sem hún hafi látið hjá líða að krefja þá um vegabréfsáritanir. Kalifornía: >> Þrír eftii’- skjálftar Joshua Tree. Reuter. ÞRÍR öflugir eftirskjálftar Sveitir Sameinuðu þjóðanna ráða flugvellinum í Sarajevo Loftbrú til borgarinnar gæti hafist á fimmtudag en fyrsta flugvélin kom í gær Sarajevo, Sameinuðu þjóðunum, Belgrad. FÁNI Sameinuðu þjóðanna var dreginn að húni við flugvöllinn í Sarajevo í gær þegar sveitir Serba yfirgáfu hann eftir að hafa lokað honum í nærri þijá mánuði. Öryggisráð SÞ hafði þá samþykkt ályktun þar sem hótað var ótil- greindum „aðgerðum" gegn þeim sem veittu mótspyrnu. Ein frönsk flugvél með hjálpargögn kom til Sarajevo í gær en Lewis Mac- Kenzie, yfirmaður sveita SÞ í Sarajevo, sagði að flutningur matvæla og vista handa 300.000 aðþrengdum íbúum borgarinnar gæti vart hafist fyrir alvöru fyrr en á fimmtudag. Harðir bardagar blossuðu upp fáa kílómetra frá flugvellinum skömmu áður en fyrstu farartækin úr serb- nesku sveitunum yfirgáfu völlinn í fylgd brynvarinna bifreiða merktum SÞ. í sveitunum sem nú ráða flug- vellinum eru aðeins 34 manns og sagði MacKenzie að bíða þyrfti eftir liðsauka til að treysta varnir hans. í nótt áttu liðssveitir SÞ frá Króatíu að leggja af stað til Sarajevo. Sam- komulag sem gert var við stríðandi aðila í borginni gerir síðan ráð fyrir að vopnahlé verði í tvo sólarhringa áður en hjálparstarf hefjist. í samþykkt öryggisráðsins var kanadískum sveitum SÞ gert að taka yfir flugvöllinn og óbeint sagt að heimild til beitingar hervalds yrði veitt ef reynt yrði að hindra þær. Ályktunin kom í kjölfar harðnandi yfirlýsinga vestrænna leiðtoga um helgina og óvæntrar heimsóknar Reuter. Francois Mitterrands Frakklands- forseta til Sarajevo á sunnudag. Radovan Karadzic, leiðtogi Serba í Bosriíu-Herzegovínu, staðfesti í gær að sveitir hans hefðu farið frá flugvellinum í Sarajevo, en varaði við því að flugvélum yrði ekki leyft að lenda þar ef sveitir múslíma og Króata tækju sér stöðu þar. Slobodan Milosevic, forseti Serb- íu, samþykkti í gær að ræða við leiðtoga stjómarandstöðunnar, en ekki kröfu hennar um að hann segði af sér. Á sunnudag gengu 100.000 manns um götur Belgrads til að krefjast afsagnar Milosevics í mestu mótmælum þar í borg frá lokum síðari heimsstyijaldarinnar. Fulltrú- ar stjórnarandstöðunnar sögðu að forsetinn hefði samþykkt að gangast undir dóm kjósenda, en sumir sögðu að það væri einungis fyrirsláttur til að slá á mótmælin og vinna sér tíma. Stjórnarandstaðan sakar Milosevic um að bera ábyrgð á viðskiptabanni SÞ á Serbíu og flestir telja hann stjórna hernaðaraðgerðum Serba í Bosníu og Króatíu. Sjá frétt um ferð Mitterrands á bls. 21. riðu yfir Kaliforníu í gær en voru þó ekki jafn miklir og skjálftamir tveir í fyrradag. Þá lét þriggja ára gamalt bam lífið og um 350 manns slösuð- ust eitthvað. Fyrsti skjálftinn á sunnudag var 7,4 stig á Richter-kvarða og er hann sá mesti í Kalifomíu í 40 ár. Síðari skjálftinn var 6,5 stig en skjálftamir í gær 5,6, 4,9 og 5,4 stig. Skókust skýja- kljúfar í Los Angeles og nokkuð var um að vatnsleiðslur fæm í sundur en ekki var vitað um alvarlegan skaða eða meiðsli á fólki. Jarðskjálftafræðingar höfðu varað við eftirskjálftunum en að hræringunum í gær afstöðnum þykir líklegast að hrinan sé um garð gengin. Sjá frétt á bls. 20. Mohamad Boudiaf, forseti Alsírs, myrtur: Otti við borgarastríð í kjölfarið AlopirKhnror Rpulpr Algeirsborg. Reuter. MOHAMED Boudiaf, forseti Alsírs, var myrtur í gær þegar hann var að vígja nýja menningarmiðstöð í bænum Annaba, 450 km aust- ur af Algeirsborg. Var þar að verki maður, sem klæddur var einkenn- isbúningi öryggisvarða, en talið er, að hann sé í flokki alsírskra heittrúarmanna. Boudiaf var skipaður forseti Alsírs fyrir hálfu ári og með því kom hersljórnin í landinu í veg fyrir kosningar og lík- lega valdatöku heittrúarmanna. Hefur morðið verið fordæmt víða um heim og óttast margir að það geti Ieitt til borgarastríðs í Alsír eða algerrar valdatöku hersins. í fyrstu var talið, að fleiri hefðu fallið auk Boudiafs en það var síðar borið til baka. Enn er þó óttast um líf sumra þeirra rúmlega 40, sem særðust áður en lífverðir forsetans náðu að yfirbuga morðingjann. Að sögn alsírsku fréttqstofunnar APS varð fyrst sprenging skammt frá pallinum þar sem forsetinn sat og greip hún strax athygli hans og annarra. Því næst var handsprengju varpað undir stól forsetans og mað- ur í búningi öryggisvarða ruddist út úr mannþrönginni fyrir aftan ræðupallinn og lét skothríðina úr hálfsjálfvirkri hríðskotabyssu dynja á Boudiaf og öðrum gestum. Als- írska forsætisnefndin lýsti í gær yfir sjö daga þjóðarsorg og aflýsti hátíðarhöldum í tilefni af 30 ára sjálfstæði landsins. Mohamad Boudiaf var 73 ára að Reuter Særður, alsirskur embættismað- ur borinn á burt eftir morðið á Boudiaf, forseta Alsirs. aldri og hafði verið í útlegð í 27 ár þegar aisírska herstjómin leitaði til hans í janúar sl. og bað hann að taka við forsetaembættinu. Þá hafði verið hætt við að halda síðari umferð þingkosninga í landinu þar sem ljóst þótti að Islamska frelsis- hreyfingin, flokkur heittrúar- manna, myndi sigra í þeim. Einingarsamtök arabaríkja hafa lýst hryggð og fordæmingu vegna morðsins á Boudiaf og undir það hafa tekið ríkisstjórnir og þjóðar- leiðtogar á Vesturlöndum og í araba- og Afríkuríkjum. í Evrópu og sérstaklega Frakklandi óttast ýmsir, að morðið geti valdið stórá- tökum og jafnvel borgarastyijöld í Alsír. Sjá ennfremur fréttir á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.