Morgunblaðið - 05.07.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.07.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1992 21 taldist í forsvari fyrir, ótvíræð áhrif á þróun listar hans, t.d. er þetta tímabil stundum nefnt „Katalónski fauvisminn". Fyrstu einkasýningu sína heldur Miró 1918 og árið eftir heldur hann til Parísar í fyrsta skipti og kynnist þar landa sínum Picasso, sem keypti af honum sjálfsmynd, sem var máluð undir áhrifum frá Henri Rousseau. Miró var, er hér var komið, und- ir áhrifum úr öllum áttum og í sömu mynd gátu greinst áhrif frá Picasso, t.d í samræmdum og hlut- kenndum „kúbisma“ og jafnframt Matisse og þá einkum varðandi skreytikenndan bakgrunn. Þessi áhrif ásamt áhrifum frá katal- ónskri alþýðulist, fóru smám sam- an að taka á sig mjög persónulega mynd og runnu saman við áhrif frá surrealisma, nævisma og fleiri stílbrigðum. Kannski náðu þessi áhrif hæst í olíumálverkunum „Fyrirsæta með spegil“ 1919, sem er í eigu lista- safnsins í Dusseldorf og „Bónda- bærinn“ 1921-22, sem hann vann að í heila níu mánuði í Montroig, Barcelona og París. í báðum mál- verkunum og einkum því síðar- nefnda er lögð áhersla á hvert smáatriði og að þau séu einnig hvert fyrir sig mikilvægur hlekkur í stórri samræmdri myndheild. Það var svo enginn annar en Ernest Hemingway, sem keypti þá mynd litlu eftir að hún var full- gerð. Hann sagði í því sambandi: „málverkið rúmar allar tilfinningar manns, þegar maður er á Spáni, og allar tilfínningar manns, þegar maður er í burtu og getur ekki gengi inn í það“. Málverkið, sem er 122x147 cm að stærð var að Hemingway látnum lengi í eigu ekkju hans en er nú í Þjóðlistasafn- inu_ í Washington. Á árunum 1923-24 þróaðist list Mirós úr blæbrigðum annarra og þegar rótfastra stílbragða til óhlut- bundinnar, fijálsrar listsköpunar, sem minnir á kalligrafíu. Hann hleður myndir sínar óræðum tákn- um þar sem hvert tákn stendur fyrir óhlutstæðu hugtaki eða hug- mynd, en er ekki tákn fyrirbæris- ins sjálfs. Þetta ferli hafði fyrst komið fram í myndverkum Wassily Kandinskys (1866-1944), sem var af rússneskum uppruna og nær samtímis birtist það hjá Paul Klee (1879-1940), sem var af sviss- neskum uppruna, en báðir lifðu meginhluta lífs síns í Miinchen og Weimar. Verkum þeirra hafði Miró kynnst í París. En þessir menn voru af þrem þjóðernum og geró- líkir að upplagi og myndlist þeirra ber mjög sterk persónueinkenni hvers og eins. Af þessu má ráða, að það er ekki sjálf hugmyndafræðin sem alfarið ræður ferðinni í listinni, heldur öðru fremur uppruni, upp- lag og umhverfi. í gegnum André Masson (sem Listasafn íslands kynnti á síðustu Listahátíð), sem Miró vingaðist við komst hann í kynni við surrealist- ana og fagurfræði þeirra og kynni hans af Hans Arp reyndust mikil- væg. Hér fann hann samhljóm með fyrri hugmyndum sínum um „útrás ímyndunaraflsins“ og „hið undur- samlega". Hann var að vísu einn þeirra, sem skrifuðu undir stefnuyfirlýs- ingu surrealistanna, sem André Breton formaði, og sýndi á vegum þeirra ný verk árið 1925, en var þó frekar utangátta í hugmynda- fræðinni og var þar af leiðandi ekki með öllum uppátækjum þeirra. Þess ber að geta að hann tók að sér, ásamt Max Ernst, að gera búninga og skreytingar að ballett- inum Rómeo og Júlíu fyrir Serge Diaghilew. Hefur sú samvinna áreiðanlega haft áhrif á báða, sem greinilega má sjá í skúlptúrverkum þeirra. Þetta er bakgrunnurinn að list- ferli listamannsins snjalla Joan Miró og nú tók við nær sex ára- tuga starfsferill á myndlistarvett- vangi, þar sem sérhvert verk sem hann gerði bar ótvírætt kennimark skapara síns hvar sem hann bar niður. Eins og félagar hans hinir miklu meistarar aldarinnar, sem áður hafa verið nefndir, þá einskorðaði Miró sig ekki við málverkið, því að eftir hann liggur mikill sægur grafíkverka og þá einkum stein- þrykkja, þá vann hann í hvers kyns rýmisverkum eða skúlptúr, eins og menn vilja nefna það, síð- ustu áratugi Iífs síns og hann gerði veggmyndir úr keramikflísum fyrir opinbera aðila og alþjóðastofnanir víða um heim. Þess sér m.a. ríku- lega stað á heimaslóðum hans Palma de Mallorka og í Barcelona. Þá gerði hann einnig veggteppi í sígildum aðferðum en lét einnig vefa jafn óvenjulegar formanir sem regnhlíf og málmfötu. Á þessu síð- asta tímaskeiði lífs síns fékk hann ótakmarkaðan áhuga á hvers kyns efnum og þá fyrst og fremst upp- runalegum efnum og upprunalegu handverki. Hér var hann trúr upp- runa sínum, leirkerasmiðunum og handverksmönnunum á Mallorka. Samvinna þeirra Aimée Maegh og Mirós var mikil og giftudrjúg og það sem við sjáum að Kjarvals- stöðum er ekki nema lítill hluti þess sem hún leiddi af sér. Þrátt fyrir að þessi verk eru gerð fyrir sérstakt umhverfi og eru rifín upp úr þeim, njóta þau sín ágætlega frístandandi og þeim er yfirleitt vel fyrir komið í rými Kjarvalsstaða. Það skal og upplýst að a.m.k. sum verkanna eru gerð í nokkrum eintökum og eru víða á söfnum. Húsameistarinn, sem teiknaði villuna og skipulagði garðinn var enginn annar en hinn nafntogaði José Luis Sert, og seinna teiknaði hann einnig og skipulagði Miró- safnið í Barcelona. Miró var alltaf umkringdur að- stoðarmönnum við útfærslu hug- mynda sinna, sem voru oftar en ekki jafnframt vinir hans og þann- ig voru það tveir útlærðir keramik- listamenn, sem aðstoðuðu hann við gerð samsettu verkanna, en slík verk nefnast á fagmáli „Ass- emblage“, sem þýðir einfaldlega „listaverk gert úr samsafni ýmiss konar hluta“. Rétt er að geta þess- ara ágætu fag- og listamanna sem voru þeir Josep Llerens Artigas og Joan Gardy-Artigas, frá Katalóníu eins og meistarinn. Oviðjafnanleg samsetning verk- anna er þeim að þakka, en sú hlið útfærslunnar er svo fullkomin, að líkast er sem verkin hafi orðið til af sjálfu sér, jafnvel vaxið upp úr gróðurmoldinni. . Verkin hafa yfir sér mikla líf- ræna og ástþrungna skírskotun og láta fáa ósnortna, sem á annað borð hafa tilfínningu fyrir form- rænu samræmi og fijálsu hugar- flugi. I þessum verkum kemur vel fram viðleitni listamannsins til að gera list úr hverdagslegum hlutum og jafnframt andúð hans á „Bonne peinture“ fögrum málverkum, en um leið skapar hann fagurfræði í krafti listgáfu sinnar og tilfinning- ar fyrir samruna ólíkra efna, forma, lita og áferðar. Og hvað það snertir hve eðlileg- ar þessar myndir eru, ætti að verða mörgum til umhugsunar, því að hér er um hreina töfra að ræða. Það virðist bókstaflega alveg sama hve fáránlegum hlutum Miró lét sér detta í hug að skella saman, því allt verður að lífi og eins og það hafi sem afsprengi náttúrunn- ar, verið til frá ómunatíð og ein- ungis beðið eftir að vera uppgöt- vað. Skoðandinn er þá sem land- könnuður í völundarhúsi dular- magna, og upp fyrir honum ljúkast dyr að furðum undirheima, sem í þessu tilviki eru einungis útrás ímyndunaraflsins, og hið undur- samlega við grómögn lífs í mann- heimi. Þóra H. Helga- dóttir — Minning Fædd 25. nóvember 1920 Dáin 25. júní 1992 Tengdamóðir mín, Þóra Hansína, hefur nú lagst til hinstu hvílu eftir hetjulega baráttu við sjúkdóm sinn. Ég ætla með nokkrum línum að minnast Þóru sem var mér traustur vinur og félagi frá þeim degi sem ég tengdist fjölskyldu hennar sem væntanlegur tengdasonur og þar til dauðinn skildi okkur að. Þóra var fædd í Lambhaga í Vestmanna- eyjum. Þóra minntist .ætíð æsku- stöðvanna með hlýhug, hún leit fyrst ljós í Lambhaga en síðan lá leið hennar til Baldurs Ásgeirssonar sem var ljós á vegi hennar til hinstu stundar. Foreldrar hennar voru sæmdarhjónin Helgi Ingimundar- son Backman, ættaður úr Landeyj- um, og kona hans Jóna Guðrún Jónsdóttir frá Seyðisfirði. Helgi og Jóna eignuðust átta börn og eru þijú á lífí. Um tvítugt kynntist Þóra eftirlifandi maka sínum, Baldri Ásgeirssyni, sem hafði þá numið móta- og leirkerasmíði í Þýskalandi og hefír hann stundað iðn sína fram á þennan dag. Baldur er afar vand- aður og traustur maður, sem stund- að hefur iðn sína af metnaði og samviskusemi gegnum tíðina, hann er listrænn og sérlega hagur. Þóra og Baldur gengu í heilagt hjóna- band 1941 og hófu síðan hjúskap í rishæð hússins Smiðjustígur 7 í Reykjavík og þar eignuðust þau börn sín fjögur. Eina dóttur misstu þau aðeins sex mánaða gamla, var hún þeirra þriðja bam og hét Sig- rún. Böm þeirra em eftirlifandi, elst Edda Ásgerður, síðan Helgi Gunnar og yngst er eiginkona mín, Sigrún Jóna. I dag em afkomendur tengdafor- eldra minna böm þeirra þijú, bama- böm sex og barnabarnabörn sex. Tengdamömmu var tíðrætt um árin á Smiðjustígnum, það var einhver ævintýraljómi yfír þessum fyrstu hjúskaparárum. Hún sagði mér oft hve gestkvæmt var í þessum þröngu húsakynnum og þeim fjölmörgu sem fengu næturgistingu á stofu- gólfinu. Það leitar svo ótal margt á hugann í dag og minnist ég vel hve þakklát hún var fyrir þá varð- veislu þegar eldur kom upp í kjall- ara Smiðjustígs 7, og þau vom sof- andi uppi í risi, en fyrir árvekni nágrannans sem alltaf var á fótum fyrir allar aldir, þá tókst að gera slökkviliðinu aðvart í tæka tíð og afstýra stórslysi en nágranninn ár- vakri var þjóðhetjan Albert Guð- mundsson. Þóra hafði góða frásagnarhæfi- leika og var afar tilfinninganæm. Hún fékk mig oft til að upplifa með sér atburði og ævintýri liðinna ára. Þessar stundir okkar eru mér ljúfar minningar og verða geymdar sem demantar í fjársjóði minninganna, minninga um tengdamóður sem var mér fyrst og fremst góður vinur og félagi. Á heimili Þóru og Bald- urs áttum við ég og öll mín systk- ini alltaf griðastað gegnum tíðina, enda sérlega gott að koma að Hæðargarði 44. Við Sigrún Jóna vomm gefín saman í hjónaband 25. september 1969 í stofunni í Hæðar- garði 44 af föður mínum, séra Rób- ert Jack, en milli foreldra minna og tengdaforeldra var alltaf mjög góð vinátta. Ég mun ætíð minnast Þóru með miklu þakklæti fyrir það Aldarminning: Þórey Steinþórsdóttir Með þessum fátæklegu orðum langar mig að minnast ömmu minnar sem var frá Hömrum við Akureyri og hélt Þórey Steinþórs- dóttir. Hún var fædd fyrir réttum 100 árum eða 6. júlí 1892 og lést hinn 7. febrúar 1981. Afa mínum, Þóri Jónssyni húsamálara, giftist hún árið 1925 og bjuggu þau lengi framan af á Gránufélagsgötunni en fluttu síðar í nýtt hús á Ránar- götu 31. Bjó amma heitin þar til hinstu stundar. Ekki verður ævi- ferill hennar rakinn hér frekar, það verða aðrir menn mér fróðari að gera. Amma mín var vinur minn. í æsku var ég hjá henni um lengri eða skemmri tíma á sumrin og þau sumur sem ég dvaldi ekki beinlínis hjá henni var alltaf kíkt í heim- sókn, með mömmu eða mömmu og pabba. Sumarið 1978 bar síðan svolítið nýtt við. Þá var ég 17 ára gamall og aldrei þessu vant gekk mér illa að fá sumarvinnu. Þá varð úr að ég færi norður til Akureyrar til að vinna hjá byggingafyrirtæki. Var amma meira en boðin og búin til að skjóta yfir mig skjólshúsi og gefa mér að snæða. Þótti henni það sjálfsagt mál. Þetta sumar er mér um margt sérstakt og eftirminnilegt. Sér- stakt að því leyti að ég hafði aldr- ei dvalið svo lengi að heiman í einu og eftirminnilegt fyrir þær sakir að kynnast ömmu, nú sem ungur maður en ekki bam. Okkur samdi ákaflega vel (nema kannski þegar ég dreypti á brennivíni, hún var akki par hrifin af því). Við höfðum um mýmargt að tala og áttum auk þes sameiginlegt áhugamál þrátt fyrir 7 áratuga aldursmun. Þar á ég við fótboltann. Ömmu þótti fátt sjónvarpsefni skemmtilegra en fót- boltinn og heimsmeistarakeppnin sem haldin var þetta sumar suður í Argentínu fékk okkur aldeilis eitt- hvað til að tala um. En fyrir utan það að skiptast á skoðunum um fótbolta og fá „ömmumat" þrisvar á dag má segja að ég hafi líka fengið annars konar næringu. í þeirri gömlu leyndist nefnilega mikill heimspekingur. Segja má að megininntakið í heimspeki hennar hafi verið þakklæti og nægjusemi. Hún lagði mikla áherslu á það að þeir sem væru heilsuhraustir og hefðu atvinnu þyrftu ekki að kvarta. Þeir ættu sem hún var mér og fyrir allt sem hún var fjölskyldu minni og bömum okkar Sigrúnar. Á erfíðum tímum í mínu einkalífi fann ég betur en nokkru sinni fyrr, hve traustur og góður vinur Þóra var. Hún var ekki að núa því um nasir manns sem hafði mistekist heldur lyfti hún upp því sem var jákvætt og uppörvaði mann og hvatti til dáða. Þóra var mjög glöð þegar fmmburður okkar, Vigdís Linda, varð stúdent en hún hafði einmitt sagt allnokkm áður og þá mjög veik: „Róbert minn, hvemig sem allt fer þá skal ég lifa það að sjá hana Vigdísi mína setja upp hvíta stúdentskollinn sinn“ enda mætti hún í stúdentshófíð með fyrstu gestum og samfagnaði af öllu hjarta með okkur. Ég þakka í dag ljúfa samferð og vináttu allar okkar samverustundir á jólum og í annan tíma. Ég bið algóðan guð um að umvefja ástkær- an eiginmann og börn Þóru ásamt öllum ættingjum hennar og vinum. Róbert Jón Jack. að þakka góðum Guð fyrir þetta ríkidæmi sitt. Það sem væri „alla lifandi að drepa væri vanþakklæti og skortur á nægjusemi". Allir ætluðu að eignast allt og helst strax. Það sem við köllum lífsgæð- akapphlaup væri ekkert kapp- hlaup, heldur hröð för að feigða- rósi. Sá sem temur sér nægjusemi og gerir sig ánægðan með lítið verður svo auðveldlega hamingju- samur. Ekki að það þurfí að slá af kröfum, kröfurnar verða bara öðruvísi. Hjá ömmu endurspeglaðist það að vera móðir hinnar síðustu kyn- slóðar sem setur fjölskylduna fremst í flokk. Þar er aftur komið að nægjuseminni. Að hafa góða heilsu og að hafa nóg að starfa, það eru aðalatriðin. Að geta séð fyrir sér og sínum í víðum skiln- ingi þeirra orða, það er það sem gefur lífínu gildi. Þetta er það sem ber að þakka Guði. Ekki það að geta eignast stærra og fleira. Segja má að áhrifamesta túlkun hennar á þessari skoðun sinni hafi verið hennar daglega lif. Hún var ná- kvæmlega eins síðustu æviárin og ég hef alltaf munað hana: Lífsglöð og kvik. Alveg sama á hveiju gekk, alltaf stutt í fallega brosið og „hljóðlausa“ skellihláturinn. Éinhver sagði einhvern tímann að það að kunna að eldast væri hámark viskunnar og einhver erf- iðasti kafli þeirrar listar að kunna að lifa. Þá list kunni hún amma mín flestum betur. Blessuð sé og veri minningin um sómakonuna Þóreyju Steinþórs- dóttur. Þorsteinn Gunnar. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.