Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1992 7 Sambíóin taka sænska gamanmynd til sýninga Leikstjórinn heldur erindi í Norræna húsinu Árni Samúelsson, Lasse Áberg og Þorvaldur Árnason æfa sveifluna fyrir frumsýningu á myndinni Seinheppni kylfingurinn. Sambíóin hafa tekið til sýninga gamanmyndina Seinheppni kylf- ingurinn eftir sænska leikstjór- ann Lasse Áberg. Þetta er nýjasta mynd leikstjórans sem hefur gert nokkrar af best sóttu myndum í Svíþjóð. Áberg var viðstaddur Islensk tón- skáld við Glasgow- háskóla Tvö islensk tónskáld, Karólína Eiríksdóttir og Þorsteinn Hauks- son, hafa nýlega lokið sex vikna dvöl við Háskólann í Glasgow. Þar störfuðu þau að tónsmíðum við tölvuver skólans. Dvöl Karólínu og Þorsteins er annar hluti af þremur í menningars- amskiptum Glasgow og Reykjavík- ur, sem hófust í júní síðastliðnum með listahátíðinni ÍSINN BROT- INN (Breaking the Ice). Þau Karólína og Þorsteinn sömdu þijú ný verk í dvöl sinni við Háskól- ann í Glasgow og nutu góðs af tölvubúnaði skólans við tónsmíðarn- ar. Karólína samdi eitt verk sem flutt er af segulbandi. Þorsteinn nýtti aðstöðuna til að ljúka við samningu tveggja verka, sem hann hafði lagt grunn að í öðrum tölvu- verum. Þessi þijú verk verða flutt á tón- leikum í Glasgow 30. október næst- komandi, ásamt öðrum verkum sem samin voru í tölvuveri Háskólans í Glasgow á sama tímabili. Á tónleik- unum mun Kolbeinn Bjarnason leika á flautu samhliða tónlist af segulbandi í öðru verka Þorsteins, en tónverkið er samið fyrir Kolbein. íslensk tónskáld hafa ekki að- gang að vel búnu tölvuveri hér á landi, svo að starfsaðstaðan í Há- skólanum í Glasgow var mikils virði. Reykjavíkurborg og Háskólinn í Glasgow styrktu dvöl tónskáldanna. Þriðji hluti menningarsamskipt- anna fer fram í Reykjavík í janúar og febrúar á næsta ári. Þá verða Myrkir músíkdagar helgaðir skoskri tónlist. Skoskar myndlistarsýningar verða settar upp á Kjarvalsstöðum. Skoskur matreiðslumeistari sækir heim Veitingahúsið við Tjömina og margt fleira. Tryggvi Emilsson Afmælis- frétt leiðrétt Vegna mistaka birtist frétt í Morgunblaðinu í gær um níræðis- afmæli Tryggva Emilssonar rithöf- undar nokkrum dögum of fljótt, en afmæli Tryggva er þriðjudaginn 20. október. Morgunblaðið biðst vel- virðingar á þessum mistökum og harmar þau óþægindi sem þau kunna að hafa valdið. frumsýningu myndarinnar á föstudag. Hann mun í dag kl. 16.00 segja frá verkum sínum í Norræna húsinu og þar verður einnig sýnd mynd hans Kvik- myndir hans klukkan 14. Kvikmyndin Seinheppni kylfing- urinn íjallar um mann sem vegna veðmáls verður að læra golf á einni viku. Hann heldur til Skotlands með golfkylfur frænda síns, sem mamma hans hefur geymt frá árinu 1935. Viku seinna heldur hann aftur heim og verður að sanna getu sína í golf- íþróttinni. Sállskapsresan fjallar um mann sem sem aldrei hefur far- ið til útlanda en ákveður að drífa sig í frí til Kanaríeyja, þrátt fyrir að hann sé haldinn mikilli flughræðslu. Ymsir óvæntir og skondnir atburðir gerast í ferðinni Kvikmyndin er frá árinu 1981 og tekur um eina og hálfa klukkustund. Myndin er á létt- um nótum fyrir alla íjölskylduna og er aðgangur ókeypis. Lasse Áberg gerði fyrstu mynd sína árið 1976 og hefur síðan gert fjórar myndir. Seinheppni kylfing- urinn hefur fengið góða dóma í Sví- þjóð og víðar. Flókakvöld á Kjarvals- stöðum Þriðjudaginn 20. október kl. 20.00 verður að Kjarvalsstöðum dags- skrá sem ber yfirskriftina „Flóka- kvöld“ og er í tengslum við sýn- ingu á verkum Alfreðs Flóka sem stendur þar yfir. Á Flókakvöldinu munu nokkrir vinir Alfreðs Flóka minnast hans, hver á sinn hátt. Meðal annars mun Nína Björk Ámadóttir lesa kafla úr bók sinni um Flóka sem væntanleg er á næstunni frá Forlaginu. Aðrir sem koma fram eru: Atli Heimir Sveinsson, Dagur Sigurðarson, Jó- hann Hjálmarsson, Ólafur Gunnars- son, Sjón og Þorri Jóhannesson. Allir eru velkomnir á Flókakvöldið. Sýningunni á verkum Alfreðs Flóka lýkur á sunnudaginn 25. október. LÁTTU TÍMANN VINNA MEÐ ÞÉR Fjárhagslegt siálfstæði þitt í framtíðinni byggist á því ao þú gerir ráðstafanir í tíma ÍSLENSKI LÍFEYRISSJÓÐURINN Fjárhagslegt öryggi er flestum mikilvægt. Það á ekki síst við þegar fólk lætur af störfum og lífeyrisgreiðslur koma í stað launatekna. Krafan um að geta haldið þeim lífskjörum sem áunnist hafa á starfsævinni þykir ef til vill sjálfsögð en hún er alls ekki sjálfgefin. íslenski lífeyrissjóðurinn er fúllgildur lífeyrissjóður sem sniðinn er að þörfum þeirra sem vilja skapa jafnvægi milli launatekna nú og lífeyristekna í framu'ðinni. íslenski lífeyrissjóðurinn er séreignasjóður sem þýðir að inneign sjóðfélaga er séreign hans og nýtist honum einum eða erfingjum hans. Traust fjárfestingastefna sjóðsins tekur mið af langtímahag sjóðfélaga. Sjóðfélagar geta ávallt fylgst með ávöxtun eigna sinna þar sem þeir fá sent greinargott yfirlit yfir stöðu sína ársfjórðungslega. Fjárhagslegt sjálfstæði þitt í framtíðinni byggist á því að þú gerir ráðstafanir í tíma. Hafðu samband við ráðgjafa Landsbréfa sem fyrst. íslenski lífeyrissjóðurinn - séreignasjóður í umsjá Landsbréfa hf. LANDSBRÉF H F. Landsbankinn stendur meö okkur Suöurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, simi 91-679200, tax 91-678598. Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aöili aö Verðbréfaþingi íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.