Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 1
JMtargutiÞIftfeUk MENNING LISTIR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992 BLAÐ Ólgandi hafið, dimmblátt, djúpt og ægifagurt. Landið svo þrungið lífi að formið gefst upp við að halda því í skefjum; ytri myndin síbreytileg - litirnir takast ó eins og heil örlagasinfónía sé að verki. Þetta er heitt land og mjúkt, sem gefur allt. Þetta er kalt land og hart, sem tekur allt: Eyðir um leið og það skapar, ryður sér fram um leið og sjórinn sverfur af því. - Hvaða land er þetta? Þetta er landið þitt og landið mitt; londið eins og við berum það með okkur á ferðalaginu gegnum lífið, hvert sem við förum. Þetta er heima - ef við þorum að eiga einhvers staðar heima. Myndin er ættjarðarljóð - þrungið tilfinningum; kærleika, gleði, undrun, ótta, sorg og sársauka og listamaðurinn sem ort hefur á strigann er Hrólfur Sigurðsson. Idag verður opnuð sýning á málverk- um Hrólfs Sigurðssonar listmálara á Kjarvalsstöðum. Víst er að það eru mikil tíðindi, vegna þess að Hrólfur hefur ekki haldið einkasýningu frá því 1962, þegar hann hélt sína fyrstu sýningu í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Hann hefur þó tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér og erlendis og þegar hann er spurður hvers vegna hann hafi ekki haldið einkasýningu í þijátíu ár, færist hann undan að svara. Staðreyndin er hinsvegar sú, að Hrólfur hefur aldrei verið neinn stórframleiðandi málverka, en verk hans verið eftirsótt og þess vegna aldrei náðst að safna þeim saman á sölusýningu. Hrólfur sýnir nú í boði Kjarvals- staða og er hér um að ræða yfirlits- sýningu á verkum hans frá 1970, þótt hann hafi málað frá því á sjötta áratugnum. „Það urðu miklar breyt- ingar á myndunum mínum um 1970,“ segir Hrólfur. „Þær breyting- ar urðu fyrst og fremst í litnum. Fram að þeim tíma var ég mjög dökk- ur. En smátt og smátt vann ég mig í gegnum Ijósið, ef svo má að orði komast. Ég fór úr dimmum jarðlitum, yfir í heita, jörðin og form hennar skálduð. Fyrir 1970 var formið mjög ákveðið hjá mér, en nú var ég frjáls. Ég hætti að vera úti að mála, en fór þess í stað að gera skissur. Það hent- aði mér betur til að losna undan því valdi sem náttúran hafði yfir mér. Ég hafði fijálsar hendur og eltist síður við smáatriði. Ég hef alltaf verið mjög opinn fyrir náttúrunni. Mér hefur alltaf þótt nauðsynlegt að vera mikið úti við og velta því undri sem náttúran er fyrir mér. Ég leyfi áhrifum henn- ar að hlaðast upp í mér, það er að segja því afli sem í henni býr. Eg kem „kompósisjón" á blað — sem mér fínnst alltaf erfiðast — því mynd sem ekki er „kompóneruð" er engin mynd. Og það er ekki fyrr en mér hefur tekist það, að ég fer a,ð hafa áhuga á litum.“ - Hvar finnur þú þessa lifandi jörð? Morgunblaðið/Ámi Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.