Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 2
EFNI 2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992 Tyrkneska forræðismálið Dætur Sophiu komnar fram SOPHIA Hansen átti að fá að hitta dætur sínar á hóteli í Istanbul í gær. Hasip Kaplan, lögmaður Sophiu, fékk þetta í gegn og naut hann liðsinnis eins af átta lögmönnum Halims Als, föður stúlknanna. Halim A1 gerði þá kröfu að Sop- hia mætti ekki snerta dætumar, ein- ungis tala við þær. Stefnumótið átti að fara fram í veitingasal hótels í Istanbul. Samkvæmt upplýsingum sem lög- Tónleikum með Kris Kristofer- sons frestað HINN þekkti söngvari, laga- smiður og kvikmyndaleikari Kris Kristoferson hefur af- lýst öllu tónleikahaldi næstu tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda í fjölskyldu hans. Ljóst er því að ekki verður af tónleikum sem fyrirhugað- ir voru á Hótel íslandi 19. og 20. nóvember. Kris Kristoferson var að vinna við kvikmynd þegar veik- indin komu upp og hefur vinnu við myndina verið frestað. Að sögn Ólafs Laufdals veitinga- manns er stefnt að því að Kris Kristoferson komi hingað til lands við fyrsta tækifæri en samkvæmt skeyti frá umboðs- skrifstofu hans getur það ekki orðið fyrr en í fyrsta lagi í lok janúar eða byijun febrúar. maður Sophiu hefur aflað sér fer faðirinn í engu eftir leiðbeiningum lögmanna sinna í þessu máli. Lög- maðurinn segir að Halim A1 sé orð- inn mjög uggandi vegna allrar þeirr- ar fjölmiðlaumfjöllunar sem mál þetta hefur fengið. Einnig sé hann uggandi vegna þess að dómsmála- ráðuneytið í Tyrklandi hefur kært hann til saksóknara og krafist rann- sóknar á öllum brotum hans á um- gengnisrétti Sophiu Hansen við dæt- ur sínar. Rannsókn á að fara fram á meintum hótunum hans í garð Sophiu og lögmanns hennar í Tyrk- landi, Hasips Kaplans. Þung viðurlög liggja við slíkum hótunum í Tyrk- landi. Stúlkumar, Dagbjört og Rúna, hafa báðar verið settar í skóla. Sú yngri gengur í skóla þar sem aðeins er kennt úr helgibók múslima, kór- aninum. Ekki fær hún aðra kennslu, eins og t.d. í reikningi, skrift eða öðrum greinum. Dagbjört, sú eidri, gengur í annan skóla en Rúna. Hún fær tilsögn í teikningu, reikningi og tveimur öðrum hefðbundnum grein- um, en megináherslan er lögð á kennslu í kóraninum. Báðir skólarn- ir eru reknir af strangtrúuðum mús- limum. Sigurður Pétur Harðarson, vinur og aðstoðarmaður Sophiu, kveðst hafa upplýsingar um það að dæturn- ar hafi mátt sæta heilaþvotti, en markmiðið með honum hafi verið að þær gleymi móður sinni og snú- ist gegn henni. Réttað verður í tyrkneska forræð- ismálinu í Istanbul næstkomandi fimmtudag, 12. nóvember. Morgunblaðið/Kristinn Veðrið brást Skíðafólk lét ekki þoku og slæmt skyggni í Bláfjöllum aftra sér í gærmorgun og brá sér í fjöllin þegar skíðasvæðið var opnað 5 fyrsta sinn á þessum vetri. Skíðasvæðin í Skálafelli og í Bláfjöll- um voru opin fram eftir degi. Að sögn Þorstéins Hjaltasonar umsjónarmanns eru mörg ár síðan nægur snjór hefur verið í fjöll- unum fyrir jól, en nú hefur fyrra opnunarmet, sem var 12. nóvem- ber, verið slegið. „Þetta fór ekki eins fallega af stað og búist var við,“ sagði hann. „Veðrið var aðeins á undan spánni. Færið var að vísu ágætt, en þoka og lélegt skyggni." Samvmnulífeyrissjóðurmn kaupir hæð í Sambandshúsi AÐ ÞVÍ mun nú stefnt, að Samvinnulífeyrissjóðurinn leysi til sín eina hæð í Sambandshúsinu á Kirkjusandi, og mun vera um það að ræða að sjóðurinn jafni á þann hátt út skuldum Sambands íslenskra samvinnu- félaga við sjóðinn. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins á Sam- vinnulífeyrissjóðurinn veð í hálfri annarri hæð Sambandshússins fyrir skuldum Sambandsins sem verður nú létt af Sambandinu með því að sjóðurinn leysir til sín eina hæð hússins. Sigurður Markússon stjómarfor- maður Sambandsins sagði í samtali við Morgunblaðið að hann gæti ekki staðfest að Samvinnulífeyrissjóður- inn væri að kaupa aðra hæð í Sam- bandshúsinu. Aðspurður hvort slík k-aup væru á döfinni, sagði Sigurður: „Þetta er eiginlega hluti af þessu heildarmáli og ég get ekkert um það sagt.“ „Við höfum ekki keypt neitt enn- þá. Ég veit ekkert hvað getur orð- ið. Við hjá Samvinnulífeyrissjóðn- um eigum eftir að gera upp okkar mál við Sambandið. Það á eftir að ræða þetta, en ég býst við því að heildarpakkinn muni liggja ljós fyr- ir þegar samningum Sambandsins við -Landsbankann er lokið,“ sagði Margeir Daníelsson, forstjóri Sam- vinnulífeyrissjóðsins, þegar Morg- unblaðið spurði hann hvort sjóður- inn hefði leyst til sín aðra hæð í Sambandshúsinu á Kirkjusandi, en sjóðurinn á fyrir eina hæð. Evrópskt efnahagssvæði Hægt að afgreiða samn- inginn í lok nóvember - segir formaður utanríkismálanefndar BJÖRN Bjaraason formaður utanríkismálanefndar Alþingis segist ekk- ert sjá því til fyrirstöðu að Alþingi afgreiði samninginn um Evrópskt efnahagssvæði fyrir nóvemberlok eins og um var samið milli forustu- manna stjóraarflokkanna í vor. „Ég sé ekkert því til fyrirstöðu en menn vilja vafalaust ræða það í sinn hóp á þinginu hvemig að þessu verð- ur staðið," sagði Bjöm. „Það náðist gott samkomulag um afgreiðslu á tillögu um þjóðaratkvæðagreiðsluna og ég á ekki von á öðru heldur en það náist gott og víðtækt samkomu- lag um hvemig staðið verði að loka afgreiðslu EES-málsins þótt augljóst sé að um ágreining verði að ræða milli flokkanna um afstöðu í málinu." Utanríkismálanefnd Alþingis hélt fund á föstudag með Þór Vilhjálms- syni formanni sérfræðinganefndar utanrikisráðuneytisins, Hannesi Haf- stein sendiherra og aðalsamninga- manni Islands við Evrópubandalagið, Guðmundi Alfreðssyni þjóðréttar- fræðingi og Bimi Þ. Guðmundssyni prófessor. Tilgangur fundarins var að fræðast enn frekar um atriði í samningi um Evrópskt efnahags- svæði er varða stjórnarskrá íslands, en allir þessir aðilar hafa sent nefnd- inni greinar um þann þátt samnings- ins. Bjöm Bjarnason sagði að nefndin hefði farið yfir þætti samningsins, grein fyrir grein, og þessi fundur hafi verið lokaumræða um stjórnar- skrársþáttinn. „Ég á ekki von á því að það hafi breytt sjónarmiðum nefndarmanna, en þeir glöggvuðu sig á þeim rökum, sem liggja að baki áliti þessara rnanna," sagði Björn. Utanríkismálanefnd hefur haidið fjölmarga fundi um samninginn og kallað til sín menn til viðræðna. Sagði Björn að nú þyrftu nefndarmenn að setjast niður og taka saman sín álit og ganga frá þeim og taka ákvörðun um að Ijúka endanlegri umfjöllun. Sambandið mun á sínum tíma hafa greitt' lífeyrisskuldbindingar sínar í Samvinnulífeyrissjóðnum með því að breyta þeim í veð í Sambands- húsinu. Lífeyrissjóðsskuldbindingar eru forgangsréttarkröfur í þrotabúi, en ekki venjulegar skuldir. Búist er við því að Samvinnulífeyrissjóðurinn reyni í framhaldi þessara skuldaskila að selja hæðina sem hann mun leysa til sín, því sjóðurinn hefur enga þörf fyrir aukið húsnæði. •• Olvuð kona ók á vegg lög- reglustöðvar ÖLVUÐ kona ók bifreið sinni á mikilli ferð á vegg lögreglu- stöðvarinnar á Eiðistorgi um kl. 4, aðfaranótt laugardags- ins. Billinn er gjörónýtur eftir ákeyrsluna. Auk konunnar var eiginmaður hennar í bílnum og voru þau flutt á slysadeild. Maðurinn var mikið slasaður. Eiginmaður konunnar skarst á höfði og hlaut innvortis meiðsli. Konan slapp hins vegar með minni meiðsli. Ekki er nánar vit- að um tildrög slyssins. Nætur- vakt er ekki á lögreglustöðinni á Eiðistorgi, en lögreglunni var tilkynnt um atburðinn símleiðis. Bíllinn, sem var af gerðinni Skoda, er talinn gjörónýtur og var fluttur á brott með kranabíl. Spilað á kerfið ►Bamabætumar, mæðra- og feðralaunin, dagvistunarrýmin, námslánin, félagslega aðstoðin, skatturinn og tryggingarkerfið eru meðal þess sem kerfiskafaramir svindla á./ 10 Ný kynslóð, breyttir tímar ►Karl Blöndal skrifar um úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjun- um, spáir í framtíðina og gerir upp 12 ára valdatímabil repúblikana./ 14 Stefnir í óefni ►- segir Björgvin Lúthersson odd- viti um atvinnulífið í Höfnum, en bætir við að ýmislegt .megi þó gera til úrbóta./16 Róm brennur ►Hilmar Kristjánsson ræðismað- ur er fluttur heim frá Suður-Afríku þar sem stjómmálaleg upplausn og efnahagskreppa ógnar framtíð landsins./18 Vermenn íslands ►Rætt við Hlyn Ingimarsson og Steinar Berg Bjömsson sem báðir era við störf í Austurlöndum nær./20 Upphafið var virkjun bæjarlækjarins ►Hugvitsmennirnir í Árteigi framleiða heimilsrafstöðvar./22 Heimspeki, - framtíð- arvon skólakerf isins ►Rætt við Matthew Lipman, brautryðjanda í heimspekikennslu bama./24 B ► 1-28 Lucia di Lammermoor, Lucy Ashton eða Lýsa á Lambamýri ►Donnizetti ferekki dult með það, að hann sækir efnivið í ópera sína út fyrir heimaland sitt, Ítalíu. Lucia di Lammermoor, sú hin ógæfusama, ber skoskt nafn, nokkuð ítölskulegt þó, og hún syngur á ítölsku. Hún hét upp á ensku Lucy Ashton og var af aðals- ætt sem kennd var við ættarsetrið Lammermoor./l Von Bubba Morthens ►Bubbi Morthens leiðir lesandann í gegnum nýju plötuna sína, lag fyrir lag./ 4 í þorpi þagnarinnar ►Listamaður verður að einangra sig frá daglegu amstri, en enginn fer frá sinni náttúra, segir Edda Jónsdóttir myndlistarkona./ 8 Af ungu fólki ►Nýr greinaflokkur þar sem' ungt fólk skrifar um ungt fólk og segir héraf ferð 10. bekkjarÁlftamýrar- skóla til Danmerkur í september síðastliðnum./lO Landhelgisbrjótur býður til brúðkaups ►Gripið niður í endurminningar Helga Hallvarðssonar skipherra, sem nýlega vora gefnar út hjá forlagi AmarogOrlygs./ 12 ► ► FASTiR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir 17b Leiðari 26 Fólk í fréttum 18b Helgispjall 26 Myndasögur 20b Reykjavíkurbréf 26 Brids 20b Minningar 34 Stjömuspá 20b íþróttir 46 Skák 20b Útvarp/sjónvarp 48 Bíó/dans 21b Gárur 51 Bréf til blaðsins 24b Mannlífsstr. 6b Velvakandi 24b Dægurtónlist 16b Samsafnið 26b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR; 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.