Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992 ERLENT INNLENT víkuna1/11-7/11 Framtíð Járnblendi- verksmiðj- unnar óviss Ríkisstjómin ákvað að veita ís- lenska jámblendifélaginu á Grundartanga 50 milljóna króna fyrirgreiðslu sem annaðhvort verður fólgin í láni eða ábyrgð á bankaláni. Fjármálaráðherra sagði, að það fé dygði til að halda rekstri verksmiðjunnar gangandi í um það bil mánuð, eða þar til ljóst yrði hvort meðeigendur ríkis- ins í verksmiðjunni vilja taka þátt í aðgerðum til að bjarga fyrirtæk- inu með aukningu hlutafjár. Tals- menn norska fyrirtækisins Elkem, sem er hluthafi í verksmiðjunni, segjast þurfa frekari upplýsingar íslenskra stjómvalda um stöðu Jámblendiverksmiðjunnar til að ákveða hvort þeir auki hlutafé sitt. Forráðamenn verksmiðjunnar telja hana þurfa 560 milljónir króna til að komast út úr kreppu en iðnaðarráðherra segir að kann- að verði hvort lægri upphæð dugi. Starfsmönnum Sambandsins sagt upp Samband íslenskra samvinnufé- laga hefur sagt upp átta starfs- mönnum af 15 og fjórum yfir- mönnm þess verður sagt upp um næstu áramót. Þar með sér fyrir endann á atvinnurekstri Sam- bandsins. Loðnukvóti aukinn Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að loðnukvótinn verði aukinn um 320.000 lestir, úr 500.000 lest- ERLENT Clinton kjör- inn forseti Bill Clinton, frambjóðandi Demókrata- flokksins, vann ömggan sigur í forsetakosning- unum, sem fram fóru í Banda- ríkjunum síðast- liðinn þriðjudag, og tekur við embætti af George Bush í janúar. Hlaut hann 43% atkvæða, Bush 38% og óháði frambjóðandinn Ross Perot 19%. Sigraði Clinton í 33 ríkjum og fékk 370 kjörmenn af 538 eða 100 kjörmenn fleiri en hann þurfti til að ná kjöri. Sigri Clintons hef- ur verið fagnað víða, utan Banda- ríkjanna sem innan, og augljóst, að flestir telja fuila þörf á þeim breytingum, sem Clinton og vænt- anlegur varaforseti hans, A1 Gore, boðaði í kosningabaráttunni. Ge- orge Bush, fráfarandi forseti, þótti taka ósigrinum vel og hann og Ross Perot einnig skoraði á þjóðina að fylkja sér um forsetann væntanlega. Fyrstu og mikilvæg- ustu verkefni Clintons í embætti verða efnahagsmálin en um þau snerust kosningamar fyrst og fremst. Er hann þegar farinn að leggja á ráðin um endurreisnina og jafnvel Dan Quayle, fráfarandi varaforseti, segir, að sýni Clinton jafn mikinn dugnað í því efni og í kosningabaráttunni sé líklegt, að hpnum takist vei. Viðskiptastríð yfirvofandi BANDARÍSK stjórnvöld tilkynntu á fimmtudag, að settur yrði 200% refsitollur á ýmsa landbúnaðar- vöru frá Evrópubandalaginu, EB, frá og með 5. desember næstkom- andi. Var gripið til þessa eftir að viðræðumar um nýjan GATT- samning fóru út um þúfur en sagt er, að mjög lítið hafí borið á milli undir lokin. Viðræðumar sprungu samt á deilum um miklar niður- um í 820.000 lestir. í hlut ís- lenskra skipa koma 78% af heild- araflakvóta eða tæp 640.000 tonn. Á síðustu vertíð veiddu þau alls um 670.000 tonn. Hafrannsókna- stofnun fer í annan loðnuleiðangur strax eftir áramót og þá verður kvótinn aukinn enn frekar ef til- efni gefst til. Tillaga um þjóðaratkvæði felld Tillaga stjómarandstöðunnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um samn- inginn um Evrópskt efnahags- svæði var felld á Alþingi í vikunni með 31 atkvæði gegn 28. Allir viðstaddir þingmenn stjómarand- stöðunnar greiddu atkvæði með tillögunni og það gerðu einnig Eyjólfur Konráð Jóhsson og Ingi Bjöm Albertsson, þingmenn Sjálf- stæðisflokksins. Eggert Haukdal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins sat hjá. Aðrir þingmenn stjómar- flokkanna greiddu atkvæði gegn tillögunni. Loðdýrastofninn skorinn Verði óvissu um aðgerðir stjóm- valda til bjargar loðdýraræktinni ekki eytt, er fyrirsjáanlegt að stærstur hluti bústofnsins verði skorinn niður í haust. Þá munu þeir bændur sem bregða við það búi bætast við þann fjölda fólks sem gengur atvinnulaust. Þetta var niðurstaða umfjöllunar stjómar Stéttarsambands bænda um íjárhagsvanda loðdýrarækt- arinnar í vikunni. Tvö tilboð í stálfélagið Tvö innlend tilboð bámst í verk- smiðju íslenska stálfélagsins í -vik- unni. Er annað frá Furu hf. í Garðabæ en ekki fékkst upplýst um hver hinn aðilinn er. Hvomgt fyrirtækið býður fram .fjármagn í fyrirtækið, heldur bjóðast þau til að yfirtaka veðskuldir og koma fyrirtækinu í rekstur. greiðslur EB á fræolíu en hún er í beinni samkeppni við bandaríska sojabaunaframleiðslu. Er afstöðu Frakka og fulltrúa þeirra hjá EB, Jacques Delors, forseta fram- kvæmdastjómarinnar, aðallega kennt um hvemig komið er. Franskir bæhdur eða hluti þeirra óttast afleiðingar GATT-samn- ingsins fyrir afkomu * sína og vegna þess, að þingkosningar verða í mars nk. þorir stjómin ekki að ganga gegn þeim. Málið snýst því nú um hagsmuni franskra smábænda í komrækt eða aukin viðskipti og hagvöxt um allan heim. Major vann í Maastricht-deilu JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, vann mikilvægan sigur í breska þinginu á miðvikudag þegar ályktunartillaga hans um stuðning við Maastricht-samning Evrópubandalagsríkjanna var samþykkt. Munaði þó aðeins þremur atkvæðum, 319 gegn 316, en lengi leit út fyrir, að Maastric- ht-andstæðingar í hans eigin flokki yrðu til að fella tillöguna. Þótt Verkamannaflokkurinn sé hlynntur Maastricht ákvað hann að greiða atkvæði gegn tillögunni þar sem þingménn hans iitu svo á, að um væri að ræða áiyktun um traust eða vantraust á ríkis- stjómina. Þingmenn Fijálslynda demókrataflokksins studdu tillög- una hins vegar og komu þannig Major til hjálpar. Major hefur lýst yfir, að Maastricht-samningurinn verði ekki borinn upp til formlegr- ar staðfestingar á þingi fyrr en að lokinni nýrri þjóðaratkvæða- greiðslu í Danmörku um samning- inn og hafa Danir fagnað því. Fischer sigraði í einvíginu BOBBY Fischer, fyrrum heims- meistari í skák, hlaut tíunda vi'nn- inginn sinn í einvíginu við Borís Spasskí í Belgrad í Júgóslavíu á fimmtudag og bar þar með sigur úr býtum í einvíginu. Hiaut hann lárviðarsveig að launum og dálitla peningaupphæð, 195 milljónir ísl. kr., og Spasskí, sem tók ósigrinum með karlmennsku, fékk nærri 100 miiljónir í sinn hlut. Kornakur á Champs Élyséés og Sigurboginn í baksýn. Franskir bændur hafa mótmælt minni ríkis- styrkjum með ýmsum hætti en nýr GATT-samningur mun kom sér iila fyrir smábændur í kornrækt- inni. Övissa ríkjandi um framhald GATT-samninganna Viðskiptastríð í stað gífurlegs ávinnings? STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum tilkynntu síðastliðinn fimmtu- dag, að frá og með 5. desember yrði settur 200% refsitollur á ýmsa landbúnaðarvöru frá Evrópubandalagsrikjunum. Var þessi ákvörðun tekin eftir að viðræður Bandaríkjamanna og Evrópu- bandalagsins, EB, um nýjan GATT-samning fóru út um þúfur í síðustu viku og eins og nú horfir stefnir í viðskiptastrið, sem haft getur alvarleg áhrif um allan heim. Raunar vilja fáir trúa, að svo hörmulega takist til því að talið er, að GATT-samningur- inn, eins og hann liggur að mestu fyrir, muni auka heimsviðskipt- in um ailt að 200 milþ'arða dollara á ári og binda liklega enda á samdráttarskeiðið í efnahagslifinu. Þrátt fyrir þennan gífur- lega ávinning strandaði samningurinn á ágreiningi um niður- greiðslur EB á fræolíu. GATT eða Almenna samkomu- lagið um tolla og viðskipti (Gener- al Agreement on Tariffs and Trade) er frá árinu 1947 og mark- miðið hefur frá upphafi verið að stuðla að auknu viðskiptafrelsi og viðskiptum landa í millum. Voru aðildarþjóðirnar 23 í fyrstu en eru nú 108 að tölu. í áranna rás hafa óhjákvæmilega orðið ýmsar breyt- ingar á samkomulaginu rás og fyrir sex árum hófust viðræður, Urúgvæ-lotan svokallaða, um nýj- an GATT-samning. Hafði verið stefnt að því að ljúka þeim fyrir tveimur árum en ágreiningur um landbúnaðarmál, einkum ósveigj- anleg stefna Frakka í þeim efnum, virðist nú ætla að steypa þjóðun- um út í við- skiptastríð með ófyrirsjáanleg- um afleiðingum fyrir efnahagslífíð í heiminum. íhaldsömustu útreikningar gera ráð fyrir, að heimsviðskiptin muni aukast til frambúðar um 100 millj- arða dollara í kjölfar nýs GATT- samnings en aðrir reikna með allt að 200 milljörðum. Það er þó sama við hvora töluna er miðað, nýr samningur yki hagvöxt um allan heim og sérstaklega í fátækustu ríkjunum. Hagsmunir fransks landbúnaðar Ágreiningurinn um landbúnað- armálin hefur aðallega staðið milli Evrópubandalagsins og Bandaríkj- anna, sem krefjast þess, að EB dragi verulega úr miklum niður- greiðslum og útflutningsuppbót- um. George Bush Bandaríkjafor- seti batt lengi vonir við, að nýr samningur yrði til að hjálpa upp á í kosningabaráttunni og kannski er það skýringin á miklum samn- ingsvilja bandarísku fulltrúanna undanfarið en hitt er svo aftur annað mál, að Bandaríkjamenn munu hagnast mest á nýju GATT- samkomulagi. Það er því þeirra hagur að komast að einhverri málamiðlun. Evrópubandalagið hefur hins vegar dregið fæturna í þessu máli vegna Frakka. Fransk- ir bændur eru æfareiðir vegna þeirra umbóta, sem gerðar voru á sameiginlegri landbúnaðarstefnu EB-ríkjanna í maí sl., og þeir halda því fram, að með nýjum GATT- samningi yrðu kjör þeirra skert enn meira. Það er ekkert nýtt, að einstakar stéttir eða sérhagsmunahópar taki þrönga stundarhagsmuni fram yfir almannaheill en það alvarlega er, að franska stjórnin og raunar stjórnarandstaðan líka virðast sammála bændunum jafnvel þótt franskt efnahagslíf muni hagnast verulega á nýj- um GATT- samningi. Bændur og þeir, sem landbúnaði tengjast, eru hins vegar öflugur þrýsti- hópur í Frakk- landi og það eru þingkosningar í mars næstkomandi. Féð sótt til neytenda Landbúnaðarmálin hafa tafið GATT-viðræðurnar frá upphafi og kemur það ekki á óvart. Áratugum saman hafa ríkisstjórnir viða um heim haft lögmálið um framboð og eftirspurn að háði og spotti með niðurgreiðslum, vemdartoll- um, kvótum ‘og alls konar einokun- arstarfsemi í landbúnaði. Það er ekki til sú atvinnugrein í heimin- um, sem hefur verið losuð jafn rækilega undan áhrifum markaðs- aflanna. Áætlað hefur verið, að neytend- ur í iðnríkjunum verði að greiða á ári hverju 300 milljarða dollara, um 17.400 milljarða ÍSK., í skött- um og óeðlilega háu verði til bænda og þótt tekið sé tillit til þess hluta af þessari upphæð, sem er beinar tekjur bænda, þá standa samt eft- ir 100 milljarðar dollara eða um 5.800 milljarðar ÍSK. Deilur Bandaríkjastjómar og EB hafa aðallega snúist um korn- ræktina og þær umbótatillögur, sem Arthur Dunkel, framkvæmda- stjóri GATT, setti fram á síðasta ári. Hann lagði til, að EB lækkaði framleiðslustyrkina um 20% og útflutningsbætur um 36% og flytti auk þess út 24% minna magn af niðurgreiddri kornvöru. Banda- ríkjamenn féllust á þessar tillögur en EB svaraði með því að leggja til breytingar á sameiginlegri land- búnaðarstefnu bandalagsins. Fól- ust þær í því að breyta framleiðslu- styrkjunum í beinar greiðslur til bænda. Bandaríkjamenn brugðust við þessu með því að benda á, að þetta væri bara orðaleikur, sem hefði kannski einhver áhrif í þá átt að draga úr framleiðslu en ekki sem neinu næmi. Um þetta stóð í stappi lengi en í síðasta mánuði var kom- ist að samkomulagi um, að þessa deilu mætti leysa. Koma þar til greina nokkrar leiðir. Niðurgreidd samkeppni Annað mál og erfíðara viður- eignar er deilan um olíufræjafram- leiðsluna í EB-ríkjunum en úr fræj- unum er meðal annars unnin matarolía, smjörlíki og dýrafóður. Er hún í beinni samkeppni við soja- baunaframleiðsluna í Bandaríkjun- um en að sjálfsögðu eingöngu vegna mikilla niðurgreiðslna. Með Úrúgvæ-lotunni voru komræktin og ýmis önnur landbúnaðarfram- leiðsla í fyrsta sinn færð undir lög- sögu GATT en nokkuð er. um liðið síðan hún var látin ná til olíufræj- anna. Hefur Bandaríkjastjórn í tvígang kært EB-ríkin fyrir að bijóta GATT-samkomuIagið með óhóflegum niðurgreiðslum á olíu- fræin og í bæði skiptin var dæmt gegn EB. Bandaríkjamenn krefjast þess, að EB minnki olíufræjaframleiðsl- una um helming á sex árum en EB vill ekki fallast á svo mikinn niðurskurð. Það er hér sem hnífur- inn stendur í kúnni og eins og stað- an er nú skellur á viðskiptastríð milli Bandaríkjanna og EB 5. des- ember nk. verði ekki búið leysa deiluna fyrir þann tíma. Talsmenn EB segjast nú binda vonir sínar við, að Bill Clinton, verðandi Bandaríkjaforseti, geti höggvið á hnútinn en mestu skipt- ir þó, að vitinu verði komið fyrir Frakka. Margir telja, að andstaðan við nýjum GATT-samningi sé miklu minni í Frakklandi en þar- lendir stjómmálamenn hafa talið sér trú um og sumir bændur von- ast raunar eftir samningnum. Vín- og ostaframleiðendur sjá fyrir sér nýja markaði og svo er einnig um nautakjöts- og kjúklingaframleið- endur. Nýr GATT-samningur yrði hins vegar „dauðadómur" yfír skuldum vöfnum smábændum í kronræktinni. BflKSVIÐ eftirSvein Sigurdsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.