Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 47
47 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992 Patrick Ewing hefur fengið marga sterka leikmenn til að leika með sér hjá New York Knicks. ers kom einnig Doc Rivers, en New York lét þá Mark Jackson og „Kiki“ Vandeweghe fara í skiptum til Clippers. Rolando Blackman kom frá Dallas og Tony Campbell frá Minnesota Timberwolves. New York-liðið hefur leikið mjög vel að undanförnu í sýningarleikjum og hafa leikmenn liðsins náð skemmti- lega saman. Aðeins tveir leikmenn eru eftir i byrjunarliði félagsins frá því sl. keppnistímabil - Patrick Ewing og Charles Oakley. Boston Celtics hefur fengið fram- vörðinn Xavier Maurice McDaniel frá New York Knicks, en hann kem- ur til með að styrkja liðið mikið. Ekki er reiknað með að Kevin McHale geti leikið mikið með Bos- ton-liðinu í vetur vegna meiðsla. Rlý stjama hjá Orlando Orlando Magic hefur fengið ný- liðann Shaquille O’Neill til liðs við sig, en hann er talinn nýr Wilt Chamberlain; ekki dónalegt að vera líkt við það gamla brýni — en Cham- berlain er einn besti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar og sá eini sem skorað hefur 100 stig í einum NBA-leik. O’Neill, sem kom frá Louisiana • State-háskólanum, er geysilega sterkur miðherji og hefur leikið ákaflega vel í sýningarleikjum að undanförnu, þannig að erfitt hefur verið fyrir miðverði andstæð- inganna að ráða við hann. Mótheij- ar hans hafa sagt að hann eigi eft- ir að verða miklu betri eftir að hafa aðlagað sig NBA-deildinni og feng- ið þá reynslu sem fylgir því að leika í þessari sterku deild. Chicago hefur fengið framvörð- inn Rodney McCray frá Dallas, en hann er mjög reyndur leikmaður sem hefur leikið með Texas-liðun- um Dallas og Houston Rockets, auk þess sem hann lék með Sacramento Kings um tíma. Phoenix hefur fengið gamla kappann Charles Barkley frá Philadelphia og Danny Ainge frá Portland. Vinsælt sjónvarpsefni NBA-deildin er geysilega vinsæl í Bandaríkjunum og víða. NBC- sjónvarpsstöðin mun sjónvarpa beint frá 25 leikjum í deildinni og öllum leikjunum í úrslitakeppninni. TNT-sjónvarpsstöðin, sem Ted Turner hjá CNN á, mun sýna frá 50 leikjum og fyrir utan þetta sýna heimastöðvar um öll Bandaríkjin frá heimaleikjum liða sinna. Það verður mikið rætt og ritað um NBA-deildina allt fram í júní 1993, en þá lýkur úrslitakeppninni. Þú greiðir um 131 kr. fyrir 1 pund, 655 kr. fyrir 5 pund, 1.310 kr. fyrir 10 pund, 1.965 kr. fyrir 15 pund, 2.620 kr. fyrir 20 pum’ 3.275 kr. fyrir 25 puna o.s.frv. Ath. sælgæti og snyrtivörur B. MAGNÚSSON HF. HÓLSHRAUNI 2, SÍMI 52866, PÓSTHÓLF 410, HAFNARFIRÐI PÖNTUNARSÍMI 9 1 -5 2 866 SYNING STOKTEPPI -20% Ö STGR. Persía OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-17 SUNNUDAG KL. 13-17 IRAN, PERSIA BIDJAR BAGTIYER SENNEH BELOUCH HAMADAN YALAME SIRJAN ARDABIL SILK NAIN NAJAFABAD CHOM AFSHAR SHAHR BABAK QASHQAI TYRKLAND: AFGANISTAN BELOUCH NASHAT BARMAZID BALOUTSCH JAINEMAS BIBIAGCHA PAKISTAN: BOKHARA JALDAR INDLAND: KAIMURI RAJBIK KASMIR SILK DURRIES SIRVAN DOSEMEALTI YAHUALE YAGCEBDIR KARS NEPAL Persía KÍNA: SILKI 100% ANTIQUE FINISH SUPERWASHED TIENTSIN SAMV. SJÁLFST. RÍKJA (SOVÉT): AZERBEDJAN MIKRAH KAZAK YAMOUT KELIM FRÁ ÍRAN, PAKISTAN OG TYRKLANDI. BELGÍA VÉLOFIN ALLIR GÆÐAFLOKKAR 100% ULL-FRÁ 220.000 - 907.000 HNÚTAR PR. M2. ALLAR STÆRÐIR FAXAFENI 11 SÍMI686999 SÉRVERSLUN MEÐ STÖKTEPPI OG MOTTUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.