Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992 51 - Gárur eftir Eltnu Pálmadóttur Ein á ferð! Hún sat þarna beinstíf. Ég kom strax auga á hana í flugstöðinni. Ég hafði lagt af stað • norðan úr landi klukkan fimm, til að vinkonurnar sem óku kæm- ust fram og aftur fyrir mestu umferð- ina. Hún hlýt- ur að hafa far- ið enn fyrr að heiman, komin í gegnum yfir- heyrsluna og innskrift svona snemma. Hún vakti athygli, jafnvel_ aftan frá. í hita- svækjunni var hún í þykkri ullarkápu með klút meðan ég var með sokkana í vasanum og bæði jakka og stormúlpu í hliðartöskunni til að geta bætt á mig þegar norðar drægi. Hárið var vandlega greitt upp í hnút og upp af því stóð logagyllt hárskraut eins og á brúði eða dansmeyju í nætur- klúbbi. Ég fékk mér kaffí og leit á tollfijálsa vaminginn í búð- unum á flugvellinum í Tel Aviv. Þegar brottfarartími nálgaðist færði maður sig nær réttu út- gönguhliði. Enn sat hún þarna beinstíf. Nú sá ég að þessi unga stúlka var Palestínuarabi. Fyrir ferðina hafði hún keypt sér loga- gyllta tösku og samskonar skó. Nú var kallað út í vélina. Hún spratt upp. Var fyrst að hliðinu þar sem rifið var af sætismiðan- um hennar. Svo hikaði hún, vissi ekki hvert átti að halda. Ég stóð fyrir aftan hana og sagði á ensku: Héma niður stigann. í dyrunum niðri hikaði hún enn og spurði hvort ætti að fara í rútubflinn. Ég sagði henni að fylga mér. Þar settumst við sam- an og hún stundi upp: Jöteborg? Nei, Copenhagen. O-ó, sagði hún. Hún skildi illa ensku. En í ljós kom að hún talaði betur frönsku, sem er víst fyrsta er- lenda málið sem hennar fólk lærir. Viltu hjálpa mér áfram út í flugvélina? stundi hún upp á því máli. Það var auðvitað sjálf- sagt. Hún hélt krampataki um farseðilinn sinn og vegabréfið. Settu nú þetta niður í töskuna og haltu bara eftir þessum litla snepli. Þama er sætisnúmerið þitt! útskýrði ég. Hafðu ekki áhyggjur, ég skal fylgja þér alla leið! Eg fór ekki í mitt sæti fyrr en hún var búin að spenna belt- ið. Þá hafði hún sagt mér að hún væri á leið til Gautaborgar til að hitta manninn sinn, sem væri þar við nám. Þessi unga kona var sýnilega dauðhrædd. Hafði aldrei komið á flugvöll fyrr og hafði ekki hug- mynd um að hún ætti að skipta um flugvél í Kaupmannahöfn eða hvernig. A leiðinni rann upp fyr- ir mér hve skelfíleg alþjóðleg flugstöð með endalausum göngum og fólki á harðaspani hlýtur að vera í augum þess sem kemur þar í fyrsta skipti. Ég fór að sjá þessa ógnvænlegu staði með augum ungu arabakonunn- ar. Hún var svo skelfd að þegar komið var til Kaupmannahafnar var hún orðin veik af kvíða, þrátt fyrir blund á leiðinni. Kannski hefur yfírheyrslan á ísraelska flugvellinum, sem allir farþegar ganga í gegnum, skelft palest- ínska arabakonu meira. Þótt ég sé fegin að svo vel er kannað að maður sé ekki með falda sprengju áður en gengið er um borð, fannst mér nóg um spurn- ingamar. Þar sem ég hafði verið í Líbanon hefí ég kannski fengið sérstaka yfírhalningu, hveija ég hefði talað við og hvar verið. En það kom ekkert við mig. En ekki óeðlilegt að það gerði Palestínu- araba óöruggan, eins og stund- um er farið með þá. Fyrir utan flugvélina beið ég eftir henni. Hún kom langsíðust út. Það var eins gott, því inni á Kastrupflugvelli var iðandi kös. Fljótlega sáum við skiltið: Trans- it! En þar sagði á ensku að þessi afgreiðsla væri lokuð. Vinsam- legast gefíð ykkur fram í hinum enda afgreiðslusalarins! Nú stundi stúlkan upp að hún ætti að halda áfram eftir 15-20 mín- útur. Ég tók á sprett og dró gegnum þvöguna eftir endilöng- um salnum með mér stúlkuna í þykku kápunni, gylltu skónum og með gyllta höfuðskrautið. Kannski var henni svona ómótt af hitanum. En henni hafði verið sagt að búa sig vel. Á Norður- löndum væri svo kalt. Þegar við komum að réttu borði, ruddist ég fram fyrir með afsökunar- beiðni, stúlkan væri að missa af flugvélinni. Talaði dönsku svo hún skildi ekki útskýringamar. Hvað yrði um hana ef það bætt- ist nú ofan á? Hún var alveg búin að missa kjarkinn og næst- um málið. Danska afgreiðslu- stúlkan.leit á miðann, sagði að klukkutíma tímamunur væri milli ísraels og Danmerkur. Ef við vildum setjast út við gluggann skyldi hún senda ein- hvem til okkar. Skömmu seinna kom hún sjálf, hafði sýnilega skilið hvemig á stóð, bað mig um að segja stúlkunni að sitja þama róleg. Hún væri sjálf með útgöngukortið hennar í hina flugvélina og mundi rétt áður en hún ætti að ganga um borð senda frönskumælandi stúlku til að fylgja henni um borð. Þama á Kastrupflugvelli reyndist vera einstaklega góð og mannleg af- greiðsla hjá hlýlegri stúlku. Þarna skildu leiðir. Ég sneri mér við og smellti í flýti af stúlkunni vondri mynd þama sem hún stóð og horfði á eftir mér. Henni mundi ganga vel út í flugvélina í Kastrup og vonandi hafa Svíamir tekið mannlega við henni. Stundum hefur maður séð hvemig útlendingaeftirlit og toll- verðir í Evrópulöndum taka harkalegar og strangar á móti fólki frá þriðja heiminum og af öðrum litarhætti en okkur þess- um hvítu og öruggu með okkur. Það á þó ekki alltaf við. Og nú er unga hrædda konan sjálfsagt komin í öryggi í örmum eigin- mannsins. WMP«rHITABLASARARNIR SoyberGenerol Corporotioo eru nú fyrirliggiandi í stærðum 7, 10, 19 og 22 kw. Ennfremur mótorar og element. WESPER UMBOÐIÐ Sólheimum 26, 104 Reykjavík, sími 91-34932, fax 91-814932. Er þér kalt? I vetur bjóðast tveir kostir til að verma sig í Dublin. Yljaðu þér við gott herrafataúrval okkar. Við tökum á móti þér með hlýju og notalegu viðmóti í MONAGHANS Royal Hibernian Way eða: Fáðu hita í kroppinn í handprjónaðri, hefðbundinni, írskri eða skoskri peysu. Bæði fyrir dömur og herra. MONAGHANS, Grafton Arcade, Grafton Street, Dublin2. coFdalG Ferðatöttfa meÖ iitaskjál Við kynnum nýja glaBSilega ferðatðlvu með öflugym 386SL-25 örgjðrva, 2Mb minni (32KB Cache), 80MB disk (16ms), 3.5' drif, SCSI-2 tengi, raðtengi, prent- aratengi og innbyggðri J-mús. Sérstakt kynningarverð: kr. 189.900 stgr. MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - Sími 688944 - Fax 679976 Ráðstefna um útflutning js á orku með rafstreng í tilefni að 80 ára afmæli Verkfræðingafélags íslands stendur Rafmagnsverkfræðideild fyrir hálfsdagsráðstefnu um möguleika á að flytja út orku með rafstreng. Ráðstefnan verður haldin á Holiday Inn þann 13. nóvember og verður dagskrá eftirfarandi: Kl. 12:30 Skráning þátttakenda Kl. 13:00 Ráðstefnan sett: Vífill Oddsson, formaður VFÍ. Fundarstjóri Gunnar Ingimundarson, formaður RVFÍ. Kl. 13:05 Stefnumörkun stjórnvalda. Dr. Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Markaðsskrifstofu Iðnaðarráðuneytis og Landsvirkjunar. Kl. 13:30 Reglur EB með tilliti til raforkuútflutnings Jón Ingimarsson, skrifstofustjóri Iðnaðarráðuneytis Kl. 13:55 Ný viðhorf í orkuviðskiptum Kristján Jónsson, rafmagnsveitustjóri Rafmagnsveitna ríkisins. Kl. 14:20 Útflutningur á raforku Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar Kl. 14:45 Orkuframleiðsla vegna útflutnings Jóhann Már Maríusson, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar Kl. 15:10 Kaffihlé Kl. 15:25 Strengjaverksmiðja á íslandi Egill Skúli Ingibergsson, ráðgjafarverkfræðíngur Rafteikningu hf. Kl. 15:50 Efnahagsleg áhrif sæstrengs. Dr. Friðrik Már Baldursson, stærðfræðingur Þjóðhagsstofnun. Kl. 16:15 Tæknileg vandamál við raforkuflutning með jafnstraumi. Egill B. Hreinsson, prófessor í raforkuverkfræði við Háskóla íslands. Kl. 16:40 Pallborðsumræður: Stjórnandi Sigurður G. Tómasson, dagskrárstjóri Rásar 2. Kl. 18:30 Ráðstefnuslit Ráðstefnan er öllum opin, en þátttökugjald er kr. 1.000,-. Þátttaka tilkynnist til skrifstofu VFÍ í síma 688511 í síðasta lagi miðvikudaginn 11. nóvember. K.fii ,ri-7rr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.