Morgunblaðið - 14.11.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1992
Rafmagnseftirlitið
verður lagt niður
innan tveggja ára
Níu manns þegar verið sagt upp störfum
RAFFANGAPRÓFUN Rafmagnseftirlits ríkisins verður lögð niður
frá og með næstu áramótum og Rafmagnseftirlitið verður lagt niður
í áföngum innan næstu tveggja ára. í þessu skyni hefur öllum sem
starfað hafa hjá raffangaprófun, alls níu manns, verið sagt upp störf-
um og taka uppsagnirnar gildi um næstu áramót. í stað raffanga-
prófunar verður sett á stofn markaðseftirlit.
Raftæki sem seld hafa verið á
íslandi hafa verið prófuð hjá raf-
fangaprófun Rafmagnseftirlitsins.
Frá og með áramótum verða próf-
anir á þessum tækjum í öðrum lönd-
um Evrópska efnahagssvæðisins
teknar gildar hér á landi. Innlend
framleiðsla gengur eftir sem áður í
gegnum sérstaka prófun og hefur
iðnaðarráðuneytið gert samninga
við stofnanir í Svíþjóð og Danmörku
um að annast þessar prófanir.
Björn Friðfínnsson, ráðuneytis-
stjóri í iðnaðarráðuneytinu, sagði
að breytingar þessar væru gerðar í
samræmi við svokallaðan Tampere-
sáttmála sem íslensk stjómvöld
skrifuðu undir árið 1988. Sáttmál-
inn fjallar um gagnkvæma við-
urkenningu á prófunum á raftækj-
um. Hann sagði að auk þess væri
slík breyting óhjákvæmileg með til-
liti til EES.
Auk raffangaprófunar hefur Raf-
magnseftirlitið nú eftirlit með raf-
lögnum, bæði háspennulögnum og
húsalögnum. Ráðgert er að Raf-
magnseftirlit ríkisins verði mun
minni stofnun en nú er, og fylgist
með því að eftirliti sé sinnt en fram-
kvæmi það ekki sjálft. Sérstakar
skoðunarstofur munu framkvæma
eftirlitið, ýmist á vegum rafveitna
eða sjálfstæðar skoðunarstofur með
samninga við rafveitur. Markaður-
inn muni ráða §ölda skoðunarstofa.
Nú vinna 30 manns hjá Rafmagns-
eftirliti ríkisins en eftir breytingarn-
ar verða 7-9 _ manns þar í starfí.
Þessar breytingar verða komnar á
árið 1994.
Að sögn Bjöms snerta þessar
breytingar einnig önnur mál, þ. á m.
svonefnda faggildingu, en fmmvarp
um það hefur verið Iagt fram á
Alþingi. „Með þessu nýja kerfi fellur
niður einkaréttur opinberra eftirlits-
aðila til að taka út og gera prófan-
ir og í staðinn geta komið einkafyrir-
tæki eða opinber fyrirtæki, en þau
verða öll að uppfylla sömu kröfur,
þ.e. að hafa faggildingu. Til að
hljóta faggildingu þarf fyrirtækið
að hafa hæft starfslið, tækjabúnað-
ur og gæðahandbók verður að vera
fyrir hendi í fyrirtækinu. Löggild-
ingarstofan hefur eftirlit með fag-
gildingunni," sagði Bjöm.
Björn sagði að hugmyndin að
baki þessu væri einnig sú að efla
eftirlit með raftækjum, því ýmis
tæki hafi verið undanskilin prófun-
um. Ýmiss rafeindabúnaður, t.a.m.
tölvur og sjónvarpstæki, hefði ekk-
ert verið skoðaður fram til þessa.
Hann sagði að á endanum myndu
breytingamar leiða til spamaðar í
opinbemm rekstri. Lagt er á sér-
stakt rafmagnseftirlitsgjald ofan á
raforkuverð og verður þetta gjald
lækkað er raffangaprófunin verður
lögð niður.
Reuter
Páll Guðmundsson, myndlistarmaður á Húsafelli, útskýrir verk sín fyrir forseta íslands, Vigdísi
Finnbogadóttur og Ólafi G. Einarssyni, menntamálaráðherra, við opnun myndlistarsýningar í Lond-
on á fimmtudag.
Ágæt aðsókn að íslensk-
um listsýningum í London
3-400 manns voru við opnun tveggja sýninga á verkum íslenskra
samtíðarlistamanna í London á fimmtudag. Sýningarnar eru haldn-
ar í götu sem kallast Butler’s Warf, en þar er fjöldi listhúsa og eru
norrænar myndlistarsýningar nú í sjö þeirra. Ölafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra, opnaði sýningu íslensku listamannanna og
meðal gesta var forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir.
Ágæt aðsókn var að listvið- að sögn Helga Ágústssonar,
burðunum á norrænu lista- og sendiherra. Á fímmtudagskvöld
menningarkynningunni í London, opnaði forseti íslands norræna
hönnunarsýningu í Design Muse-
um og þá var Bandamannasaga
einnig frumsýnd í Hammersmith-
leikhúsinu og var nær uppselt.
Sigrún Eðvaldsdóttir hélt fiðlu-
konsert í St. Giles-kirkjunni sama
kvöld og sagði Helgi að góður
rómur hefði verið gerður að leik
hennar.
Útreikningar Þjóðhagsstofnunar á efnahagslegum áhrifum sæstrengs
Sæstrengnr myndi auka
hagvöxt um 2% árlega
Bláfjöll
Ekki útlit fyr-
ir skíðaveður
Skíðasvæðið í BláfjöIIum verður
opnað í dag ef skíðaveður verður,
en veðurútlitið er ekki gott.
Nægur snjór er í Bláfjöllum. Veð-
urstofan spáir hins vegar stinnings-
kalda og slyddu eða snjókomu þann-
ig að ekki er útlit fyrir skíðaveður.
í dag
Deilur á Ólafsfirði_______________
Innlendur vettvangur um deilumar
í bæjarstjórn Ólafsfjarðar. 24
Lífstíðarmeistarar
Bridsspilararnir Aðalsteinn Jörg-
ensen ogJón Baldursson hafa hlot-
ið nafnbótina evrópskur lífstíðar-
meistari. 32
Valur vann Maistas
Valur vann Maistas frá Litháen
28:24 í fyrri leik liðanna í 16 liða
úrslitum Evrópukeppni bikarhafa í
handknattleik í gærkvöldi. 47
Leiðari
Uppstokkun lífeyrissjóðakerfísins. 24
Forstjóri Landsvirkjunar telur þátttöku erlendra fjárfesta óhjákvæmilega
HAGVÖXTUR myndi aukast um
u.þ.b. 2% á ári ef sæstrengur
yrði lagður héðan til Evrópu og
meira ef af áformum um sæ-
strengsverksmiðju yrði. Þá ykist
hrein þjóðarframleiðsla um tvo
milljarða á ári vegna raforkusöl-
unnar. Þetta kom fram í máli dr.
Friðriks Más Baldurssonar,
stærðfræðings hjá Þjóðhags-
stofnun, sem hélt erindi um efna-
hagsleg áhrif útflutnings á raf-
orku á ráðstefnu^ Verkfræðinga-
félagsins í gær. í máli Halldórs
Jónatanssonar, forsljóra Lands-
virkjunar, kom fram að vegna
umfangs verkefnisins væri þátt-
taka erlendra fjárfesta óhjá-
kvæmileg.
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, sagði í erindi sínu
að undirbúningur verkefnisins yrði
það kostnaðarsamur og tímafrekur
að Landsvirkjun ætti erfitt að fjár-
Lesbók
► Á100 ára afmæli Finns Jóns-
sonar- Samtal við Reykjavíkur-
goða ásatrúarmanna- Sigþrúðar
þáttur úr Keflavík-Rabb eftir
Hannes Pétursson.
IBorflimblabUi
Menning/Listir
^ Björgvin Björgvinsson skrifar
um finnska nútímamyndlist-
Kynning á fyrstu skáldsögu Þór-
unnar Valdimarsdóttur, sem
nefnist Júlia. *
magna hann allan ein. í því sam-
bandi vaknaði spuming um hvort
til greina kæmi að hleypa erlendum
fjárfestum inn í fjármögnun virkj-
anarannsókna auk sæstrengshönn-
unar. Fjárfestingin væri alls um 210
milljarðar króna og veruleg þátt-
taka erlendra fjárfesta væri því
sennilega óhjákvæmileg.
Halldór sagði að í Evrópu væru
nú þrír stórir framleiðendur sem
hefðu yfír að ráða nægilegri þekk-
ingu og reynslu til að takast á við
verkefnið. Það væru ABB, Aleatel
og Pirelli.
Friðrik Már taldi að framkvæmd-
ir við virkjanir vegna raforkuút-
flutnings um sæstreng yrðu um
þriðjungur af heildarfjárfestingu á
■hvetju ári í fimm ár. Hann lagði
þó áherslu á að mjög mikil óvissa
ríkti enn um ýmsar forsendur vegna
sæstrengsins og því væri erfítt
leggja mat á hin efnahagslegu
áhrif. í útreikningum sínum gerir
hann ráð fyrir að raforkusala hefj-
ist að fullu á sjötta ári frá upphafi
framkvæmda og að þijár krónur
fáist fyrir hveija kWh. Það hefði í
för með sér tekjur upp á 11 millj-
arða króna árlega sem yrði væntan-
lega um 7% af útflutningstekjum.
Friðrik sagði að þó bæri að hafa
í huga að viðskiptahalli ykist veru-
lega þessi fímm ár. Hann gerir ráð
fyrir að eignarhald yrði að fullu
innlent og að 57% af virkjanakostn-
aði yrðu innlend, en einungis um
10% af jafnstraumskerfínu. Friðrik
sagði að erlendar skuldir gætu far-
ið nálægt því að tvöfaldast vegna
sæstrengsverkefnis ef það yrði allt
í höndum íslendinga.
-----»—» ♦-----
KEA vill
kaupa Sjöfn
og Kaffi-
brennsluna
KAUPFÉLAG Eyfirðinga á nú í
viðræðum við Landsbanka ís-
lands um hugsanleg kaup KEA
á eignarhlut bankans í Kaffi-
brennslu Akureyrar og Efna-
verksmiðjunni Sjöfn á Akureyri.
Kaffíbrennslan og Sjöfn voru
meðal þeirra eigna sem Hömlur,
eignarhaldsfélag Landsbankans,
tóku yfir fyrr í vikunni, með samn-
ingum bankans og Sambandsins.
Magnús Gauti Gautason, kaupfé-
iagsstjóri, segir að Kaffibrennslan
og Sjöfn séu góð fyrirtæki, svo KEA
sjái fjárhagslegan ávinning af því
að eiga þau.
Sjá frétt á bls. 29.