Morgunblaðið - 25.11.1992, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C/D
270. tbl. 80. árg.
MIÐVIKUDAGUR 25. NOVEMBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mannskæðasta flugslys í sogn Kína
Reykur stóð úr
Boeing-þotunni
Peking. Reuter.
RÚMLEGA ársgömul Boeing 737-300 þota kínversks flugfélags fórst
í aðflugi að flugvellinum í bænum Guilin í gær. Orsakir slyssins eru
ókunnar en sjónarvottar sögðust hafa séð reyk frá flugvélinni áður
en hún flaug á fjallshlíð.
Að sögn sjónarvotta splundraðist
þotan í tætlur er hún fórst um 30
kílómetra suður af Guilin, sem sakir
náttúrufegurðar er með vinsælustu
ferðamannastöðum í Kína. Brak
dreyfðist yfir stórt svæði og slasaðist
Lamont fer
fram á þýska
vaxtalækkun
London. Reuter, The Daily Telegraph.
NORMAN Lamont, fjármálaráð-
herra Bretlands, hvatti Þjóðverja,
í viðtali við breska útvarpið BBC
í gær, til að lækka vexti. Sagði
hann það vera mikilvægasta skref-
ið sem hægt væri að stíga til að
örva hagvöxt í Evrópu. Taldi hann
Þjóðverja hafa vanmetið hve djúp-
stæð efnahagskreppan væri sem
við væri að elja.
Fjármálaráðherrar Evrópubanda-
lagsins ákváðu á fundi á mánudag,
að leggja drög að víðtækri áætlun,
sem hefði það að markmiði, að örva
fjárfestingar. Það ætti meðal annars
að gera með viðamiklum fram-
kvæmdum á sviði vegamála, járn-
brauta og samskiptatækni.
Lamont sagði við BBC að þegar
leiðtogar EB kæmu saman til fundar
í Edinborg í næsta mánuði, myndi
hann taka þetta mál til umræðu.
Hann sagði þó mikilvægt að allar
aðgerðir, sem ákveðið væri að ráðast
í, yrðu fjármagnaðar með tilfærslum
á fé, sem þegar væri til staðar.
Hugmyndin að „Evrópskum fjár-
festingasjóði" er runnin undan rifjum
Jacques Delors, forseta fram-
kvæmdastjórnar EB, og tóku flestir
evrópsku ráðherranna vel í hana á
fundinum á mánudag.
einn maður á jörðu niðri er hann
varð fyrir braki.
Að sögn kínversku fréttastofunnar
Xinhua vöruðu flugumferðarstjórar
í Guilin flugmenn þotunnar við er
þeim varð ljóst að flugvélin lækkaði
flugið allt of ört. Veður var gott á
slysstað, logn en mistur.
Allir sem um borð voru í þotunni
fórust, 133 farþegar og átta manna
áhöfn. Flestir voru kínverskir en
rúmur tugur þeirra útlendingar.
Að sögn talsmanns Boeing-verk-
smiðjanna í Seattle í Bandaríkjunum
var flugvélin tiltölulega ný, afhent.
frá verksmiðjunum í maí í fyrra. Hún
var í eigu China Southern Airlines.
Mikil aukning hefur orðið í far-
þegaflugi í Kína undanfarin ár. Hafa
talsmenn flugfélaganna sagt að erf-
itt væri að finna reynda flugmenn
og þjálfa aðra til starfa.
Birgja sig af eldiviði
Reuter
Götusalar í Sarajevo, höfuðborg Bosníu, með hjólbörufylli af eldiviði á útimarkaði í gær. íbúar borgarinn-
ar hafa verið hvattir til áð birgja sig af eldiviði áður en vetrarhörkur ganga í garð, því rafmagn til upphit-
unar verði af skomum skammti í borginni í vetur.
Ofbeldi gegn útlendingnm í Þýskalandi fordæmt í blöðum víða um lönd
Þingmeim livetja til sam-
stöðu gegn nýnasistum
Bonn. Reuter.
FLYTJA varð 60 útlendinga af
gistihúsi í Austur-Þýskalandi í
gær vegna ótta við að sprengju
hefði verið komið fyrir í húsinu.
Síðar kom í ljós að um gabb var
að ræða en atburðurinn hefur
aukið á spennuna sem ríkir í
landinu vegna árása nýnasista á
innflytjendur. í fyrradag létust
þrír Tyrkir, fullorðin kona og
tvær stúlkur, þegar kveikt var í
gististað þeirra. I gær var ódæð-
ið fordæmt í blöðum víða um
lönd og þýskir þingmenn risu úr
sætum og stóðu þögulir í eina
mínútu í virðingarskyni við fórn-
arlömbin þijú.
Þýska þingið samþykkti yfirlýs-
ingu þar sem sagði að með hryðju-
verkinu í Mölln væri vegið að rótum
Móðir Teresa hvetur Ira til
að hafna fóstureyðinffum
«/ o
Dyflinni. Reuter.
MÓÐIR Teresa, friðarverðlaunahafi Nóbels, hefur hvatt íra til að
hafna algjörlega breytingum á banni við fóstureyðingum í þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem fram fer um þetta umdeilda mál á írlandi í dag.
er í hættu. Búist
Móðir Teresa sendi bréf til írskra
samtaka sem hafa barist gegn
breytingum á banninu og sagði þar
að fóstureyðingar væru ekkert
annað en morð. „Hvers vegna erum
við hissa á ofbeldinu og hryðjuverk-
unum allt í kringum okkur ef móð-
ir getur drepið eigið barn í móður-
kviði?“ sagði í bréfínu. „Fóstureyð-
ingar eru morð hvort sem þær eru
framkvæmdar heima fyrir eða í
útlöndum."
í þjóðaratkvæðagreiðslunni
verða þijár spurningar og í þeirri
fyrstu er spurt hvort heimila eigi
fóstureyðingar ef líf móðurinnar
er við að margir
þeirra, sem vilja
heimila fóstur-
eyðingar, svari
spurningunni
neitandi þar sem
þeir telji að ekki
sé gengið nógu
langt, til að
mynda sé ekki
gert ráð fyrir því
að fómarlömb nauðgana og sifja-
spella geti látið eyða fóstri.
Hinar spurningamar varða rétt
kvenna til að fara til útlanda í því
Móðir Teresa
skyni að gangast undir fóstureyð-
ingu og til að fá upplýsingar á ír-
landi um erlendar stofnanir sem
framkvæma aðgerðina. Talið er að
mikill meirihluti sé hlynntur þess-
um tillögum þrátt fyrir andstöðu
kaþólsku kirkjunnar. Árlega gang-
ast hartnær 5.000 írskar konur
undir fóstureyðingu í Bretlandi.
Talið er að bréf móður Teresu
hafi talsverð áhrif á þjóðarat-
kvæðagreiðsluna. „Það er engin
spurning að skoðanir hennar vega
þungt á meðal írsku þjóðarinnar.
Móðir Teresa nýtur mikils trausts
út um allan heim. Þetta er mikil
hvatning," sagði Denis Murphy,
talsmaður samtaka sem beijast
gegn fóstureyðingum á írlandi.
lýðræðisins. Var almenningur
hvattur til þess að sýna samstöðu
með útlendingum og standa vörð
um mannlegt eðli.
Þýskir fjölmiðlar lýstu í gær reiði
og áhyggjum sínum af ofbeldinu
gagnvart útlendingum í landinu en
það hefur kostað 14 manns lífið á
þessu ári. Var árásin, sem kostaði
konuna og stúlkurnar lífið, gerð á
gistiheimili í bænum Mölln í Norð-
ur-Þýskalandi og var hún jafnframt
fyrsta eiginlega atlagan gegn
Tyrkjum, stærsta þjóðernisminni-
hlutanum í Þýskalandi.
Bæjarstjórinn í Mölln, sem er
skammt frá Liibeck, sagði að íbú-
arnir væru óttaslegnir og kvíddu
því að næst yrði ráðist á þá sem
mótmæltu ofbeldi nýnasistanna.
Um 6.000 þeirra komu þó saman í
fyrrakvöld til að lýsa andstyggð
sinni á atburðinum og var einn
ræðumanna á fundinum rithöfund-
urinn Giinter Grass.
Tyrkir í Þýskalandi hafa hótað
að gjalda nýnasistunum líku líkt og
Ralph Giordano, rithöfundur og
gyðingur frá Berlín, sagði að gyð-
ingar tækju sér vopn í hönd ef þurfa
þætti. Þá hótuðu þeir að borga ekki
skatta nema yfírvöld tryggðu ör-
yggi útlendinga. Talsmenn fatlaðs
fólks í Þýskalandi segjast einnig
hafa áhyggjur af að það verði fyrir
barðinu á nýnasistum og nefna
ýmis dæmi um að því hafi verið
sýnd fyrirlitning.
Tvö helstu dagblöðin í Tyrk-
landi, Hurriyet og Milliyet, notuðu
í gær sömu fyrirsögnina, „Grimmd-
arverk nasista", þegar þau hneyksl-
uðust á ofbeldinu í Þýskalandi og
sögðu, að Þýskaland væri búið að
fá á sig orð fyrir kynþáttahatur.
Breska dagblaðið The Independent
sagði að atburðirnir á mánudag
sýndu að það væri goðsögn að út-
lendingahatrið væri einskorðað við
austurhluta Þýskalands. Á Ítalíu
sagði Torínóblaðið La Stampa, að
allir útlendingar í Þýskalandi væru
í hættu og franska blaðið Liberation
og sænska Aftonbladet sögðu þýska
stjórnmálamenn bera sök á því
hvernig komið væri.
-------♦ ♦ ♦-------
Ottast mikið
mengunarslys
áBalkanskaga
^ Genf. Reuter.
ÓTTAST er að hörmulegt meng-
unarslys geti orðið á Balkan-
skaga bresti stífla á eiturefnaþró
við blý- og zínknámur við bæinn
Mojkovac í Svartfjallalandi.
Sjö milljónir tonna af eiturefnum
eru í þrónni. í flóðum að undan-
förnu í ánni Tara hefur brotnað úr
stíflunni. Bresti hún flæðir eitrið út
í ána og berst líklega þaðan í Dóná
og ána Sava, að sögn fulltrúa Sam-
einuðu þjóðanna. Fyrir milligöngu
SÞ verður reynt að styrkja stífluna
og koma í veg fyrir að hún bresti.