Morgunblaðið - 28.11.1992, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/LESBOK
273. tbl. 80. árg.
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Hallarbruni í Vín
Miklar skemmdir urðu á hinum sögufræga
Hofburg-kastala í Vín þegar eldur kom upp
í honum í gær. Urðu þær mestar á þeim hluta
hans sem heitir Redoutensaal og hefur hýst
marga afvopnunarráðstefnuna, en það tók 350
slökkviliðsmenn um fimm klukkustundir að ná
tökum á eldinum og koma í veg fyrir að hann
næði Þjóðskjalasafninu. Þar er eitthvert mesta
safn fágætra bóka og skjala sem til er. Stytt-
una af Jósef, fyrrum keisara, ber hér við loga-
tungumar upp úr þakinu.
Sjá „Ómetanlegur hluti ...“ á bls. 26.
Banna starfsemi
þýsks öfgaflokks
Bonn. Reuter.
ÞÝSKA stjórnin ákvað í gær að banna lítinn nýnasistaflokk og er
litið á það sem upphaf að harðari aðgerðum gegn ofbeldi og ofsókn-
um annarra slikra samtaka á hendur innflytjendum og minnihluta-
hópum. Þá var einnig tilkynnt, að átta félagar í flokki, sem hatast
við útlendinga, hefðu verið handteknir en þeir eru grunaðir um að
hafa tekið þátt í íkveikjuárás á gistiheimili þar sem þrjár tyrknesk-
ar konur létu lifið. Var útför þeirra gerð í gær.
Flokkurinn, sem bannaður var,
kallast „Þjóðemissinnafylkingin“
og Rudolf Seiters, innanríkisráð-
herra Þýskalands, sagði, að fleiri
slík samtök, sem leyniþjónustan
hefði haft auga með, yrðu bönnuð
fljótlega. Á þessu ári er vitað um
1.800 árásir á útlendinga, gyðinga
og aðra minnihlutahópa í Þýska-
landi og hafa ofbeldisverkin kostað
að minnsta kosti 16 manns lífið.
,J>jóðernissinnafylkingin“ hefur
haldið uppi eins konar herþjálfun
fyrir félaga sína og við leit í aðal-
stöðvum hennar gerði lögreglan
upptæk vopn, skotfæri og efni til
sprengjugerðar. Aðrir flokkar, sem
eru líklegir til að verða bannaðir,
eru „Þýski kosturinn" og „Fijálsi,
þýski verkamannaflokkurinn", sem
vill koma á nýrri nasistastjórn í
landinu.
í fyrradag var leiðtogi „ofbeldis-
sinnaðs öfgahóps" handtekinn og í
gær var tilkynnt, að þá hefðu einn-
ig verið handteknir átta aðrir í
flokknum, ungmenni á aldrinum
15-19 ára. Eru þeir grunaðir um
að hafa kveikt í gistiheimili fyrir
innflytjendur síðastliðinn mánudag
en eldurinn kostaði þrjá Tyrki, full-
orðna konu og tvær stúlkur, lífið.
Voru þær jarðsettar í gær að við-
stöddu miklu fjölmenni, sem mót-
mælti jafnframt ofbeldinu gegn út-
lendingum í Þýskalandi. Sagði
sendiherra Tyrklands í Bonn við það
tækifæri, að margir Tyrkir hefðu
búið í Þýskalandi í 30 ár og lagt
sitt af mörkum til samfélagsins
ekki síður en aðrir. „Þess vegna
eigum við ekki skilið þessa með-
ferð,“ sagði sendiherrann.
Fólk safnaðist saman í mörgum
bæjum og borgum í Þýskalandi i
gær til að láta í ljós andúð á útlend-
inga- og kynþáttahatri í landinu og
í sambandsráðinu eða efri deild
þingsins voru yfírmenn lögreglunn-
ar hvattir til að kveða niður ofbeld-
ið með öllum löglegum ráðum.
Ekvador úr OPEC
Vín. Reuter.
EKVADOR hefur sagt sig úr Samtökum olíuútflutningsríkja,
OPEC, og er fyrsta ríkið sem það gerir. Var skýrt frá þessu á
fundi samtakanna í Vín í gær en þá komust aðiidarríkin, önnur
en Ekvador, að samkomulagi um að draga úr framleiðslunni á
næsta ári í því skyni að hækka olíuverðið.
Stjómvöld í Ekvador höfðu áð-
ur boðað að til úrsagnar gæti
komið en þau segjast ekki hafa
efni á kostnaðinum við aðildina
auk þess sem þau sætti sig ekki
við að OPEC ákveði hve mikil
framleiðslan eigi að vera. Olíu-
vinnslan í Ekvador er nú aðeins
300.000 föt á dag en ríkisstjómin
segir það vera allt of iítið vegna
óhjákvæmilegrar efnahagsupp-
byggingar í landinu. Sumir sér-
fræðingar telja hugsanlegt að
fleiri ríki muni fara að dæmi
Ekvadors í náinni framtíð.
Á fundi OPEC-ríkjanna í gær
urðu olíuráðherramir sammála
um að minnka aðeins heildarfram-
leiðsluna á næsta ári til að ná
fram hækkun á olíuverði.
Utanríkisráðherra Hollands um GATT
„EB má ekki líða
Frökkum að beita
neitunarvaldinu“
París. Reuter.
HANS van den Broek, utanríkisráðherra Hollands, sagði í gær
að Evrópubandalagið (EB) myndi ekki geta þolað Frökkum að
beita neitunarvaldi gegn landbúnaðarkafla GATT-samningsins
og skapa hættu á viðskiptastríði við Bandaríkin. Skoðanakönnun
í Frakklandi gefur til kynna að mikill meirihluti Frakka sé ánægð-
ur með andstöðu frönsku stjórnarinnar við samkomulag sem EB
og Bandaríkin náðu fyrir viku um landbúnaðarmálin.
„Það væri mjög erfitt að skilja
að ríki eins og Frakkland, með þá
ábyrgðarkennd sem það svo rétti-
lega þykist hafa, skuli ætla sér
að bera ábyrgð á því að hindra
alþjóðlegan samning um aukið
fijálsræði í viðskiptum," sagði Van
den Broek í viðtali sem birt var í
franska dagblaðinu Le Monde.
Hann kvað Evrópubandalagið og
Bandaríkin hafa fullreynt allar
hugsanlegar tilslakanir. Ef land-
búnaðarkaflanum yrði hafnað
myndi undirritun nýs GATT-
samnings dragast í mörg ár og
hætta yrði á viðskiptastríði sem
gerði vonir manna um aukinn hag-
vöxt út um allan heim að engu.
Van den Broek sagði einnig, að
vekti það fyrir frönsku stjóminni
með hótununum að neyða Evrópu-
bandalagið til að bæta frönskum
bændum sérstaklega niður-
greiðslumissinn, væri hún komin
á hála braut. Bændur í öðrum
EB-ríkjum myndu þá krefjast þess
sama og þá væri búið að opna flóð-
gáttir, sem erfitt yrði að loka aft-
ur.
82% Frakka vilja að samkomu-
lagi EB og Bandaríkjanna í land-
búnaðarmálum verði hafnað og
69% þeirra eru hlynnt þvi að
franska stjómin beiti neitunarvaldi
sínu gegn því, samkvæmt skoð-
anakönnun sem birt var í gær.
-----» ♦ ♦-----
Los Angel-
es skelfur
Los Angeles; Reuter.
JARÐSKJÁLFTI, sem var
5,1-5,3 stig á Richter-kvarða og
nógu mikill til að skekja 30
hæða hús, reið yfir Los Angeles
í Bandaríkjunum í gærmorgun.
Ekki er vitað til, að slys hafi
orðið á fólki en eitthvað var um
minniháttar skemmdir.
Bandaríska jarðskjálftastofnun-
in segir skjálftann hafa verið
„meðalstóran" og hafa átt upptök
sín fjalllendi norður af San Bern-
ardino, 80 km austur af Los Ang-
eles. Sögðu jarðskjálftafræðingar
í Pasadena í Kalifomíu, að jörð
hefði skolfið í fáar sekúndur en
skjálftinn er talinn einn af mörg-
um eftirskjálftum skjálfta, sem
fannst á þessu sama svæði 28.
júní í sumar og mældist 6,6 stig
á Richter. Margir, smáir eftir-
skjálftar fylgdu skjálftanum í gær.
Uppreisnarmenn í her Venesúela reyndu í gær að ná völdum í landinu
en gáfust flestir upp eftir snörp átök við hermenn holla stjóminni.
Talið er að allt að 50 manns hafí fallið og mörg hundruð særst en
þetta er í annað sinn á árinu að reynt er að bylta stjórn Carlos Andr-
es Perez forseta. Hér er hermaður úr þjóðvarðliðinu að skiptast á
skotum við uppreisnarmenn en félagi hans liggur fallinn í dyrunum.
Sjá „Misheppnuð ...“ á bls. 27.
Reuter
Valdaráni afstýrt