Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 11
Við í Sálinni spilum svo mikið að við þurfum ekki að æfa nema þá fyrir plötur og áður en farið er af stað til að kynna plötu. Það hefur því hvorki verið tími til þess að gera svona nokkuð eða grundvöllur fyrir því áður, sérstaklega vegna mannabreytinga." Stefán kemur þar inn á það að mannabreytingar hafa verið örar í Sálinni í gegnum tíðina, þó nú hafi sveitin verið skipuð sömu mönnum á tvö ár. Guðmundur segir og að alltaf þegar nýr maður hafi komið inn í Sálina hafi það breytt henni á einhvem hátt og það taki jafnan tvo til þijá mánuði að koma nýjum manni inn í lögin og útsetningar og ekki síst að hann falli inn í andann í sveitinni. Eitt lag á dag Þeir félagar segjast hafa einsett sér þegar hjólin fóm að snúast að semja eitt lag á dag, þó nokkurn tíma hafi tekið fyrir sveitina að finna besta vinnuformið. Það urðu þó grunnar til á fyrstu æfingunni og síðan var samið eitt lag á dag að sögn Guðmundar, en Stefán skýtur inn að stundum hafi þau verið fleiri og kímir að einhverri minningu. Stefán: „Það var skondið að vera að standa í þessu á gamals aldri, en þetta er víst eitthvað sem flestar hljómsveitir gera.“ Guðmundur: „Áður var allt samið á kassagítar og ég kom með það nánast tilbúið á kassettu, en nú er byrjað á grunninum, rytmanum, og laglínan kemur í raun síðast. Stefán þurfti að gera láglínur við ótrúleg- ustu rytma.“ Hann segir að æfing- amar hafí yfirleitt verið snarpar og svo hafi menn strandað á köflum. „Stundum gekk hvorki né rak í tvo til þtjá tíma og við voram þá orðnir ansi niðurlútir." Guðmundur segir að ein af fáum reglum sem farið var af stað með hafi verið að hafa engin róleg lög á plötunni; engar ballöður. „Ég man eftir einu lagi þegar Atli var með hugmynd að ballöðu, sem okkur leist engan veg- inn á. Við byijuðum þó að spá í hugmyndina og áður en varði var orðinn bijálaður rokkari sem er á plötunni undir nafninu Óður. Stefán var ekki komin, var í sólarlöndum, og Jenni var að syngja með í gamni, en svo var það svo gott að það var bara látið halda sér.“ Þannig segja þeir félagar að platan hafi mótast í samvinnu þeirra og þegar dró að því að fara að taka upp vora þeir komnir með 13—14 lög sem ætlunin var að velja úr. Þeir segjast þá hafa prófað að hafa þann hátt á að menn kæmu með einhver lög sem þeir hefðu samið sjálfir til að bæta í púkkið, en það gekk ekki upp því þau vora í allt öðram fasa. í samræmi við annað vora lögin á plötuna valin á lýðræðislegan hátt; menn skrifuðu óskalög á miða og svo vora atkvæði talin, „síðustu töl- ur úr Austurbæjarskóla", segir Stef- án, „og þegar þrjú lög vora jöfn, var kastað upp á þau og allir sáttir". Stefán leggur áherslu á að þessi vinnubrögð hafí gert að verkum að aliir Sálarmenn sé afskaplega sáttir við plötuna. Hann bætir og við að hljóðfæraleikur á þessari plötu sé sá besti sem Sálin hafi tekið upp, enda byggist vinna eins og sú sem rakin hefur verið á því að allir leggja sig fram um að leika á þann hátt sem þeim þykir skemmtilegastur og leika þá sem best þeir geta. Þó hérlend hljóðver þyki almennt góð hafa þau dregist nokkuð afturúr síðustu misseri og þykja aftarlega á tæknimerinni á stafrænni öld. Það hefur því færst í vöxt á ný að menn hafa farið utan til að taka og upp- hafiega hugðust Sálarmenn fara í hljóðver í Svíþjóð eða Danmörku og taka plötuna upp á tíu dögum. Þeg- ar nær dró kom þó babb í bátinn, meðal annars að það hljóðver sem þeir einsettu sér að fara í lenti í fjárkröggum og því ekki vænlegt að eiga á hættu að lenda í gjald- þrotamáli eða ámóta þegar ekkert má útaf bregða og tímamörk ákvörðuðust að nokkra af því að Anna Björk, kona Stefáns, átti von á sér um svipað leyti og þessu átti að fara fram. Annað sem ekki skipti minna máli en vinnuaðstæður í hljóðverinu var að fá fil leiks góðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1992 "UviriMaVOU .(12 •irJOAUUViVíUfc OIOA;i■ iiiiJ051Oié J 41 upptökustjóra, sem er meira happ- drætti en að hreppa gott hljóðver. Á endanum var því ákveðið að taka upp í Sýrlandi og fá mann að utan til að vera við takkana; einhvem sem gæti gefið sveitinni nýjan hljóm. Að ráði Mezzofortemanna og fyrir meðmæli Richards Scobies réðu þeir bandaríska upptökustjórann Erik Zobler, sem kunnur er meðal annars fyrir vinnu sína með ýmsum rytmablúsmönnum. Hann kom síðan með mikið af aukatólum með sér og breytti Sýrlandi í hátæknihljóð- ver þá daga sem upptökur stóðu. Þeir félagar láta mjög vel af Zobl- er, segja hann vinnusaman með af- brigðum og eldkláran. Þeir sendu honum út prafur af lögunum til að hann vissi á hveiju hann mætti eiga von, en Guðmundur segir að þá fyrst þegar þeir félagar hlustuðu á pruf- umar, vissu þeir hvemig píatan myndi líklegast hljóma og það hafi verið spennandi, ólíkt því sem áður var þegar allt var fullákveðið áður en prafumar vora gerðar. Þeir Stefán og Guðmundur segjast hafa verið búnir að útsetja lögin og ákveða grannhljóminn áður en Zobl- er kom til landsins og það hafi því fyrst og fremst verið hans verk að finna þann hljóm sem þeir vildu. Þegar upptökur hófust var líka byij- að með látum, því ekki tók það Sál- ina nema sex daga að taka upp lög- in tíu. Guðmundur: „Við spiluðum þetta beint inn þegar Zobler var búinn að ná þeim hljóm sem við vildum, en það er nokkuð sem hvaða hljómsveit sem er á að geta gert ef hún er á annað borð orðin eins vel spiluð sam- an og við. Zobler hljóðblandaði síðan lögin á miklum hraða, tvö lög á dag.“ Stefán: „Það er svo leiðinlegt að hanga í hljóðveri og svo þegar loks- ins er lokið við plötuna era allir orðn- ir dauðleiðir á tónlistinni.“ Guðmundur: „Og þurfa svo að fara að fylgja eftir einhverri tónlist sem maður er orðinn leiður á. Það var því mikil ánægja að hlusta á lögin eftir því sem þau urðu til í hljóðverinu og tilhlökkun að fara að spila þau á tónleikum." Allt við tilurð plötunnar leggst á eitt um að gera hana all frábragðna því sem Sálin hefur áður gert og Stefán segir að margir hafi rekið upp stór augu þegar þeir hafi heyrt hvemig platan hljómar. „Þessi þungu högg er miklu rokkaðri en það sem við höfum áður gert að því hefur marga rekið í rogastans þegar þeir heyra hana. Það má þó ekki skilja þetta sem svo að við séum að spila eitthvað þungarokk, en því verður ekki neitað að hún þarf meiri hlustun og eldist vonandi betur fyrir vikið.“ Guðmundun „Við höfum alltaf verið með rokklög eftir aðra á dag- skránni til að keyra hana upp, en nú verður þeim hent, því við erum komnir með okkar eigið rokk.“ Stefán: „Það era þó lög á plöt- unni sem við getum ekki spilað á böllum; sem ekki er hægt að dansa eftir, enda voram við ekki með böll í huga þegar við voram að setja þessi lög saman.“ Þeir félagar era á einu máli um að það sé skemmtilegra að spila lög af þessari plötu en oftast áður, enda séu menn nú fyrst að spila lög sem þeir eigi allir þátt í. „Það hefur gert það að verkum að við skemmt- um okkur betur á tónleikum,“ segir Stefán, en bætir við að það sé ekki þar með sagt að Sálin sé dottin nið- ur á aðra formúlu og svo verði þetta um aldur og ævi. Það má og skilja á þeim GuðT mundi og Stefáni að þeir félagar vilja hafa fijálsar hendur, því þó þeir leggi áherslu á hvað þeir Sálar- menn skemmti sér vel við spilirí um þessar mundir, þá segir Guðmundur með áherslu að Sálin hafi verið kom- in inn í vissa formúlu og því hafi þeim fundist nauðsynlegt að gera eitthvað sem þeim þætti ögran og gæfi þeim meira svigrúm. Á þeim nótum endar þetta samtal, þar sem þeir félagar ræða um framtíðina sem óræða stærð og kunna því greinilega vel að sjá ekki fyrir hvað Sálin hans Jóns míns eigi eftir að gera í framtíðinni og ekki blasi við að fara strax að vinna að næstu plötu sem verði framhald af þeirri síðustu. Aðventan í Lang- holtskirkju í dag SUNNUDAGURINN fyrsti í jóla- föstu er hátíðisdagur í kirkjunni. Hann markar upphaf á nýju kirkjuári. Undirbúningur hefst fyrir jólin, sem í flestra hugum er hátíð hátíðanna, sameinar börn og fullorðna í einlægri gleði og gerir jafnvel hina fullorðnu að bömum um stund. í Langholtskirkju hefst aðventan með hátíðarmessu kl. 11.00. Pred- ikun í messunni flytur stud. theol. Haukur Jónasson. Barnafólki er bent á, að bömin erd velkomin í messuna en fyrir predikun fara þau í safnaðarheimilið og eiga þar stund með safnaðarkennara, syngja, hlýða á sögu og teikna. Um kvöldið kl. 20.00 hefst svo aðventuhátíð. Þar verður almennur söngur, Lúsíuleikur og Kór Lang- holtskirkju syngur aðventu- og jóla- lög. Ræðumaður kvöldsins verður sr. Sigurður Sigurðarson, sóknar- prestur á Selfossi. Á eftir verður selt hátíðarkaffi í safnaðarheimilinu á vegum Kvenfélags Langholts- kirkju, en félagið hefur staðið straum af kostnaði við ýmis konar líknarstarf og þjónustu við aldraða í söfnuðinum. HÆTTIÐ AD BOGRA VID ÞRIFIN! 48 síðna sérblaö um matar-gerö, bakstur, skreytingar, gjafir og föndur til jóla fylgir Morgunblaöinu næstkomandi þriöjudagj. desember. II ú fást vagna r með nýrri vindu par sem moppan er undin með éinu handtaki án pess að taka purfi hana afskaftinu. Moppan fer alveg inn í horn og auðveldlega undir húsgögn. Einnig er hún tilvalin í veggjahreingerningar. Þetta pýðir auðveldari og betri prif. IBESTAI Nýbýlavegi 18 Sími 641988

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.