Morgunblaðið - 15.01.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.01.1993, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993 í londi þar sem ernir eru ekki, heldur spörinn nd GENGIS- SKRÁNING 31. desember 1992 Albanía lek 0,5821 Angóla kwanza 0,1157 Argentína ástral 64,2201 Bangladesh taka 1,6470 Belize dollar 32,0155 Brazilía cruzado Búrma kyat 9,8582 Filippseyjar peso 2,7139 Fílabeinsstr. CFA-franki 0,2321 Gambia dalasi 7,3244 Guatemala quetzal 11,8995 Hong Kong dollar 8,2767 Indónesía rúpía 0,0311 Jamaica dollar 2,6843 Jórdanía dinar 95,1843 Kambodia riel 0,0320 Kína yan 11,1917 Kórea(Suður) won 0,0815 Líbanon pund 0,0349 Malasía ríngit 24,4924 Maldiveseyjar rufiyaa 5,3463 Malawi kwatcha 14,8226 Marokkó dirham 7,7176 Nýja Sjáland dollar 32,9279 Óman ríal 165,9624 Pakistan rúpía 2,5099 Sierra Leone leone 0,1243 Singapore dollar 39,0775 Taiwan dollar 2,5234 Thailand baht 2,5152 Zimbabwe dollar 11,7284 Nýjung í leikhúsi í höfuðborg ísraels í fréttabréfi ísraelsku ríkisferða- skrifstofunnar er bent á að menn geti farið í leikhús í ísrael og notið sýningarinnar þó þeir skiþ'i ekki orð í hebresku. Cameri leik- húsið í Tel Aviv hefur komið fyrir búnaði við alla stóla svo menn geta fengið textann í heyrnartólum á ensku samtímis og á sviðinu. Meðal verka sem eru á dagskrá leikhússins næstu mánuði er verk Steinbecks Þrúgur reiðinnar, Rík- arður 3. eftir Shakespeare og verk eftir Harold Pinter og Spánveijann Lope de Vegas. ■ honn sé örn_________ MÁLTÆKI FRÁINDÓNESÍU Upplag flugblaðs SAS Scanorama verið stækkað UPPLAG flugblaðs SAS, Sca- norama, hefur verið stækkað úr 130 þús. eintökum mánað- arlega í 160 þúsund. Ákveðið var að gera það eftir að könn- un meðal farþega staðfesti að blaðið væri mikið lesið í flugferðum og farþegar sótt- ust eftir að fá blaðið ef það var ekki í sætisvasa fyrir framan hvern farþega í upp- hafi ferðarinnar. í farþegakönnuninni sást að 89% farþega lásu blaðið í ferð- inni og 94% farþega í langflugi notuðu að meðaltali 26,8 mínút- ur til að kynna sér það. ■ EYNMERKURBJERINH SEJJUN KARLARNIR dönsuðu eftir aðalgötunni í Sejjun, öllu heldur þessari einu götu, héldu um handlegg hvers annars, höfðu prik í arrnkrikanum, þokuðu sér tvö skref fram og eitt aftur og þuldu söng. Við hinn götuendann var annar hópur, eins útbú- inn en flutti annan texta og af meiri krafti. Fylk- ingarnar nálguðust hvor aðra. Ég hugsaði hvort ætti að sviðsetja bardaga. Svo reyndist ekki vera. Eftir næstum hálftíma dans og söngl sem hækkaði smám saman og varð að kröftugum söng sameinuð- ust fylkingar, urðu ein með fagnaðarhrópum. mm Þetta voru hátíðahöld | þeirra í Sejjun vegna bylting- Sarinnar 1963 og í texta var úthúðað þeim sem höfðu haft Sf þjóðina undir hæl sínum og lofað langþ'fáð frelsi. „Ó, þú landið mitt sem áður varst svo ham- ingjusamt og gjöfult, ég skal gefa þér það sem ég á, fóma þér öllu, jafnvel ástinni minni, ef við fáum frelsi." Textinn var ekki öllu marg- brotnari og endurtekinn sem hinir kúguðu nálguðust hina sem höfðu öðlast frelsið. Svo var sigursöngur- inn; frelsið var fengið, nú skyldu kúgaðir losna undan okinu. A sínum tíma varð reyndin önnur því það var aðeins norðurhluti landsins sem hlaut þetta frelsi sem sungið var um. Kommúnistar náðu völdum í suðrinu og réðu þar lögum og lofum þar til fyrir röskum tveim- ur árum. Nú 30 árum síðar er Jem- en eitt land. Samt fer fjarri að þjóð- in sé sameinuð í anda og sannleika. Sejjun er vinalegur 30 þús. manna bær í suðausturhlutanum. Ég hafði loks upp á korti þar sem hann var merktur. Þeir hafa ekki beinlínis lagst í landakortagerð þeir Jemenar og landsvæðið sem áður hét Suður-Jemen er aðeins lauslega kortlagt nema spildur í kringum Aden. Við lögðum upp frá Múkalla og keyrðum í austur. Svo var sveigt inn í landið og farið um Abdullah Garib-skarðið og yfir á Joal-háslétt- una Þar er meiri fjölbreytni í land- inu en ég átti von á. Eyðimörkin tekur ekki við fyrr en farið er gegn- um Shibam - fyrsta skýjakljúfa- borg Jemens og klukkutíma áður en komið er til Sejjun. Lengi vel vorum við í jaðri uppþornaðs árfar- vegs sem heitir Wadi Adin, gæti verið 20-40 km breiður. Inn í þenn- an „dal“ sem er víðs fjarri okkar dalskilgreiningu fór ég tveimur dögum seinna á heimleiðinni. Á hægri hönd þegar farið var með- fram Wadi Adin risu fjöllin há. Ég sá sjaldan þorp á fjallatindum eins og í norður og miðiandinu. Það sést hvergi svo mikið sem lækjarspræna en sums staðar voru fjöllin gróin upp í miðjar hlíðar. Annars staðar nakin og kuldaleg. Þrátt fyrir hit- ann, því hann vantar ekki hér um slóðir, og er 40 stig á daginn. Þegar komið var fyrir dalinn tók við sendið land og gott til leirhúsa- gerðar enda í hverju þorpi hér sem menn voru að búa til flögur úr hon- um og þurrka og reisa hús þegar réttri þomun var náð. Sejjun er sagt hafa byggst umhverfis mikinn kastala sem undurfögur prinsessa Sejjun átti og bjó þarna á dögum Hadhramawt-ríkisins. Kannski er það goðsögn en svo mikið er víst að bærinn var til áður en islam kom til Arabíu. Markaðurinn er líflegur og stórkostlegur kastali - þó ekki prinsessunnar - frá soldánstímum stendur enn og hefur verið gerður að þjóðminja- og þjóðháttasafni. Það var fyrir tilstilli frábærs ná- unga, Marco Liviadotti, fram- kvæmdastjóra Universal ferðaskrif- stofunnar í Sanaa að ég eyddi dijúgum tíma verunnar í Jemen nú í suðurhlutanum. Marco er ítalskur en faðir hans var líflæknir síðasta imamsins í Norður Jemen sem var hrundið úr valdastóli í byltingu 1962. Hann er uppalinn í Jemen en á einnig ættir að rekja til Líban- ons. „Ég er Miðjarðarhafsmaður og Jemen-vinur," sagði hann. Ferðaskrifstofa Universal er önn- ur stærsta og hún tekur á móti æ fleiri hópum frá Evrópulöndum. Marco vann áður hjá ferðamálaráð- inu en tók við Universal fyrir nokkr- um árum. Það er einkar skynsam- legt að hafa hann þar í forsvari. Hann þekkir álla, hefur sambönd alls staðar. Og það sem er óumdeil- anlegur kostur, hann er alinn upp í landinu en skilur hugsunarhátt ferðamanna frá Evrópu. Því ég hygg að mörgum finnist Jemen er erfitt land. Mannlífið, hugsunar- Marco Liviadotti. Dansað vegna byltingarinnar. háttur og viðhorf framandlegt, frumstætt og vanþróað á evrópskan mælikvarða. Vegir víðast hvar eins og bestu malarvegir á íslandi upp úr miðri öldinni. Gistiaðstaða utan borganna er ekki upp á marga físka og hætt við að kröfuhörðum ferða- mönnum bregði í brún þegar þeir koma á matsölustaði. En allt er á réttri leið og Universal er að færa út starfsemina, ætlar að reisa full- komna ferðamannamiðstöð í Sanaa, aðra skammt frá Sejjun og þá þriðju skammt frá Múkalla. Apinn Jiro vinsælasta sjnnvarpsstiarno Japans VINSÆLASTA sjónvarpsstjarna Japans á síðasta ári var apinn Jiro, 7 ára makakíapi, sem kemur fram ásamt þjálfara sínum Taro og sýnir hina kúnstugustu list. Það atriði sem hvað mestr- ar hylli naut er þegar Jiro hermdi eftir George Bush Bandaríkja- forseta er hann leið ælandi í ómegin í veislu í Tókýó í fyrra ems og frægt varð. Auk þess að koma fram í sérstök- um skemmtiþáttum leikur Jiro í auglýsingamyndum um lækningu við timburmönnum, innhverfri íhugun o.fl. Þeim félögum Jiro og Taro hefur nú verið boðið að sýna í New York seinna á þessu ári og segir Taro að þeir félagar telji það einn þeirra mesta sigur á listferlin- um. Jiro fékk verðlaun japanska menntamálaráðuneytisins 1991 og hefur fengið fleiri viðurkenningar. Þar sem þeir hafa lagt sig eftir að herma eftir Bush og skopast að honum óttast japanskir aðdáendur að honum muni ekki takast að gera Clinton jafngóð skil eða það geti altjent tekið tíma áður en hann nær tökum á þessu nýja viðfangsefni sem bjóði ekki upp á jafn mikla skrumskælingu og Bush. ■ Taro og Jiro ræða við blaðamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.