Morgunblaðið - 24.03.1993, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 24.03.1993, Blaðsíða 43
Haukar-UMFG 78:74 íþróttahúsið við Strandgötu, undanúrslit í úrvalsdeildinni — annar leikur — þriðjudag- inn 23. rnars 1993. Gangur leiksins: 2:0, 8:2, 10:10, 19:14, 19:25, 29:31, 34:36, 36:43, 46:48, 51:55, 64:55, 71:61, 73:71, 76:74, 78:74. Stig Haukn: John Rhodes 28, Jón Amar Ingvarsson 25, Pétur Ingvarsson 9, Bragi Magnússon 8, Sveinn A. Steinsson 4, Sig- fús Gizurarson 2, Jón Öm Guðmundsson 2. Stig UMFG: Jonathan Roberts 27, Bergur Hinriksson 13, Guðmundur Bragason 12, Pálmar Sigurðsson 9, Hjálmar Hallgrímsson 6, Marel Guðlaugsson 5, Pétur Guðmunds- son 2. Áhorfendur : 700. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Jón Bend- er. Dæmdu erfiðan leik mjög vel. ÍBK-KR 97:72 íþróttahúsið í Keflavík, íslandsmótið í körfuknattleik, þriðji leikur í úrslitum um Islandsmeistaratitil kvenna, þriðjudaginn 23. mars 1993. Gangur leiksins: 0:3, 17:3, 24:11, 35:18, 45:24^ 59:32, 71:36, 81:43, 90:51, 97:72. Stig IBK: Hanna Kjartansdóttir 34, Björg Hafsteinsdóttir 17, Kristín Blöndal 16, Olga Færseth 11, Þórdls Ingólfsdóttir 8, Sigrún Skarphéðinsdóttir 5, Ellnborg Herbertsdótt- ir 4, Lóa Björg Gestsdóttir 2. Stig KR: Kristln Jónsdóttir 15, Guðbjörg Norðfjörð 13, Helga Þorvaldsdóttir 12, Guðrún Gestsdóttir 7, Hmnd Lárusdóttir 6, Kolbrún Pálsdóttir 6, María Guðmunds- dóttir 5, Hildur Þorsteinsdóttir 3, Sólveig Ragnarsdóttir 3, Anna Gunnarsdóttir 2. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Krist- ján Möller. Áhorfendur: Um 300. NBA-deildin teikir mánudag: Washington - New Jersey...... 97:92 Denver - Utah Jazz...........107:93 Goiden State - Detroit Pistons. 96:91 Knattspyrna England Úrvalsdeildin Crystal Palace - Liverpool......1:1 (Armstrong 78.) - (Rush 49.). 18.688. 1. deild Birmingham - Bamsley............3:0 Cambridge - Leicester...........1:3 Charlton - Wolverhampton..........0:1 Grimsby - Brentford.............0:1 Notts County - Southend.........4:0 Oxford - West Ham...............1:0 Tranmere - Portsmouth...........0:2 Watförd - Newcastle.............1:0 Helgi Sigurðsson Helgi með fjögur Reykjavikurmótið íknattspyrnu hófst á gervigrasinu í Laugar- dal í gærkvöldi, þegar Fram vann Ármann 10:1. Helgi Sigurðsson hefur verið ið- inn við kolann í æfingaleikj- um að undanförnu og í gærkvöldi gerði hann fjögur mörk í fyrsta opinbera leik sínum með Fram. Brynjar Jóhannesson var með þrennu, Þorbjörn Atli Sveinsson skoraði tvö og Ágúst eitt fyrir Fram, en Magnús Jónsson gerði eina mark Ármanns. I kvöld Körfuknattleikur Keflavík: ÍBK - Skallagrímur.20 ■Sigurvegarinn I kvöld mætir liði Hauka I úrslitum um Islandsmeist- aratitilinn. Blak Undanúrslit íslandsrnótsins KONUR Hagaskóli: ÍS-KA.........19.45 Víkin: Víkingur-HK..........20 KARIAR Digranes: HK - KA...........20 Hagaskóli: Þróttur-ÍS......21 Handknattleikur 2. deild karla Keflavík: HKN-ÍH............20 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993 át' KORFUKNATTLEIKUR ÍgS \3 L m- / Pm ^ § /mBbÍ bÆI', J ' ÆiM / \ \ IU"; # 5 \ ■ M »' \ vffl PfCTþ- jff M\ § (Í jFw M « '1| pfe/ f ' l IkEMÍ 4 7 i M.Bm § g ’Æ Titillinn í höfn Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Sigri fagnað í gærkvöldi. Fyrir aftan frá vinstri: Anna María Sveinsdóttir, Hanna Kjartansdóttir, Ingibjörg Emilsdóttir, Elínborg Herbertsdóttir, Anna María Sigurðardóttir, Þórdís Ingólfsdóttir og Lóa Björg Gestsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Sigrún Skarphéðinsdóttir, Olga Færseth, Kristín Blöndal, Björg Hafsteinsdóttir og Lovísa Guðmundsdóttir. Islandsmeistaratitill - kvenna áfram í Keflavík Þetta var frábær endir á góðu keppnistímabili og stelpurnar sýndu það svo sannarlega í kvöld að við erum óum- Björn deilanlega með Blöndal besta liðið. KR- skrifar frá stúlkumar áttu Keflavík aldrei möguleika eftir að við fórum í gang og eftir- leikurinn var eftir því,“ sagði Sig- urður Ingimundarson, þjálfari kvennaliðs IBK í körfubolta, sem í gærkvöldi tryggði sér íslandsmeist- aratitilinn annað árið í röð með því að sigra Vesturbæjarlið KR 97:72 í Keflavík. Þetta var þriðji leikur liðanna í úrslitakeppninni og sigr- uðu Keflavíkurstúlkumar í öllum leikjunum. KR-stúlkurnar skoruðu fyrstu þijú stigin í leiknum í gærkvöldi, en þá fóru ÍBK-stúlkumar í gang svo um munaði. Þær skomðu 17 stig í röð og lögðu um leið grunninn að öruggum sigri því þessi góða byijun heimaliðsins virtist slökkva alla baráttu hjá KR-ingum. Munur- inn jókst síðan jafn og þétt og í hálfleik var staðan 45:24. Sami kraftur var í Keflvíkurstúlkum í upphafí síðari hálfleiks því eftir átta mínútna leik var munurinn orðin 38 stig, 79:41, og sá munur reyndist einum of mikill fyrir KR- stúlkurnar. Góð liðsheild einkenndi leik Keflavíkurliðsins S gærkvöldi en bestar i jöfnu liði voru Hanna Kjart- ansdóttir, Kristín Blöndal og Olga Færseth. KR- stúlkurnar náðu sér aldrei á strik en atkvæðamestar í liði þeirra vom þær Guðbjörg Norð- fjörð og Helga Þorvaldsdóttir. Ann- ars er árangur KR-stúlknanna í vetur undir stjórn Stefáns Arnar- sonar athyglisverður því þær kom- ust alja leið í úrslit í bikarkeppninni og í íslandsmótinu. V'* Haukar hölðu það HAUKAR tryggðu sér rétt til að leika til úrslita í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik í gærkvöldi með því að sigra Grindvíkinga 78:74 í öðrum leik liðanna. Haukar unnu með einu stigi í Grindavik um helgina og mæta annað hvort ÍBK eða Skalla- grími í úrslitum en liðin leika þriðja leikinn í Keflavík íkvöld. Baráttan var rosaleg alveg frá fyrstu sekúndu og leikmenn gáfu ekkert eftir, hvorki í vörn né sókn. Þessi mikla Skúli Unnar barátta kom niður á Sveinsson gæðum körfuknatt- skrifar leiksins framan af en spennan í leikn- um vann það upp þannig að úr varð hin skemmtilegasti leikur. Haukar höfðu forystu framan af en um miðjan fyrri hálfleikinn gerðu Grindvíkingar 11 stig í röð og náðu sex stiga forystu en munurinn var tvö stig í leikhléi, 34:36. Þegar rúmar átta mínútur voru eftir komust Haukar aftur yfir en þeir gerðu 13 stig í röð og náðu síðan tíu stiga forystu en Grindvík- ingar neituðu að gefast upp og á lokamínútunum tókst þeim að minnka muninn í tvö stig en nær komust þeir ekki. Haukarnir nýttu Morgunblaðið/Sverrir Það tókst! Pétur Ingvarsson tekur um frænda sinn Jón Örn Guðmundsson og fagnar ógurlega. vítaskotin sem þeir fengu í lokin og eru komnir í úrslit. Jón Arnar var besti maður Hauka og lék mjög vel í gærkvöldi. Rhodes var að venju sterkur en hann var illa dekkaður í sókninni því Roberts bauð honum að skjóta hvað eftir annað rétt utan teigs og Rhodes þáði það með þökkum. Hann ásamt Sveini Amari sýndu líka mikið ör- ~ yggi á vítalínunni undir lokin. Vam- arleikur Hauka var gríðarlega góð- ur og sérstaklega var það snjallt að breyta nokkrum sinnum um varnaraðferð. Grindvíkingar geta vel við unað að komast í undanúrslitin. Þeir voru talsvert óheppnir með skot í gær, enda fengu þeir ekki mikinn frið til að athafna sig. Oft dansaði bolt- inn á hringnum en vildi ekki niður, sérstaklega hjá hinum unga Bergi Hinrikssyni sem átti ágætan dag. Guðmundur fékk dálítinn frið í fyrfi4*- hálfieik til að skjóta af kantinum en var betur gætt í þeim síðari og gerði þá aðeins tvö stig. Roberts var grimmur í sókninni en tók lífínu alltof létt í vörninni. Annars var áberandi hvað liðin notuðu mikið sömu leikmenn, það var eins og þau treystu ekki vara- mannabekknum nægilega vel þennan erfiða leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.