Morgunblaðið - 01.04.1993, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 01.04.1993, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993 KORFUKNATTLEIKUR Bestir BESTI maður ÍBK í úrslita- leikjunum þremur, Jonat- han Bow, hampar hér sigur- laununum, íslandsmeistara- bikarnum. Honum á hægri hönd er Ingvar Jónsson, þjálfari Hauka, að óska leik- mönnum IBK til hamingju með sigurinn og lengst til hægri er Kristinn Friðriks- son. Keflvíkingar fögnuðu vel og lengi í gær enda tvö- faldir meistarar, bæði í karla og kvennaflokki. KEFLVÍKINGAR urðu ígær- kvöldi íslandsmeistarar í körfuknattleik karla er liðið sigraði Hauka í þriðja leik lið- anna um íslandsmeistaratitil- inn. Karlalið ÍBK er einnig bik- armeistari og konurnar léku sama leikinn, unnu tvöfalt, þannig að það er fjórfalt hjá Keflvíkingum í vetur. Ef að lík- um lætur munu yngri flokkarn- ir sigra í nokkrum flokkum eins og undanfarin ár og er það ef til vill besta dæmið um hvaða sess körfuknattleikurinn skip- ar íKeflavík. Uppbyggingar- starfið hefur verið gott und- anfarinn áratug og uppskeran eftir því. Skúli Unnar Sveinsson skrifar I eikurinn var mun skemmtilegri og jafnari en hinir tveir þó svo munurinn hafi verið 19 stig í lokin. Haukar léku miklu betur en áður og ætluðu greinilega að gera allt til að fá fleiri leiki. Það hefði líklegast tekist ef Jonathan Bow hefði ekki verið i þvílíkum ham að ekkert fékk stöðvað hann. Hann gerði 44 stig, tróð yfir mótheijana, varði frá þeim skot, tók mikinn fjölda frákasta og var einstaklega öruggur í vítaköstunum. Haukar höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleik en ÍBK komst yfir rétt fyr- ir hlé og hélt undirtökunum til loka þrátt fyrir hetjulega baráttu Hafn- firðinga. Þeirra tími er greinilega ekki kominn. Úrslitakeppnin hefur verið þeim dýrmæt reynsla sem nýtist strákunum síðar. í fyrri hálfleik var Bow allt í öllu hjá ÍBK og Guðjón átti einnig ágætis spretti, sérstaklega við end- alínu þar sem hann hitti eins og honum væri borgað fyrir það. Hjá Haukum voru þeir Jón Amar og Rhodes sterkir og Pétur líka þrátt fyrir að hann fengi fjórðu villu sína um miðjan fyrri hálfleik. Keflvík- ingar mistu Albert útaf með þrjár villur eftir aðeins þrjár mínútur þannig að mikið var flautað! Ef Bow hefur verið góður í fyrri hálfleik þá er ekki gott að lýsa því hvað hann var í þeim síðari því þá fór drengurinn hreinlega á kostum. Það var sama hvað hann gerði, alltaf fór boltinn rétta leið. Kristinn tók einnig vel við sér í síðari hálf- leik en hann var ekki svipur hjá sjón í þeim fyrri. Guðjón lék af eðlilegri getu og um frammistöðu Jóns Kr. þarf varla að fjölyrða því hann leikur alltaf vel. I gær átti hann til dæmis heilan tug stoðsend- inga. Hjá Haukum var Bragi sterk- ur í síðari hálfleik en hann lék ekkert í þeim fyrri. Þrátt fyrir 197 stig var leikinn góður varnarleikur. Haukar léku maður á mann lengst af og með góðum árangri. Þeir fóru síðan í pressuvöm um miðjan síðari hálf- leik, of snemma að mínu mati, og það tók sinn toll því þeir virtust ekki hafa kraft til að leika slíka vöm og skiptu fljótlega yfir í svæð- isvöm, þrátt fyrir að maður á mann vömin hafi reynst þeim mjög vel í fyrri hálfleik. ÍBK lék svæðisvöm með þrjá bakverði fyrir framan í fyrri hálf- leik en tvo í þeim síðari og gaf það betri raun. Undir lokin létu þeir varamennina um að ljúka leiknum og fór vel á því. Frábær endir - sagði Jón Kr Gíslason þjálfari og leikmaður ÍBK Þetta var frábær endir á góðu keppnistímabili þar sem við unnum 28 af 32 leikjum og ég er að sjálfsögðu í sjö- unda himni, sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmað- ur Keflvíkinga eftir að Islandsmeistaratitilinn var í höfn Björn Blöndal skrifar frá Keflavík í gærkvöldi. „Við vissum að þeir yrðu erfiðir í þessum leik því nú var að duga eða drepast fyrir þá og þeir veittu okkur svo sannarlega harða keppni framan af. En við náðum að koma þeim úr jafnvægi í síðari hálfleik og ná 10 stiga for- ystu sem setti þá endanlega út af laginu. Um leið losnaði um pressuna af mínum mönnum sem tvíefldust •og eftir það var þetta aldrei spurn- ing. þetta er stór stund fyrir mig og liðið og styrkur okkar núna sést best á því að við sigruðum í úrslita- leiknum í bikarkeppninni með 35 stiga mun og í úrslitunum unnum við með minnst 19 stiga mun.“ Erfiður leikur að dæma „ÞETTA var ákaflega erfiður leikur að dæma eins og ég vissi fyrirfram. Bæði var hraðinn mik- ill og menn léku stífan vamarleik þar sem mikið var um snertingar þannig að ekki var hjá því komist að dæma villur. En leikurinn var nokkuð skemmtilegur og Hauk- arnir náðu svo sannarlega að veita Keflvíkíngum mótspymu í fyrri hálfleik, en í þeim síðari flýttu þeir sér heldur mikið. Fóm að taka ótímabær skot og það dugar ekki gegn jafnsterku liði og ÍBK,“ sagði Jón Otti Ólafsson dómari. m Þriðji úrslitaleikur islandsmótsins i körfuknattleik í iþróttahúsinu i Keflavik 31. mars 1993 35/28 Víti 18/11 12/3 3ja stiga 25/7 36 Fráköst 35 28 (varnar) 20 8 (sóknar) 15 11 Boitanáð 11 10 Boltatapað 14 16 Stoðsendingar 7 Morgunblaðið/Sverrir ■ LEIKMENN ÍBK hentu bolum frá Austurbakka til áhorfenda fyrir leikinn og af svip eins guttans sem náði í bol var hann mjög mikils virði! ■ ÞAÐ voru dæmdar 47 villur í leiknum. Haukar virðast hafa verið talsvert fastari fyrir því á jiá voru dæmdar 29 villur en 18 á IBK. ■ KEFLVÍKINGAR léku einstak- lega vel í síðari hálfleik og Haukar fengu ekki bónusskot fyrr en -cétt liðlega mínúta var til leiksloka, en bónusskot fær lið við áttundu villu mótheija. ■ HAUKAR byijuðu af miklum krafti í gær og ætluðu greinilega ekkert að gefa eftir. Sérstaklega var áberandi hvað John Rhodes kom einbeittur til leiks því hann var langt því frá eins brosmildur og hann er venjulega. ■ MIKILLAR taugaspennu gætti í upphafi síðari hálfleiks og í fyrstu tveimur sóknum ÍBK komust marg- ir í gott skotfæri en enginn „þorði“ að skjóta íyrr sóknartíminn var að renna út. Ovenjulegt á þeim bæ. ■ VÍKINGAR virðasta hafa verið nokkuð öruggir um að kvennalið þeirra sigraði Eyjadömur í öðmm leik liðanna í Eyjum í fyrrakvöld. ■ VÍKIN var alla vega ekki bókuð fyrir þriðja leikinn í kvöld, heldur var ætlunin að leika þar kvennaleik í blaki kl. 20 en hann var færður fram þegar úrslit láu fyrir í Eyjum. I ( ( ( < i i í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.