Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993 Morgunblaðið/Þorkell Ferlíki TÓMAS Skúlason með urriðan stóra, en svo miklir bolar eru sárasjaldgæfir í vatninu. Og raunar þótt víðar væri leitað. Veiddi risaurr- iða í Ell- iðavatni „ÉG ÁTTAÐI mig í fyrstu ekki á því hve stór fiskurinn var. Ég dró hann bara upp að, en sá þá hvað um var að vera og hægði á mér. Fór að vanda mig. Hann var erfiður, en samt kannski ekki mjög miðað við hversu stór hann var,“ sagði Tómas Skúlason, 16 ára gamall stangaveiðimaður sem veiddi rúmlega 12 punda urriða í Ell- iðavatni á laugardaginn. Fisk- urinn tók maðk sem Tómas notaði með sökku. Tómas sagði að hann hefði ver- ið við stífluna. „Ég er þar alltaf, það er góður staður. Ég fékk til dæmis 18 bleikjur þar fyrir stuttu. Yfírleitt veiði ég á fluguna og það var bara tilviljun að ég var að bauka með maðk þarna í þetta skipti. Eiginlega bara til að sjá hvað myndi gerast. Veiði hefur verið að glæðast í Elliðavatni að undanförnu og munar þar mest um að bleikjan er nokkuð farin að gefa sig. Auk 18 físka sem Tómas veiddi hefur Morgunblaðið fregnað af mönnum sem hafa verið að fá upp í 24 bleikjur á stuttum tíma. Undan- tekningalaust eru slík „skot“ tek- in á flugu. VEÐUR / DAG kl. 12.00 Heimíld: Veöurstofa íslands (Byggl á veöurspá kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR í DAG, 18. MAÍ YFIRLIT: Um 400 km suður af Hornafiröi er minnkandi 995 mb lægð, en yfir írlandi er 983 mb vaxandi lægð sem hreyfist norðnorðvestur. 1030 mb hæð er yfir N-Grænlandi og hjaðnar hún heidur. SPÁ: Áframhaldandi norðaustanátt, víða stinningskaldi. Slydduél um landið norðanvert, en þurrt og nokkuð bjart syðra. Síðdegis herðir aftur vind og austanlands fer að rigna. Veður fer hægt hlýnandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Allhvöss austan- og suðaustanátt á landinu. Rigning um austanvert landið en úrkomulaust eða úrkomulítið annars staðar. Hiti 6 til 7 stig. HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg suðaustan- og austanátt, lítils háttar súld eða rigning austanlands en víða bjartviðri í öðrum landshlut- um. Hiti 5 til 6 stig. HORFUR Á FÖSTUDAG: Sunnan- og suðaustangola, skýjað um sunnan- vert landið, en bjartviðri annars staðar. Hiti 2 til 4 stig. Nýir vefturfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsimi Vefturstofu íslands — Vefturfregnir: 990600. o o -o Uk Sunnan, 4 vindstig. Vindðrin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.. / / / * / * * * * • .?7 * 10° Hitastig f f f f f * / / * f * * * * * V V V V Súld J Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka ' — FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígaer) Greiöfært er á vegum í nágrenni Reykjavíkur, og góð færð um Suður- land. Á Austurlandi er ófært um Breiðdalsheiðí, Vopnafjarðarheiði og Möðrudalsöræfi og talsverð hálka er á heiðum og fjailvegum. Á Vestur- landi er víðast fært en hálka er á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum eru vegir víðast færir en hálka á heiðum. Greiðfært er um Norðurland en á Norð- Austurlandi er talsverð hálka en vegir víðast færir. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerftin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 1 snjóél Reykjavfk 6 skýjað Bergen 11 rignlng Helslnki 20 léttskýjað Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Narssarssuaq 4 léttskýjað Nuuk 3 alskýjað Osló 16 skýjað Stokkhólmur 19 léttskýjað Þórshöfn 8 skýjað Algarve 19 þokumóða Amsterdam 22 hélfskýjað Barcelona 19 skýjað Berlín 20 léttskýjað Chicago 9 léttskýjað Feneyjar 24 heiðskírt Frankfurt 22 léttskýjað Glasgow 16 rigning Hamborg 21 heiðskírt London 19 rigning LosAngeles 17 alskýjað Lúxemborg 20 léttskýjað Madríd 23 skýjað Malaga 22 skýjað Mallorca 25 skýjað Montreal 8 léttskýjað NewYork 13 léttskýjáð Orlando 20 þokumóða Parls 23- skýjað 18 Madelra 20 léttskýjað Róm 23 léttskýjað Vln 21 léttskýjað Washington 16 léttskýjað Winnlpeg 5 úrkoma Flug til Hamborgar tvisvar á dag í sumar Daglegur aðgangur að flugi til og frá landinu 1 fyrsta sinn UM næstu niánaðamót munu Flugleiðir hefja flug til Hamborgar, með millilendingu í Kaupmannahöfn, tvisvar á dag alla daga vikunnar utan sunnu- daga er ein ferð verð- ur. Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða segir að með þessu fyrirkomulagi eigi farþegar í fyrsta sinn aðgang að daglegu flugi til og frá landinu bæði fyrir og eftir hádegi. Flug þetta hefst 1. júní. Samhliða þessu byrja Flugleiðir að flytja farþega milli Kaup- mannahafnar og Hamborgar í samræmi við ftjálslegri flugmála- reglur í Evrópu. Að sögn Einars er þetta gert í samvinnu við SAS sem flogið hefur á þessari leið fjór- um sinnum á dag. SAS dregur úr sínum ferðum um helming eftir að Flugleiðir byija á þessari leið og segir Einar að þegar liggi fyrir nokkur þúsund pantanir um ferðir. Fjölgar möguleikum í framhaldsflugi Með aukinni tíðni í flugi til Kaupmannahafnar fjölgar mögu- leikum á framhaldsflugi og biðtími styttist verulega. Einar segir að jafnframt muni samstarfið við SAS tryggja að fargjöld í fram- haldsflugi verði hagstæð. Hvað varðar flugið til Þýska- lands má geta að í hverri viku eru rúmlega 500 flug frá Hamborg til annarra viðkomustaða í Þýska- landi. Flugleiðir hafa flogið til Frankfurt á sumrin og mun það flug halda sér. Staða Seðlabanka- stjói-a verður auglýst BANKARÁÐ Seðlabankans samþykkti samhljóða á fundi sinum í gær að auglýsa í dag eftir umsóknum um stöðu bankastjóra við bankann frá 1. júlí en Jóhannes Nordal Seðlabankasljóri lætur þá af störfum við bankann. Er þetta í fyrsta skipti í sögu Seðlabank- ans sem auglýst er eftir umsóknum um stöður bankastjóra, að sögn Ágústs Éinarssonar, formanns bankaráðs. Samkvæmt lögum um Seðla- bankann skipar ráðherra í stöðu bankastjóra að fengnum tillögum bankaráðs. Umsóknarfrestur er til 15-Júní. Ágúst sagði að ástæða þess að ákveðið var að auglýsa banka- stjórastöðuna með þessum hætti væri sú að bankaráðið teldi að þetta væru faglegri vinnubrögð en áður hefðu tíðkast og í anda þess frumvarps um Seðlabánkann sem var til umfjöllunar á Alþingi sl. vetur. „Við teljum að til þess að við getum gert okkar tillögugerð sem best úr garði sé eðlilegast að gefa öllum tækifæri til að sækja um þessa stöðu,“ sagði hann. Enginn greinarmunur gerður á umsóknum Nokkrar umræður hafa verið um það að undanförnu að Jón Sigurðs- son viðskiptaráðherra kynni að hafa áhuga á að hverfa úr ríkis- stjóminni til að taka við stöðu Seðlabankastjóra. Ágúst sagði að sér væri ekki kunnugt um hvort Jón myndi sækja um þessa stöðu en ef hann gerði það yrði farið með umsókn hans með nákvæm- lega sama hætti og aðrar umsókn- ir og engin greinarmunur gerður þar á. Fingur græddur á unga konu Allar líkur á að hún haldi fingrinum IJNGA konan, sem missti tvo fingur í karfaflökunarvél á Seyðisfirði fyrir tveimur vikum, hefur verið útskrifuð af Borg- arspítalanum og eru allar líkur á að hún haldi öðrum fingrin- um og geti notað hann í framtíðinni að sögn Magnúsar Páls Albertssonar læknis. Hann gerði ásamt öðrum lækni, Rögn- valdi Þorleifssyni, tvær aðgerðir til bjargar fingrinum. Konan festist í karfaflökunar- vél með þeim afleiðingum að hún missti tvo fingur og skaddaði aðra tvo. Hún var flutt á Borgar- spítala og þess freistað að græða á hana annan fingurinn í sólar- hrings langri aðgerð en styttri aðgerð fylgdi í kjölfarið. Lítur vel út Magnús sagði að konan, sem er tvítug, væri útskrifuð af spítalanum og allt útlit væri fyr- ir að tekist hefði að bjarga fíngr- inum. „Þetta lítur eins vel út og hægt er að ætlast til. Við erum hætt að vera hrædd um að hann gefíst upp,“ sagði hann. Hann sagði að fingurinn yrði skoðaður um miðja vikuna og hugsanlega fengi konan að fara austur eftir það. „Við fylgjumst hins vegar með hendinni þar til hún er komin í eins gott ástand og við búumst við að koma henni í. Það getur skipt mánuðum en hún getur að mestu leyti verið heima og gert æfingar. Hún kemur svo hér af og til,“ sagði Magnús.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.