Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 60
UNIX FYRIRTÆKI
NR.1ÍHEIMINUM
Wfip% HEWLETT
HP A ÍSLANDI H F
TVÖF/\LDUR |. vinningur
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 108 REYKJAVlK
SÍMI 691100, SIMBREF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Islenzk kona í
Nýju Mexíkó
Lézt úr
ókunnrí
veiki
Frá Atla Steinarssynl, fréttaritara
Morgfunblaðsins,
ÍSLENZK kona, Ragna Hall-
dórsdóttir Hooks, sem um
nokkurra ára skeið hefur
búið I Nýju Mexíkó í Banda-
ríkjunum, er meðal þeirra
sem ókennileg veiki hefur
lagt að velli. Útfðr hennar
hefur farið fram.
Ragna var dóttir Halldór-s
Sigurbjömssonar (kenndur við Ás
við Sólvallagötu) og konu. hans,
Valgerðar Ragnars, sem lézt í
mars sl. Ragna var ekkja síðstu
árin.
Hin ókennilega veiki, sem heij-
að hefur í og við byggðir Navajo
indíána á landamærum Nýju Mex-
íkó og Arizona, er sjúkdómsfræð-
ingum mikil ráðgáta. Milli 10 og
20 manns hafa þegar látist úr
veikinni — aðallega indíánar. Veik-
in leggst á öndunarfæri fólks,
fyrstu einkennin eru flökurleiki,
eymsli í vöðvum, hósti og sótthiti.
Síðan taka við andþrengsli sem
leitt hafa hina sjúku til dauða.
Læknar finna enga lausn
Sérfræðingar við sjúkdóms-
greiningarstöð Bandaríkjanna í
Atlanta hafa lagt nótt við dag í
leit að ráðum til að lækna þennan
óþekkta sjúkdóm en enga lausn
fundið enn sem komið er.
Jafnt gegn Rússum
RÚSSAR, sem hafa á að skipa einu sterkasta
knattspymulandsliði Evrópu, gerðu jafntefli við
íslendinga á Laugardalsvellinum í gærkvöldi, 1:1.
Eyjólfur Sverrisson skoraði mark Islands, en hér
Morgunblaðið/Kristinn
má einmitt sjá Eyjólf i flugferð í vítateig Rússa
í leiknum í gærkvöldi. Nánar er fjallað um leikinn
á íþróttasíðum, bls. 58-59.
Fengn 50 tonn af
þorski á 20 tímum
Vidhorf fólks til
atvinnusköpunar
Meirihluti
samþykk-
ur hærri
sköttum
RÖSKLEGA helmingur íslend-
inga er tilbúinn til að greiða hærri
skatta tímabundið ef tryggt er að
fjármunirnir renni eingöngu til
atvinnuskapandi starfsemi, sam-
kvæmt niðursttfðum ktfnnunar
sem Hagvangur hefur gert fyrir
Morgunblaðið.
í könnuninni var einnig spurt
hvort viðkomandi þekkti góðan vin
eða nákominn ættinga sem væri at-
vinnulaus og svaraði um helmingur
spumingunni játandi en 4,2% reynd-
ust vera sjálfír atvinnulausir.
Sjá viðskiptablað bls. B3.
SKIPVERJAR á Emmu VE-
219 fengu 50 tonn af vænum
þorski á Breiðafirði á mánu-
dag. Siglt var með aflann á
Fiskmarkað Hafnarfjarðar,
en Óskar Þór Kristjánsson
skipstjóri kvaðst áætla að um
fjórar milljónir króna fengj-
ust fyrir aflann, þegar honum
var landað í gær.
„Það sætir tíðindum eins og nú
er ástatt að fá svona mikinn og
góðan afla. Gæslan kom að mæla
og þeir fundu ekkert smátt," sagði
Óskar, og bætti við að þama hefði
sennilega útdauði þorskurinn verið
á ferðinni.
Óskar sagðist telja að þetta
væri mikið til 5-6 kílóa fískur og
þyngri, en verðið hefði verið milli
70 og 80 krónur um morguninn á
eldri fiski, svo vel gæti verið að
aflaverðmætið væri um fjórar millj-
ónir króna. Hólfið sem Óskar og
félagar fengu þorskinn í var opnað
á miðnætti 1. júní, en Emman, sem
er 182 tonn að stærð, var eini
Viðræður við Bandaríkjamenn um varnarmál verða í Reykjavík eftir helgi
Ríkisstjórnin reynir að
fá ákvörðunum frestað
# Morgunblaðið/Bjarni
Þorskinum hampað
ÓSKAR Þór Kristjánsson, skipstjóri á Emmu VE-219 frá Vest-
mannaeyjum, hampar hér vænum þorski í miðri löndun á Fisk-
markaði Hafnarfjarðar í gær.
báturinn á svæðinu framan af. amir í Ólafsvík hafí ekki verið sér-
„Um hádegi vorum við komnir með staklega ánægðir með að við skyld-
17 tonn meðan annað skip var með um vera að slæpast þarna,“ sagði
tvö. Ég held annars að trillukarl- Óskar brosandi.
Uppátæki unglinga
Morgunblaðið/Bjami
Sterkur þráður
ÞRÁÐURINN sem strengdur
hefur verið yfir gðtur í
Kleppsholtinu er sterkur og
talinn geta valdið mikilli
hættu.
Strengja
þráð yfir
götumar
LÖGREGLA telur að börn eða
unglingar hafi tvivegis á
sktfmmum tfma leikið sér að
því að strengja grannan,
sterkan þráð yfír gtftur í
Kleppsholti. Að sðgn lögreglu
gæti þetta uppátæki reynst
lífshættulegt fólki á reiðhjól-
um eða bifíyólum.
Á mánudag skemmdist fólks-
bíll þegar honum var ekið á þráð
sem strengdur hafði verið yfír
Brúnaveg og var þráðurinn það
sterkur að hann olli skemmdum
á lakki bílsins.
Vírinn hafði verið strengdur
í um það bil þurrkuhæð og má
telja líklegt að hann hefði getað
sett reiðhjóla- og bifhjólafólk og
jafnvel gangandi vegfarendur í
mikla hættu.
NEFNDIR embættismanna bandarískra og íslenskra stjórn-
valda munu eiga með sér fundi í Reykjavík á mánudag og
þriðjudag í næstu viku, 7. og 8. júní, þar sem framtíðarfyrir-
komulag varnarstöðvar Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli
verður rætt. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins munu
íslensk stjórnvöld leggja fyrir embættismenn sína að fara sér
hægt í viðræðum og gera hvað þeir geta til þess að draga
málið á langinn og fá Bandaríkjamenn til að fresta ákvörðun-
um um samdrátt hjá varnarliðinu.
í bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu i Washington fékk Morgunblað-
ið þær upplýsingar í gær, að þaðan
yrðu sendar upplýsingar til sendi-
ráðs Bandaríkjanna í Reykjavík í
dag eða á morgun, um það hvaða
augum bandarísk stjórnvöld líta á
samráðsfund íslenskra og banda-
rískra embættismanna á mánudag
og þriðjudag.
Talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að engin
ákvörðun hefði verið tekin enn af
bandarískum stjómvöldum, um með
hvaða hætti framtíðarfyrirkomulag
yrði í vamarstöðinni í Keflavík. Lín-
ur kynnu að skýrast á fundunum í
Reykjavík eftir helgi, en þó væri
ótímabært að spá fyrir um það.
Engin ákvörðun enn í
Bandaríkjunum
Fulltrúar bandarískra stjóm-
valda verða frá bandaríska varnar-
málaráðuneytinu (Pentagon), utan-
ríkisráðuneytinu, hemaðaryfirvöld-
um og bandaríska sendiráðinu hér
l Reykjavík, að sögn talsmanns
bandaríska utanríkisráðuneytisins.
íslensk stjómvöld munu tilnefna
viðræðufulltrúa frá utanríkisráðu-
neyti, varnarmáladeild og forsætis-
ráðuneyti. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins em líkur á að þeir
Þorsteinn Ingólfsson, ráðuneytis-
stjóri, Róbert Trausti Árnason,
sendiherra, í varnarmáladeild, og
Albert Jónsson, öryggismálafulltrúi
forsætisráðuneytisins, verði fulltrú-
ar íslenskra stjórnvalda í þessum
viðræðum við Bandaríkjamenn.
Rikisstjómin lítur á þennan fund
sem könnunar- og samráðsfund og
er einhuga um, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins, að reyna
að fara sér hægt í viðræðunum og
reyna að slá því á frest í lengstu
lög, að ákvarðanir um samdrátt og
niðurskurð á Keflavíkurflugvelli
verði teknar.