Morgunblaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993 Þorsteinn Gauti Haukur Tómasson Sig^irðsson Tónvakinn 1993 Hátíðartónleikar haldnir í Háskólabíói Páll P. Pálsson HÁTÍpARTÓNLEIKAR Ríkisútvarpsins í samvinnu við Sinfóníuhljóm- sveit íslands verða haldnir í Háskótabíói fimmtudaginn 30. september. Þar verða í annað sinn veitt Tónlistarverðlaun Ríkisútvarpsins, Tón- vakaverðlaunin, en þau hljóta Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleik- ari, Haukur Tómasson tónskáld og Páll P. Pálsson hljómsveitarstjóri og tónskáld. Útvarpsstjóri, Heimir Steinsson, afhendir verðlaunin á tónleikunum, en auk þess verða gerðar útvarpshljóðritanir með leik Þorsteins Gauta'Sigurðssonar og á verkum þeirra Hauks Tómassonar og Páls P. Pálssonar á næsta ári. Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanó- leikari sigraði í keppninni um Tón- vakann, en í keppninni tóku þátt flytjendur sígildrar tónlistar. Hann leikur á hátíðartónleikunum einleik í píanókonsert númer 3 í d-moll ópus 30 eftir Sergej Rakhmanínov með Sinfóníuhljómsveit Islands. Þorsteinn Gauti er fæddur árið 1960. Hann hóf ungur píanónám og lauk einleik- araprófí frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 19 ára gamall, þar sem kennari hans var Halldór Haralds- son. Hann stundaði framhaldsnám við Juilliard-tónlistarháskólann í New York og í Róm á Italíu, þar sem hann naut tilsagnar margra þekktra píanóleikara. Þorsteinn Gauti hefur komið fram á tónleikum á Norður- löndum, Ítalíu, í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Bretlandi, Frakkklandi og Rússlandi og meðal annars leikið með útvarpshijómsveitunum í Hels- inki og Ósló og Sinfóníuhljómsveit íslands. Hann hefur tekið þátt í frumflutningi samtímatónlistar og hafa verk verið sérstaklega tileinkuð honum. Haukur Tómasson tónskáld hlýtur Pálslaun fyrir hljómsveitarverkið Strati. Pálslaun eru veitt í fyrsta sinn úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins í tilefni aldarafmælis Páls ísólfssonar. Dómnefnd valdi verk Hauks úr hópi 18 innsendra verka og verður það frumflutt á hátíðartónleikunum. Verkið verður líka hljóðritað og á næsta ári verður lögð sérstök áhersla á að hljóðrita önnur verk Hauks með útgáfu í huga og tónskáldið verður kynnt bæði hér á landi og í útlöndum. Páll P. Pálsson hljómsveitarstjóri og tónskáld, og stjórnandi á þessum hátíðartónleikum, hlýtur heiðursfé Tónvakans, en í reglum um Tónlist- arverðlaun Ríkisútvarpsins segir að heiðursféð skuli veitt tónlistarmanni fyrir áralöng og merk störf í þágu íslenskrar tónmenningar. Auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi vegna heiðursfjárins auk tilnefninga dómnefndar. Dómnefnd Tónvakans var einróma í vali sínu á verðlaunahöfunum í ár, en hana skipuðu Rut Magnússon söngkennari og framkvæmdastjóri Listahátíðar, Sigursveinn K. Magn- ússon skólastjóri og stjómarformað- ur Sinfóníuhljómsveitar íslands, John A. Speight söngvari og formaður Tónskáldafélagsins, Sigurður I. Snorrason klarinettuleikari, Þorgerð- ur Ingólfsdóttir kórstjóri og Þorkell Sigurbjömsson tónskáld, auk Guð- mundar Emilssonar tónlistarstjóra Ríkisútvarpsins. Efnisskrá hátíðartónleikanna er þessi: Haukur Tómasson: Strati (1993), frumflutningur; Sergej Rakhmanínov: Píanókonsert númer 3 í d-moll ópus 30; hlé; Páll P. Páls- son: Concerto di giubileo (1989). Sala aðgöngumiða á hátíðartón- leikana hefst mánudaginn 27. sept- ember í Háskólabíói. (Fréttatilkynning) Morgunblaðið/Bjarni Framtíð á fjölunum ÞESSI hópur er að hefja lokaárið í Leiklistarskóla íslands og æfir nú í Nemendaleikhúsinu gamanleik Shakespeares, Draum á Jónsjmessunótt. Ætlað er að fmmsýnt verði 8. október í Lindarbæ, leikstjóri er Guðjón Peder- sen en leikmynd og búninga teiknar Grétar Reynisson. í ársbyijun 1994 takast leikaraefnin svo á við þríleik unninn úr grískum verkum Sófóklesar, Evripídesar og Aristofanesar í leikstjórn Mareks Kostrewskis. Síðasta upp- færsla vetrarins verður á Sumargestum Maxims Gorkis. Kjartan Ragnarsson leikstýrir og frumsýnt verður um miðjan mars. En þessir leikarar framtíðar- innar heita Benedikt Erlingsson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Halla Mar- grét Jóhannesdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Katrín Þorkelsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir og Þórhallur Gunnarsson. UM HELGINA Brynhildur Þorgeirsdóttir og Tina Aufi- ero. Skúlptúr 1 Nýlista- safninu TVÆR skúlptúrsýningar verða opnaðar á morgun, laugardaginn 18. september, kl. 16 í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Brynhildur Þorgeirsdóttir sýnir á fyrstu hæðinni og ber sýningin yfirskrift- ina_ Strandhdgg. Á efri hæðum safnsins sýnir bandarísk listakona frá New York: Tina Aufiero, hún sýnir innsetningar (installations) sem hún nefnir The Chieken Theory. Sýningin stendur til 4. október og verður opin daglega frá kl. 14-18. Sýning á skúlptúr úr kristalgleri í Laugardal Jónas, Bragi Jón- asson opnar sýningu á skúlptúrverkum úr kristalgleri í Listhús- inu í Laugardal 18. september. Sýningin nefnist „Öldur“ og þar má meðal annars sjá samnefnt verk sem hlaut fyrstu verðlaun á glerlista- sýningu í Englandi 1992. Verk Jónasar Braga á sýningunni í Listhúsinu í Laugardal eru flest úr krist- algleri sem Jónas mótar og steypir með aðferð sem hann hefur sjálfur þróað. Sýning Jónasar Braga í Listhúsinu stendur yfir frá 18. september til 3. októ- ber og er opin daglega frá kl. 10-18 nema sunnudaga kl 14-18. Jónína Björg í Portinu Jónína Björg Gísladóttir opijar sýningu á vatnslitamyndum í Portinu, Strandgötu 50, Hafnarfirði, á morgun laugardaginn 18. september, kl. 15. Sýningin ber nafn- ið „Utan seilingar". Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18 nema þriðjudaga. Henni lýkur 10. október. Eitt verkanna á nemendasýningu Ingu Jónínu Magnúsdóttur. Sýning á postulíni Sýning á handmáluðu postulíni og gleri verður haldin í húsnæði Ispan, Smiðjuvegi 7, Kópavogi. Þetta er nem- endasýning þeirra sem stundað hafa námskeið hjá Jónínu Magnúsdóttur, Ninný. Þarna er ýmislegt nýtt í faginu, þó einnig sé um hefðbundna postulínsmálun að ræða. Kennslan byggist á að láta hvern og einn njóta sín. Sýningin stendur frá 18.-26. sept- ember og er opin frá kl. 14-18. Síðasta sýningarhelgi Jóns Reykdal Nú um helgina lýkur sýningu Jóns Reykdal í Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6. Á sýningunni eru 34 gvassmyndir, aðallega smámyndir. Sýningin er opin daglega kl. 14-18 og lýkur á sunnudag. Ljósmyndasýning í Listasafni ASI Páll Reynisson ljósmyndari og kvik- myndatökumaður opnar ljósmyndasýn- ingu 18. september kl. 14 í Listasafni ASÍ, Grensásvegi 16a. Á sýningunni eru 65 svart/hvítar og litljósmyndir sem Páll hefur tekið og unnið á undanfömum 4 árum, bæði inn- anlands og utan. Sýningin er opin frá kl. 14-22 og lok- að á miðvikudögum. Sýningin er sölusýn- ing og aðeins eitt eintak er af hverri mynd. Sýningunni lýkur 3. október. Aðalbjörg sýnir í Eden Aðalbjörg Jónsdóttir hefur opnað mál- verkasýningu í Eden í Hveragerði. Aðal- björg er frá Gestsstöðum við Steingríms- fjörð og er fædd 1916 en býr nú í Reykja- vík. Sýningunni lýkur 26. september. „Glerþrenna“ í Hafn- arborg Glerlistasýning verður opnuð í Hafn- arborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, á morgun, laugardaginn 18. september. Að sýningunni standa Inga Elín Krist- insdóttir, Lharne Tobías Shaw og Svafa Björg Einarsdóttir. Sýningin spannar vítt svið á meðhöndlun á gleri. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 12-18. Lokað á þriðjudögum. Sýningunni lýkur 4. október. Sýningu Húberts Nóa að ljúka Sýningu Húberts Nóa á Götugrillinu lýkur á morgun laugardag. Sýningin er opin á verslunartíma Borgarkringlunnar, Eitt verka Sossu. Sossa sýnir í Gallerí Fold Margrét Soffía Björnsdóttir, Sossa, sýnir nýjar olíumyndir í Gallerí Fold, Austurstræti 3, dagana 18. september til 2. október. Sossa er fædd í Keflavík 1954, dóttir hjónanna séra Bjöms Jónssonar og Sjafnar Jónsdóttur. Sossa stundaði nám við Mydlista- og handíðaskóla íslands 1977-1979, en hélt síðan til Kaupmanna- hafnar þar sem hú nam við Skolen for Bmgskunst á ámnum 1979-1985. Þá fluttist hún til Boston í Bandaríkjunum og stundaði þar nám við School of the Museum of Fine Art/Tufts University 1989- 1992. Þar hlaut hún mastersgráðu í myndlist. Opið er í Gallerí Fold mánudaga til föstudaga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-16. Allar myndimar eru til sölu. 67-kynslóðin í Ráðhúsinu 67-kynsIóðin er heiti myndlistarsýn- ingar, 67 ára og eldri, sem opnuð verður í Ráðhúsinu, Tjamarsal, sunnudaginn 19. september kl. 14. Á sýningunni em málverk og trémynd- ir eftir 10 myndlistarmenn sem koma alls staðar að af landinu og eiga það sameiginlegt fyrir utan aldurinn að vera ekki myndlistarskólagengnir og hafa fæstir byijað að fást við myndlist fyrr en að lokinni langri starfsævi. Sýningin stendur til sunnudagsins 26. september. Ásgeir Smári í Gallerí Borg Ásgeir Smári hefur undanfarin ár verið búsettur í Danmörku og unnið þar að list sinni. Hann er nú kominn til landsins með u.þ.b. 25 ný málverk og opnar sýn- ingu í Gallerí Borg við Austurvöll á morgun, laugardaginn 18. september kl. 16-18. Ásgeir er fæddur í Reykjavík 1955. Hann stundaði nám við Myndlista- ig handíðaskóla íslands og Den Frie Kunstschule í Stuttgart í Þýskalandi. Ásgeir hefur haldið fjölmargar einka- sýiúngar og tekið þátt í Qölda samsýn- inga. I sumar hélt Ásgeir sýningu í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn. Ásgeir sýnir nú u.þ.b. 25 málverk sem flest eru unnin á þessu ári. Myndirnar em allar til sölu. Sýningin er opin virka daga frá kl. 12-6 en frá kl. 2-6 um helgar. Henni lýkur 28. september. Síðasta sýningarhelgi Margrétar Jónsdóttur Sýningu Margrétar Jónsdóttur í Nor- ræna húsinu lýkur um helgina. Margrét sýnir olíu- og aquarelle-verk frá ámnum 1990- 1993. á áranum 1990-1991 dvaldi hún um tíma við listsköpun í bústað norrænna listamanna í Róm, með við- dvöl í Flórens á Ítalíu og þijá mánuði á vinnutofu norrænna listamanna og þrjá mánuði á vinnustofu norrænna lista- manna i Sveaborg í Finnlandi. Flest verk- in em unnin undir áhrifum frá þessum tíma. Sýningin er beint framhald af sýn- ingu Margrétar á Kjarvalsstöðum árið 1990. Margrét hefur tekið þátt í og haldið margar sýningar á liðnum árum, bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur auk list- málunar starfað sem hönnuður og aug- lýsingateiknari. Síðasti sýningardagur er á sunnudag- inn 19: september. Námskeið í Gerðubergi í vetur mun menningarmiðstöðin í Gerðubergi gangast fyrir námskeiðum í ýmiskonar handíðum og föndri ætluðum allri fjölskyldunni. Markmiðið er að gefa börnum, foreldmm, ömmum og öfum tækifæri til að veija saman stund í leik og starfi. Námskeiðin munu fara fram á laugardagsmorgnum frá kl. 10.15 til 13 og hvert um sig standa í þijú skipti. Það fyrsta, sem gefið hefur verið nafnið Pabbi, mamma, börn og plastmódel, hefst 18. september. Þar gefst þátttak- endum kostur á að koma með módelin sín og njóta tilsagnar i samsetningu þeirra. Leiðbeinandi verður Árni Guð- mundsson. Jónas Bragi Jónasson Jón Reykdal Myndlist____________ Eiríkur Þorláksson Stöðlakot við Bókhlöðustíg hefur nokkra sérstöðu meðal sýningar- staða í Reykjavík að því leyti að þar er sýningarhald ekki jafnt og .stöðugt. Húsnæðið er einnig þess eðlis, að þar er ekki hægt að sýna hvað sem er úr myndlistinni þannig að það njóti sín, og því nokkuð vandaverk að velja sýningar á stað- inn. Vegna þessa verður oft nokkuð hlé á milli sýninga, og verða listunn- endur að fylgjast sérstaklega með því þegar nýjar koma upp, því þess má vænta að þær falli ávallt vel að rýminu. Þannig er með sýningu Jóns Reykdal, sem nú sýnir þarna smá- myndir, aðallega unnar með gvassi, en hann hefur í auknum mæli tekið að vinna með þessu efni síðustu ár, eins og sást vel á opnunarsýningu Listhússins í Laugardal á síðasta ári. Reyndar hefur Jón verið iðinn við sýningahald upp á siðkastið; í sumar stóð sýning á verkum hans í afgreiðslusal SPRON í Mjóddinni í Breiðholti (en þar er komin ára- löng hefð fyrir listsýningum á vinnustað), og einnig voru verk Jóns sýnd í tengslum við Kirkju- listahátíð í Hallgrímskirkju í vor, þar sem sýndar voru trúarlegar myndir, sem listamaðurinn vann í sambandi við nýja útgáfu Hómilíu- bókar, sem kom á markað í vor. Á sýningunni í Stöðlakoti ber mest á uppstillingum og myndum sem tengjast árstíðum og birtuskil- um. Reynsla Jóns kemur vel fram í myndbyggingu og samspili lita í minnstu verkunum, þar sem gulir, rauðir og grænir litir hlýjunnar eru mest áberandi; verk eins og „Eld- lilja“ (nr. 4) og „Sólbjartur morg- unn“ (nr. 8) takast einkar vel hvað þetta varðar. í nokkrum stærri verkum í neðri sal er mildur blár litur allsráðandi, og í „Vetrarblóm" (nr. 24) bregður fyrir línuspili, sem hæfir vel við- fangsefninu. Hinar myndirnar ná sér ekki á strik á sama hátt. Á efri hæð er haganlega fyrir komið nokkrum verkum í milli- stærð, þar sem myndasería sem Jón nefnir „Þjóðsaga" (nr. 28, 30 og 33) gengur ágætlega upp; í þessum verkum eiga sér stað viss átök í myndbyggingunni, og litirnir leika ákveðið hlutverk. Við skoðun þessara síðustu mynda verður áhorfandanum ljóst að Iistamaðurinn sýnir hér fyrst og fremst ljúf verk, sem eru falleg fyrir augað; spennan er ekki mark- viss hluti myndanna. Oftast er að- eins óljós marklína milli mildinnar og daufleikans, og það getur verið erfiður línudans að halda sig réttu megin við strikið, sem er svo erfitt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.