Morgunblaðið - 18.09.1993, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.09.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993 25 Seltjarnarneskirkja Biblían verður þema vetrarins VETRARSTARF Seltjarnarneskirkju er að hefja göngu sína og hef- ur biblían verið valin þema vetrarins. Verður það tekið fyrir á ýms- an hátt í starfinu, m.a. verður kennt að fletta upp í biblíunni við guðsþjónustur og biblíunámskeið verða haldin. Guðsþjónustur verða alla sunnudaga kl. 11 með hefðbundnu sniði en einn sunnudag i mánuði verða fjölskylduguðsþjónustur þar sem efni verður að miklu leyti sniðið við hæfi barna. Barnastarfið hefur göngu sína á morgun, sunnudag, við guðsþjón- ustu kl. 11. Nýtt íslenskt efni, sem byggir á öðrum þáttum kirkjulegs starfs, s.s. guðspjalli dagsins, verð- ur lagt til grundvallar bamastarf- inu. Starf fyrir börn tíu til tólf ára, TTT, hefst þriðjudaginn 5. október og verður það svipað og áður, and- legar stundir og létt efni, jafnt fyr- ir stráka og stelpur. Fyrirhugað er að TTT æfi brúðu- eða skuggaleik- hús og sýni á aðventunni í félagi við barnastarfíð. Æskulýðsfélagið verður með fundi sína á sunnudögum kl. 20 en það hefur starfað óslitið í allt sum- ar. Á dagskrá er andlegt efni, fræðsluefni og léttmeti auk ferða- laga og samkoma æskulýðsfélaga af öllu landinu. Foreldramorgnar verða annan hvern þriðjudag kl. 10 til 12 og hafa þeir einnig staðið óslitið í allt sumar og verið vel sóttir. Fræðslufundir af ýmsu tagi eru fyrirhugaðir. Tveir fundir verða með foreldmm fermingarbarna og fundur með foreldrum skírnarbarna verður í janúar. Kynningarguðs- þjónusta með fermingarbörnum verður 3. október nk. Kyrrðarstundir verða í hádeginu alla miðvikudaga kl. 12 til 13. Á kyrrðarstundum er flutt tónlist, les- ið úr Ritningunni, altarisganga, bænastund og léttur málsverður. Bænarefni eru ýmist frá kirkjugest- um eða þeim er komið til sóknar- prests fyrir kyrrðarstundimar. Taize-kvöldstundir, söngur, ritn- ingarlestur og íhugun, verða í vetur annað hvert þriðjudagskvöld með svipuðum hætti og var á föstunni sl. vetur. Fyrsta kvöldið verður 5. október og hefst kl. 8.30. Bætir úr brýnni þörf STÓRT og fullkomið íþróttahús á ísafirði er ætlað grunnskólanum og framhaldsskóla Vestfjarða auk íþróttafélaganna á staðnum. Jafn- framt er hægt að halda þar tónleika og vera með stórar vörusýningar. Nýtt íþróttahús verður tekið í notk- Reykjavíkurpró- fastsdæmi eystra Ferming- arfræðsla hefst í næstu viku í NÆSTU VIKU fer fram innrit- un barna á námskeið til undir- búnings fermingar á árinu 1994 þjá söfnuðum í Reykjavíkur- prófastsdæmi eystra. Nær próf- astsdæmið yfir Arbæ, Breiðholt, Grafarvog og Kópavog. í um- ræddri viku verða þá innrituð á námskeiðin börn sem fædd eru á árinu 1980 og verða 14 ára 1994. Fram kemur á fermingaraug- lýsingum safnaðanna hvar og hve- nær dagsins innritunin á sér stað. Fermingarfræðslan stendur síðan yfir til marsloka á næsta ári og verða fermingar í apríl á vori kom- anda. Eftir að fermingarnámske- iðin eru hafin verða foreldrar boðnir á foreldrafundi og nám barna þeirra kynnt fyrir þeim og óska prestar eftir sem nánustu samstarfi við foreldra barnanna meðan á fermingarfræðslunni stendur og í því skyni er fyrirhug- að að efna til fræðslufunda með þeim í vetur. -----» ♦ ♦---- I UNGT fólk með hlutverk standa fyrir gospel-samkomu nk. sunnudag í Breiðholtskirkju kl. 20.30. Samkoma þessi er í samvinnu við Gospel-samfélag Bandaríkja- manna á Keflavíkurflugvelli. Á sam- komunni verður mikill söngur, vitn- isburður og fleira. Vetrarstarf sam- takanna Ungs fólks með hlutverk er að fara af stað þessa dagana. Bæna- og Biblíuleshópar, námskeið um Biblíuna, hjónabandið og fjöl- skylduna verða á dagskrá í vetur. Auk þess eru kvöldsamkomur á sunnudögum í Breiðholtskirkju kl. 20.30. VZterkurog O hagkvæmur auglýsingamiðill! ■■■ ■■:■;-:- « Golf með minni og ódýrari vél kynntur um helgina Volkswagen-umboðið, Hekla hf. í Reykjavík, kynnir um helgina Golf með nýrri og minni vél en fengist hefur tií þessa. Um er að ræða Golf CL með 1400 rúmsentimetra vél sem er 60 hestöfl og kostar þrennra dyra bíllinn 1.058 þúsund krónur með verksmiðjuryð- vörn að viðbættum skráningarkostnaði. Er þessi gerð um 190 þús- und krónum ódýrari en CL gerðin með 1600 rúmsentimetra og 75 hestafla vél. Golf CL með 1400 rúmsenti- metra vélinni verður einnig fáanleg- ur fimm dyra og með samlæsingum og kostar þá 1.163 þúsund krónur fyrir utan skráningarkostnað. Þá er Hekla hf. einnig að kynna Volkswagen Vento GL með tveggja lítra og 115 hestafla vél sem kostar 1.645 þúsund krónur en það er um 150 þúsund krónum meira en Vento með 1800 rúmsentimetra og 90 hestafla vélinni hefur kostað. un á Isafirði í dasr ísafirði. * ÍÞRÓTTAHÚS með 1300 fermetra aðalsal verður vígt í dag laugar- dag. Húsið er eigu Isafjarðarkaupstaðar og Menntamálaráðuneytisins, en bærinn sér um reksturinn. Byggingarframkvæmdir hófust í mars 1987 og er framreiknað kostnaðarverð um 240 milljónir. Salurinn er löglegur fyrir allar keppnisgreinar iþrótta innanhúss en hluti hans er hannaður til hljómleikahalds, auk breyta honum í sýningarsal. Vígsluhátíðinn hefst klukkan þrjú og er öllum opin. Hætt er við að lít- ið fari fyrir stærstu tertu sem hér hefur verið bökuð um 9 fermetra á 1300 fermetra gólfínu en búist er við um 1300 gestum á hátíðina sem Jóhannes B. Guðmundsson nemi við Framhaldsskóla Vestfjarðar stjómar. Guðrún Jónsdóttir óperusöngkona syngur einsöng við athöfnina auk þess sem Sunnukórinn syngur undir stjórn Beátu Joó. Björn Helgason íþróttafulltrúi setur hátíðina en Bjöm Teitsson rektor flytur ágrip af bygg- ingarsögu. Séra Magnús Erlingsson blessar húsið, en síðan munu skóla- börn sýna leikfími. Fyrsti íþróttaleikurinn verður svo um kvöldið þegar Körfuboltafélag ísafjarðar mætir Umf. Njarðvíkur. ísfírðingar verða þó með smá styrk- ingu á sínu liði, því fímm bestu er- þess sem allur búnaður er til að lendu körfuboltamennimir sem starfa á íslandi leika með ísfírðing- um ásamt Pétri Guðmundssyni. Með tilkomu húsins mun aðstaða til inniíþrótta á ísafírði gjörbreytast, þama verður hægt að koma fyrir öllum löglegum keppnisvöllum, en stærð húsins er slík, að hægt er að hafa þar 9 badmintonvelli samtímis, eða 3 blakvelli. Þá mun þetta vera fyrsta íþróttahúsið á Íslandi með sérmerktan bocciavöll. Áhorfenda-s svæði er fyrir 800, en hægt er að skipta salnum niður í þijár einingar með tjöldum. Þannig er hægt að "stúka af rúmlega 400 fermetra sal sem hefur verið sér hljóðeinangraður til tónleikahalds. Þær breytingar voru gerðar á smíðastigi, að hægt er að keyra fólksbílum og gaffallyft- umm inn á gólfið svo hægt sé að koma þar fyrir stómm vömsýning- Renault Safrane Sýningá Renault BÍLAUMBOÐIÐ hf. kynnir um helgina árgerðir 1994 af Renault Clio og Renult 19 og Renault Safr- ane verður frumsýndur hér á landi. Renault Safrane er fólksbíll í lúx- usflokki og er búinn öllum þægindum sem prýða lúxusbíla. Safrane var val- inn besti valkosturinn í lúxusbflum af sjö evrópskum bílablöðum á þessu ári. Sýningin verður opin laugardag og sunnudag kl. 12-17. Aukin framleiðni er forsenda aukins hagvaxtar. í framleiðsluiðnaði fæst aukin hagræðing með vel hönnuðum lager- og flutningskerfum. Interroll hefur í áratugi framleitt og þróað færibandamótora, ílutningsrúllur, flutningskerfi og lagerkerfi sem em viðurkennd gæðavara. Auktu framleiðnina með INTERROLL. um. í upphafi var hlutur bæjarsjóðs í byggingunni 31% en menntamála- ráðuneytis vegna menntaskólans 69%, en með breyttum lögum og fastsetningar kostnaðarhlutdeildar ráðuneytis hefur dæmið snúist við þannig að nú er húsið í meirihluta- eign Isaíjarðarkaupstaðar. Aðalverktaki við lokaáfanga hús- ins er Auðunn Guðmundsson. Úlfar Ágústsson Færi- banda ■ÉAJiAlUUilll movorar Van der Graaf færibandamótorar hafa reynst frábærlega hérlendis við erfiðar aðstæður. Eigum á lager eða útvegum með stuttum fyrirvara allar stærðir og gerðir. Þvermál: 127 mm, 160 mm, 215 mm, 315 mm, 400 mm og 500 mm. Allt fyrlr færibönd: Mótorar - Færi- bandareimar, plast og gúmmí - Stólar fyrir rúllur - Endarúllur- Plastplötur og stangir. LEITIÐ UPPLYSINGA UMBOÐS- OG HEILDVERSLUNIN BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI67 24 44 TELEFAX 67 25 8 I *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.