Morgunblaðið - 04.11.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.11.1993, Blaðsíða 1
72 SIÐURB/C 251. tbl. 81. árg. FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins íslendingar hafa orðið að flýja hús sín í S-Kaliforníu Reuter Fylgst með eldhafinu ELDHAFIÐ sést langt að og líktu íslendingar, sem flúðu heimili sín, þvi við að sjá gossprungu opnast, þegar eldurinn geystist upp fjallshlíðarnar. Heimili auðmanna verða eldi að bráð SANTA Ana-vindarnir blésu nýju lífi í glæður skógarelda sem geisað hafa í Suður-Kaliforníu í viku. Eldarnir hafa farið yfir svæði norðvestan Los Angelesborgar, frá Santa Monica-fjöllunum og að Malibu-strönd, en á svæðinu á margt stórstjarna hús sín. Meðal þeirra sem yfirgefið hafa heimiii sín eru Islendingarnir María Ellingsen og hjónin íris Erlingsdóttir og Gunnlaugur Helga- son. Ekki er vitað hvort hús þeirra urðu eldinum að bráð. Bettino Craxi Spilling- in var á allra vitorði Róm. Reuter. BANDARÍKIN, Sovétríkin og „allt ítalska efnahagskerfið" tóku þátt í mútugreiðslum til stjórnmálaflokkanna á Italíu. Kemur þetta fram í yfirlýsingu, sem Bettino Craxi, fyrrverandi forsætisráðherra, lét frá sér fara í gær en þar segir hann, að Sósíalistaflokkur hans hafi feng- ið hátt í níu milljarða króna á árunum 1987-’90 fyrir utan opin- ber framlög. „Ítalía eftirstríðsáranna er gegnsósa af fjármálasiðferði af þessu tagi, alls konar lögleysu og spillingu," segir í yfirlýsingu Craxis en hún er útdráttur úr framburði hans við yfirheyrslur vegna ásak- ana um spillingu. Segir hann, að allir helstu flokkarnir hafi þegið mútur. Craxi nefnir engin dæmi um fjár- streymið erlendis frá en fullyrðir aðeins, að Bandaríkin hafi tekið þátt í að fjármagna Kristilega demókrataflokkinn en Sovétríkin Kommúnistaflokkinn, sem nú heitir Lýðræðisbandalag vinstrimanna. Segir hann, að enginn hafi tekið minnsta mark á lögunum um fjár- mögnun stjórnmálaflokka enda hafi allir lagt blessun sína yfir hana í hvert sinn sem gengið var frá fjár- lögum ríkisins. Craxi hefur heitið því að falla ekki einn verði hann dæmdur fyrir spillingu og hann hefur lagt sig fram við að draga fram í dagsljósið dæmi um spillingu meðal fyrrver- andi keppinauta sinna í kommún- istaflokknum, sem áður var. íris Erlingsdóttir líkti eldhafinu við logandi víti í gær, en hún og Gunnlaugur yfirgáfu heimili sín á þriðjudagskvöld. María Ellingsen fór fyrr um daginn. „Símsvarinn minn tekur enn við skilaboðum og ég geri mér því vonir um að húsið mitt hafi sloppið. En ég veit auðvitað ekki neitt, svæðið er enn lokað,“ sagði María í sam- tali við Morgunblaðið. Tveir alvarlega slasaðir Skógareldar blossuðu upp á þremur stöðum á þriðjudagskvöld og hafa yfir 200 heimili brunnið. Um 7.000 manns hafa yfirgefið heimili sín og 17 hafa slasast, þar af tveir alvarlega. í gærmorgun lægði og sögðust slökkviliðsmenn vonast til þess að þeir hefðu náð tökum á eldinum. Byggðin í Topanga-dalnum, þar sem María, íris og Gunnlaug- ur búa, er ekki mjög þétt, en hann er gróðursæll. Þar býr fjöldi listamanna, einkum leikarar og leikstjórar. Meðal þeirra sem misstu heimili sín eru leikararnir Bruce Willis, Sean Penn og Charl- es Bronson. Þá fékk leikstjórinn og handritshöfundurinn Duncan Gibbins alvarleg brunasár. Sjá „Fylgdumst vanmátt- ug ...“ á bls. 22. Umslag á metverði Ziirich. Reuter. ÓÞEKKT kona keypti í gær umslag með tveimur frímerkj- um fyrir fimm milljónir sviss- neskra franka, jafnvirði 240 milljóna króna, á uppboði í Ziirich. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir slíkt umslag. Umslagið var sent frá Máritíus til vínútflytjanda í Bordeaux árið 1847 og á því eru fyrstu tvö frí- merkin sem gefin voru út í Márit- íus, sem var þá bresk nýlenda. Samskonar frímerki og voru á umslaginu, en ónotuð, höfðu verið seld fyrir jafnvirði 140 milljóna króna. -----» ♦ ♦---- Evrópukeppnin í knattspyrnu Manchester United og Bayern úr leik TVÖ af þekktustu knattspyrnu- félögum Evrópu, Manchester United frá Englandi og þýska liðið Bayern Miinchen, voru slegin út úr Evrópukeppninni í gærkvöldi. United gerði markalaust jafn- tefli gegn Galatasaray í Tyrklandi, en gerði 3:3 jafntefli á heimavelli í fyrri leiknum. Tyrkneska félagið fer því í átta liða úrslit, sem fara fram í tveimur riðlum og félögun- um átta eru tryggðar miklar fjár- hæðir vegna sjónvarpssendinga og auglýsinga. Enska liðið Norwich, sem tekur nú þátt í Evrópukeppninni í fyrsta skipti, sló Bayern Múnchen út. Liðin skildu jöfn, 1:1, í Englandi í gær en Norwich vann fyrri leikinn í Þýskalandi. Sjá nánar á íþróttasíðu, bls. 46. Forseti Rússlands kynnir drög að nýrri stjórnarskrá Lýðveldin fái ekki rétt til aðskilnaðar Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, kynnti í gær drög að nýrri stjórnar- skrá landsins fyrir leiðtogum 88 héraða og lýðvelda, en þeir neituðu að samþykkja þau. Hann lagði áherslu á að hann gæti ekki fallist á að lýðveldin fengju rétt til að segja skilið við sambandsríkið. Jeltsín sagði þegar hann ávarp- aði leiðtogana að þeir yrðu að sam- þykkja þegar í stað fjögur umdeild atriði varðandi stjórnarskrárdrögin svo hægt yrði að gefa þau út fyrir 10. nóvember. Lög kveða á um að gefa verði drögin út ekki seinna en mánuði fyrir þjóðaratkvæðagreiðsl- una, sem ráðgerð er 12. desember. í fyrsta lagi er deilt um hvort ráðherrar eða leiðtogar lýðveldanna megi bjóða sig fram til þings. Sam- kvæmt núverandi kerfi er það bann- að, en Jeltsín kveðst hlynntur þessu, að minnsta kosti til bráðabirgða. í öðru lagi vill Jeltsín að héruðin 67 hafi sömu lagalegu stöðu og lýðveldin, sem eru 21. Ljóst er að þetta mun sæta harðri andstöðu nokkurra lýðvelda, sem vilja aukið sjálfstjórnarvald. Völd forsetans aukin Jeltsín vill í þriðja lagi að sleppt verði öllum skírskotunum til „fuli- veldis" lýðveldanna. „Hættan á að eitthvert lýðveldanna segi hugsan- lega skilið við Rússland veldur öll- um borgurunum áhyggjum,“ sagði Jeltsín. Fjórða atriðið, sem deilt er um, varðar spurninguna um hvernig fella eigi sambandssáttmálann um völd héraðanna og lýðveldanna inn í stjórnarskrána. Sáttmálinn var undirritaður fyrir tveimur árum. Drögin hafa ekki verið gerð opin- ber en rússneskir embættismenn segja að þau auki völd forsetans til að tilnefna ráðherra og leysa upp þingið. strengi UNGUR UNITA-skæruliði leikur á gítar í borginni Cuito í Mið- Angóla. Talið er að um 30.000 manns hafi beðið bana í níu mán- aða umsátri skæruliða um borg- ina. Stríðið í Angóla Líkur á friðarvið- ræðum Sameinuðu þjóðunum. Reuter. UNITA-hreyfingin í Angóla hefur fallist á að flytja her- menn sína frá þeim svæðum sem þeir hafa hertekið síðan bardagar blossuðu upp í land- inu fyrir ári. Blondin Beye, sérlegur sendi- maður Sameinuðu þjóðanna í Ang- óla, sagði að vegna þessarar til- slökunar UNITA væri stjórn landsins reiðubúin að semja um vopnahlé og efna til friðarvið- ræðna í Lusaka í Zambíu, ef til vill í næstu viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.