Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993
Landsfundur samtaka um Kvennalista 1
EFNI
Þungi á launa-
og kjaramálum
MIKIl þátttaka og góður andi er á Landsfundi samtaka um Kvenna-
lista sem nú stendur yfir á Löngumýri í Skagafirði að sögn Þórunn-
ar Sveinbjamardóttur starfskonu Kvennalistans. Hún segist ekki
eiga von á sérstökum átakafundi. Aðalmál fundarins em launa- og
kjaramál kvenna.
Landsfundur hófst á föstudag.
Voru þá afgreiddar breytingar á lög-
um og starfsreglum samtakanna og
reikningar og skýrsla stjórnar sam-
þykkt í kjölfarið. Eftir á hlýddu þátt-
takendur á erindi Maríu Jóhönnu
Lárusdóttur, „Flökkusagnir um
kvennahreyfingar", og var spjallað
um inntak þess frameftir kvöldi.
Fyrir hádegi á laugardag voru
haldin framsöguerindi og rætt um
sjávarútvegs-, landbúnaðar-, at-
vinnu- og ríkisfjármál í hópum fram-
eftir degi, Tók þá við umræða um
launa- og kjaramál. Þórunn sagði
að brún kvennanna væri þyngst
varðandi þessi málefni. „Við ætlum
að spá í hvort verkalýðshreyfingin
sé í raun og veru nothæf í launabar-
áttu kvenna. Hvað hún geri og
hvemig hún standi,“ sagði Þórunn.
Hún sagði að rætt yrði um nýsköpun
og atvinnuátaksverkefni fyrir hádegi
í dag.
Þórunn sagði að 80 konur sætu
fundinn. „Þátttakan er góð og nokk-
uð jöfn úr kjördæmum. Sérstaklega
er þó auðvitað vel mætt af Norður-
landi. Andinn er líka góður,“ sagði
Þórunn.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Hátíð undirJökli
ENDA þótt geimverur hafí ekki látið sjá sig á Snæfellsjökli í fyrra-
kvöld voru þeir sem biðu þar flestir í góðu skapi. Vestan Snæfells-
jökuls biðu um 600 manns á öllum aldri og var margt gert til að létta
skapið, m.a. skotið upp flugeldum. Og í lokin var slegið upp skemmtun
á Hellissandi. Þeir sem trúa á tilvist geimvera töldu að ijölmiðlafár
og ljósagangur hafí valdið því að engin geimför lentu á jöklinum þetta
kvöld.
Kaupmenn íhuga debetkorta-
viðskipti með erlendum aðilum
KAUPMENN íhuga að sniðganga íslenskt debetkortakerfi og hefja
samstarf við erlend fyrirtæki sem gefa út debetkort þegar EES
samningurinn tekur gildi, segir Magnús E. Finnsson, framkvæmda-
sljóri Kaupmannasamtakanna. Magnús segir að samtökin hafi sér-
stakan áhuga á dönskum, sænskum og norskum bönkum sem krefj-
ist ekki þóknunar af notkun debetkorta, og möguleikinn sé í gaum-
gæfilegri skoðun. „Við höfum rætt þetta í lokuðum hópi og viljum
benda á þessa leið því nú eru allir möguleikar opnir. Ef samningar
nást ekki um debetkortin munum við stefna að útfærslu þessara
möguleika sérstaklega,“ segir Magnús.
Egilsstaðir
Innbrot í
blómabúð
BROTIST var inn í blómaversl-
unina Blómabæ á Egilsstöðum í
fyrrinótt og stolið þaðan um 20
þúsund krónum sem voru í pen-
ingakassa. Að sögn lögreglunn-
ar sparkaði þjófurinn upp hurð
á versluninni en að öðru leyti
vann hann ekki skemmdir á
húsnæðinu. Hann er ófundinn.
í síðustu viku var brotist inn í
Stólpa á Egilsstöðum, sem er
vemdaður vinnustaður, og stolið
þaðan um 20 þúsund krónum. Það
mál er enn óupplýst en lögreglan
telur ekki útilokað að þessi tvö
mál tengist.
Magnús segir að þegar kaupmenn
hafí tekið upp nýjungar í viðskipta-
háttum hafi þeir yfírleitt átt margra
kosta völ, en nú standi þeir hins
vegar frammi fyrir einum fjár-
magnsaðila með einni samþykkt,
einni gjaldskrá, einu öryggisneti og
einni tegund af posum sem þeir
megi kaupa. „Við eins og allir sætt-
um okkur ekki við þetta, þessar
aðferðir voru viðhafðar fyrir nokkr-
um árum síðan í heiminum en þær
eru liðnar undir Iok,“ segir Magnús.
Hann segir nýafstaðna vaxta-
lækkun hérlendis tengjast þeirri
staðreynd að efnahagsþróun heims-
ins opni í náinni framtíð fyrir beinum
viðskiptum fyrirtækja við erlendar
bankastofnanir. „Ef það er raun-
hæft fyrir ríkissjóð að selja skulda-
bréf erlendis getum við gert ýmis-
legt ef á reynir. Stóru fyrirtækin
hér í landinu hafa ekkert þurft að
sækja til íslenskra banka, hafa ekki
skapað þau vandræði sem þeir eru
i, eru mikið til í erlendum viðskiptum
og geta alfarið snúið sér burtu og
átt viðskipti við erlenda banka. Er-
Morgunblaðið/Kristinn
Nýtt tónlistarútvarp
AFLVAKINN hf., rekstraraðili Aðalstöðvarinnar, hefur hleypt af
stokkunum tónlistarútvarpi undir heitinu X-ið og hefur henni verið
úthlutað tíðninni 97,7. Aðstandendur stöðvarinnar segja að á henni
ráði fersk tónlist ríkjum. Ekki verði þó stefnt á mið síbyljutónlistar
heldur verði klassísk rokktónlist í hávegum höfð. Að auki verði allt
sem fréttnæmt þykir í tónlistarheiminum tíundað rækilega'á X-inu.
Aðalstöðin verður áfram á tíðninni 90,9. Að ofan má sjá (f.v.) Þor-
móð Jónsson, framkvæmdastjóra Aflvakans hf., og tónlistarstjóra
X-ins, þá Sigmar Guðmundsson og Björn Baldvinsson.
lendir bankar geta Iíka veitt ýmsa
þjónustu hér. Ef einstaklingur má
snúa sér beint til t.d. enskra banka
eftir áramót og fá lán til að byggja
hús hlýtur hann líka að mega nota
krítarkort frá þeim,“ segir Magnús.
Magnús nefnir dæmi þess að all-
margir íslendingar séu korthafar hjá
American Express og Diners Club
og fleiri krítarkortafyrirtækjum,
sem sýni að ekkert standi í vegi
fyrir að erlendir aðilar reki kortavið-
skipti við innlenda aðila. Hann
kveðst hafa haft samband við
finnska kaupmenn sem höfðu stofn-
að krítarkortafyrirtæki með finnsk-
um bönkum þegar krítarkortavið-
skipti hófust hér fyrir fáeinum árum
og þeir þá boðist til að koma híngað
og setja upp hliðstæð kerfi og eru
í Finnlandi, Islendingum að kostnað-
arlausu. Þau áform hafí runnið út í
sandinn því um líkt leyti hafi bank-
arnir hafíð slíkan rekstur hér.
Formaður Fiskifélags um kvótatillögu
Reyndi að fá
skýra afstöðu
ATHYGLI vakti á Fiskiþingi að tillögu um að þingið lýsti yfir stuðn-
ingi við núverandi kvótakerfi og frjálst framsal kvóta var visað frá
með miklum meirihluta atkvæða. Jónas Haraldsson formaður stjórnar
Fiskifélagsins og annar þeirra er fluttu tillöguna segir að hann hafi
viljað fá skýra afstöðu þingsins til þessa máls og hafi ætlað að sam-
eina þijár ályktanir þingsins í eina með þessum hætti.
„í þessum þremur ályktunum var
að finna stuðning við kvótakerfið
eins og það er í dag enda ekki hægt
að benda á betri valkost," segir Jón-
as. „Það kom hins vegar greinilega
fram að menn eru ekki sáttir við
núverandi fyrirkomulag á framsali
kvótans eða því sem þeir telja óeðli-
lega viðskiptahætti með kvóta og því
fór þetta svona.“
í greinargerð með einni af álykt-
unum Fiskiþings sem samþykkt var
og mótmælir núverandi framkvæmd
á kvótakerfinu segir: „Ljóst er að
mikil óánægja er meðal sjómanna
með kaup og sölu á aflaheimildum
og þá sérstaklega hvemig sjómenn
eru látnir taka þátt í slíkum kaupum.
Þá er einnig talið óeðlilegt að einstak-
ar útgerðir geti hagnast verulega á
sölu aflaheimilda. í núverandi fram-
kvæmd ríkir nánast frumskógarlög-
málið eitt í þessum viðskiptum.“
Síldarútvegsnefnd selur Rússum síld
1.000 tunnurtil
einkafyrirtækis
HUNDRAÐ tonn af saltsíld fóru til Rússlands í fyrradag og var send-
ingin, alls 1.000 tunnur, fyrsta skrefið í átt til viðskipta sem gætu
orðið umfangsmeiri á næstunni. Búið er að greiða fyrir sendinguna og
er gert ráð fyrir að sama magn verði sent eftir tvær vikur. Kaupand-
inn er rússneskt einkafyrirtæki. Síldarútvegsnefnd seldi Rússum síðast
síld í apríl 1992 og þá var kaupandinn ríkisfyrirtæki.
Gunnar Jóakimsson framkvæmda-
stjóri Síldarútvegsnefndar sagði að
alltaf væri verið að leita viðskipta-
leiða og væri þessi sala árangurinn
af því. Samningaviðræður fóru að
mestu fram án milligöngu íslenska
sendiráðsins í Moskvu og að sögn
Gunnars er óvíst um framhaldið en
frekari viðskipti ekki útilokuð.
Ólafur Egilsson sendiherra í
Moskvu sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þessi viðskipti gætu orðið
upphafið að meiru einkum með tilliti
til vaxandi einkavæðingar.
Ofbeldi og unglingar
►Rannsóknir Helgu Hannesdótt-
ur sýna að um fjórðungur 6-11
ára bama á við einhvers konar
hegðunarvandamál að stríða. Hún
segir fjölmargt unnt að gera til
að bæta ástandið. /10
Volvo í vörn
►Gagnrýni á stjómendur Volvo
vegna fyrirhugaðs samruna fyrir-
tækisins við Renault hefur farið
vaxandi undanfarið heima fyrir.
/12
Svífandi sjúkraþjálfari
►Um hvað dreymir ungar konur?
Alma Guðjónsdóttir náði hæsta
prófí sem ballettdansari hjá bresk-
um samtökum en hefur ekkert á
móti því að gerast sjúkraþjálfari í
sjávarplássi úti á landi. /14
Ég er ekki á f lótta
►Guðmundur Ámi Stefánsson
heildbrigðisráðherra í viðtali. /16
► l-24
SUNNUOAGtm
gl.tfltwbUtib ... II
jjSÆLUDAL
í sæludal
►Giselle Jónsson grúskar í forn-
minjum og söfnum í Frakklandi.
Þar hefur hún m.a. fundið að litim-
ir í faldabúningi Fríðu í myndabók
Mayers em alrangir. /1
Þögla klukkan
►Bær í Borgarfirði státar af elstu
klukku landsins en þar býr líka
ágætur sögumaður, Ólafur Þór-
mundsson. /10
Á hápunktinum
►Todmobile er á tónleikaferð um
landið og mætti kalla hinstu hring-
ferð sveitarinnar. /12
C BÍLAR__________________
► 1-4
Tólf strokka ál-Audi
► Með nýrri tækni vænta menn
þess að hægt verði að smíða vélar
í dýrastu lúxusbíla og minnka um
leið vélarrúmið. /1
Nýir bílar
►Opel Vectra er áhugaverður
ferðabíll. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 9b
Kvikmyndahúsin 20 Fólk í fréttum 14b
Leiðari 22 Myndasögur • 16b
HelgispjaJI 22 Brids 16b
Reykjavíkurbréf 22 Stjörnuspá 16b
Minningar 2G Skák 161)
Utvarp/sjónvarp 40 Bíó/dans 17b
Gárur 43 Bréf til blaðsins 20b
Mannlífsstr. 6b Vdvakandi ■ 20b
Kvikmyndir 8b Samsafnið 22b
INNLENDARFr ÉTTÍR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4 1-$ ií