Morgunblaðið - 23.11.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.11.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐURB 267. tbl. 81.árg. ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vont veður í Evrópu NEYÐARÁSTANDI var í gær lýst yfir í hluta hæð, eins og sjá má á myndinni. Mikil snjó- Aþenu vegna mikilla rigninga undanfarna tvo koma og frost var um mest alla Evrópu í daga, sem valdið hafa gífurlegu tjóni. Ferða- gær, allt frá Lundunúm í vestri til Kiev í Úkra- menn létu þó margir hverjir ekki veðrið aftra ínu í austri. Hafa tugir manna frosið í hel sér frá því að skoða Pantheon á Akrópolis- undanfarna sól’arhringa. > Sigur nýfasista og vinstrimanna á Italíu Krefjast afsagn- ar ríkissljórnar Carlos Ciampis Mílanó, Róm. Reuter. VERÐHRUN varð á fjármálamörkuðum á Italíu í gær eftir sigur flokka fyrrverandi kommúnista og nýfasista í sveitarstjórnakosn- ingunum á sunnudag. „Hvort sem það er sanngjarnt þá tor- tryggja menn á mörkuðunum PDS [fyrrverandi kommúnista],“ sagði verðbréfasali í Mílanó. Fylgið hrundi af kristilegum demó- krötum og talsmenn nýfasista kröfðust þess að ríkisstjórnin segði þegar af sér og boðaði til kosninga. Samsteypustjórn Carlos Azeglios Ciampis forsætisráðherra var skip- uð til bráðabirgða fram að kosning- um á næsta ári en Ciampi er fyrr- verandi seðlabankastjóri. Kristileg- ir, sósíalistar og aðrir flokkar sem styðja stjórnina fengu samanlagt um 15-16 af hundraði atkvæða en nær helming í þingkosningunum 1992. Kristilegir hafa haft um 30% fylgi í sveitarstjórnum en fengu nú um 10% á landsvísu. Kosið var um fjórðung sveitarstjórna, þ. á m. borgarstjóra stærstu borganna. Aðrir gamlir flokkar fengu einnig flestir slæma útreið en nýfasistar, MSI, sem verið hafa utangarðs- menn í stjórnmálum landsins eftir hrun einveldis Benitos Mussolinis í síðari heimsstyrjöld, eru nú meðal öflugustu stjórnmálafylkinga ítáHu. Kosið verður aftur eftir tvær vikur á þeim stöðum þar sem enginn frambjóðandi fékk hreinan meiri- hluta. Norðursambandið, hægriflokkur sem hefur boðað aðskilnað hinna auðugu norðurhéraða landsins frá suðurhéruðunum, hlaut einnig mik- ið fylgi en eina stjórnmálaafl Ítalíu sem státað getur af miklu fylgi um allt landið er nú PDS. Siá frétt á bls. 22. EB hótar beitingu hervalds ef hjálpargagnasendingar verða truflaðar Serbum boðið afnám refsi- aðgerða gegn afsali lands Lúxemborg, Zagreb. Reuter, The Daily Telegraph. UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evrópubandalagsins buðust í gær til að aflétta refsiaðgerðum gegn Serbum í áföngum ef þeir féllust á að afsala sér landi til handa múslimum í Bosníu. Þeir boðuðu ennfremur til nýrra friðarviðræðna og hótuðu að beita hervaldi gegn „óviðráðanlegum" hópum sem kynnu að reyna að hindra flutninga á hjálpargögnum til landsins. á undanförnum mánuðum og beitt ríki sér vinveitt, fyrst og fremst Grikkland og Rússland, miklum þrýstingi. Þingkosningar verða brátt haldnar í landinu og er Slobodan Milosevic, forseta Serbíu, mikið í mun um að sýna fram á að Sósíal- istaflokkur hans geti bundið enda á refsiaðgerðirnar. Radovan Karadzi leiðtogi Bosníu-Serba, hefur einnig gefið í skyn að hann sé reiðubúinn að gefa eftir en þá einungis ef múslimar fallist fyrst á friðarsamkomulag. Friðarviðræðurnar verða í Genf á mánudag í næstu viku. Þá verður reynt að fá loforð frá fulitrúum Serba, Króata og múslima um að þeir hindri ekki flutninga á hjálpar- gögnum frá strönd Adríahafsins til Bosníu. Willy Claes, utanríkisráð- herra Belgíu, sagði að ef þessar stríðandi fylkingar samþykktu flutn- ingana yrði beitt valdi gegn „óvið- ráðanlegum" hópum sem reyndu að hindra þá. Douglas Hurd sagði að ekki kæmi til greina að beita her- valdi „gegn skipulagðri andstöðu“ til að koma bílalestum til Bosníu. Hins vegar „gæti verið æskilegt að íhuga valdbeitingu" ef um „óskipu- lagða andstöðu" væri að ræða. Hurd sagði ennfremur að refsiað- gerðunum yrði ekki aflétt algjörlega nema „víðara samkomulag" næðist um framtíð fyrrverandi lýðvelda Júgóslavíu. Serbar fögnuðu þessu tilboði Evr- ópubandalagsins í gær en þeir hafa barist hart fvrir afnámi refsiaðgerða Karl Bretaprins tel- ur störf sín vanmetin Lundúnum. Reuter. KARL, ríkisarfi Bretlands og prins af Wales, telur Breta ekki hafa metið störf sín að verðleikum frá því að hann giftist Díönu prinsessu fyrir tólf árum. Segir hann störf sín sem fulltrúi Bret- lands vanmetin. Þetta kom fram í grein sem birtist í breska blað- inu Financial Times í gær en höfundur liennar fylgdi prinsinum á ferð hans um Flóaríkin fyrir skömmu. Líkti Karl hjónabandi sínu við sápuóperu sem hefði truflað störf sín. í samtali við blaðamann Financ- að breyta hlutverki mínu er þvætt- ial Times neitaði Karl prins því ingur. Frá því að ég giftist hefur staðfastlega að hann hygðist fólk einfaldlega kosið að hunsa breyta hlutverki ríkisarfans í kjöl- dagleg störf mín,“ sagði ríkisarf- far skilnaðarins við Díönu á síð- inn, sem nú er 45 ára. asta ári. „Sú hugmynd að ég ætli Karl hefur löngum kvartað yfir því að störf hansí þágu viðskipta og umhverfisverndar, svo eitthvað sé nefnt, hafi farið fram hjá al- menningi. Þá segir í frétt Financ- ial Times að honum finnist stjórn- völd ekki nýta ferðir hans nægi- lega vel til að koma á viðskipta- og stjórnmálatengslum. Talsmaður Johns Majors, for- sætisráðherra Bretlands, sagði í gær að forsætisráðherrann væri reiðubúinn að hlýða á kvartanir prinsins og aðstoða hann. Keuter. Johns F. Kennedys minnst ÞRJÁTÍU ár voru í gær liðin frá þvi að John F. Kennedy Bandaríkja- forseti var skotinn til bana á Dealy- torgi í borginni Dallas. Um fimm þúsund manns komu saman við minningarathöfn á torginu í gær en þá var því jafnframt lýst yfir að torgið yrði gert að sögulegu minnismerki. Meðal þeirra sem fluttu ræðu við athöfnina var Nellie Connally, ekkja Johns Connallys ríkisstjóra, sem særðist í skotárá- sinni. Fjölskylda Kennedys og nánir vinir komu saman við leiði hans í Arlington kirkjugarðinum skammt frá Washington og á myndinni má sjá Evelyn Lincoln, fyrrum einkarit- ara hans, leggja blómsveig á leiðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.