Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1994 Ekki kemur til greina að loka Sólheimum eða hætta starfi þar fyrir fatlaða eftir Pétur Sveinbjarnarson Að kvöldi þriðjudagsins 28. des- ember þegar landsmenn höfðu tekið upp störf að nýju eftir jólahald og hafið undirbúning áramótagleði var lesin aðalfrétt í kvöldfréttatíma út- varpsins um að loka ætti Sólheim- um í Grímsnesi. Fatlaða heimilis- menn átti að senda út á Guð og gaddinn. Þess var sérstaklega getið að félagsmálaráðuneytið hefði brugðist hart við. í kjölfar þessarar fréttar birtust viðtöl við félagsmála- ráðherra í útvarpi og sjónvarpi. Þessi frétt birtist í Ríkisútvarpinu án þess að leitað hefði verið stað- festingar stjórnar Sólheima og kom öllum í opna skjöldu, stjórnendum, heimilisfólki og starfsmönnum Sól- heima. Aldrei hefur komið til greina að loka Sólheimum og hætta starfi þar fyrir fatlaða. Á fundi fulltrúaráðs Sólheima í Grímsnesi 22. apríl 1989 gerði ráð- ið eftirfarandi samþykkt: „Fulltrúaráð Sólheima felur stjóm heimilisins að eiga viðræður við fé- lagsmálaráðherra þár sem eytt verði allri óvissu um framtíðarhlutverk heimilisins. Felur fulltrúaráðið stjórninni að leiða þær viðræður til lykta eigi síðar en 1. júlí 1989.“ í framhaldi fór stjóm heimilisins fram á viðræður við félagsmálaráðherra um gerð samnings milli heimilisins og ráðuneytisins. Viðræður við fé- lagsmálaráðuneytið hafa staðið yfir í tæp 5 ár án árangurs. í opinberri þjónustu í nágranna- löndum okkar tíðkast í vaxandi mæli að gerður sé þjónustusamn- ingur við aðila sem fá opinbert fé og hafa með höndum þjónustu sem tengist ríkisvaldinu. Á þetta ekki eingöngu við um einkaaðila og sjálfseignarstofnanir, heldur einnig opinberar stofnanir og sveitarfélög. Þjónustusamningar eru taldir dæmi um vandaða stjórnsýslu og skilyrði fyrir því að aðilar taki að sér verk- efni fyrir ríkisvaldið. í lögum um málefni fatlaðra er ákvæði um gerð þjónustusamnings við sveitarfélög og sjálfseignarstofnanir. Hvers vegna þjón- ustusamning? Meginástæðan fyrir samþykkt fulltrúaráðsins var að eyða óvissu sem þá um árabil hafði ríkt um framtíð heímilisins. Stöðugur ágreiningur um rekstur heimilisins hafði þá staðið frá 1980. Skulu hér aðeins nefnd þrjú mál af fjölmörg- um. 1983 var rekstrarljárveiting til heimilisins skorin niður um 30% og heimilið sett á föst fjárlög án nokk- urs samráðs við stjórnendur þess. 9. nóvember 1987 skiluðu tveir fulltrúar Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra skýrslu og í framhaldi af því gekk annar þeirra á fund biskups íslands, herra Sig- urðar Guðmundssonar, og krafðist þess „að þjóðkirkjan, sem ber ábyrgð á rekstri Sólheima, eftir því sem best verður séð, afhendi félags- málaráðherra stofnunina frá og með næstu áramótum". Eftir að nefnd félagsmálaráð- herra um framtíðarskipulag sólar- hringsstofnana lauk störfum sendi félagsmálaráðuneytið Sólheimum bréf, 6. júní 1990, ogtilkynnti heim- ilinu tillögur varðandi Sólheima. Þar kom m.a. fram „að staðsetning heimilisins og uppbygging starf- seminnar komi í veg fyrir eðlileg og óháð samskipti við umhverfið og skipulagsbreyting til sambýlis- reksturs þjóni engum raunhæfum tilgangi". Lagði nefndin til að starf- semi Sólheima verði óbreytt næstu fímm ár, þó þannig að engar nýjar vistanir til lengri tíma verði leyfð- ar. Aðaltilgangur erindis félags- málaráðuneytisins var tillaga um að komið verði á fót tímabundnu samstarfsráði sem yrði skipað af félagsmálaráðherra og ætti þar sæti einn fulltrúi ráðuneytis, einn fulltrúi svæðisstjómar og einn full- trúi frá stjórn Sólheima. Hlutverk ráðsins væri að fjalla um stjórnun og rekstur heimilisins með hliðsjón af lögum um málefni fatlaðra og vera tengiliður Sólheimaheimilis, ráðuneytis og svæðisstjórnar. Fór félagsmálaráðuneytið þess á leit við Sólheima að tilnefna einn aðila í tímabundið samstarfsráð. í raun var hér gerð tillaga af félagsmálaráðherra um hreina yfir- töku á heimilinu þar sem stjórn þess átti að eiga einn fulltrúa af þremur. Þessi dæmi eru nefnd til að sýna fram á nauðsyn þess að gerður yrði þjónustusamningur sem tryggði starfsgrundvöll og eyddi óvissu. Beiðni Sólheima um þjón- ustusamning fékk tregar viðtökur þrátt fyrir að hún væri margítrek- uð. 11. júlí 1990 sendi ríkisendur- skoðun félagsmálaráðuneytinu er- indi þar sem ráðuneytinu er til- kynnt að nauðsynlegt væri að gera þjónustusamning við Sólheima. Forsendur samnings væru ákvörð- un um afgjald sem greiða bæri heimilinu fyrir mannvirki, jörð og hitaréttindi sem heimilið leggur til. Erindi ríkisendurskoðunar var átján mánuði í athugun í ráðuneytinu án þess að nokkur viðbrögð yrðu. Nefnd um ákvörðun afgjalds var loks skipuð í mars 1992. Lauk hún störfum fyrir nokkrum mánuðum og var þá heimilinu úrskurðað af- gjald vegna viðhalds og hitaréttinda að upphæð 7,2 milljónir króna. Það var svo loks 26. ágúst sl. sem fé- lagsmálaráðuneytið sendi stjórn Sólheima tillögu að þjónustusamn- ingi. Fulltrúaráðið tók samningstil- boð ráðuneytisins til umfjöllunar og óskaði eftir skýringum um forsend- ur tilboðsins og hvert samband væri á milli þjónustuþarfar fatlaðs fólks á Sólheimum og framlögum vegna þjónustunnar. í svari taldi ráðuneytið sig ekki hafa nægar upplýsingar til að tengja þjónustu- þörf og umönnunarkostnað. Að því búnu sendi stjórn Sólheima ráðu- neytinu gagntilboð þar sem gengið var út frá meðaltalskostnaði vegna umönnunar fatlaðs fólks á sambýl- um og atvinnustarfsemi á vernduð- um vinnustöðum í eigu ríkisins. Málið fékk skjótan endi því 26. október tilkynnti ráðuneytið að það teldi frekari umræður vegna þjón- ustusamnings óþarfar. Viðræðunum var slitið af hálfu félagsmálaráð- herra áður en þær hófust þar sem engar umræður höfðu átt sér stað um tillögu að þjónustusamningi. Við kennum alla samkvæmisdansana Suðurameríska, standard oggömlu dansana. Svo kennum við líka barnadansa. Einkatímar fyrir þá sem vilja. Fjölskyldu- og systkinaafslattur. Innritun og upplýsingar 3. - 7. janúar kl. 10-22 í síma 64 1111. Kennsla hefst miðvikudaginn 5. janúar. í lok kennsluannar verður ball fvrir alla nemendurna og grímuball fyrir börnin. Æfingin skapar meistarann Opið hús öll laugardagskvöld. DANSSKÓLI , SIGURÐAR HAKONARSONAR * 5 o AUÐBREKKU 17, KÓPAVOGI Pétur Sveinbjarnarson „Ráðherra hefur gefið í skyn að ef samið yrði við Sólheima yrði að endurmeta allar fjár- veitingar til stofnana fatiaðra!.“ Stöðug óvissa Síðustu sjö mánuði hefur ástand- ið verið óbærilegt. í mars úthlutaði framkvæmdasjóður fatlaðra fyrsta framlagi í sjö ár til nýframkvæmda á Sólheimum, 4,5 milljónir króna. Loforð lá fyrir frá ráðuneytinu um greiðslu. Þrátt fyrir það ákvað fé- lagsmálaráðherra að fresta af- greiðslu málsins um marga mánuði eða þar til í september. í júlí byijaði félagsmálaráðherra að skerða fjárveitingu til reksturs Sólheima af fjárlögum. Skerðingin nam 2,7 milljónum á mánuði og skapaði þetta heimilinu mikla erfið- leika. Ef ekki hefði komið til áðstoð hefði rekstur heimilisins komist í þrot. Það var ekki fyrr en 6. desem- ber, eftir afgreiðslu aukafjárlaga, sem ráðherra varð að skila þessum peningum aftur. Skrifstofustjóri ráðuneytisins upplýsti fulltrúaráð heimilisins um að ástæðan fyrir þessari skerðingu væri að rekstr- aráætlun hefði ekki verið skilað á réttu formi! 20. september úthlutaði Hús- næðisstofnun framkvæmdaláni til Sólheima. Sama dag barst stofnun- inni bréf frá ráðherra þar sem hann óskaði eftir að fá málið til umsagn- ar. Þessi aðgerð ráðherrans mun að öllum líkindum hafa í för með sér að verð hverrar íbúðar mun hækka á annað hundrað þúsund krónur en það verða fatlaðir íbúar Sólheima að greiða með leigu. Síð- ustu sjö mánuði hefur því hver að- gerðin rekið aðra gegn heimilinu. Vistheimilið lagt niður Um slðustu áramót var vistheim- ilið á Sólheimum lagt niður og umönnun fatlaðs fólks falin þjón- ustumiðstöð fatlaðra á Sólheimum. Jafnframt tók gildi ný skipulags- skrá sem gerði ráð fyrir þessari bfeytingu en efni skipulagsskrár- innar hafði verið til meðferðar í félagsmálaráðuneytinu án þess að ráðuneytið gerði við hana athuga- semd og síðar staðfest af dóms- málaráðuneyti. Með breytingunni var fötluðum íbúum veitt aukið sjálfstæði með rekstri eigin heimila, án þess að dregið væri úr þjónustu eða möguleikum til atvinnu. Breyt- ingin er í samræmi við þá þróun sem átt hefur sér stað á undanförn- um árum þar sem fatlað fólk hefur flutt í sjálfstæða búsetu úr foreldra- húsum eða af vistheimilum. í öllum tilvikum þar sem þessi breyting hefur átt sér stað hefur það haft í för með sér umtalsverðan kostnað bæði hvað varðar rekstur og stofn- kostnað. Stjóm Sólheima valdi hag- kvæma leið með því að leggja áherslu á vægi þjónustumiðstöðvar í stað þess að stofna 8-10 sjálfstæð ný sambýli sem haft hefði í för með sér verulegan kostnaðarauka. Heimilismenn fá greiddar örorku- bætur og standa straum af eigin heimiliskostnaði þ.m.t. kvöld- og helgarmáltíðir. Þessi breyting hefur í för með sér að unnt er að lækka heildarrekstrarkostnað Sólheima um 6,5 milljónir en breytingin hefur aðeins í för með sér kostnaðarauka upp á 7,2 milljónir. Hefðu íbúar Sólheima flutt á sambýli ríkisins hefði það haft í för með sér kostnað- arauka fyrir ríkissjóð sem skipti tugum milljóna. Fyrir það að velja hagkvæmustu leiðina uppskáru stjórnendur heimilisins niðurskurð um 19 milljónir króna á rekstrarfé. í fjölmiðlum kallar félagsmálaráð- herra þennan niðurskurð 5-6% aukningu á rekstrarfé! Ráðherra hefur gefíð í skyn að ef samið yrði við Sólheima yrði að endurmeta allar fjárveitingar til stofnana fatlaðra! I skýrslu Hag- sýslu ríkisins um kostnaðarsaman- burð á stofnunum 1991 kemur fram að meðal umönnunarkostnaður á hvern heimilismann á Sólheimum var 896 þús. kr. Þá voru Sólheimar reknir í heimiliseiningakerfi sam- bærilegu sambýlum fatlaðra þar sem meðaltalskostnaður var 1.580 þús. kr. á hvern heimilismann. I báðum tilvikum er ekki reiknaður kostnaður vegna.atvinnumála sem er sambærilegur. Bréfum ekki svarað 6. desember þegar stjórnin sá í hvert óefni var komið átti hún þá eina leið færa að óska eftir viðræð- um við ráðuneytið að nýju um þjón- ustusamning. Óskaði stjómin eftir því að fá svar frá ráðuneytinu fyrir 14. desember áður en fjárlög yrðu afgreidd. Niðurlagsorð bréfsins vora þessi: „Ef ekki næst samkomu- lag um jafnan kostnað fyrir þjón- ustu Sólheima og gildir annars stað- ar fyrir sambærilega þjónustu mun stjóm Sólheima leggja til við full- trúaráðið að þjónustu fyrir félags- málaráðuneytið á málefnum fatl- aðra verði hætt upp úr næstu ára- mótum þar sem þá er ekki lengur rekstrargrandvöllur fyrir hendi.“ Stjórn heimilisins var ekki virt svars Gleðilegt nýtt dansár! Innritun er hafin í síma 642535 Dansandi kveðja Dagný Björk danskennarí Smiðjuvegi 1 Kópavogi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.