Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1994 fclk f fréttum STJÖRNUR Barbra Streisand heldur í tón- leikaferðalag Barbra Streisand kom fram á tvennum tónleikum í Las Veg- as nú um áramótin fyrir fullu húsi. Hlaut hún um 20 milljónir dollara fyrir uppákomumar. Meðal gesta var móðir Bill Clintons, Virginia Clinton Kelley, Andre Agassi náinn vinur Barbrö og allmörg þekkt Hollywood-andlit. Þótti Barbrö tak- ast svo vel upp að hún hyggur á tónleikaferðalög á næstunni til nokkurra borga auk þess sem til greina kemur að taka upp tónleika í New York fyrir sjónvarp. Barbra sagði í viðtali við blaðið Daily Variety að hún hafí svo sem ekki verið full sjálfstraust að koma fram eftir svo langa Qarveru, en hún hafi virkilega notið sín síðara kvöldið. Þá segir blaðið einnig að Michael Jackson hafi verið meðal tónleikagesta og að hann hafi heim- sótt leikkonuna baksviðs eftir tón- leikana. Barbra sem komin er á sextugs- aldur lætur ekki staðar numið við tónleikana heldur er hún með tvö handrit í vinnslu: „The Mirror Has Two Faces“ og „The Normal He- art“. Sjálf hyggst hún leika aðal- hlutverkið í fyrra verkinu og leik- stýra þeim báðum. Hættu að veifa. Þetta er bara venjulegur togari. COSPER £rj,B cCCÞ c COSPER. Sljörnusveit o g sel- skinnsjakki Jon Hendricks í selskinnsjakkan- Morgunbiaðið/Einar Faiur um og með skyggnishúfi í stíl J°n Hendricks á sviðinu í Blue Note, ásamt dótturinni Michele og fyrir utan hinn kunna jassklúbb saxófónleikaranum Benny Golson. Blue Note í New York. DJASS Einn þeirra menningarviðburða sem hvað mesta athygli hafa vakið í New York nú um jólin er tónleikaröð djasssöngvarans góð- kunna Jons Hendricks í djasskúbbn- um Blue Note. Hendricks, sem kalla má „íslandsvin" eftir tónleika hans í Háskólabíói fyrir tveimur árum, hefur komið þar fram ásamt kunn- um hljóðfæraleikurum, svokallaðri „Stjörnusveit" sinni. Til gamans má geta þess að þegar hann mætir í hús er hann ætíð klæddur svörtum íslenskum selskinnsjakka með húfu í stíl frá Eggerti Jóhannssyni feld- skera. Selskinssjakkinn er þannig til kominn, að þegar Hendricks kom til íslands sá hann flík sem Eggert hafði hannað og saumað úr sel- skinni og hreifst mjög af. Hann pantaði svartan jakka, sem hann klæðist öllum stundum. Hann lét ekki þar við sitja heldur bað Egg- ert einnig um að búa til fyrir sig hatt og skyggnishúfu úr selskinni. Hann er svo ánægður með höfuðföt- in að hann segist helst ekki taka þau ofan nema þegar hann sefur. Tónleikarnir í sviðsljósinu Mikið hefur verið skrifað um tón- leikaröð Jons og Stjörnusveitarinn- ar. Þótt valinn maður sé þar í hverju rúmi eru blásarnir fjórir vafalaust kunnastir; þeir Clark Terry, Al Grey, Benny Golson og Red Holloway. Dóttir Jons, Michele, kemur einnig fram, en hún er söng- kona búsett í París. Á efnisskrá eru lög úr ýmsum áttum; nokkur eftir Hendricks sjálfan og önnur eftir höfunda á borð við Louis Jordan, Horace Silver og Theolonius Monk, en Jon og allir blásararnir störfuðu um einhvern tíma með þeim síðast- nefnda. Jon Hendricks hefur í mörg ár veri í hópi dáðustu djasssöngvara og er iðulega kallaður konungur „scats“ en „scat“ er það kallað þeg- ar söngvarar í djassi stæla hljóð- færi í söng sínum og setja orð við þekkt djasslög. Hann hefur unnið með mörgum kunnustu djassleikur- um síðustu áratuga og starfað með þekktum söngtríóum. Söngurinn hefur verið hans lifibrauð alla tíð. Meira að segja á unglingsárunum hélt hann uppi allri fjölskyldu sinni, en þau voru 15 systkinin! LEIKARAR „Jókerinn“ Cesar Romero látínn [ eikarinn Cesar Romero sem var almenningi einna kunn- astur fyrir hlutverk sitt sem Jó- kerinn í sjónvarþsmyndunum um Batman lést í Kaliforníu 2. jan- úar, 86 ára að aldri. Hann lék í fjölda sjónvarps- og kvikmynda, einkum á fyrri hluta aldarinnar. Meðal þekktra mynda frá síðári áratugum má nefna „The Americ- ano“ árið 1954 þar sem hann lék á móti Glenn Ford, „Madigan’s Millions" árið 1967 með Dustin Hoffman og „Ocean’s Eleven" árið 1960 ásamt þeim Frank Sin- atra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. Cesar Romero Keuter Reuter Barbra Streisand kom fram á tveimur tónleik- um um áramótin og er hún sögð hafa 20 millj- ónir dollara upp úr því. Kveðst hún ætla að láta 3,5 milljónir dollara renna til hinna ýmsu góðgerðarmála. Michael Jackson var meðal þeirra sem hlýddu á Barbrö Streis- and syngja á tónleikun- um. Hér er hann á leið- inni á tónleikana í fylgd lífvarða. DANSSKOLI HERMANNS RAGNARS Innritun nýrra nemenda er hafin Byrjendaflokkar fyrir alla aldurshópa. Framhaldsflokkar á öllum aldri og stigum. Nemendur sem voru fyrir jól mæta á sömu stöðum og sama tíma og var fyrir áramót. Endurnýjun skírteina á skrifstofunni. Kennsla hefst mánudaginn 10. janúar. Kennslustaðir: Faxafen 14 og Frostaskjói fyrir Vesturbæinga. Skrifstofan er opin í Faxafeni 14 daglega frá kl. 13-19. Innritun ísímum 687480 og 687580 allan daginn frá kl. 10. Gestakennararnir Allan Tornsberg og Vibecke Toft verða hjá okkur síðar í þessum mánuði. Dansinn erfyriralla fjölskylduna og ódýrt tómstundagaman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.