Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 16500 Daniel Day-Lewis Michelu. Pfeiefer Winona Ryder mm scotust i moh tMiiomi akd rowmyi hotkw fjcruii Hm m KV(M nm *-shihc nom mmunams^ * (.mi'Vl >IVA . MAtTTV SCOHBíft*, PúVJF’ DAYIEWU K-CHHU ÍFÍOff* WIXOSA tTDit ’TWt Atif Oi lVWtiNCr *ilLMt lttXfniX£9Gtt»CIU HSttCCI ^TUIUIA SCHtíOXK ■sppÁNTÍ ÍIKLTTi -SSTMJCma WUiUlluC JacUHTK WH«ntíX~nJW COCKS»MAKTiK JCOtSBí \-ææá ««M»> **XlAlWl4 M rtV'A '~íH.4tTIV ÍÍOHÖt «sar-dffilfT Jólamynd Stjörnubíós Stórmyndin Öld sakleysisins ★ ★★★ A.l. MBL. ★ ★★ H.K. DV. gerð eftir Pulitzer-verðlauna- skáldsögu Edith Wharton. DANIEL DAY-LEWIS, MICHELLE PFEIFFER OG WINONA RYDER Í STÓRMYND MARTINS SCORSESE. EINSTÖK STÓRMYND SEM SPÁÐ ER ÓSKARSVERÐLAUNUM. STÓRBROTIN MYND - EINSTAKUR LEIKUR - SÍGILT EFNI - GLÆSILEG UMGJÖRÐ - GULLFALLEG TÓNLIST - FRÁBÆR KVIK- MYNDATAKA - VÖNDUÐ LEIKSTJÓRN. ★ ★ ★ * Sýnd kl. 4.45, 9 og 11.30. * Í WÝIU OG STÓROLÆSILEGU STJÖRNUBÍÓI EVRÓPUFRUMSÝNING Á GEGGJUÐUSTU GRÍNMYND ÁRSINS Hún er algjörlega út í hött.. Já, auðvitaö, og hver annar en Mel Brooks gæti tek- ið að sér að gera grín að hetju Skírisskógar? Um ieiö gerir hann grín að mörgum þekktustu mynd- um síöari ára, s.s. The Godfather, Indecent Propos- al og Dirty Harry. Skelltu þér á Hróa; hún er tví- mælalaust þess virði. Leikstjóri: Mel Brooks. ★ ★ ★ ★ BOX OFFICE ★ ★ ★ VARIETY ★ ★★ L.A. TIMES Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. ^ SVEFNLAUS í SEATTLE sýndíA-saiki. 7.10. KR. 350. ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ T\ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Sússala hopp o g hæa Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Ys og þys út af engu („Much Ado About Not- hing“). Sýnd í Háskóla- bíói. Leikstjóri: Kenneth Branagh. Gerð eftir leik- riti Williams Shakespear- es. Aðalhlutverk: Kenneth Branagh, Emma Thomp- son, Denzel Washington, Robert Sean Leonard, Keanu Reeves, Michael Keaton, Richard Briers, Brian Blessed. Breski leikhúsmaðurinn, leikarinn, leikstjórinn, hand- ritshöfundurinn og fram- leiðandinn Kenneth Bra- nagh vakti heimsathygli þegar hann 28 ára gamall gerði bíómyndina Hinrik V upp úr leikriti Williams Sha- kespeares. Það reyndist eftirminnileg kvikmyndaút- færsla full af stríðstólum og vígamóði og hún var frábær- lega leikin. Önnur mynd hans eftir leikriti skáldsins, gamanleikurinn Ys og þys út af engu, sem er jólamynd Háskólabíós líkt og Hinrik V var árið 1990, er kannski ekki jafngóð en hún er sér- staklega vel heppnuð þótt á allt öðrum nótum sé auðvit- að, léttleikandi, frískleg og fjörug og fyndin og umfram allt skemmtileg. Branagh leikur pipar- sveininn Benedikt og Emma Thompson, eiginkona hans, leikur Beatrís en fyndnasti hluti myndarinnar lýsir því hvernig samsærislegir vinir þeirra fá þau til að líta hvort annað ástaraugum. Annað samsæri og voðalegra er einnig í gangi; Keanu Ree- ves í hlutverki Jóhanns prins vill hefna sín á Pedró, prins- inum bróður sínum sem Denzel Washington leikur, og setur upp áhrifamikla sýningu fyrir hann og Kládíó, leikinn af Robert Sean Leonard, til að varpa grunsemdum á Heró (Kate Beckinsale), brúði Kládíós, sem á eftir að gera brúð- kaupsdaginn að martröð. Til allrar hamingju hnýtur Michael Keaton, stórkost- lega fyndinn í hlutverki varðstjórans hestlausa, um ráðabruggið og áður en lýk- ur fellur gamanleikurinn aftur í ljúfa löð. í fyrri Shakespeare-mynd sinni fékk Branagh til liðs við sig marga helstu Sha- kespeare-leikara breska leikhússheimsins. Hér leitar hann til Hollywood eftir stjörnum sem þekktari eru fyrir annað en túlkun á texta skáldsins og allir standa þeir sig með prýði. Branagh gerir þetta til að taka helgislepjuna af Shake- speare; eins og hann hefur margoft lýst yfir vill hann færa verk hans nær almenn- ingi og gera þau aðgengi- legri og sýna að hann á jafn- mikið erindi í dag og fyrir hundruðum ára. Að hans viti á bíómynd uppúr Shake- speare að vera eins og hver önnur bíómynd. Þessi er það svo sannar- lega. Branagh leggur áherslu á að halda einkar snaggaralegri frásögninni á fisléttum nótum gamanleiks- ins. Myndin er tekin að mestu undir berum og heið- ríkum himni hins sólríka, gróðursæla og gullfallega Toscanahéraðs á Italíu þar sem sólbrúnar ærslafullar konur klæðast í skjannahvítt og vígreifir íjormiklir menn leggja snörur fyrir kvenfólk- ið eða bara hver annan ýmist í góðum tilgangi eða slæm- um. Hér er mikið um hleran- ir, samsærismenn ljúga og einræður fljúga, dansinn dunar, hlátrar skella, vínið rennur og ástin brennur, sússala hopp og hæa. Ys og þys Branaghs er fyrirtaks- skemmtun, ærslafullt og hressilegt bíó sem svíkur engan. <gg BORGARLEIKHUSIÐ sími 680-680 ’ LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra svið, frumsýning 7. janúar: • EVA LUNA Leikrit með söngvum eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónas- son, byggt á skáldsögu Isabel Allende, tónlist og söngtextar eft- ir Egil Ólafsson. Frumsýning fös. 7. janúar.uppselt, 2. sýn. sun. 9. janúar, grá kort gilda, uppselt. 3. sýn. mið. 12/1, rauð kort gilda, fáein sæti laus. • RONJA RÆNINGJADÓTTIR e. Astrid Lindgren Sun. 9. janúar kl. 14. • SPANSKFLUGAN e. Arnold og Bach Lau. 8. janúar. Litla svið kl. 20: • ELÍN HELENA e. Árna Ibsen Fim. 6. janúar. Lau. 8. janúar. Ath.: Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning er hafin. Miðasalan er opin frá kl. 13-20 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum í síma 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasími 680383. - Greiðslukortaþjónusta. ÞJOÐLEIKHUSIÐ sími H200 Stóra sviðið kl. 20.00: • MÁVURINN eftir Anton Tsjekhof 5. sýn. fim. 6. jan. - 6. sýn. sun. 9. jan. - 7. sýn. lau. 15. jan. - 8. sýn. sun. 23. jan. • ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller. Fös. 7. janúar, nokkur sæti laus, - fös. 14. janúar. • KJAFTAGANGUR eftir Neil Simon. Lau. 8. jan. - fim. 13. jan. • SKILA BOÐA SKJÓÐA N eftir Þorvald Þorsteinsson Ævintýri með söngvum Sun. 9. jan. kl. 14., laus saeti v/forfalla, - lau. 15. jan. kl. 14, sun. 16. jan. kl. 14. Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.-18. og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00. Græna línan 996160. ISLENSKA OPERAN sími 11475 y / eftir Pjotr I. Tsjajkovskí. Texti eftir Púshkín í þýðingu Þorsteins Gylfasonar. Sýning fbstudaginn 7. janúar kl. 20. Sýning laugardaginn 8. janúar kl. 20. Sýning föstudaginn 14. janúar kl. 20. Sýning laugardaginn 15. janúar kl. 20. Miðasalan er opin frá kl. 15-19 daglega, sýningardaga til kl. 20. Sími 11475. - Greiðslukortaþjónusta. MUNIÐ GJAFAKORTIN OKKAR! Úrtökumót PCA í Hollandi Anand og Ad- ams sigruðu Skák Margeir Pétursson BÆÐI kornungir skák- menn og gamalreyndir mótarefir voru sigursælir á úrtökumóti atvinnu- mannasambandsins PCA í Groningen í Hollandi, sem er nýlokið. Indverjinn Yyswanathan Anand, 24 ára, og Englendingurinn Michael Adams, 22ja ára, sigruðu á mótinu. Auk þeirra komust fimm aðrir skákmenn áfram í barátt- unni um áskorunarréttinn á Gary Kasparov. Það voru þeir Gata Kamsky, 19 ára frá Bandaríkjunum, Vlad- ímír Kramnik, 18 ára frá Rússlandi, Sergei Tivj- akov, tvítugur Rússi, og þeir Boris Gulko, 46 ára frá Bandaríkjunum, og Oleg Romanishin, 41 árs Úkraínumaður. Efstu menn gerðu róleg jafntefli í lokaumferðinni en á næstu borðum var hart barist. ívan Sokolov frá Bosníu átti gerunnið tafl gegn Gulko og hefði getað komist áfram í hans stað, 'en fataðist úrvinnslan og skákinni lauk með jafntefli. Oleg Romanishin lagði Bandaríkjamanninn Joel Benjamin að velli í stöðubar- áttuskák og komst mjög óvænt áfram. Tveir af stigahæstu skák- mönnum heims, þeir Aleksei Shirov frá Lettlandi og Rúss- inn Evgení Barejev verða að sitja heima og sama gildir um marga aðra heimsþekkta skákmenn. Það eru tvær heimsmeist- arakeppnir í gangi og fyrsta hrina í hefðbundnum áskor- endaeinvígjum alþjóðaskák- sambandsins FIDE hefst í Hollandi um miðjan þennan mánuð. Eftir að niðurstaða fékkst í PCA-mótinu er kom- in upp afar einkennileg staða. Fjórir ungir skák- menn, þeir Anand, Adams, _ Kramnik og Kamsky, eru bæði komnir í átta manna úrslit PCA-keppninnar og í 12 manna úrslit FIDE- keppninnar. Það eru því verulegar líkur á því að sami skákmaðurinn vinni sér áskorunarréttinn á bæði Anatólí Karpov, FIDE- heimsmeistara, og Gary Ka- sparov, PCA-heimsmeistara, eins og þeir eru nú titlaðir í flestum skáktímaritum og skákdálkum dagblaða. Jóhann Hjartarson náði sér ekki á strik og gerði jafn- tefli í síðustu umferð mótsins við Norðmanninn Simen Ag- destein eftir að hafa staðið £^| LEIKFEL. AKUREYRAR s.96-24073 • GÓÐVERKIN KALLA! Höfundar leikrita, laga og söngtexta: Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Sýn. lau. 8. jan. kl. 20.30. Fjölskyldusýning sun. 9. jan. kl. 15. Miðasalan er opin alla virka daga nema mánudaga frá kl. 14-18. Sýningardaga fram að sýningu. Sunnudag frá kl. 13-15. Sími 24073. Símsvari tekur við pöntunum utan opnunartíma. Greiðslu- kortaþjónusta. betur að vígi mestalla skák- ina. Lokastaðan: 1.-2. Adams og Anand 7‘/2 v. 3.-7. Kamsky, Kramnik, Tivjakov, Gulko og Romanis- hin 7 v. 8.-19. Shirov, Dolmatov, Lobron, I. Sokolov, Piket, Húbner, Granda, Vaganjan, Nikolic, Júdit Polgar, 011 og Ehlvest 6Ý2 v. 20.-21. Benjamin og Top- alov 6 v. 22.-28. Beljavskí, Barejev, Kaidanov, Hodgson, Alterman, Vyzmanavin og Ljuböjevic 5'/2 v. 29.-43. Júdasín, Serper, Smirin, Chernin, Tukmakov, Malanjúk, Kortsnoj, Azma- iparashvili, Curt Hansen, II- lescas, Akopjan, Ribli, Ros- entalis, Yermolinsky og Pol- ugajevskí 5 v. 44.-47. Khalifman, Kir. Georgiev, M. Gurevich og Lutz 4 'h v. 48.-50. Van Wely, Jóhann Hjartarson og Wolff 4 v. 51.-53. Rúban, Agdestein og Nijboer 3‘/2 v. 54. Zsuzsa Polgar 3 v. Þessi staða kom upp í mikilvægri úrslitaskák sem þeir Boris Gulko og Ivan Sokolov tefidu. Hinn síðar- nefndi hafði svart og átti leik: 29. - Bf4! 30. gxf4 - Rhxf4+ 31. Kg3 - He6 32. Dxf4 - Rxf4 33. Kxf4 - Hxel 34. Rxel - Dd6+?! Einfaldara virðist 34. - De6! með þeirri hugmynd að svara 35. Ref3 með 35. - Hxb3! 36. Rxb3 - De4+ 37. Kg3 - Dxc2 og vinnur. 35. Kf3 - Dxa3 36. Bc3 - Hxb3?! 37. Rxb3 - Dxb3 38. Ke2 - a4 39. Kd2 - a3 40. Rd3 - g5 41. Re5 - a2!? 42. Rxc6! - e6? Svartur hefði átt að leika 42. - Dxc3+ 43. Hxc3 - al=D, því eftir 44. Rxe7+ - Kf7 45. Rxf5 er 45. - Da2+! mjög óþægilegt. 43. Hcl - Kg7 44. Rb4 - Kg6 45. Hal - Kh5 46. Hxa2 - Kh4 47. Ha7 - h5 48. Hg7 f4 49. f3 - Dbl 50. Rd3 - Dfl 51. Kc2 - Dg2+ 52. Bd2 - De2 53. Hg8 - Dxf3 54. Bel+ - Kxh3 55. Hxg5 h4 56. Rf2+ og hér var samið jafntefli. Jólahraðskákmót TR Ólafur B. Þórsson sigraði á jólahraðskákmóti Taflfé- lags Reykjavíkur sem haldið var 27. og 28. desember. Fyrra kvöldið fóru fram und- anrásir og röðuðust þátttak- endur síðan niður í úrslitar- iðla eftir árangri sínum þar. Úrslit urðu þessi: A úrslit: 1. Ólafur B. Þórsson 11 v. af 15 mögulegum. 2. Jón Viktor Gunnarsson 10 v. 3. Arnar E. Gunnarsson 10 v. 4. Bragi Þorfinnsson 10 v. 5. Páll A. Þórarinsson 10 v. 6. Bragi Halldórsson 9W v. 7. Sveinn Kristinsson 9 v. 8.-9. Ólafur Kristjánsson 8W v. 8.-9. Magnús Örn Úlfarsson 8V2 v. 10. Áskell Örn Kárason 7‘/2 v. o.s.frv. B úrslit: 1. Lárus Knútsson 15 v. af 18 2. Ingvar Þ. Jóhannesson 15 v. 3. Björn Þorfinnsson 12 v. o.s.frv. C úrslit: 1. Hafsteinn Blandon 12‘/2 v. af 16 2. Hafliði Þórsson 10'/2 v. 3. Björn G. Jónsson 10‘/2 v. o.s.frv. Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafsson og Ríkharður Sveinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.