Morgunblaðið - 08.01.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.01.1994, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994 fclk f fréttum AÐDÁENDAKLÚBBUR átta ráðherrum Yoko Ono valdi mynd Einars Fals Félagar í aðdáendaklúbbi Johns Lennons og Yoko Ono fá reglulega send póstkort frá klúbbn- um ásamt fréttabréfum o.fl. Að þessu sinni varð mynd Einars Fals Ingólfssonar ljósmyndara Morgun- blaðsins fyrir valinu. Hefur- hún verið prentuð í þúsundum eintaka og fer um þessar mundir til fólks víða um heim. Einar Falur er við nám í New York og tókst honum á sínum tíma að heija út viðtal við Yoko. Þegar hún kom svo til íslands árið 1991 í tilefni sýningar sinnar á Kjarvals- stöðum var Einar Falur með henni allan tímann sem ljósmyndari Morgunblaðsins En einnig hafði Yoko beðið hann að útbúa mynda- pakka frá Reykjavík fyrir sig, með- al annars frá sýningunni, opnuninni o.fl. Myndin sem Yoko valdi er í miklu uppáhaldi hjá henni, en hún sýnir hvar Yoko sáir fræjum í uppákomu sem hún nefndi „Painting for the Wind“ eða Málverk handa vindin- um. Með henni eru íslensk leik- skólaböm sem voru viðstödd uppá- komuna. Morgunblaðið/Kristinn Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra færir Ragnheiði Amadóttur deildarstjóra ítalskan listmun sem þakklætisvott fyrir störf hennar. Ragnheiður varð sjötug fyrr á árinu og lét því af störfum um áramót- in eftir að hafa gegnt starfi deildarstjóra í 20 ár. ATVINNA Hefur unnið með við blaðið. Ef laus stund myndaðist var farið í umbrot eða aðstoðað við auglýsingar. Þetta var skemmtileg- ur og viðburðaríkur tími, en ég hætti haustið 1943 þegar ég eign- aðist fyrsta bamið mitt. Margrét Indriðadóttir tók við af mér,“ sagði Ragnheiður í stuttu spjalli við Morgunblaðið. Þýddi um 20 bækur Hún segir ennfremur að í þá daga hafi ekki verið til siðs að koma börnum fyrir meðan mæður væm útivinnandi. Hún tók í staðinn að sér þýðingar og eftir hana liggja a.m.k. 20 bækur, auk annars. Einn- ig greip hún í ýmis störf við fyrir- tæki sem maðurinn hennar veitti forstöðu. „Mér fannst alltaf gott að hafa eitthvað að grípa í. Mig langar líka til að nefna að það var Morgunblaðinu að þakka að ég fór að þýða bækur strax eftir stúdents- próf, sem var upphafið að því að _ég tók að mér þýðingar heima. Þegar ég kom inn á Morgunblað nýskriðin út úr stúdentsprófi var mér afhent ritvél og þar með átti ég að byrja að vinna. Ég hafði aldrei komið nálægt slíkum grip í mennta- skóla og byrjaði á því að nota tvo fíngur. Ég verð að viðurkenna að fram á þennan dag hefur það dug- að,“ sagði Ragnheiður og virtist ekki koma á óvart þegar henni var sagt að nýir blaðamenn fá sömu meðferð ennþá nema nú er notast við tölvur. Eftir að hafa komið upp fjórum börnum leitaði Ragnheiður aftur út á vinnumarkaðinn og lá þá bein- ast við snúa aftur í ráðuneytið, en þar hafði hún einnig unnið nokkur sumur áður. Vann í upphafi fyrir Ingólf Um líkt leyti og Ragnheiður hóf störf í ráðuneytinu stóðu miklar breytingar yfir í stjórnarráðinu. Meðal annars var atvinnumálaráðu- neytinu skipt upp í sjávarútvegs- ráðuneyti og landbúnaðarráðuneyti. Fyrsti ráðherrann sem Ragnheiður vann fyrir var Ingólfur Jónsson en alls hefur hún unnið fyrir átta ráð- herra, þá Halldór E. Sigurðsson, Steingrím Hermannsson, Jón Helgason, Braga Siguijónsson, Pálma Jónsson, Steingrím J. Sig- fússon og Halldór Blöndal auk Ing- ólfs. Ekki vildi hún gefa upp hver var besti húsbóndinn, en sagðist hafa verið heppin. „Ég hef alltaf verið í sátt við alla og hætti þann- ig. Þetta hefur verið mjög góður tími og ég vona að framundan sé einnig góður tími. Ég hef jafnvel verið að velta fyrir mér að taka að mér þýðingar," sagði Ragnheiður og ljóst er að hún hefur alls ekki látið staðar numið hér. Kortið sem félagar í aðdáendaklúbbi Johns Lennons og Yoko Ono fá sent. Ragnheiður Ámadóttir kvaddi landbúnaðarráðuneytið nú um áramótin eftir að hafa starfað þar sem deildarstjóri í tuttugu ár. Hún hóf störf sem ritari í atvinnumála- ráðuneyti — sem landbúnaðarráðu- neytið féll m.a. undir — fyrir 23 árum. Segja má að Ragnheiður sé nokkurs konar brautryðjandi kvenna í karlastörfum því hún og Ingibjörg Magnúsdóttir vom fyrstu kvendeildarstjórar sem ráðnir vom í stjórnarráðinu. Eftir stúdentspróf árið 1942 réðst hún til Morgun- blaðsins sem blaðamaður. Þá var hún eini starfandi kvenblaðamaður- inn á Morgunblaðinu; tók við af Ester Björnsson. „í þá daga var hlutverk kvenblaðamanna á Morg- unblaðinu að sjá um að þýða fram- haldssöguna og hafa umsjón með kvennasíðu. Ef haldin var tískusýn- ing þá var ég send niður á Hótel Borg til þess að lýsa því. Ég man aldrei eftir að hafa verið send í nein viðtöl nema sem viðkom tísku og snyrtingu. Þetta var á þeim tíma sem aðeins nokkrir blaðamenn voru starfandi Tennissijarnan Boris Becker segir að Barbara Feltus hafi hvatt hann manna mest til að halda áfram að stunda tennis. HAMINGJA Tennisstjaman Boris Becker kvænist Tennisstjarnan Boris Becker, sem er 26 ára, kvæntist hinni 27 ára leikkonu og sýningarstúlku Bar- böru Feltus um miðjan desember sl. Fór brúðkaupið fram í heimabæ Bec- kers, Leimen í Þýskalandi. Eiga þau von á fyrsta bami sínu nú í janúar. í erlendum blaðagreinum má lesa um að Boris telur það mestu gæfu sína að hafa kynnst Barböru. Hann hefur ekki verið kvæntur áður né hringtrúlofaður, þó svo að hann hafí verið orðaður við skautadrottninguna Katarinu Witt og fleiri konur á árum áður. í einu bandarísku tímaritanna lýsti hann því jafnvel yfir að eftir að hann kynntist Barböru skipti ást- in hann miklu meira máli heldur en allar tenniskeppnir í heimi. Hann segir þó að Barbara hafi hvatt hann manna mest til að halda áfram og því sé hann tilbúinn að leggja sig allan fram um að ná sem bestum árangri. KÓNGAFÓLK Arið liðið og ekkert bam Anna Bretaprinsessa og Tim Laurence hafa nú verið gift í eitt ár. Af því tilefni var ljósmyndarinn Nicholas Read fenginn til að mynda parið á tröppum Gatcombe Park, sem Elísabet gafi» Önnu og Mark Philips í brúð- kaupsgjöf á sínum tíma. Nú nota Anna og Tim húsið aðeins í sum- arfríum og um helgar, því þau búa í stórri íbúð í miðri London. Erlenda pressan hefur hins veg- ar ekki minnst lengi á að Anna eigi von á barni eins og fyrst eftir giftinguna. Þá mátti ekki gúlpa ögn um magann á prinsessunni fyrr en ýmsir þóttust sjá merki um óléttu. Nú virðist hins vegar ekkert bóla á neinu barni. Anna Bretaprinsessa og Tim Laurence ásamt hundinum Eglantyne.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.