Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C 18. tbl. 82. árg. SUNNUDAGUR 23. JANÚAR1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Arafat og Peres heiðra minningu Johans Jargens Holsts Varað við að friðarsamn- ingamir dragist úr hömlu Ósló, Jerúsalem. Reuter. WARREN Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti að máli Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, og Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu, PLO, í Osló í gær en ráðamennirnir voru allir viðstaddir útför Jo- hans Jorgens Holsts, utanríkisráðherra Noregs. Heimildarmenn sögðu Christoph- er hafa hvatt til þess að ágreiningur um framkvæmd friðarsamninga Israela og PLO yrði leystur sem fyrst, ella gæti farið svo að andstæðingar þeirra, þ. á m. Hamas-samtökin á hernumdu svæðunum, fengju aukinn byr í seglin. Er Christ- opher var spurður á blaðamannafundi hvort deiluaðilar myndu nota tækifærið í Osló og leysa þann hnút sem viðræðurnar væru komnar í svaraði hann að dagurinn væri helgaður minningu Holsts, andi hans myndi að líkindum ríkja á staðnum. „Útför er ekki rétti vettvangurinn til að vinna. Ég hygg að fólk muni minnast þess hve mjög hann lagði sig fram við þessar viðræður ... framlag hans gæti hafa átt þátt í að hann féll frá fyrir aldur fram“, bætti ráðherrann við. Hægrimenn í Noregi fá arf Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morg- unblaðsins. HÆGRIFLOKKURINN í Noregi hefur verið í slæmri kreppu eftir ósigurinn í þingkosningunum síðastliðið haust en fyrir nokkrum dögum hljóp heldur betur á snærið fyrir honum. Þá tærndist honum arfur, um 200 milljónir íslenskra króna. Svein Grönnern, framkvæmdastjóri Hægriflokksins, hélt fyrst, að einhver væri að glettast við sig þegar hann fékk tilkynningu um, að flokkurinn hefði fengið mikinn arf en svo reyndist ekki vera. Iðpjöfurinn Reidar von Koss, sem lést á milli jóla og nýárs 87 ára að aldri, hafði arfleitt Hægriflokkinn og norska Björgunarfélagið að mestöllum sínum jarðnesku eigum. Sjálfur átti hann enga lögerfingja. „Við erum að sjálfsögðu í sjöunda himni enda fyllir arfurinn flokkskassann og veitir okkur meira athafnafrelsi en við höfum áður haft,“ sagði Grönnern. Gáfumennið undir stýri SAGT hefur verið að gáfumenni séu sjaldnast góðir bílstjórar og hefur það sannast á 39 ára gömlum lektor í Cam- bridge, Nicholas O’Shaughnessy. Hann hefur fundið smugu í lögum sem heimil- ar honum að aka um á bifreið sinni þrátt fyrir að vera próflaus en hann hefur fallið 12 sinnum á bílprófi. Samkvæmt lagaákvæðum getur handhafi ökunema- skírteinis ekið bifreið fram eftir öllum aldri. Er það þó háð því að bifreiðin sé að hluta til sérsmíðuð og einungis búin einu sæti. O’Shaugnessy keypti notaðan keppnisbíl fyrir 4.000 pund og þó aka megi honum á allt að 200 km hraða seg- ir hann sig hafa skort kjark til að fara upp fyrir 50. Kakkalakka- kapphlaupin HIN göfuga íþrótt kakkalakkakapp- hlaup, sem Katrín mikla keisaraynja hafði í hávegum og burtflúnir brodd- borgarar dunduðu sér við í Konstant- ínópel, nú Istanbúl, eftir byltinguna 1917, hefur vaknað af löngum dvala í Rússlandi. Vinsælust er vikuleg uppá- koma í fjölleikahúsinu í Pétursborg þar sem hundruð áhorfenda æpa sig hása við að fylgjast með fimm sentimetra löngum margfætlum spreyta sig á um- breyttu fimm metra löngu snókerborði. Ekki eru allir jafn hrifnir því löngum hafa kakkalakkar verið tengdir óþrifn- aði. Það hefur vart þótt á bætandi í Pétursborg þar sem lúsafaraldur mikill hefur herjað og vandfundinn sá maður sem ekki hefur hýst ófögnuðinn að und- anförnu. Miklar öryggisráðstafanir voru í Ósló vegna útfararinnar en auk áðurnefndra ráðamanna voru fulltrúar um 60 þjóða við- staddir. Arafat sagði að Holst hefði verið „hetja friðarsamninganna“ og Israelar hafa einnig farið Iofsamlegum orðum um ráð- herrann látna. Gert var ráð fyrir því að Peres og Arafat, sem áttu óformlega fundi á hóteli í Ósló á föstudag, myndu ræðast við á ný í gærkvöldi en þá lauk hvíldar- degi gyðinga. Sagði Peres að þá myndu menn gera gangskör að því að finna lausn á deilunum. Bjorn Tore Godal, starfandi utanríkisráðherra Noregs, tjáði Arafat og Peres á föstudag að Norðmenn væru sem fyrr fúsir að gegna hlutverki málamiðlara í viðræðum deiluaðila. Viðræður um Gólanhæðir Samningur ísraela og PLO um takmark- aða sjálfsstjórn Palestínumanna á her- numdu svæðunum var undirritaður í Wash- ington í september sl. en ísraelar stóðu ekki við fyrirheit um að hefja brottflutning herafla síns frá svæðunum 13. desember. Deilt er um landamæravörslu og stærð þeirra svæða sem Palestínumenn eiga að taka við. Talsmenn ísraelsstjórnar s'kýrðu frá því í gær að viðræður við Sýrlendinga um yfirráð Gólanhæða myndu heijast í Washington eftir helgina eins og fyrirhug- að hefði verið þrátt fyrir sviplegt fráfall sonar Hafez al-Assads Sýrlandsforseta. Hann fórst í bílslysi á föstudag. ÍÍVFRIMK ÍSLANDS Nýir Skafláreldar STÖÐVA þotuflug í marga mánuði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.