Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRIL 1994
Landsmótsundirbúningur í fullum gangi
Arsþing Ungmenna-
sambands Skagafjarðar
Sauðárkróki.
FJÖLMENNI var í Félagsheimili
Skarðshrepps, Ljósheimum, þar
sem Ungmennasamband Skaga-
fjarðar hélt ársþing sitt nýlega
í boði Knattspyrnufélagsins
Þryms á Sauðárkróki. Mikil
gróska ér i starfi félaganna inn-
an Ungmennasambands Skaga-
fjarðar og er markið sett hátt á
landsmótsári. Stefnt er að þátt-
töku í sem flestum keppnisgrein-
um og er undirbúningur í fullum
gangi.
A ársþinginu var kosið í nefndir
og ráð á vegum sambandsins og
einnig voru fjölmörg mál á dag-
skrá. Þá voru veittar viðurkenning-
ar fyrir ýmis afrek og kjörinn
íþróttamaður Skagafjarðar, sem að
þessu sinni var Inga Dóra Magnús-
dóttir, sautján ára knattspyrnu- og
körfuknattleikskona sem þegar er
í fremstu röð og hefur leikið með
landsliði íslands í sínum aldurs-
flokki í báðum greinum. Þá var
Inga Dóra íslands- og bikarmeist-
ari í unglingaflokki í körfuknattleik,
og kjörinn besti leikmaður í 2. flokki
kvenna_ og meistaraflokki árið
1993. Í öðru sæti varð Jón Arnar
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
íþróttamaður Ungmennasam-
bands Skagafjarðar, Inga Dóra
Magnúsdóttir.
Magnússon fijálsíþróttamaður.
Þá vakti athygli viðurkenning
sem kornung sundkona, Sunna
Ingimundardóttir, hlaut, en fram
kom við afhendinguna að á árinu
setti Sunna 11 héraðsmet og átti
aðild að 5 boðsundsmetum.
Sigrún Bjarnadóttir fram-
kvæmdastjóri UMSS sagði mikinn
hug í skagfirsku íþróttafólki á
landsmótsárinu og að stefnt væri
að því að taka þátt í sem flestum
keppnisgreinum á mótinu.
Sagði hún frjálsíþróttafólk hafa
æft mjög vel að undanförnu undir
handleiðslu Gísla Sigurðssonar
sambandsþjálfara og væri liðið nú
búið að fara tvisvar í æfingabúðir
og einu sinni yrði farið enn fyrir
iandsmót. Einnig mundu félagar
úr Grósku, íþróttafélagi fatlaðra,
taka þátt í nokkrum greinum, og
ætluð þeir Gróskufélagar sér að
gera góða hluti á landsmóti.
Þá benti hún á að sundlið Skag-
firðinga væri mjög ungt og væri
mikils af því að vænta í framtíð-
inni, ef svo héldi fram sem horfði.
Á þinginu var kjörinn nýr for-
maður, Ragna Hjartardóttir, fyrr-
verandi sund- og f'rjálsíþróttakona,
en með henni í stjórn eru Sigrún
Angantýsdóttir, Helga Þórðardótt-
ir, Unnar Pétursson og Edda Lúð-
víksdóttir.
- BB.
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
Frá Siglufirði,
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Þátttakendur í snjóflóðaleitarnámskeiðinu.
Jökuldalur
Námskeið í snjóflóðaleit
Vaðbrekku í Jökuldal.
SLYSAVARNASVEITIN Jökull
gekkst nýverið fyrir námskeiði í
snjóflóðaleit og var leiðbeinandi
Helgi Ómar Bragason.
í fyrsta hluta námskeiðsins var
fjallað um hvar snjóflpð falla helst
og við hvaða skilyrði. í öðrum hluta
var íjallað um hvað fólk ætti að
gera ef það lenti í snjóflóði. Sá þriðji
og langstærsti var að sjálfsögðu
um björgun úr snjóflóði. Þar kom
m.a. fram að viðbragðsflýtir skiptir
öllu máli, þó að 80% fólks sem lend-
ir í snjóflóði lifi flóðið af eru aðeins
10% á lífi eftir þrjá klukkutíma frá
að flóðið féll samkvæmt meðaltals-
tölum. Sýndi Helgi Ómar meðal
annars litskyggnur frá snjóflóða-
svæðum hér eystra.
Eftir námskeiðið var haldinn al-
mennur fundur í slysavarnasveit-
inni þar sem starfið var rætt og
ákveðið var að stofna unglingasveit
við Slysavarnasveitina Jökul, en
þarna voru mættir 9 unglingar sem
gjaldgengir eru í hana.
Formaður Slysavarnasveitarinn-
ar Jökuls er Jón Hávarður Jónsson,
Sellandi.
- Sig.Að.
Ástæða til bjartsýni í atvinnumálum á Siglufirði
Bæjarbúum fjölgar
og meðaltekjur hækka
Si^lufirði.
FJARHAGSÁÆTLUN Siglufjarðarkaupstaðar var samþykkt á fundi
bæjarstjórnar fyrir skömmu. Helstu framkvæmdir á árinu verða við
gatnagerð og gangstéttalagnir fyrir 18,6 millj. kr., til lokaáfanga
dvalarheimilis fyrir aldraða verður varið 9,1 millj. kr., til endurbygg-
ingar á skólahúsnæði 8 millj. kr. Alls er áætlað að vinna að hafnar-
framkvæmdum fyrir 13 millj. kr. og verður kostnaðarhlutdeild bæj-
arins í þeim um 4,5 millj. kr.
Gatnaframkvæmdir á vegum bæj-
arins felast m.a. í því að ljúka við
þær framkvæmdir sem hafist var
handa við á sl. sumri og halda áfram
með gangstéttagerð. Víða verður
jarðvegsskipt og lagnir endurnýjaðar
og undirbúið undir næsta malbikun-
arátak.
Ljúka á við byggingú dvalarheim-
ilis aldraðra, Skálahlíð, með því að
ljúka við og taka í notkun íjórar ein-
staklingsíbúðir og þjónusturými.
Unnið verður fyrir alls 14 millj. kr.
við dvalarheimilið, en hlutur bæjarins
er 9,1 millj. kr., síðan kemur til
mótframlag úr framkvæmdasjóði
aldraðra upp á 5 milljónir.
Framlag bæjarins til endurbygg-
ingar á skólahúsnæði, 8 miilj. kr.,
fer að langmestu leyti í framkvæmd-
ir við neðra skólahús við Norðurgötu.
Áætlað er að vinna að hafnarfram-
kvæmdum fyrir 13 milljónir kr. en
bæjarsjóður mun greiða um 4,5 millj-
ónir í þeim framkvæmdum. Þær felst
m.a. í því að ganga frá lögnum og
lýeingu við Ingarsbryggju, nýjan við-
legukant, og steypa þekju. Einnig á
að ganga frá lýsingu við innri höfn.
Fyrsta framlag bæjarins til end-
urbyggingar á Roaldsbrakka er 2,5
milljónir kr. og framlag Siglufjarð-
arkaupstaðar í bóknámshús Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki er 2,5 millj.
Að sögn Björns Valdimarssonar
bæjarstjóra á Siglufirði var peninga-
leg staða bæjarins um síðustu ára-
mót 20% betri en meðaltal hjá kaup-
stöðum utan Reykjavikur.
Heildartekjur bæjarins og hafnar
verða 220 millj. kr. á árinu, rekstr-
argjöld 161,8 millj. kr., ijármagns-
kostnaður 700 þúsund kr. og til
framkvæmda og ijárfestinga verður
varið alls 48,3 millj. kr. Rekstrarnið-
urstaða verður því jákvæð um 9,3
millj. kr.
I síðustu viku voru ársreikningar
Siglufjarðarkaupstaðar 1993 einnig
lagðir fram. Heildartekjur bæjarsjóðs
og hafnar voru 218 millj. kr., rekstr-
argjöld 165 millj. kr., ijármagns-
kostnaður 203 þúsund kr. og fram-
kvæmdir og fjárfestingar alls 67
millj. kr. Framkvæmdir og gjöld
umfram tekjur voru því 13,8 millj. kr.
Birni Valdimarssyni bæjarstjóra
líst vel á framtíð bæjarins. Hann
segir að ekki sé hægt annað en vera
bjartsýnn miðað við atvinnuástand.
Bæjarbúum fjölgar, meðaltekjur
aukast og atvinnuleysi minnkar.
„Það stendur allt og fellur með undir-
stöðuatvinnugreinum og hér í bæ
hafa fyrirtæki í þessum greinum
spjarað sig vel.“ - S.I.
I
Lítið inn og
spyrjið eftir Kolbrúnu.
Rdðgjöf um
jurtir og vítamín
Kolbrún Björnsdóttir hefur útskrifast með
dip. phyt. frá School of Herbal Medicine í
Sussex í Englandi og er félagi í bresku
jurtalækningasamtökunum (Member of the
National Institute of Medical Herbalists).
Kolbrún verður til ráðgjafar um næringu, jurtir
og bætiefni í Heilsuhúsinu Skólavörðustíg á
mánudögum frá kl. 13-18 og Heilsuhúsinu
Kringlunni á föstudögum frá kl. 13-19.
eilsuhúsið
Kriglunni sími 689266. Skólavörðustíg sími 22966
Tveir bjóða sig fram í
embætti allsherjargoða
RUNNINN er út frestur til fram-
boðs í embætti allsherjargoða
Ásatrúarfélagsins. Tveir gáfu
kost á sér, þeir Jörmundur Ingi
Hansen, Reykjavíkurgoði, skip-
aður forstöðumaður félagsins, og
Haukur Halldórsson, myndlistar-
maður.
Samkvæmt reglum um kjör alls-
heijargoða sem samþykktar voru á
síðasta aðalfundi félagsins skal kos-
ið bréflega með leynilegri póstkosn-
ingu. Kjörgögn verða send félags-
mönnum fyrir 1. maí nk. Atkvæða-
seðlar þurfa að berast fyrir 21. maí
en þann dag fer talning fram að
frambjóðendum viðstöddum.
Kjöri verður síðan lýst á Þingvöll-
um á Þórsdag í tíundu viku sum-
ars, 23. júní.
-----»-»-4-----
■ ÍSLANDSMEISTARAMÓT í
vélsleðaakstri verður haldið helg-
ina 8.-9. apríl í Bláfjöllum á veg-
um Pólarisklúbbsins. Á laugar-
deginum hefst keppni í fjallaralli
kl. 10 og síðan verður keppt í tví-
hliða braut kl. 14. Á sunnudag hefst
spyrnukeppni kl. 10 og kl. 14 verð-
ur hápunktur mótsins, snjókross,
en nú er keppt í fyrsta sinn til ís-
landsmeistara í þessari grein. Að-
gangseyrir er 400 kr., frítt fyrir
börn undir 12 ára.