Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRIL 1994 37 ■■■ Hættuástandi aflétt á Flateyri ,,,, «7 Flateyn. ALMANNAVARNANEFND Flateyrar aflétti síðdegis í gær hættuástandi í bænum. Að sögn Kristjáns Jóhannessonar, sveit- arstjóra á Flateyri, var þetta gert að fengnum upplýsingum frá Veðurstofu íslands, en áfram verður fylgst náið með snjóa- lögum og veðurhorfum. Almannavarnanefndin skipaði svo fyrir að morgni þriðjudags að hús í efstu götu bæjarins skyldu rýrnd vegna snjóflóðahættu. Lát- laus ofankoma hafði verið nóttina áður og var snjór mjög blautur og þungur. íbúar húsanna fluttu með tannbursta sína og sængur til ættingja eða kunningja á öðrum stöðum í bænum og bíða þess ró- Morgunblaðið/RAX Eyðilegging MUNIR eigenda bústaðanna eyðilögðust í snjóflóðinu. Hér stendur eftir bókaskápur úr einum bústaðnum. Kristjáns K. Jónassonar minnst á bæjarstjórnarfundi á ísafirði Hugur manna stendur til endur- uppbyggingar skíðasvæðisins ÞINGMENN Vestfjarðakjördæmis koma til fundar við bæjarstjórn ísa- fjarðar í dag til að ræða afleiðingar snjóflóðsins í fyrradag. Á auka- fundi bæjarstjórnar ísafjarðar í gær minntust bæjarfulltrúar Kristjáns K. Jónassonar, fyrrverandi forseta bæjarstjórnar, sem fórst í snjóflóð- inu. Þá voru þeim mönnum sem unnu að björgunarstörfum og almanna- vörnum færðar þakkir bæjarstjórnarinnar. Einar Garðar Iljaltason, forseti bæjarstjórnar, sagði í gærkvöldi að hugur manna stæði til endur- uppbyggingar skíðasvæðisins á Seljalandsdal en huga þyrfti fyrst að ýmsum öryggismálum því viðvíkjandi. á Snjóflóðið TTungudal var eina Seljalandsdal málið á og i fundi bæjarstjórnar í gær. Fundurinn hófst með því að forseti bæjarstjórnar, Einar Garðar Hjaitason, flutti minn- ingarorð um Kristján K. Jónasson, fyrrverandi forseta. Rakti hann ævi og störf Kristjáns og sagði m.a. að hann hafi alla tíð verið vel liðinn og þekktur borgari á ísafirði og væri því mikill sjónarsviptir við fráfall hans. Fyrir hönd bæjarstjórnarinnar óskaði Einar Garðar Hansínu Einars- dóttur, eiginkonu Kristjáns, góðs bata. Bað forseti bæjarfulltrúa og aðra viðstadda að rísa úr sætum og votta hinum látna virðingu og þökk fyrir unnin störf og aðstandendum samúð. Boð um aðstoð Á fundinum sögðu Smári Haralds- son bæjarstjóri, Eyjólfur Bjarnason forstöðumaður tæknideildar og Þor- bjöm Sveinsson slökkviliðsstjóri frá snjóflóðunum, aðdraganda þeirra og störfum Almannavarnanefndar. Eins og fram hefur komið varð mikið tjón á skíðamannvirkjum á Seljalandsdal, sumarbústöðum og sumarbústaða- landi og skógrækt og snertir flest af þessu bæjarsjóð. Flestir sumarbú- staðirnir eru tryggðir ásamt húsum á skíðasvæðinu, einnig rafkerfið í lyftunum en vafi leikur á um trygg- ingu annarra hluta skíðalyftanna. Einar Garðar Hjaltason sagði frá því að bæjaryfirvöld hefðu fengið margar kveðjur síðustu daga og boð um aðstoð vegna snjóflóðsins, meðal annars frá Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra, Sighvati Björgvinssyni við- skiptaráðherra, Árna Sigfússyni borgarstjóra í Reykjavík og þing- mönnum kjördæmisins. Bæjarstjórnin samþykkti að fela forseta og bæjarstjóra að koma á framfæri þakklæti til björgunarsveit- armanna, Almannavarna og annarra sem tekið hafa þátt í. starfinu eftir snjóflóðin fyrir þeirra framlag. Þarf að læra af reynslunni Einar Garðar sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að hugur manna stæði til þess að endurbyggja skíðasvæðið á Seljalandsdal. Þar væri tvímælalaust besta svæðið sem völ væri á og erfitt að fínna gott skíðasvæði þar sem aldrei væri hætta á snjóflóðum. Hins vegar þyrfti að læra af fenginni reynslu og reyna að byggja upp öruggari aðstöðu. Nefndi hann í því sambandi að Veð- urstofan ætlaði að setja upp sjálf- virka snjómæla á Dalnum til að afla upplýsinga um snjóþykkt til að hafa til hliðsjónar við mat á snjóflóða- hættu. Þá þyrfti að setja upp snjó- flóðavarnir og styrkja mannvirkin. Varðandi uppbyggingu á sumar- bústaðasvæðinu sagði Einar Garðar að erfitt væri að setja sig upp á móti því ef fólk vildi endurbyggja bústaði sína. Hins vegar þyrfti að athuga ýmis mál, eins og til dæmis hvort fólk fengi bústaði sína tryggða. Fundur Viðlagatryggingar Margir eigendur sumarhúsa fóru á flóðasvæðið í góða veðrinu síðdeg- is í gær til að skoða sig um og leita að eigum sínum. Liðlega 60 manns kom á fund Geirs Zoega, framkvæmdastjóra Við- lagatryggingar íslands, á Isafírði í gærkvöldi. Geir gaf upplýsingar um Viðlagatrygginguna og svaraði fyrir- spurnum sumarbústaðaeigenda. Af- henti hann fólki eyðublöð til að gera grein fyrir tjóni sínu og sagðist reikna með að koma aftur eftir um það bil mánuð til að gera upp. Þau hús sem eru brunatryggð eru með hamfaratryggingu hjá Viðlagatrygg- ingu. Hins vegar verður fólk að tryggja sérstaklega innbú og taldi Geir að ekki væru allir með slíka tryggingu. legir að hættuástand verði flautað af. Ástandið nú svipað og fyrir fjórum árum Ekki er hægt að segja að menn hafi kippt sér sérstaklega upp við þessar aðgerðir, því samskonar ástand skapaðist árið 1990 þegar fólk úr sömu húsum var í viku frá heimilum sínum, vegna snjóflóða- hættu. Snjóalög í hlíðum Önundarfjarð- ar eru með mesta móti og bætti hressilega í um páskahelgina. Má sjá snjóspýjur á víð og dreif um fjallshlíðina fyrir ofan Hvilftar- strönd, sem er fyrir innan bæinn. Var veginum um hana lokað á tímabili vegna snjóflóðahættu, en hefur hann verið opnaður aftur. í ljósaskiptunum á þriðjudagskvöld féll snjóflóð úr bæjargilinu fyrir ofan Flateyri, en staðnæmdist í öruggri fjarlægð frá byggð. Urðu nokkrir vitni að því þegar það flóð féll og er óhætt að segja að það hafi verið hrikaleg sjón að sjá þegar snjórinn steyptist niður gilið og breiddist út í hlíðinni rétt fyrir innan bæinn. Besta veður var í Önundarfirði í gær og sólbráð nokkur. Skíðasvæðið á Ólafsfirði lokað ALMANNAVARNANEFND Ólafsfjarðar ákvað í gærmorgun að loka skíðasvæði Olafsfirðinga vegna yfirvofandi snjóflóðahættu. íbúða- byggðin á Ólafsfirði var aldrei í neinni hættu og var hættuástandi aflétt aftur í gærkvöldi. Að sögn Hálfdáns Kristjánssonar, bæjarstjóra á Óiafsfirði, var ákveðið að loka skíðasvæðinu eftir að snjóa- lög höfðu verið könnuð og með tilliti til veðurspár en Veðurstofan spáði hlýnandi í gærdag. íbúðabyggðin var ekki í hættu en að sögn Hálfdáns er lítill snjór fyrir ofan hana. Viðvör- un almannavarnanefndar höfðu eng- in áhrif á umferð. Viðvörunin var dregin til baka í gærkvöldi þegar búið var að kanna ástandið á skíðasvæðinu til hlítar. Að sögn Hálfdáns var hættan þó aldrei mikil vegna þess að það hlýn- aði aldrei neitt að marki og í gær- kvöldi ákvað almannavarnanefndin að aflétta hættuástandi. „Við gáfum út viðvörun til að fólk væri meðvitað um ástandið almennt, sem er mun verra núna en það er að öllu jöfnu,“ sagði Hálfdán. Þetta var í fyrsta skipti í vetur sem nefnd- in gefur út viðvörun vegna yfírvof- andi snjóflóðahættu. Siglfirðingar var- aðir við að vera á ferli í fialllendi Siglufirði. ALMANNAVARNANEFND Siglufjarðar kom saman kl. 14.00 í gær og fór yfir nýjar athuganir á snjóalögunum í fjöllunum við bæinn. í Uósi þeirra er ekki talin ástæða til að óttast snjóflóð þar að svo stöddu. Þó telur nefndin rétt að vara fólk við að vera á ferli í fjalllendi í Siglu- firði að óþörfu og varar foreldra eindregið við að börn þeirra séu að leik við snjóhengjur sem víða hafa myndast. Almannavarnanefnd Siglufjarðar til þess að spáin sé að batna og eru SIEMENS =5 CC LLI NY ÞVOTTAVÉL Á NÝJU VERÐI! mun áfram fylgjast grannt með, en sem betur fer hefur komið í ljós við síðustu athuganir að betri binding er nú í snjónum en undanfarna daga og samkvæmt nýjustu fréttum frá Veðurstofunni ér margt sem bendir menn því bjartsýnni en áður. Gífurlegu snjómagni hefur kyngt niður í bænum undanfarna daga. Nokkur smáflóð hafa fallið á veginn við Ströndina nálægt Strákagöngum, en engin frá því í fyrradag. SI • 11 kerfisinnstillingar fyrir suðuþvott, mislitan þvott, straufrítt og ull • Vinduhraði 500 - 800 sn./mín. • Tekur mest 4,5 kg • Sparnaðarhnappur (1/2) • Hagkvæmnihnappur (e) • Skolstöðvunarhnappur • Sérstakt ullarkerfi • (slenskir leiðarvísar Og verðið er ótrúlega gott. Siemens þvottavél á aðeins kr. 59.430 stgr. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300 Viljir þú endingu og gædi - Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvitárskála Hellissandur: Blómsturvellir Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson Stykkishólmur. Skipavík Búðardalur: Ásubúð ísafjörður Pólfinn Hvammstangi: Skjanni Blönduós: Hjörleifur Júlíusson Sauðárkrókur Rafsjá Sigluhörður: Torgið Akureyri: Ljósgjafinn Oryggi Þórshöfn:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.