Morgunblaðið - 10.04.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.04.1994, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C 80. tbl. 82. árg. SUNNUDAGUR10. APRÍL 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Belgar og Frakkar senda hersveitir til að flytja útlendinga brott frá Rúanda Banst þrátt fyrir vopnahlé Brussel, Kigali. Reuter. BELGAR sendu í gærmorgun um 800 fall- hlífarhermenn til Mið-Afríkuríkisins Rú- anda til að veita Beigum í landinu vernd og aðstoða þá við að komast á brott frá landinu. Borgarastyrjöld ríkir nú í Rúanda eftir að flugvél forseta landsins og forseta Búrúndí var skotin niður á miðvikudag. Um 280 franskir hermenn gæta nú flug- vallarins í höfuðborginni Kigali og verða 120 hermenn til viðbótar sendir til lands- ins til að aðstoða við brottflutning Frakka. Um 1.500 Belgar og 600 Frakkar eru nú í landinu. Hafa tíu belgískir friðargæsluliðar látið lífið i átökunum. Þá eru um 230 Banda- ríkjamenn í Rúanda og um 300 Þjóðveijar. Hafa bandarískar hersveitir komið sér fyrir í nágrannaríkinu Búrúndí og búa sig nú undir að flytja Bandaríkjamennina á brott. Þjóðver- jarnir munu fylgja Belgum og Frökkum. Vopnahlé, sem lýst var yfír í gærmorgun, tók ekki gildi og börðust stjórnarhermenn og skæruliðar enn um hádegi í gær. Þó dró nokk- uð úr bardögum um tíma í gærmorgun. Ekki var ljóst hvort belgísku hermennirnir gætu lent í Kigali vegna átakanna. Haft var eftir íbúum í Kigali að ástandið í borginni væri skelfilegt, lík iægju hvai"vetna. ' Forseti þings Rúanda, Venat Sind- ikubwabo, tilkynnti í gær að hann hefði tekið við völdum í landinu og skipað sex mahna ríkisstjórn. Sindikubwbo er af Hutu-ættbálk- inum, eins og forsetinn, og náinn bandamaður hans. Morgunblaðið RAX VETUR MÆTIR VORI Afsögn Hosokawa Eftirmað- ur valinn innan viku Tókýó. Reuter. ^ JAPANSSTJÓRN kom sér í gær saman um að velja eftirmann Morihiros Hoso- kawa, fyrrverandi forsætisráðherra innan sjö daga, en hann sagði af sér embætti á föstudag. Klofnings gætir nú í stjórninni, samsteypustjórn átta flokka sem takast nú á um völdin. Hosokawa gegnir embætti þar til eftirmaður hans finnst en Hosokawa sagðist í gær vera tilfinningalega dofinn eftir atburði föstudagsins. Talsmaður eins af stjórnarflokkunum kvaðst telja að breytingar á ríkisstjórninni yrðu aðeins til bráðabirgða, ólíklegt væri að allir stjórnarliðar myndu sitja áfram í embættum sínum. Hosokawa tekur ekki þátt í umræðum um eftirmann sinn, lýsti hann því yfir að hann teldi það siðferðilega rangt. Andúðin á spillingu eina bindiefnið Það þykir kaldhæðnislegt að í átta mán- aða stjórnartíð ríkisstjórnarinnar hefur nánast eina bindiefniðverði andúðin á spill- ingunni í japönskum stjómmálum en Hoso- kawa sagði af sér vegna þess að hann gat ekki borið af sér sakir um spillingu. Stjórnarliðar deila nú m.a. um stefnu stjórnarinnar, m.a. í viðskiptadeilunni við Bandaríkjamenn og hvernig skuli bregðast við ef Norður-Kórea verður beitt viðskipta- þvingunum af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Hosokawa sagði fréttamönnum í gær- morgun að hann fyndi ekki til neins eftir afsögn sína á föstudag. „Ég finn ekkert, alls ekkert,“ sagði hann. Búddamunk- ar berjast HÁVÆRAR raddir hafa verið uppi um að leiðtogi búddamunka í Suður-Kóreu segi af sér vegna ásakana um að hann hafi mútað stjórnmálamönnum og ráðið til sín glæpamenn til að lemja á andstæð- ingum sínum. Nokkur hundruð munkar mótmæltu hástöfum er Suh Eui-hyun var skipaður leiðtogi Chogye-munka að nýju í vikunni og hótuðu þrír þeirra að bera eld að sér, segði Suh ekki af sér. Átök brutust út er fylgismönnum Suhs barst liðsauki um 100 ofbeldisseggja sem réð- ust að munkunum með kylfum og gijótk- asti. Um fimmtíu munkar slösuðust í átökunum og voru tæplega 500 hand- teknir. Stjórnarandstaðan í Suður-Kóreu hefpr sakað stjórnvöld um að þiggja mutur Suhs og að veita honum þess i st^t'ð skattaivilnanir, sem hafi gert mörg- urif kóreskum trúarhópum kleift að auðgast. Eyrað vann ÓSKÝR mynd af vinstra eyra ellilifeyris- þegans Toms Pembertons var valin sigurmyndin í breskri keppni um verstu ljósmyndina. Hugðist Pemberton taka mynd af höfninni i Whitby en sneri myndavélinni öfugt og myndaði eyra sitt þess í stað. Onnur verðlaun hlaut hin þriggja ára gamla Bethany Hill en mynd hennar af afa sínum sýnir aðeins fætur í inniskóm. Nýra í skipt- um fyrir vinnu VERSLUN með líffæri tekur á sig ýmsar myndir og ræður örvæntingin á stundum gerðum manna. Dæmi um það er auglýs- ing sem birtist i frönsku blaði í janúar þar sem ungur atvinnulaus rafvirki bauð annað nýra sitt í skiptum fyrir vinnu. Endurráðin þrátt fyrir skeggvöxtinn BANDARÍSK kona, sem fullyrðir að henni hafi verið sagt upp vegna þess að hún hafi yfirvaraskegg, hefur nú verið endurráðin. Konan, Licia Joy Galinsky, kærði uppsögn sína, svo og yfirmaður hennar, en að þeirra sögn var honum sagt upp þar sem hann skipaði Galinsky ekki að raka sig. Vinnuveitandinn, Ritz- Charlton hótelið í Tysons Corner, gaf sig í deilunni og réð Galinsky að nýju en neitaði að endurráða yfirmann henn- ar þar sem hann hefði verið rekinn vegna vanrækslu í starfi. fllltaf verið ® einhver afgangur Sterkar öfrjálslr VIDSKIPTIA SVNNUDEGI ATVIMA ER ADALATRIÐW O blað HALLDORA KOMIN í HUS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.