Morgunblaðið - 19.04.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.04.1994, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1994 KORFUKNATTLEIKUR Taugar Njarð- víkinga sterkari NJARÐVÍKINGAR urðu á laug- ardaginn íslandsmeistarar í körfuknattleik karla f áttunda sinn. UMFN vann Grindvikinga 67:68 í æsispennandi úrslitaleik þar sem sigurinn gat lent hvor- um megin sem var. Leikið var í Grindavík og afrek Njarðvfkinga þvf enn meira, þeir unnu ÍBK í undanúrslitum með þvf sigra f Keflavík f oddaleiknum og nú iögðu þeir deildarmeistarana í oddaleik, einnig á útivelli. Til að gera slíkt þarf sterkar taugar. Njarðvíkingar bytjuðu eins og venjulega í úrslitakeppninni, illa. Heimamenn komust í 13:3, mest fyrir stórleik Marels Skúli Unnar en Njarðvíkngar létu Sveinsson Teit gæta Casey og skrifar bakvörður var því settur á Marel. Marel er höfðinu hærri og nýtti sér það vel, gerði 6 fyrstu stig UMFG. Eftir að hann kom inná aftur eftir smá hvíld virtust Grindvíkingar vera bún- ir að gleyma hversu vel gekk í upp- hafí og Marel komst ekki almenni- lega í gang aftur, enda gætti Valur hans í síðari hálfleik. Njarðvíkingar skutu og skutu, samt ekki úr vonlausum færum eins og í fyrri leikjum, en ekkert fór nið- ur. Bæði lið voru raunar nokkuð bráð í sókninni og það tók því varla að setja skotklukkuna í gang. Baráttan var í fyrirrúmi og taugar leikmanna voru greinilega þandar til hins ít- rasta enda ber skor liðanna í fyrri hálfleik það með sér. 28:27 í leikhléi er ekki það sem maður á að venjast í meistaraflokki karla. Vamir voru reyndar ágætar en ekki svona góðar. Casey gerði skemmtilega körfu í lok fyrri hálfleiks. Hann náði frák- asti lék aðeins fram og skaut af eig- in vallarhelmingi, yfir allan völlinn, í spjaldið og niður. Þtjú stig og UMFG einu stigi yfir í leikhléi. Baráttan hélt áfram í síðari hálf- leik og jafnræðið algjört þó svo heima- Svekktur Vissulega er ég svekktur núna, þetta gat lent hvoru megin sem var. Þetta var spurning um heppni. Við misstum boltann í sókninni í lokin en vorum búnir að spila góða vörn og þegar Rondey fékk boltann í lokin var bara að taka sénsinn að btjóta á honum því hann var búinn að hitta illa úr vítaskotum í úrslitakeppninni. Þetta var mjög sárt. og kannski meira vegna þess að þetta var svo naumt í lokin. Við megum þó vera ánægðir með veturinn, vorum í sterkari riðli og urðum deildar- meistarar eftir að það var búið að spá okkur 5. sætinu í haust en við erum náttúrulega ekki ánægðir að tapa hér í dag,“ sagði Marel Guð- laugsson. „Eg skal ekki segja hvort það voru taugarnar sem biluðu í lokin en þetta var bara spurning, eftir jafnan leik, hvort liðið hefði það. Við komumst aldrei afgerandi yfír, þeir komust alltaf inn í þetta aft- ur. Við vorum óheppnir að missa boltann í lokin. Þá var spurning hvort liðið hefði heppnina með sér. Strákarnir gáfu sig á fullu í þetta en heppnin var með Njarðvíkingum í kvöld. Njarðvíkingarnir hafa mikla reynslu en við eigum ungt lið þar sem meðalaldurinn er 6 árum lægri en hjá Njarðvíkingum og framtíðin er þeirra því þessi úrslitakeppni færir þeim mikla reynslu,“ sagði Guðmundur Braga- son. GRINDAVÍK NJARÐVÍK Fimmti úrslitaleikur islandsmótsins i körfuknattleik i iþróttahúsinu i Grindavik 16. april 1994 67 Stig 68 10/14 Víti 17/23 4/16 3ja stiga 4/13 33 Fráköst 33 22 (varnar) 21 11 (sóknar) 12 12 Bolta náð 14 15 Bolta tapað 13 15 Stoðsendingar 11 22 Villur 19 menn væru oftast örlítið á undan. Um miðjan hálfleikinn munaði 7 stig- um, 52:45, ogþá hafði Casey átt stór- kostlegan kafla. Grindvíkingar kom- ust í 59:51 en gerðust þá ragjr í sókn- inni. Virtust ætla að Iáta klukkuna vinna með sér. Til þess var of mikið eftir og með gríðarlegri baráttu og fullir sjálfstraust tókst Njarðvíkingum að ná undirtökunum. Þegar 1,20 mín. voru eftir jafnaði Marel með þriggja stiga skoti, 67:67 og riú fyrst hófst ballið. Rondey fékk tvö skot þegar 53,9 sekúndur voru eftir en hitti úr hvorugu. Grindvík- ingar fengu boltann og þegar 29 sekúndur voru eftir ætlaði Nökkvi Már, besti maður UMFG, að bijótast í gegn en hrasaði og missti boltann. „Eg heid að Rondey hafí náð að koma við boltann," sagði Nökkvi Már eftir leikinn. Njarðvíkngar nýttu reynslu sína og fóru sér að engu óðslega. Þegar 1,4 sekúndur voru eftir var Rondey í dauðafæri en Marel braut á honum. Ásetningsvilla var dæmd og því tvö skot og boltinn síðan við miðlínu. Rondey hitti úr fyrra skotinu en ekki því síðara en það kom ekki að sök. Tíminn var of naumur fyrir Grindvíkinga. Bæði lið eiga heiður skilið fyrir frábæra leiki í úrslitakeppninni. Grindvíkingar verða að bíða enn um sinn með að hampa bikarnum en þeirra tími kemur. Nökkvi Már var þeirra bestur og hefur leikið mjög jafnt og vel. Marel átti ágæta spretti og það sama má segja um Casey og Pétur. Teitur var rosalegur í þessum leik og hreint unun að fylgjast með drengunum leika vörnina. Rúnar og Rondey áttu einnig mjög góðan leik og Jóhannes var mikilvægur undir lokin. Það hefur örugglega haft mik- ið að segja fyrir Njarðvíkinga að hvíla Teit og Rondey helminginn af síðari hálfleinum í fjórða leik liðanna í Njarðvík á fimmtudaginn. Annars Iéku allir ágætelga, bæði hjá UMFG og UMFN. ínémR FOLK ■ ÞAÐ vekur athygli þegar töl- fræðin er skoðuð eftir leikinn hve liðin voru jöfn í leiknum. Þau tóku bæði 33 fráköst í leiknum. Grinda- vík tók 22 varnarfrákast á móti 21 Njarðvíkinga en Njarðvíking- ar tóku 12 fráköst í sókninn á móti 11 Grindvíkinga. Rondey var dijúgur með 10 varnarfráköst og 6 sóknarfráköst og munar um minna. Nökkvi Már tók 5 í vörninni og 4 í sókninni. Það vekur einnig at- hygli að Guðmundur Bragason er aðeins með 1 varnarfrákast en 3 sóknafráköst sem er langt frá því sem venja er hjá honum. ■ ÞAÐ sem skiptir kannski sköp- um í leiknum er hve vel Njarðvík- ingar hittu úr vítaskotum í leiknum því af síðustu 11 stigum þeirra í leiknum voru 9 þeirra frá vítalín- unni. Teitur skoraði tvö í stöðunni 62:57 fyrir Grindavík, Jóhannes önnur tvö og fylgir á eftir með körfu. Isak fór næstur á vítalínuna og hitti úr tveimur bónusskotum. Jóhannes hitti úr tveimur vítaskot- um og kom Njarðvíkingum yfir 67:64. Marel jafnaði leikinn og Rondey brenndi af tveimur skotum þegar 54 sekúndur eru eftir og gerði síðan út um leikinn á lokasek- úndunni. ■ NJARÐ VÍKINGAR fylgdu góðum leik sem þeir áttu í Njarð- vík eftir í oddaleiknum með því að leika Iangar sóknir og síðan elta báða bakverði Grindavíkurliðsins og trufla spil þess. Það hefur verið sagt um Njarðvíkuliðið að það vilji leika stutta sóknir, hlaupa í vörnina og fá boltann aftur til að geta far- ið aftur í sókn. í úrslitaleiknum var þessu hins. vegar öfugt farið. Þeir léku langar sóknir, biðu síðan í sókninni og oft var það sem Grindavíkurliðið var að skjóta ótímabærum skotum áður en nokk- ur var kominn undir körfu andstæð- ingsins _til að taka frákast. ■ HJÖRTUR Harðarson átti af- mæli á laugardaginn og sungu grindvískir áhorfendur afmælis- sönginn fyrir leikinn. Hjörtur varð 22ja ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.