Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994 Biðstaða meðan beðið er niðurstaðna rannsókna frá Danmörku Líðan hestanna svipuð VEIRUSJÚKDÓMUR í öndunarfærum 15 hesta í hesthúsi á Fákssvæði virðist ekki hafa breiðst út eftir því sem Ólafur Valsson dýralæknir segir. Hann sagði að ástæða hefði þótt til að kanna heilbrigði hesta í næsta húsi en ekki hefði fengist staðfest að sjúkdómurinn næði til þeirra. Erling Sigurðsson, tamningamaður og gæslumaður sýktu hest- anna, segir að líðan þeirra sé svipuð. að hósta aftur og nú þurrari hósta en áður,“ sagði Erling þar sem hann „Ég er helst óhress yfir því að hesturinn sem veiktist fyrst er farinn Breytingar á fréttastofu Stöðvar 2 Hallur Hallsson seg- ir starfi sínu lausu var staddur í hesthúsinu. Hann sagði að verið væri að taka sýni úr slími uppúr fímm hestum og þegar hefðu verið tekin ný blóðsýni úr öllum hest- unum. Yrðu þau væntanlega send til Danmerkur eins og þau sýni sem tekin hefðu verið og borin saman við þau, en búist er við niðurstöðu úr fyrri sýnatökunni um helgina. Farið verður með innvortis myndavél ofan í barka hestanna í morgun. HALLUR Hallsson fréttamaður Stöðvar 2 hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. maí með venju- legum uppsagnarfresti. Hallur sagði í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi að hann hefði ver- ið 8 ár í fréttamennsku hjá sjón- varpi, fyrst hjá RUV og síðustu 5 árin hjá Stöð 2. „Það er best að hætta leik þá hæst hann stendur, sagði Hallur. „Þetta hafa verið átta góð ár í fremstu víglínu og nú fínnst mér kominn tími til að skipta um gír,“ sagði Hallur. Hallur sagði að brottför sín frá Stöð 2 væri gerð í mikilli vinsemd. Hann myndi vinna sinn uppsagnar- frest á stöðinni og síðan myndi hann skoða sín mál í haust. Aðrar sýkingar fyrirbyggðar Ólafur sagði að lítið væri hægt að gera meðan beðið væri eftir sýn- unum frá Danmörku og staðfesti að líðan hestanna væri svipuð og áður að því frátöldu að hósti væri almennt eitthvað minni en á mánudaginn. „En svona er gangur veirusjúkdóma. Þeir taka vissan tíma og við reynum að fyrirbyggja að einhverjar aðrar sýk- ingar komi ofan í,“ sagði hann. Ólaf- ur sagði aðspurður að ekkert virtist vera athugavert við fóður hestanna. Ekki hefur fundist einangrað hús til að hýsa sýktu hestana og sömu reglur gilda um umgengni á Fáks- svæðinu og áður. VEÐUR / DAG kl 12.00 Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt é vedurspá kl. 16.15 í gœr) VEÐURHORFUR í DAG, 29. APRIL YFIRLIT: Milli íslands og Grænlands er 1.016 mb hæð sem þokast austur. Um 500km suður af landinu er 993 mb kyrrstæð lægð sem grynnist. SPÁ: Fremur hæg breytileg átt og léttskýjað víöast hvar. Hiti verður á bilinu 3-7 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg átt og víðast bjartviðri. Hiti á bilinu 2 til9 stig. HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Fremur hægt suðlæg átt. Dálftil rignin- geða súld með köflum um sunnanvert landið er þurrt að mestu noröanlands. fllýn- andi veður. •D Heiðskírt / / / r f f / / Rigning Léttskýjað * Hálfskýjað Skýjað * / * f / * / Slydda * * * * * * * * Snjókoma Alskýjað V 'v' V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjðður er 2 vindstig.4 10° Hitastig Súld V = Þoka stig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Greiöfært er yfirleitt á öllum aðal þjóðvegum á landinu, en hálkublettir eru víða, einkum á Norður- og Norðausturlandi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og i grænnil- ínu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veöur Akureyri 0 úrkomaígrennd Reykjavlk 3 heiðskírt Bergen vantar Helainki 13 skýjaö Kaupmannahöfn 15 þokumóða Narssaresuaq 3 alskýjað Nuuk 0 snjók.ás.klst. Óaló 10 þokumóða Stokkhóimur 16 skýjað Þórshöfn 9 skýjað Algarve 23 léttskýjað Amsterdam 16 skýjað Barcelona 22 léttskýjað Berlín 19 skýjað Chicago 3 alskýjað Feneyjar 22 heiðskírt Frankfurt 19 skýjað Glasgow 13 rigningogsúld Hamborg 16 þokumóða London 17 skýjað Los Angeles 10 léttskýjað Lúxemborg 16 skýjað Madríd 24 léttskýjað heiðskírt Malaga 21 Mallorca 25 léttskýjað Montreal 0 léttskýjað NewYork 14 skýjað Orlando 21 lénskýjað París 21 skýjað Madelra 21 léttakýjað Röm 24 skýjað Vín 21 léttskýjað Washington 20 alskýjað Winnipeg -=-7 hálfskýjað Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir NORSKI togarinn Kerak kom til Þórshafnar í gær og landaði 90 tonnum af ísfiski. Norskur togari land- ar ísfíski á Þórshöfn Þórshöfn. NORSKI togarinn Kerak landaði í gær 90 tonnum af ísfiski hér á Þórshöfn. Hraðfrystistöð Þórshafnar kaupir helming aflans en fiskvinnslufyrirtækin á Raufarhöfn og Vopnafirði skipta með sér hinum hlutanum og var fiskinum ekið þangað. Að sögn Gunnlaugs Karls, yf- irverkstjóra hjá Hraðfrystistöð- inni, verður trúlega áframhald á þessum viðskiptum við norska útgerðarfyrirtækið sem er eig- andi togarans en fyrirtækið gerir út nokkra togara og fiskvinnslu- fyrirtæki í Noregi. Togarinn var þrjá daga á veiðum og tók sigl- ingin til íslands tvo og hálfan sólarhring. Aflinn var veiddur í norskri landhelgi og segir Gunn- laugur hann vera gott hráefni. Uppistaða aflans eF ufsi en um 25 tonn af öðrum tegundum og er fiskurinn flokkaður og ísaður í kassa. Verðið sem greitt var fyrir aflann er sambærilegt við fisk- verð á íslandi. Skólafólk leysir vandann Næg vinna er í Hraðfrystistöð- inni og unnið er þessa dagana frá kl. 7 á morgnana til kl. 18 og einnig á laugardögum. Að sögn Gunnlaugs vantar starfs- fólk í snyrtingu en sá vandi leys- ist þegar skólafólk kemur inn til starfa innan skamms. Afli heimabáta hefur verið rýr undanfarið en er að glæðast núna og var allgott fiskirí í gær. - L.S. „Þetta er flokkur ungs fólks, ein- staklinga og anarkista. Við viljum minna á unga fólkið í borginni og mál sem það varðar sérstaklega, s.s. atvinnuleysi, menningu og listir," sagði Gottskálk. Hann sagði að hug- myndin að framboðinu hefði kviknað meðal nokkurra nemenda í Mennta- skólanum í Hamrahlíð, en á fram- boðslistanum sé ungt fólk sem komi víðar að. Margir af aðstandendum listans voru meðal þeirra ungmenna úr MH, sem sóttu um stöðu seðla- bankastjóra á dögunum. I I > Nýtt framboð til borgarsfíórnar Reykjavíkur Ungt fólk býður fram U-listann ALLAR líkur eru á að hópur ungs fólks í Reykjavík bjóði fram í borg- arstjórakosningunum í vor. Gottskálk Dagur Sigurðarson, talsmaður hópsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að verið sé að ganga frá framboðslistanum. Búið sé að safna tilskildum fjölda meðmælenda og sagðist hann gera ráð fyrir að framboðsgögnum verði skilað inn til kjörstjórnar í dag eða á morgun. Gottskálk sagði að aðstandendur framboðsins kæmu til með að óska eftir að fá að kalla listann U-iist- ann, flokk unga fólksins. í fyrsta sæti framboðslistans verður Bjarni Þór Sigurbjörnsson, í öðru Kári Sturluson, í þriðja Val- gerður R. Vaigarðsdóttir, í fjórða Asgeir Friðriksson, í fimmta sæti Hlín Snorradóttir og í sjötta sæti verður Agnar Jón Egilsson. Borgar- stjóraefni flokksins verður Kári Sturluson. Spurt og svarað um borgarmálefni í TILEFNI borgarstjórnarkosninga, sem fram fara í lok maí- mánaðar, mun Morgunblaðið gefa lesendum sínum kost á að beina fyrirspurnum til borgarstjórans í Reykjavík, Árna Sigfús- sonar, um hvaðeina í málefnum borgarinnar, sem þeir hafa áhuga á að spyrjast fyrir um. Hefur borgarstjóri fyrir sitt leyti samþykkt, að svara þessum fyrirspurnum. Lesendur Morgunblaðsins geta hringt í síma 691100 á milli kl. 11 og 12 árdegis frá mánudegi til föstudags og lagt spurningar fyrir borgarstjóra, sem blaðið kemur á framfæri.við hann og verða svörin birt nokkr- um dögum síðar. Einnig má senda spurningar í bréfi til Morg- unblaðsins. Nauðsynlegt er að nafn og heimilisfang fyrirspyij- amja, komi fram. I I i I i I I I I I I I I 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.