Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
19
EVRÓPUSÖNGVAKEPPNIN / i Dublin, írlandi, 30. april 1994 ,Æ$/ Land Heiti lags &/°o/<<? wÁ é/ 74 A 4 % p/ /<d 'h/&, W4 W/ ym mé/ yS/m 0/$/$/ WWWW'/ éy/ yi\m
1. Svíþjóð Stjárnorna
2. Finnland Bye Bye Baby
3. írland Rock’n Roll Kids
4. Kýpur I am human too
5. ÍSLAND NÆTUR
6. Bretland We will be free
7. Króatía Nek’ti bude Ijubav sva
8. Portúgal Chamar a Musica
9. Sviss Sto pregando
10. Eistland Nagu Merelaine
11. Rúmenía Dincolo de nori
12. Malta More than love
13. Holtand Waar is de zon
14. Þýskaland Wir geben’ne Party
15. Slóvakía Nekonecna piesen
16. Litháen Sweetheart’s Lullaby
17. Noregur Duett
18. Bosnía-Her. Ostani kraj mene
19. Grikkland To Trehantiri
20. Austurríki Fúr den Frieden der Welt
21. Spánn Ella no es ella
22. Ungverjal. Kinek mondjam el vétkeimet
23. Rússland Eternal Wanderer
24. Pólland To nie ja!
25. Frakkland Je suis un vrai gargon
TÖFLU þessa geta sjónvarpsáhorfendur notað til að skrá niður stigagjöf landanna í Söngvakeppninni.
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu verður haldin annað kvöld
Islenska lagiö vekur athygli
„HÉR ERU allir mjög jákvæðir gagnvart laginu okkar, enda
spá enskir og írskir veðbankar okkur góðu gengi, eða 3. sæt-
inu. Sú spá hefur í för með sér að fjölmiðlamenn sýna okkur
mun meiri athygli en ella og undanfarna daga hef ég verið í
viðtölum við írskar, breskar, hollenskar og þýskar útvarpsstöðv-
ar, hollenska sjónvarpsstöð og fjölda dagblaða. Norska dagblað-
ið fjallaði til dæmis um okkur á heilli síðu í gær,“ sagði Sigríð-
ur Beinteinsdóttir, söngkona, þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við hana í Dyflinni á Irlandi í gær.
Söngvakeppni sjónvarps-
stöðva í Evrópu verður haldin í
Dyflinni annað kvöld, laugardag,
og hefst útsending Ríkissjón-
varpsins kl. 19. íslenska lagið,
Nætur eftir Friðrik Karlsson, er
fimmta í röðinni, en alls taka
25 þjóðir þátt að þessu sinni.
Sigríður sagði að íslenski hóp-
urinn tæki spám um gott gengi
með jafnaðargeði. „Ég kippi mér
ekki upp við þetta, enda hafa
veðbankar nú ekki alltaf verið
sannspáir,11 sagði hún. „Auðvitað
hef ég samt metnað til að gera
vel og vona að það takist. Fyrsta
æfingin gekk illa, þar sem hljóð-
kerfið virkaði ekki sem skyldi,
en næsta æfing, sem var á mið-
vikudag, gekk mjög vel, svo ég
vona að þetta smelli allt saman
á laugardaginn."
Handlama söngkona
Friðrik Karlsson lagahöfundur
bauð blaðamönnum og öðrum
gestum til móttöku á skemmti-
stað í Dyflinni á miðvikudags-
kvöld, „Ég verð nú að viðurkenna
að ég er handlama eftir þá mót-
töku, því það komu hátt í 800
manns og ég heilsaði öllum með
handabandi,“ sagði Sigríður og
hló við. „Þetta er að ég held fjöl-
mennasta móttaka keppenda
hingað til og staðfestir þá at-
hygli sem við höfum notið hér.“
Félag íslenskra rannsóknarlögreglumanna
Kynna sér mögn-
leika á svikum í
kortaviðskiptum
FÉLAG íslenskra rannsóknarlögreglumanna heldur árlega námstefnu
sína á Hótel Örk í Hveragerði á laugardag, 30. apríl. Á námstefnunni
verður fjallað um rafræn greiðsluviðskipti. Bjarnþór Aðalsteinsson,
formaður félagsins, segir að rannsóknarlögreglumenn ætli að afla sér
sem víðtækastrar þekkingar á því hvaða möguleikar eru til svika í
viðskiptum með kreditkort og debetkort.
Námstefnan byijar þó á óskyldu
efni, þegar Björn Halldórsson, lög-
reglufulltrúi fíkniefnalögreglunnar,
flytur erindi um óhefðbundnar rann-
sóknir í fíkniefnamálum. Að erindi
hans loknu munu rannsóknarlög-
reglumennb einbeita sér að rafræn-
um greiðslumátum. Fulltrúar frá
Landsbankanum og Visa ísland
halda erindi um kredit- og debetkort
hér á landi og yfirmaður öiyggis-
mála Master Card í Evrópu, Hans
Peter Wolfram, ræðir um stöðu þess-
ara mála erlendis, sem og aðstoðar-
yfirmaður öryggismála hjá Visa Int-
ernational, Steve Vahnisberg.
Möguleikar á svikum
„Rafræn greiðsluviðskipti eru að
taka yfír hið hefðbundna greiðslu-
form, peninga og ávísanir,“ sagði
Bjarnþór Aðalsteinsson í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta fækkar örugg-
lega handtökum hjá okkur vegna
ávísanamisferlis, en við viljum kynna
okkur hvaða möguleika þetta nýja
greiðsluform opnar til svika. Við
ætlum að reyna að vera skrefí á
undan og vera við öllu búnir ef slík
mál koma upp hér og vega og meta
hvort þessi greiðslumáti er jafn ör-
uggur og nú lítur út fyrir."
Bjamþór sagði að hér á landi væri
misferli með greiðslukort bundið við
þjónfað og misnotkun á koitunum.
„Erlendis eru dæmi um mun umfangs-
meiri svik, til dæmis þar sem rafrönd
á korti er stolið með sérstökum búnaði
og búið til nýtt kort. Þessa möguleika
alla ætlum við að kynna okkur, svo
þeir komi okkur ekki á óvart síðar.“
í Félagi íslenskra rannsóknarlög-
reglumanna eru rannsóknarlögreglu-
menn af öllu landinu, en þeirra fjöl-
mennastir eru starfsmenn Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
Idr. affoan sting roxettel primal scream |
u2
tori amos
!2;
1«!
ALLIR
GCISLflDISKflR
Á 1499
I TIU DAGD
28.4. TIL 7.5.1994
in tfie name of the fatfter
Breiðdalsvík
Framkvæmd-
ir við stækk-
un liafnarinn-
ar að hefjast
Breiðdalsvík.
FRAMKVÆMDIR við stækkun
hafnarinnar á Breiðdalsvík hefj-
ast á næstunni. Hreppsnefnd
Breiðdalshrepps hefur ákveðið að
taka tilboði við að selja niður 50
metra stálþil og kant.
Smábátar eru oft í hættu í Breið-
dalsvíkurhöfn vegna veðurs og á
lenging hafnargarðsins meðal annars
að bæta úr því. Kostnaðaráætlun
fyrir framkvæmdirnar í sumar hljóð-
aði upp á 35,7 milljónir kr. Alls bár-
ust tíu tilboð í verkið og var það
lægsta 45,8% af kostnaðaráætlun og
það hæsta tæp 3% yfir kostnaðar-
áætlun. Hafnamálastofnun lagði til
að gengið yrði til samninga við Tré-
vang hf. á Reyðarfirði en það fyrir-
tæki var með 4. iægsta tilboðið og
var það ákveðið. Nam tilboð fyrir-
tækisins 22,2 milljónum eða liðlega
62% af kostnaðaráætlun Hafnamála-
stofnunar. SH
Nýr vörubíll
endastakkst
MAÐUR slapp ótrúlega lítið
meiddur þegar vörubíll sem hann
ók endastakkst á Borgarfjarðar-
vegi eystri á þriðjudag. Billinn var
að koma frá því að ryðja siyó af
veginum þegar snjótönnin skall
skyndilega niður á veginn. Við það
missti ökumaðurinn vald á bílnum,
hann rann út í vegkannt, rakst í
snjóruðning, fór yfir snjótönnina
og hentist um 80 metra.
Ökumaðurinn slapp furðu lítið
meiddur úr slysinu. Hann var spennt-
ur í bílbelti og er talið að því sé að
þakka að ekki fór verr. Bílinn, sem
er aðeins þriggja mánaða gamall, er
hins vegar gjörónýtur.
A 50 ára
Lýðvekfis-
afmæli ;
íslands 1
floggum
víðútaUt
Við minnum fyrirtæki
og stofnanir á að panta
fánanatímanlega.
Þú færð allar upplýsingar
um verð stærðir
offl. hjá Merkjalandi.
S. 68 80 66 & 7 85 85
Fax 68 75 57