Morgunblaðið - 30.04.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.04.1994, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRIL 1994 Reykjavíkurborg Atvinnu- miðlun iðnnema styrkt BORGARRÁÐ hefur samþykkt 150 þúsund króna styrk til rekst- urs Atvinnumiðlunar iðnnema. Stjórn Iðnnemasambands Islands fór fram á 1,2 millj. króna styrk til þess að unnt yrði að halda starfseminni gangandi í allt sum- ar. í greinargerð með beiðni Iðn- nemasambandsins segir að á und- anförnum þremur árum hafi At- vinnumiðlun iðnnema eða AMIN verið rekin. Á síðasta ári hafi rúm- lega 400 iðnnemar sótt um starf og tókst að útvega 116 nemum sumarstarf og starfsþjálfun. Bent er á að, þar sem ekki hafi tekist að halda úti starfsmanni allt sumar- ið hafi ekki reynst unnt að útvega öllum umsækjendum starf. Að auki hafí ekki verið fjármagn til að aug- lýsa eftir störfum eða skrifa bréf og hringja til atvinnurekenda. Fjölga atvinnutækifærum Með rekstri Atvinnumiðlunar iðn- nema vilji Iðnnemasambandið fjölga atvinnutækifærum iðnnema og stuðla að því að fleiri eigi kost á sumarvinnu við þá iðngrein sem þeir stund nám í. Þá sé brýnt að fleiri iðnnemar eigi kost á starfs- þjálfun. Minnt er á könnun, sem starfshópur á vegum menntamála- ráðuneytisins vann, en þar kom fram að um 30% þeirra sem ljúka námi í iðnmenntaskólum skili sér ekki til sveinsprófs. Landsliðið í hárskurði ÞETTA er landsliðið í karlaflokki ásamt módelum sínum. F.v. Björgvin Emilsson, Sigurkarl Aðalsteinsson og Ómar Diðriksson. Heimsmeistaramótið í hárgreiðslu og hárskurði íslendingur sigraði í litun VIKTORÍA Guðnadóttir, hárskerasveinn, sigraði í litun í einstak- lingskeppni sem fram fór samhliða heimsmeistaramótinu í hár- greiðslu og hárskurði, en mótið fór fram í London fyrir skömmu. Landslið íslands lenti í 18.-19. sæti, en alls sendu 34 þjóðir kepp- endur á mótið. Árangur Viktoríu er mjög glæsilegur, en um 100 keppendur kepptu um titilinn. Lovísa Jóns- dóttir, formaður Sambands hár- greiðslu- og hárskerameistara, sagði að mikil vinna lægi að baki þátttöku í móti eins og heims- meistaramótinu. Hún sagði að ís- lensku keppendurnir hefðu verið við æfingar allt frá því í haust. ísland hefur sent lið á heimsmeist- aramótið í nokkur ár og alltaf náð góðum árangri. Keppnin fer þannig fram að keppt er í hárgreiðslu og hár- skurði í herra- og dömuflokki. Þrír keppendur eru í hvoru liði. Auk þess er keppt í einstaklings- flokki í klippingu og litun. ísland átti þátttakendur í öllum flokkum. Auk Viktoríu keppti Þuríður Hall- dórsdóttir í hárgreiðslu og litun. Landslið Japans sigraði í hár- greiðslu og lið Bretlands sigraði í hárskurði á mótinu. Landsliðið í liárgreiðslu HÉR er landsliðið í hárgreiðslu ásamt módelum. F.v. Eyvindur Þorgilsson, Þórdís Helgadóttir og Björg Óskarsdóttir. Sigurvegari VIKTORÍA Guðnadóttir sigraði í litun. Hún er hér með módeli sínu, Snæbirni Steingrímssyni. RÚV og orkuveitur í samvinnu við Lands- og Búnaðarbanka Nýtt fyrirkomulag á greiðslu afnotagjalda HITAVEITA Reykjavíkur, Rafmagnsveita Reykjavíkur og Rafmagn- sveitur ríkisins hafa ásamt Ríkisútvarpinu samið við Landsbanka íslands og Búnaðarbanka íslands um svonefndar beingreiðslur. Um er að ræða nýtt fyrirkomulag á greiðslu afnotagjalda útvarps og sjónvarps og greiðslu rafmagns- og hitareikninga. Beingreiðslukerfíð var kynnt fréttamönnum á fundi með forystu- og talsmönnum veitustofnananna, RÚV og bankanna í gær. Þjón- ustunýjungin felst í því að viðskipta- vinir þessara fyrirtækja, sem eiga reikninga í Búnaðarbanka eða Landsbanka, geta látið skuldfæra beint af reikningi sínum í byijun hvers mánaðar. Þannig sparast við- skiptavinum og fyrirtækjunum bæði fé og fyrirhöfn. í stað 6-12 gíró- seðla munu fyrirtækin að jafnaði senda viðskiptavinum sínum eitt yfir- lit á ári, þar sem þeim er gerð grein fyrir viðskiptum sl. 12 mánuði. Þá Fuglaskoðun í Firðinum FUGLAFRÆÐINGAR verða í dag, laugardaginn 30. apríl, með sjónauka og fjarsjár við Hvaleyrarlón, Hafnarfirði. Þeir verða við Dráttarbraut- ina frá kl. 16 til kl. 18. í fréttatilkynningu segir m.a.: „Hvaieyrarlón er ákaflega áhugaverður staður til fugla- skoðunar og ekki minnst vegna þess að hann er inni í hjarta eins stærsta bæjarfélags lands- ins.“ verða þeir reikningar, sem greiddir eru annan hvern mánuð, skuldfærðir í hveijum mánuði, helmingi lægri upphæð í hvert skipti. 1.400.000 gíróseðlar gætu sparast Að sögn Þórsteins Ragnarssonar í kynningamefnd um beingreiðslur yrði sparnaður af því að fækka gíró- seðlum, sem veitustofnanir og RÚV senda út árlega, um 30% eða um 420.000 gíróseðla, um 21 milljón króna. Ef allir gíróseðlamir, sem sendir eru út árlega og eru um 1.400.000 talsins, hyrfu úr umferð og allir viðskiptavinir nýttu sér bein- greiðslukerfíð segir Þórsteinn að áætla mætti að sparnaður næmi um 70 milljónum króna árlega. Aðal- steinn Guðjohnsen rafmagnsstjóri segir forsvarsmenn veitustofnana og RUV hafa hug á að ívilna þeim við- skiptavinum sínum sem notfæri sér beingreiðslufyrirkomulagið með því að láta þá greiða Iægra gjald en aðra. Til að byrja með verði þó að fá reynslu á kerfið. Hann sagðist jafnframt vona að önnur fyrirtæki og orkuveitur fylgdu í kjölfar þeirra sem nú taka fyrstu skrefin í átt til pappírslausra viðskipta. Hörður Vilhjálmsson, fjármála- stjóri Ríkisútvarpsins, sagði að við undirbúning beingreiðslna hefði verið rætt við forsvarsmenn íslandsbanka og Samband sparisjóða. Sagðist hann vonast til að þessar bankastofnanir myndu ganga inn í beingreiðslukerf- ið áður en langt um liði. Ódýrasti kosturinn Ekkert færslugjald verður tekið af viðskiptavinum veitustofnana og RÚV til að byija með. Að sögn tals- manna bankanna tveggja, Lands- banka og Búnaðarbanka, er nú verið að taka upp gjöld fyrir ýmsa banka- þjónustu og því kæmi til greina að taka gjald af beingreiðslufærslum einnig. Talsmennimir voru þó sam- mála um að beingreiðslur yrðu ódýr- asti valkosturinn fyrir viðskiptavini til að greiða áðurnefnda reikninga. Eyðublað inn á öll heimili Ríkisútvarpið sendir á næstu dög- um út 55.000 A-gíróseðla til útvarp- snotenda. Með gíróseðlunum verða send eyðublöð sem viðskiptavinir Landsbanka og Búnaðarbanka geta fyllt út og beðið um að afnotagjöldin og rafmagns- og hitareikningar verði gjaldfærð út af reikningum þeirra. í júlí verða eyðublöðin send út með gíróseðlum Hitaveitu Reykjavíkur og Rafmagnsveitu Reykjavíkur og síðla sumars með gíróseðlum Rafmagn- sveitna ríkisins. Þannig er fyrirhugað að eyðublöðin fari þrisvar inn á hvert heimili í landinu. Auk þess er fyrir- hugað að auglýsa beingreiðslurnar í dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi. Talsmenn bankanna, fyrirtækj- anna og RÚV voru sammála um að þeir myndu hvetja viðskiptavini sína til að íhuga vel að notfæra sér bein- greiðslurnar, enda væru þær til mik- ils hagræðis og sparnaðar fyrir alla aðila. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Bergsteinn Gunnarsson, bóndi í Kasthvammi, hefur unnið mikið við hleðslu í S-Þing. á undanförnum árum, meðal annars á gamla bænum á Þverá. Búnaðarsamband S-Þingeyjarsýslu Búkollusjóður styrk- ir endurbyggingu á gömlum fjarhúsum Laxamýri, S-Þing. SAMÞYKKT var á aðalfundi Búnaðarsambands S-Þing., sem nýlega var haldinn að Breiðumýri, að veita fjárstyrk úr svokölluðum Búkollu- sjóði sem er atvinnu- og þróunarsjóður til endurbyggingar gamalla fjárhúsa á Þverá í Laxárdal, allt að 700.000 kr. Forsaga málsins er sú að áhuga- mannahópur í héraðinu hefur lýst áhuga sínum á endurgerð gamalla peningshúsa enda fer þeim ört fækk- andi sem heilleg eru. Búskaparminjar glatist ekki Tilgangurinn er einkum sá að byggingaraðferðir og búskaparminj- ar glatist ekki og það menningar- landslag sem einn er til á nokkrurn sveitarhæjum fái að halda sér. Með þetta í huga einkum verið litið til jarðanna Halldórsstaða og Þverár í Laxárdal, en þar er mikið af gömlum húsum og er endurbygging margra þeirra þegar hafin. Gamli bærinn Þverá hefur þegar verið byggður upp að hluta og í sum- ar verður ráðist í endurgerð fjóssii og brunnhússins sem standa áfö: við bæinn. Þá er vonast til að byrjí verði á fjárhúsunum sem eru frá þ um 1850. Á Halldórsstöðum er verið að gei upp gömlu íbúðarhúsin og unnið i að því að fá Náttúruvemdarráð, se er eigandi gamallar skemmu c stórra fjárhúsa, til að endurreisa þa byggingar. Vonast er til að jarðir þessar, se: eru samliggjandi, geti verið tengdi minjasafninu á Grenjaðarstað c Safnhúsi Þingeyinga, með það ; markmiði að lífga upp á gamla tín þannig að bæði ferðamenn og hé aðsbúar hafi ánægju af. - Atli. V.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.